Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.2002, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.2002, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. SEPTEMBER 2002 15 MYNDLIST Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Ljós- myndir Jóns Kaldals. Til 7.9. Gallerí Skuggi: Berglind Björnsdótt- ir og Holly Hughes. Til 8.9. Gallerí Sævars Karls: Ólöf Björg Björnsdóttir. Til 26.9. Gerðarsafn: Gerður Helgadóttir, Jó- hannes Jóhannesson og Valgerður Hafstað. Til 8.9. Gerðuberg: Við – öðruvísi samtíma- heimildir. Til 22.9. Hafnarborg: Jón Thor Gíslason. Til 9.9. Hús málaranna, Eiðistorgi: Rúna Gísladóttir og Messíana Tómasdóttir. Til 22.9. i8, Klapparstíg 33: Helgi Þorgils Friðjónsson/Kristinn G. Harðarson. Til 12. okt. Listasafn Akureyrar: Nútímalist frá arabaheiminum. Til 8.9. Listasafn ASÍ: Guðrún Hrönn Ragn- arsdóttir, Ásmundarsal. Gryfja: Kristveig Halldórsdóttir. Til 22.9. Listasafn Borgarness: Karl Kristján. Til 11.9. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga kl. 14–18, nema mánudaga. Listasafn Reykjanesbæjar: Einar Garibaldi Eiríksson. Til 20. okt. Listasafn Reykjavíkur - Ásmundar- safn: Listin meðal fólksins. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús: MHR-30 – afmælissýning Mynd- höggvarafélags Íslands. Til 6. okt. Listasafn Reykjavíkur - Kjarvals- staðir: Ljósmyndir og líkön af bygg- ingum eftir arkitektana Arno Lede- rer, Jórunni Ragnarsdóttur og Mark Oei. Til 27. okt. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sumarsýningin Hin hreinu form. Til 22.9. Listasalurinn Man, Skólavörðustíg: Haukur Dór. Til 17.9. Listasetrið, Kirkjuhvoli, Akranesi: Margrét og Guðbjörg Hákonardætur. Til 29.9. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Eero Lintusaari og Harri Syrjanen. Til 25.9. Norræna húsið: Götulistaverk Kajols. Til 22.9. Clockwise – Ný norræn sam- tímalist. Til 20. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B: Grasrót 2002. Til 29.9. Ráðhús Reykjavíkur: Ulla Tarp Danielsen. Til 23.9. Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Átta sýningar á alþýðulist. Til 15.9. Sjóminjasafn Íslands: Rebekka Gunnarsdóttir. Til 8.9. Skálholtsskóli:Benedikt Gunnarsson. Til 1. okt. Slunkaríki, Ísafirði: Þóroddur Bjarnason. Til 8.9. Þjóðarbókhlaða:Yfirlitssýning á verkum Halldórs Laxness. Til 31. des. Þjóðmenningarhúsið: Landafundir. Ljósmyndir úr Fox-leiðangrinum. Vestur-íslenskar bókmenntir. Skák- einvígi aldarinnar. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Langholtskirkja: Strengjasveit Sin- fóníuhljómsveitar Íslands. Stj.: Ervin Schiffer. Kl. 18. Salurinn, Kópavogi: Guðrún Jó- hanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleik- ari. Kl. 20. Sunnudagur Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur og bandaríski sellóleikarinn Nina Flyer. Kl. 20. Þriðjudagur Salurinn, Kópavogi: Freyja Gunn- laugsdóttir klarínettuleikari, Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari, Nicole Vala Cariglia sellóleikari og Árni Heimir Ingólfsson píanóleikari. Kl. 20. LEIKLIST Borgarleikhúsið: Með vífið í lúkun- um, sun. Leikfélag Sólheima: Hárið okkar, lau. Iðnó: Beyglur, sun., mið., fim., fös. Hafnarfjarðarleikhúsið: Sellófon, fim., fös., lau. Loftkastalinn: Leikfélag framhalds- skólanna: Fullkomið brúðkaup, frums. lau., þrið., mið., fim., fös. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U taka til fyrirmyndar, ber raunar skylda til. Er engan veginn sérenskt fyrirbæri heldur víða iðkað í ýmsum staðbundnum myndum, vísa hér til haustsýninga FÍM fyrir liðlega ald- arfjórðungi. Aðeins einn Íslendingur var með að sinni, Magnús Pálsson, sem hefur búið í London undanfarin ár, en Karólína Lárusdótt- ir sem verið hefur með í fjögur ár í röð sem telst drjúgur sómi, fjarri að sinni. Á efri hæð- inn, svonefndri, Sackler Wing, stendur yfir sýning á 80 meistaraverkum úr safni Werner og Gabrielle Merzbacker, með Derain og Kandinsky sem meginása, mikið af þýskum expressjónisma, Der Blaue Reiter og Die Brücke, litríkum kúbisma, Léger, Popova, svo og fleira í þeim dúr. Mannfjöldinn slíkur að eftir eina yfirferð var ég búinn að fá nóg, sýn- ingin stórviðburður vegna margra sjaldséðra verka af háum gæðaflokki. Lýkur 17. nóv- ember. Á Hayward Gallery biðu mín tvær mikils háttar ljósmyndasýningar, annars vegar á verkum Williams Eggelstons, sem var braut- ryðjandi litljósmyndunar í Bandaríkjunum, en hins vegar á svart-hvítum myndum samland- ans Ansels Adams í tilefni aldarafmælis hans. Framlag Eggelstons hið athyglisverðasta, en ég féll gjörsamlega fyrir myndum Adams sem má telja stórmeistara í sínu fagi og minna kristalstær vinnubrögðin ekki svo lítið á Girt- in. Landslagið bert og sannferðugt var sérfag Adams og hér vann han líkast yfirmáta kröfu- hörðum listamanni, þannig sífellt að endur- vinna og fullkomna gamlar tökur. Yosemite- garðurinn var honum kært viðfangsefni, en myndir hans þaðan taka fram öllu því sem ég hef áður séð frá þeim nafnkennda stað um tign og blæbrigðaríkdóm, þótt einungis í svart-hvítu séu. Ekki fór framhjá mér hve vel fólkið skoðaði myndirnar, og var mun fjöl- mennara á sýningu Adams á efri hæðinni en Eggelston á þeirri neðri, og stóð jafnframt lengur við. Ansel Adams var vígður ljósmynd- inni út í fingurgóma og þótt sjálfmenntaður væri í faginu skrifaði hann tvær bækur um ljósmyndun sem notaðar eru sem kennsluefni í háskólum víða um heim. Sýningarnar standa til 22. september. Maður getur verið fullkomlega sammála því sem skrifað stendur; að safn arkitektsins Sir John Soanes (1753–1837) í húsi hans á 13 Lin- coln’s Inn Field, sé eitt hið furðulegasta í Lundúnum. Húsið var gefið þjóðinni á dán- arári hans með því skilyrði, að ekki yrði hrófl- að við neinu innan þess og engu breytt. Næst- um óframkvæmanleg ákvæði að standa við, en hér hefur það verið reynt sem gerir það svo sérstætt. Arkitektinn var mikill safnari list- og fornmuna, kraðakið á veggjum og gólfi yf- irgengilegt á köflum og nær ógerlegt að njóta sumra málverkanna, en hvílíkt kraðak og hví- lík málverk! Soanes er nafnkenndastur fyrir að hafa teiknað Englandsbanka, einnig er hann höfundur fyrstu byggingarinnar sem var hugsuð sem listasafn opið almenningi í Eng- landi, Dulwich Picture Gallery, og tekin var sem fyrirmynd slíkra um langan aldur, opnað 1817. Safnið nánast upp í sveit en sannarlega heimsóknar virði ekki síst á sólbjörtum sum- ardegi. Mjög fallegt og vel hugsað, nánast eins og herrasetur með stórum garði og indælum veitingastað, ekki spilla verkin á veggjunum; Rafael, Rembrandt, Rubens, Canaletto, Po- ussin, Watteau, Claude, Murrillo, Gainsboro- ugh m.m. Þegar mig bar að var þar sýning nokkurra eldri hollenzkra málara á ítölsku landslagi m.a. eitt gullfallegt málverk eftir Al- bert Cyup (!), hann heimsótti aldrei Ítalíu frekar en önnur lönd, en hefur fengið inn- blástur af frumrissum félaga sinna. Stutt að fara frá Linchol’s Inn niður að Somerset húsi/Embarkment, þar sem m.a. Courtauld Galleríið er til húsa, lítið en gull- fallegt safn með meistaraverkum eftir van Gogh, Renoir, Cézanne, Monet, Degas, Gauguin og Toulouse Lautrec. Þar rak ég augun í gullmola er hrökk upp úr Cézanne á gamals aldri: Mér líkar vel við fólk sem hefur náð háum aldri án þess að brjóta viðteknar venjur! Þetta sagt af manninum sem iðulega er nefndur faðir nútímalistarinnar og ber í sér djúpa vizku. Varðveisla eldri hefða og umbylt- ing þeirra þannig ekki af jafn óskyldum meiði og margur hyggur, sér í lagi á nýrri tímum. Frekar að það varpi nýju og fersku ljósi á gildi fortíðar. Slagorð módernismans, í listum liggur eng- in leið til baka, þannig háskalegur miskiln- ingur eins og dæmin sanna. Að sjálfsögðu leit ég inn á Þjóðlistasafnið til að minnast við vini mína Vermeer, Pieter de Hock, Saenredam og Hammershöi, en frá nærveru þeirra kemur maður alltaf ríkari. Er- indið var þó frekar að skoða hina árlegu sýn- ingu, BP Portrait Award, í Portrett-safninu við austurenda þess og sýningu á, dressi og drappi, í myndlistinni frá upphafi vega í vest- urálmunni, Sainsbury Wing, fabric of Vision, báðar jafn fróðlegar og þær voru ólíkar. Klæðnaður og fataefni hafa skipt ómældu máli í sögu listarinnar ekki síður en mannsins og Englendingar hafa af 500 ára hefð í portrett- list að ausa og rækta hana vel, einkum á síðari árum. Á hvortveggja sviðinu er þekkingu landans ábótavant einkum er sárt að vita til þess hve portrettlistin er misskilin, góð port- rettmynd er mikil list í sjálfri sér, og skiptir litlu máli af hverjum myndin er. Ekki frekar um almenna kortlagningu myndefnisins að ræða en til að mynda landslagsins, öllu frekar tjáhátt og útgeislun. Í Tilefni hálfar aldar krýningarafmælis hennar hátignar Elísabetar II, er sýning á gersemum krúnunnar í svonefndu Drottning- argalleríi í Buckingham-höllinni, sem stendur til 12. janúar; Royal Treasures. A Golden Jubilee Celebration. Ómaksins vert að halda þangað, jafnt fyrir þá sem eru upptendraðir af prjáli og völundarsmíði sem góðum málverk- um, af hvortveggja er mikil gnótt, einkum hinu fyrrnefnda. En hver skyldi hafna því að berja augum fágætar teikningar eftir Leon- ardo da Vinci, Michaelangelo, Hans Holbein yngri, ásamt málverkum eftir Rembrandt, Al- bert Cuyp o.fl, sem og óviðjafnanlegt indversk djásn? Í öllu falli ekki ég … Sir Thomas Lawrence: Portrett af Sir John Soane, R.A. 1829. Ansel Adams: Sólarris á vetri, Sierra Nevada, Kaliforníu, séð frá Lone Pine, 1944.Lucien Freud: Hennar hátign drottningin, olía á léreft, 2000–01. Frá sýningunni í Buck- ingham-höll. Rembrandt van Rijn: Móðir listamannsins, um 1629, olía á léreft. Buckingham-höll. Diana Leslie: Marco Polo Responsibility, olía á léreft. Frá sýningunni BP Portrait Award. Edouard Vuillard (1868–1940) Ungar stúlkur á göngu, olía á léreft, 1891–2. Frá sýningunni dress og drapp, Sainsbury Wing.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.