Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Síða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002 ÚT er komin í enskri þýðingu bókin After Nature (Að nátt- úrunni lokinni) en hún er fyrsta skáldverk þýska rithöfundarins W.G. Sebalds, sem lést sviplega í janúar á þessu ári. Sebald sendi frá sér nokkrar skáldsögur sem skipuðu honum í röð fremstu rit- höfunda 20. ald- ar, en skáldsaga hans Austerlitz kom út í október árið 2001. Þar, líkt og í öðrum skáldsögum sín- um, nýtir höfundurinn sér nýja möguleika í stíl og formi, en bak- svið sögunnar er hin myrka saga Evrópu á síðustu öld. Fyrsta skáldverk höfundarins sem nú kemur út í enskri þýð- ingu Michaels Hamburgers heit- ir á frummálinu Nach der Natur. Ein Elementargedicht og kom út árið 1988. Þar eru heimspeki- legar hugleiðingar þriggja manna, endurreisnarmálarans Matthias Grünewalds, landkönn- uðarins Georgs Stellers og höf- undarins sjálfs settar í skáldlegt samhengi. Í bókinni koma fram mörg af þeim minnum sem höf- undurinn kannar nánar í síðari skáldverkum sínum. Sebald var þýskur gyðingur sem flutti ungur til Bretlands. Hann bjó lengst af í Norwich í Englandi þar sem hann gegndi stöðu prófessors við University of East Anglia. Xingjian og saga Kína Í september kom út í enskri þýð- ingu skáldsagan One Man’s Bible (Eins manns Bibilía) eftir kín- verska nóbelsverðlaunahafann Gao Xingjian. Skáldsagan er þýdd úr frönsku og heitir á frummálinu Le Livre d’un homme seul. Höfundurinn er fæddur í austurhluta Kína árið 1940 en er í dag franskur rík- isborgari. Hann skrifar á frönsku og hefur unnið sem rit- höfundur, þýðandi, leikskáld, leikstjóri, gagnrýnandi og myndlistarmaður. Fyrsta skáld- saga Xigjians, La Montage de l’Âme (Soul Mountain/Sálna- fjall), vakti gríðarlega athygli og ávann honum nóbelsverðlaunin árið 2000. Þar setur höfund- urinn æskuminningar sínar í al- þýðulýðveldinu Kína í skáldlegt samhengi. Í Sálnabiblíunni vinn- ur höfundurinn áfram á ævi- sögulegum nótum en þar er les- andinn settur inn í angist aðalsöguhetju bókarinnar á tím- um menningarbyltingarinnar í Kína. Skrautleg ævi Peters Sellers Út er komin ný ævisaga um breska kvikmyndaleikarann Pet- er Sellers. Nefnist hún Mr. Strangelove: A Biography of Peter Sellers (Hr. Strangelove: Ævisaga Peters Sellers) og er eftir kvikmyndafræðinginn Ed Sikov. Sá hefur áður sent frá sér bækur m.a. um leikstjórann Billy Wilder og um „Screwball“- gamanmyndaformið. Bók Sikovs um Peter Sellers er byggð á tals- verðum rannsóknum og gefur að sögn útgefenda djúpa innsýn í stutta og viðburðaríka ævi snill- ingsins Peters Sellers. Rakin eru einmanaleg æskuár Sellers, fjallað er um upphaf ferils hans og tengsl leikarans við stjörnur á borð við Alec Guinnes, Sophiu Loren og Shirely MacLaine. Þá er fjallað ítarlega um samstarf Sellers og leikstjóra á borð við Stanley Kubric, Billy Wilder og Blake Edwards. ERLENDAR BÆKUR Fyrsta skáld- verk Sebalds W.G. Sebald H LJÓMSVEITIN The Prod- igy, sem eitt sinn heiðraði íslenska aðdáendur með nærveru sinni, er fræg fyrir að fara sínar eigin leiðir í tónlist og myndbandsgerð. Langeygir aðdáendur sveit- arinnar glöddust um daginn þegar hún gaf loksins út nýtt lag eftir langa þögn. Lagið heitir „Baby’s got a Temper“ og myndbandið er afar óvenjulegt og ögrandi eins og Prodigy er von og vísa. Í myndbandinu koma hljómsveitarmeðlimir akandi, klæddir borgaralegum fötum, sköll- óttir og kallalegir. Þeir koma að stóru plani, fara inn í hrörlegt hús og setjast fyrir framan spegla í búningsherbergi. Annars staðar í hús- inu er fjós og þar sitja ljóshærðar, föngulegar og berbrjósta stúlkur á mjaltastólum og mjólka þrýstin júgur kúnna í litlar flöskur. Feit, illgjörn kona gengur um með staf og lem- ur stúlkurnar áfram ef henni finnst þær slá slöku við við mjaltirnar. Konan safnar flösk- unum saman í trog sem hún fer með í sölulúgu, lýðurinn grípur flöskurnar og svolgrar mjólk- ina. Hljómsveitarmeðlimir umbreytast fyrir framan speglana, skipta um föt, setja upp hár- kollur og mála sig í kringum augun. Þeir storma fram á sviðið og upphefja söng og hljóðfæraslátt, rytjulegir rafpönkarar af guðs náð. Nokkrar kúnna slíta sig lausar af bás- unum, flykkjast í áhorfendastæðin og æða trylltar fram og aftur. Stúlkurnar halda áfram igy þótti á sínum tíma svo gróft að bannað var að sýna það á bresku sjónvarps- og tónlist- arrásinni MTV. Hér á landi er nýja mynd- bandið „Baby’s got a Temper“ sýnt í PoppTíví frá morgni til kvölds, á barnatíma jafnt sem fréttatíma, auðvitað ásamt fleiri „klúrum“ tón- listarmyndböndum. Skyldi koma að því einn góðan veðurdag að tónlistarmyndbönd verði flokkuð eftir innihaldi, líkt og í MTV, svo við- kvæmar sálir og börn geti forðast ofbeldisfull og klámfengin myndbönd? Það er löngu orðið tímabært. En er myndband Prodigy bara enn ein birt- ingarmynd hins frjálsa kláms á fjölmiðlaöld? Á Radíó X var á dögunum skemmtileg umræða um áðurgreint myndband og túlkun þess. Um- breyting hljómsveitarmeðlima táknar eilíft streð listamannanna við að uppfylla útlits- og ímyndarkröfur markaðarins. Kýrnar eru tón- listin sem mjólkuð er endalaust til að anna græðgislegri eftirspurn. Með mjaltastúlkunum brjóstgóðu er verið að hæðast að hamslausri nektar- og líkamsdýrkuninni í tónlistargeir- anum. Þegar öll kurl koma til grafar gerir myndband Prodigy botnlaust grín öllum klisj- unum, listamönnunum, aðdáendunum / áhorf- endunum og tónlistariðnaðinum í heild. Því er sjaldnast svo farið að tónlistarmyndbönd séu svo djúp og vitsmunaleg og gleðiefni þegar það gerist. Það þarf Undrabarnið til. að mjólka bleika spenana í nærmynd undir dynjandi tónlistinni, mjólkin spýtist út fyrir flöskurnar, upp í munninn á þeim og á ber brjóstin. Fólkið verður æ æstara í mjólkina, stúlkurnar hafa varla undan og hvítar, krampakenndar mjólkurgusurnar standa í sí- fellu fram úr þrútnum spenunum. Brátt er mjólkin á þrotum og lagið á enda, hljómsveitin afklæðist gervinu, strunsar framhjá óðum lýðnum og ekur á brott. Eftir standa nokkrir þambarar á ruslaralegu planinu og strjúka af sér mjólkurskeggið. Það sem helst hefur vakið umtal í mynd- bandinu eru kynferðislegar tilvísanir sem varla fara á milli mála. Eitt myndbanda Prod- FJÖLMIÐLAR KLÚRAR KÝR S k y l d i k o m a a ð þ v í e i n n g ó ð a n v e ð u r d a g a ð t ó n l i s t a r m y n d b ö n d v e r ð i f l o k k u ð e f t i r i n n i h a l d i , l í k t o g í M T V, s v o v i ð k v æ m a r s á l i r o g b ö r n g e t i f o r ð a s t o f b e l d i s f u l l o g k l á m f e n g i n m y n d - b ö n d ? S T E I N U N N I N G A Ó T TA R S D Ó T T I R móður mína. Núna eru það hins veg- ar karlar sem eru til skoðunar. Í aðal- hlutverkinu er Javier Camara. Hann leikur hinn feimna Benigno sem elsk- ar stúlku í dái. Þetta er sérkennileg manngerð en þrátt fyrir að flestir áhorfendur hljóti að líta á hann sem pervert hljótum við um leið að hafa samúð með honum. Þessi saga reyn- ist vera eins konar Þyrnirósarsaga frá sjónarhorni prinsins sem tekst að lokum að vekja Þyrnirós úr dái. Nema að aðferðin er svo ýkt að hún ætti að ganga framaf mörgum. [...] Semsé: Pínulítið öðruvísi Almodov- ar en ögrandi þó að vanda og í myndinni eru atriði sem gefa þeim svakalegustu (t.d. þessu í Kiku forð- um daga) ekkert eftir. Hraðinn er að- eins minni en venjulega og það kost- ar meira átak að hafa hluttekningu með Benigno en t.d. Manuelu úr Allt um móður mína. En eftir stendur eft- irminnileg mynd sem enginn ætti að missa af. Ármann Jakobsson Múrinn www.murinn.is JÁ, mér finnst Pedro Almodovar æð- islegur. Eins og öllum öðrum. Missi ekki af honum. En í mestu uppáhaldi hjá mér eru þessar myndir: Konur á barmi taugaáfalls, Bittu mig, elskaðu mig og Allt um móður mína. Kika var líka fín. Og nýja myndin er ekki slæm heldur þó að hún sé ekki ein af þessum bestu. Hún er aðeins hægari og ekki jafnfyndin og sumar en þó er í henni allt sem einkennir myndir snillingsins: Þrár og perversjónir, til- finningaflóð og sorgir, sérkennileg en heillandi lógík og furðuleg samtöl. Hér er sögð saga tveggja sam- banda. Önnur sagan snýst um blaðamann sem hrífst af konu sem er nautabani en missir hana svo í hringnum – eða hafði hann misst hana áður? Á spítalanum þar sem hún liggur í dái kynnist hann öðrum manni sem hefur hjúkrað stúlku í dái í mörg ár og kemst að því að hjúkr- unarmaðurinn hafði dáð stúlkuna áður í fjarlægð en hefur nú ákveðið að helga líf sitt því að hjúkra henni. Venjulega hafa konur borið uppi myndir Almodovars, ekki síst Allt um Morgunblaðið/Kristinn Tvíhöfða þurs. ÖÐRUVÍSI ALMODOVAR I Talsverðar umræður um hlutverk skáldsögunnar ísamtímanum hafa spunnist í kringum réttarhöldin yfir franska rithöfundinum Michel Houellebecq sem kærður hefur verið fyrir níð um íslam. Eins og sagt er frá í grein í Lesbók í dag er Houellebecq sakaður um að hafa látið niðrandi orð falla í viðtölum við frönsk tímarit um íslam og auk þess hefur að- alpersónan í nýjustu skáldsögunni hans ímugust á múslimum. Salman Rushdie hefur nú komið Hou- ellebecq til varnar eins og sagt er frá í greininni en í Frakklandi hafa menn skipst í tvær fylkingar með og á móti. Umræðan annarsstaðar hefur og verið tals- verð, til dæmis var nýlega skrifuð áhugaverð grein í breskt blað þar sem hanskinn er tekinn upp fyrir Ho- uellebecq, ekki aðeins vegna góðs málstaðar heldur ekki síður vegna þess að hann hafi vakið athygli á því hvað skáldsagan sé lítils megnug í hinni sam- félagslegu umræðu. IIGreinina, sem birtist í The Observer 22. sept-ember, skrifar Mary Riddell. Hún kvartar mikið undan því hvað breska skáldsagan sé í litlum tengslum við breska pólitík og taki yfirleitt lítinn þátt skáldsagnahöfunda á málþingi um bresku skáldsög- una hér á landi fyrir skömmu var til dæmis bent á að íslenska skáldsagan hafi skirrst við að fjalla um fjöl- menningarsamfélagið og vandamál sem því tengjast. Eysteinn Þorvaldsson segir svo í viðtali í Lesbók í dag að sér þyki vanta ástríðu í kveðskap yngstu ljóðskáld- anna hér og einnig skaphita og afstöðu. Hann segir slíkt kannski ekki lengur í tíðarandanum en enginn yrki gott ljóð nema honum liggi eitthvað á hjarta. IV Það væri fráleitt að gera þá kröfu að rithöf-undar tækju afstöðu til samfélagsmála í skáld- skap sínum eða að þeir tækju ákveðin vandamál til umfjöllunar. Það væri tímaskekkja. Það er hins veg- ar áhugavert að leiða hugann að því hvernig skáld- skap er verið að skrifa um þessar mundir, hvernig hann er skrifaður, um hvað og hvers vegna. Eysteinn segir að ljóð ungra skálda fjalli nú ekki um félagslegt óréttlæti heldur um hversdaginn og einkalífið. Smá- smuguleg sjálfsskoðun hefur og verið áberandi við- fangsefni skáldsögunnar síðustu ár. Segir það ef til vill meira um ríkjandi ástand en við viljum vera láta? í samfélagsumræðunni. Hún rifjar upp að Söngvar satans eftir Salman Rushdie sé síðasta skáldsagan sem hafi blandað sér í stjórnmálalega umræðu. Upp á síðkastið hafi vart verið minnst á pólitík og skáld- skap í sama mund nema hvað vangaveltur hafi verið uppi um það hvort Bridget Jones sé íhaldsmaður. Riddell segir enn fremur að breskar skáldsögur dragi ekki upp breiða samfélagsmynd eins og bandarískir höfundar á borð við Don DeLillo, Jonathan Franzen og Jane Smiley hafi gert í nýlegum skáldsögum. Þetta sé einnig það sem Houellebecq sé að glíma við í um- deildum skáldsögum sínum, Öreindunum og þeirri nýjustu, Platforme. Riddell telur að honum hafi ekki tekist neitt sérstaklega vel upp og þegar upp sé staðið sé hinn raunverulegi skandall hvað skáldsagan er bitlaus. IIIUmræðan um samfélagslegt hlutverk skáldsög-unnar og skáldskapar yfirleitt er ekki ný af nál- inni. Krafan um að rithöfundar taki afstöðu til sam- félagsmála í skrifum sínum hefur þó verið mishávær. Um þessar mundir heyrist hún úr ýmsum áttum, einnig hérlendis. Í umræðum íslenskra og breskra NEÐANMÁLS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.