Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Side 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002
Í
ÁR er þess minnst að 100 ár eru liðin frá
fæðingu danska arkitektsins og hönnuð-
arins Arne Jacobsen. Í seinasta mánuði
var opnuð sýning í vestursal Kjarvals-
staða á helstu verkum hans á sviði hús-
ganga-, iðn- og textílhönnunar, en Jacob-
sen er án efa þekktastur hér á landi fyrir
verk sín á því sviði. Í heimalandi sínu er
hann ekki síður kunnur sem frumherji nútíma-
arkitektúrs á 4. áratugnum og einn þekktasti
arkitekt Danmerkur á 20. öld. Í verkum hans
fléttast saman áhrif frá fagurfræði alþjóðlegs
módernisma og danskri hefð. Hann teiknaði
m.a. húsgögn, vefnað, veggfóður og borðbúnað
en mörg af frægustu húsgögnum hans voru
upphaflega hönnuð sem hluti af einstökum
byggingarverkefnum. Áhugavert er að bera
byggingar Arne saman við húsgagnahönnun
hans, þar sem tilfinning höfundarins fyrir létt-
leika og ótrúlega næmt formskyn hans skín í
gegn í hverjum hlut.
Rætur í nýklassík
Arne Jacobsen fæddist í Kaupmannahöfn ár-
ið 1902. Hann ólst upp á yfirskreyttu heimili vel
stæðra foreldra í Kaupmannahöfn og vakti
snemma athygli fyrir góða teiknikunnáttu. Á
unglingsárum komst hann í kynni við bræðurna
Mogens og Flemming Lassen, sem báðir urðu
þekkt nöfn í danskri byggingarlist. Þau kynni
urðu til þess að Arne ákvað að hefja nám í arki-
tektúr en hugur hans hafði fremur staðið til
myndlistarnáms. Á námsárunum hlaut Arne
sína fyrstu viðurkenningu fyrir hönnun stóls
fyrir danska sýningarskálann á Heimssýning-
unni í París árið 1925, sem kennari hans, Kay
Fisker, teiknaði.
Rætur Arne Jacobsens sem arkitekts lágu í
þeim stranga, nýklassíska stíl sem kom fram á
árum fyrri heimsstyrjaldar. Þessi hreyfing kom
fram sem andsvar við rómantískum stílhreyf-
ingum aldamótaáranna en var um leið undanfari
þeirrar róttæku viðhorfsbreytingar sem varð
með tilkomu módernismans í arkitektúr. Að
þessu leyti stóð Arne Jacobsen í sömu sporum
og Alvar Aalto í Finnlandi og Erik Gunnar
Asplund í Svíþjóð en fyrstu verkefni allra þess-
ara frumherja módernisma í norrænum arki-
tektúr voru í klassískum anda. Íslenskur fulltrúi
þessarar sömu stefnu var Sigurður Guðmunds-
son arkitekt, sem kom heim frá námi í Kaup-
mannahöfn árið 1925, höfundur barnaskóla
Austurbæjar og íbúðarhúss Ólafs Thors við
Garðastræti 41 í Reykjavík.
Einbýlishús framtíðarinnar
Upphaf sjálfstæðs ferils Arne Jacobsens sem
arkitekts má rekja aftur til ársins 1928 er hann
hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um einbýlis-
hús framtíðarinnar ásamt Flemming Lassen.
Verðlaunahúsið var reist sem hluti heimilissýn-
ingar í Kaupmannahöfn árið 1929 og vakti mikla
athygli. Hringform hússins var afar nýstárlegt
sem og sú mynd sem höfundarnir gáfu af tækni-
væddu framtíðarheimili þar sem íbúarnir gátu
valið um að aka inn í húsið á bíl, sigla inn á hrað-
báti eða lenda á þaki þess í eins konar þyrlu. Sú
bernska sýn á möguleika tækninnar og nýrrar
byggingarlistar til að skapa nýjan og betri heim
fyrir allan almenning var táknræn fyrir tíðar-
andann á þessum bernskuárum módernismans,
áður en skuggi heimskreppu og aðdragandi
þótti borgarbúum Stelling-húsið vera í hrópandi
andstöðu við umhverfið og í blaðagreinum var
þess krafist að Arne Jacobsen yrði sviptur leyfi
til að hanna byggingar. Um líkt leyti teiknaði
hann rannsóknarhús fyrir Novo-lyfjafyrirtækið
í Kaupmannahöfn þar sem framhliðin var sveigð
í boga fyrir horn líkt og á Stelling-húsinu. Verk-
efnið markaði upphafið að löngu og farsælu
samstarfi en Novo var alla tíð meðal mikilvæg-
ustu viðskiptamanna teiknistofu Arne Jacobsen.
Sá frægi stóll Maurinn var í upphafi hannaður
fyrir kaffistofu Novo-fyrirtækisins árið 1952.
SAS-hótelið
Á árum seinni heimsstyrjaldar varð stöðnun í
danskri byggingarlist í kjölfar hernáms nasista.
Árið 1943 flúði Arne Jacobsen til Svíþjóðar og
dvaldi þar uns styrjöldinni lauk. Eftir stríðið
komst Evrópa aftur í tengsl við Ameríku, en
þangað höfðu margir frumherjar nútímaarki-
tektúrs flúið. Í þeim hópi voru nokkrir helstu
kennarar þýska Bauhaus-skólans, m.a. arki-
tektarnir Walter Gropius og Ludwig Mies van
der Rohe. Á námsárunum hafði Arne séð sýn-
ingu á verkum Mies í Berlín sem hafði sterk
áhrif á hann. Eftir seinni heimstyrjöld var Mies
van der Rohe á ný mikill áhrifavaldur á fram-
vindu módernisma í arkitektúr, með byggingum
og skipulagi í anda strangrar naumhyggju fyrir
IIT-tækniháskólann í Chicago og hugmynd
sinni um léttan útvegg háhýsa úr gleri og
málmi, sem átti eftir að setja mikinn svip á vest-
rænar borgir eftirstríðsáranna. Í þeim anda er
kunnasta verk Arne Jacobsen, SAS-hótelið í
miðborg Kaupmannahafnar, hannað og byggt á
árunum 1955–60. Áform flugfélagsins um að
reisa nútímalegt háhýsi í miðborg Kaupmanna-
hafnar að amerískri fyrirmynd voru umdeild frá
upphafi. Margir óttuðust að tuttugu hæða
kassalaga glerbyggingin myndi eyðileggja hina
sérstæðu ásýnd borgarinnar með sínum skraut-
legu, koparklæddu turnspírum. Þó var talið bót
í máli að arkitektinn var danskur. Enda þótt
SAS-hótelið beri öll útlitseinkenni hins alþjóð-
lega módernisma eftirstríðsáranna, sem fengið
hefur harðan dóm í ljósi sögunnar, eru það, líkt
og í öðrum verkum Arne Jacobsen, fínleg út-
færsluatriði og sterkt formskyn höfundarins
sem lyfta þessari byggingu skör ofar. Sjálfur
hótelturninn er skilinn að frá tvílyftri sökkul-
byggingu með inndreginni hæð. Augljós fyr-
irmynd að þessari uppbyggingu er Lever-
einni súlu. Lífrænt formið minnir mjög á bak
„Maursins“, stólsins fræga sem Arne átti síðar
eftir að hanna úr formbeygðri viðarplötu. Ýmis
vandkvæði voru á því að innleiða hugmyndir
módernismans í Danmörku þar sem þau efni
sem formhugsun stefnunnar byggðist á, stein-
steypa og stál, voru lítt notuð í dönskum bygg-
ingariðnaði. Þar var múrsteinninn allsráðandi
og önnur efni ekki samkeppnishæf. Líkt og
fleiri danskir arkitektar valdi Arne þann kost að
laga nútímalega hönnun sína að múrsteinshefð-
inni og vinna með hana á skapandi hátt. Var sú
þróun í takt við breyttar áherslur í arkitektúr
módernismans víða um heim á seinni hluta 4.
áratugarins, þar sem áhrifa fór að gæta frá
staðbundnum byggingaraðferðum og hefðum í
notkun efnis.
Umdeildur
Árið 1937 hlaut tillaga Arne Jacobsens og Er-
iks Møllers fyrstu verðlaun í samkeppni um
hönnun ráðhúss í Árósum. Í umsögn dómnefnd-
ar var tilagan lofuð fyrir hófstillt en jafnframt
virðulegt yfirbragð þar sem ytra útlit er lýsandi
fyrir þá starfsemi sem fram fer innan dyra.
Áhrif frá verkum Asplunds eru auðsæ í tillög-
unni, en hann hafði þá nýlega lokið við umdeilda
stækkun dómhússins í Gautaborg. Ekki voru þó
allir sáttir við ásýnd hins nýja ráðhúss, þar eð
enginn var turninn. Á endanum var arkitekt-
unum stillt upp við vegg og þeim gert að hanna
turn á ráðhúsið eða öðrum kosti segja sig frá
verkefninu. Tóku þeir fyrri kostinn, þótt ekki
væru þeir sáttir við niðurstöðuna, enda þykir
turninn nú vera lýti á annars ágætri byggingu.
Innviðir ráðhússins eru listilega útfærðir og
nánast hvert atriði í búnaði þess sérhannað af
höfundunum.
Af öðrum kunnum verkum Arne Jacobsens
frá 4. áratugnum má nefna Stelling-húsið, versl-
unar- og skrifstofubyggingu á hornlóð við
Gamlatorg í miðborg Kaupmannahafnar. Húsið
er tvískipt í uppbyggingu líkt og hefðbundið
borgarhús við Strikið: neðri hlutinn gegnsær
með samfelldum glerflötum en sá efri klæddur
grænum flísum er mynda samfelldan yfirborðs-
flöt með ferningslaga gluggunum. Á báðum
hlutum hússins sveigir framhliðin í mjúkum
boga fyrir hornið. Þó að stíll hússins væri nú-
tímalegur voru hæðarhlutföll framhliðarinnar
nákvæmlega ákvörðuð út frá veggbrúnum að-
liggjandi húss í klassískum stíl. Þrátt fyrir þetta
seinni heimstyrjaldar féllu yfir Evrópu. Í lok 6.
áratugarins teiknaði Arne Jacobsen hringlaga
einbýlishús á strandlóð við ysta odda Sjálands
sem um margt var líkt framtíðarhúsi hans frá
árinu 1929.
Árið 1931 hlaut Arne Jacobsen verðlaun í lok-
aðri samkeppni um hönnun baðstrandar við
Bellevue strandhótelið við Strandvejen í Gen-
tofte. Var ströndin opnuð ári síðar með búnings-
klefahúsum og sölubásum sem Arne teiknaði.
Áhersla á böð og heilsurækt var veigamikill
þáttur í nútímalegri lífsstíl almennings sem þá
var í mótun og ímynd hinnar nýju bygging-
arlistar var hluti af, ásamt nýjustu samgöngu-
og heimilistækjum, óformlegri fata- og hártísku
og jazztónlist frá Ameríku.
Fínleiki
Í framhaldi af hönnun baðstrandarinnar var
Arne Jacobsen falið að teikna fleiri byggingar í
næsta nágrenni baðstrandarinnar: fjölbýlishús-
ið „Bellavista“ á lóð handan götunnar, yfir-
byggða reiðhöll og Bellevue-leikhúsið með opn-
anlegu þaki og veitingahúsi í samtengdri álmu.
Léttleiki hins nýja stíls einkenndi allar þessar
byggingar, hvít hreinskorin form með stórum
gluggaflötum. Þær eru nú á lista yfir merkustu
byggingar á Norðurlöndum frá upphafsárum
módernismans, enda fágætt að varðveist hafi
svo samstæð heild bygginga eftir sama höfund
frá þessu tímabili. „Bellavista“ fjölbýlishúsið
var hannað undir sterkum áhrifum frá Bau-
haus-skólanum og verkum arkitektsins Ernst
May í Frankfurt, eins helsta frumkvöðuls að
hönnun íbúða í anda notagildisstefnu. Fjölbýlis-
húsið er byggt í skeifu umhverfis sameiginlegan
garð sem opnast út á móti Eyrarsundi. Flest-
allar íbúðirnar eru með svölum og hornglugga á
stofu þaðan sem njóta má suðursólar og útsýnis
út á hafið. Til að gera þetta mögulegt og jafn-
framt tryggja friðhelgi hverrar íbúðar er lang-
hlið hússins byggð í stöllum. Stöllunin skapar
líflegt samspil teningslaga forma sem er veiga-
mikill þáttur í byggingarlist hússins. Það, ásamt
fínleikanum sem einkennir allar útfærslur í
hönnun, skipar Bellavista í hóp með merkustu
íbúðarbyggingum frá frumárum módernismans
í Evrópu.
Lítil bensínstöð við Strandvejen milli Kaup-
mannahafnar og Gentofte sem Arne teiknaði ár-
ið 1937 er óvenjuleg vegna léttbyggðs skyggnis
úr járnbentri steinsteypu sem borið er uppi af
ARKITEKTINN ARNE JACO
Bensínstöð við Strandvejen (1937). Fjölbýlishúsið Bellavi
E F T I R P É T U R H . Á R M A N N S S O N
Húsgögn Arne Jacobsen hafa borið hróður hans víða um heim en í heimalandi
sínu er hann kunnastur fyrir fjölmargar byggingar, sem sumar voru umdeildar
á sínum tíma. Hér er fjallað um byggingar hans en rætur hans sem arkitekts
lágu í þeim stranga, nýklassíska stíl sem kom fram á árum fyrri heimsstyrjaldar.
Hérlendis má greina bein og óbein áhrif frá byggingarlist Arne Jacobsen
í verkum margra þeirra arkitekta sjötta og sjöunda áratugarins sem kusu að
vinna í anda hins alþjóðlega módernisma eftirstríðsáranna.
Einbýlishús framtíðarinnar (1928–29).