Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002 11 Er óæskilegt að neyta samtímis ávaxta og grænmetis? SVAR: Ekkert hefur komið fram sem rökstyður vísindalega að óæskilegt sé að neyta ávaxta og grænmetis samtímis. Reyndar er það svo að meltingarfæri mannsins eru hönnuð til að melta margvíslega fæðu samtímis og ættu því að geta melt grænmeti og ávexti samtímis, rétt eins og kjöt og kartöflur. Ennfremur eru grænmeti og ávextir hvor um sig fjölbreyttur flokkur matvæla og ekki er alltaf ljóst hvort matvæli heyrir til ávaxta eða grænmetis og því gæti verið vandasamt að skilgreina nákvæm- lega hvaða fæðutegundir ekki mætti borða saman, ætti kenningin við rök að styðjast. Eins og önnur matvæli, samanstanda græn- meti og ávextir af fjölmörgum efnasam- böndum, þar á meðal næringarefnunum sem okkur eru lífsnauðsynleg. Næringarefni þessi eru flest hin sömu í þessum afurðum, eins og í öðrum matvælum, en í mismunandi hlutföllum þó, eftir því hvaða matvæli eiga í hlut. Næring- arefnin og önnur efnasambönd í matvælum geta haft áhrif hvert á annað á ýmsa vegu, til dæmis geta þau haft áhrif á frásog hvers ann- ars úr þörmum. Út frá þessu mætti kannski rökstyðja að ekki sé heppilegt að neyta afurð- ar sem inniheldur efni A, sem hefur áhrif á frá- sog efnis B úr annarri afurð, það er að ekki ætti að neyta þessara matvæla saman. Hins vegar getur alveg eins verið að bæði efnin komi fyrir í sömu fæðutegundinni og því gagnslaust að reyna að koma í veg fyrir þessi neikvæðu áhrif. Annars er samspil næringarefna og annarra efnasambanda í fæðunni flókið, og líklega myndi æra óstöðugan að reyna að gera sér grein fyrir og taka tillit til áhrifa þeirra hvert á annað í hverri máltíð. Enda hafa nýlegar rann- sóknir sýnt að innbyrðis áhrif næringarefna hvert á annað skipta ekki svo miklu máli í heildarmataræði, heldur er mikilvægast að mataræði sé sem fjölbreyttast og innihaldi matvæli úr öllum fæðuflokkum í hæfilegum hlutföllum. Björn Sigurður Gunnarsson, matvæla- og næringarfræðingur á Rannsóknastofu í næringarfræði. Af hverju takast kappakstursbílar ekki á loft þegar þeir eru komnir á fulla ferð? SVAR: Það er auðvitað rétt að kappakstursbílar takast ekki á loft á sléttri braut eins og venju- legar flugvélar. Þetta er aðallega vegna þess að kappakstursbílar eru ekki flugvélar og ekki hannaðir til þess að fljúga! Flugvélar takast á loft þegar þær hafa náð ákveðnum hraða miðað við loftið í kring. Þá hefur myndast meiri þrýstingur neðan á vængi flugvélarinnar en ofan á þá, og þannig verður til lyftikraftur á vélina sem getur orðið meiri en þyngdarkrafturinn á hana. Kappakstursbílar eru ekki með vængi og því myndast ekki sams konar lyftikraftur á þá og á flugvélar á ferð. Þeir eru ekki heldur með hreyfil sem verkar á loftið í kring, né breyti- legt stél eða flapa. Þegar þeir takast á loft (af öðrum orsökum) hafa menn því enga stjórn á þeim og þeir haga sér þá eins og hver annar kasthlutur, það er hlutur sem hreyfist ein- göngu undir áhrifum þyngdarkrafts og ef til vill loftmótstöðu. Kappakstursbílar og aðrir bílar geta sem sé tekist á loft, til dæmis þegar brautin sem ekið er eftir er ójöfn með tilteknum hætti, það er að segja þegar hallinn fram á við eykst of ört mið- að við hraða bílsins. Þetta getur gerst til dæm- is þegar bíll fer fram af brekkubrún eða þegar veruleg ójafna verður á vegi hans. Ef menn vildu væri hægt að gera kappakst- ursbíla líkari flugvélum þannig að þeir hefðu tilhneigingu til að takast á loft eða að minnsta kosti til að léttast á veginum. Slíkir bílar mundu hins vegar láta verr að stjórn og því er slík hönnun væntanlega ekki æskileg. Raun- verulegir kappakstursbílar sýnast vera gerðir til að þrýstast niður á veginn frekar en hitt. Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor í vísindasögu og eðlisfræði við HÍ. Í hverju felst hollusta hákarlalýsis? SVAR: Hollusta hákarlalýsis felst í mjög óvenju- legri samsetningu þess, ef miðað er við flest annað fiskilýsi. Hákarlalýsi inniheldur minna af omega-3 fitusýrum en til dæmis þorskalýsi. Það hefur því ekki þá eiginleika sem rekja má til þeirra. En hákarlalýsið inniheldur tvenns konar önnur efnasambönd, sem gefa því sér- stakt gildi. Þessi sambönd eru skvalen (squal- ene) og alkylglýseról. Skvalen er efni, sem finnst aðallega í há- karlalýsi (20–60% af lýsinu), en einnig í ólífu- olíu, þótt í miklu minni mæli sé. Skvalen (og skvalan, framleitt úr skvaleni) hefur verið not- að í snyrtivörur eins og til dæmis húðkrem. Skvalen hefur einnig verið sett í hylki eða perlur og þannig verið tekið inn. Áhrif þess eru ekki alveg þekkt. Þó hefur efnið verið bendlað við styrkingu ónæmiskerfisins, lækk- un kólesteróls og þríglyseríða í blóði, og um- talsverð áhrif sem andoxunarefni. Rannsóknir á virkni skvalens á krabbameinsfrumur eru í gangi. Alkylglyseról eru efni náskyld þríglyser- íðum, en nógu frábrugðin samt til þess að hafa mjög sérstaka eiginleika. Þessi efni eru í mikl- um mæli í hákarlalýsi. Þau finnast einnig í móðurmjólk, og þess vegna hafa þau verið skoðuð í sambandi við styrkingu ónæmiskerf- isins. Sænskir læknar hafa lengi notað þessi efni til að hjálpa krabbameinssjúklingum að takast á við geisla- eða lyfjameðferð. Reynsla þeirra er sú, að alkylglyseról geti dregið úr þeim aukaverkunum, sem meðferðin hefur oft í för með sér. Líkt og með skvalenið eru rann- sóknir í gangi á alkylglyserólum og vafalaust munu koma fram áhugaverðar niðurstöður úr þeim. Hákarlalýsi var áður fyrr mjög auðugt af A- vítamíni. Nú er það fjarlægt úr lýsinu til að halda neyslu A-vítamíns innan eðlilegra marka. Hákarlalýsi verður að hreinsa vel áður en þess er neytt. Hákarlinn er efst í fæðukeðj- unni og þess vegna safnast í hann ýmis óæski- leg efni sem verður að fjarlægja til þess að valda neytendum ekki skaða. Hákarlalýsi er ekki heppilegur omega-3 fitusýrugjafi. Þorskalýsið er miklu betra að því leyti. En hákarlalýsið inniheldur skvalen og alkylglyseról, tvö mjög sérstök efna- sambönd sem hafa hugsanlega mikla þýðingu. Jón Ögmundsson, gæðastjóri hjá Lýsi. ER ÓÆSKILEGT AÐ NEYTA SAM- TÍMIS ÁVAXTA OG GRÆNMETIS? Hvaða eldfjall hefur gosið oftast, hafa eplaedik- stöflur áhrif á fitubrennslu og hvað stjórnar lit á hægðum og þvagi fólks? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum. VÍSINDI S Á kvittur kemur upp öðru hverju að Norðmenn álíti að Snorri Sturluson hafi verið norskur. Síðast var það fullyrt í greinarstúfi á blaðsíðu tvö í Lesbók Morgunblaðsins á laugardaginn var. Þar segir: „Norðmenn hafa hingað til eignað sér Snorra Sturluson með furðulegum hætti þrátt fyrir að eiga ekkert tilkall til hans enda var hann íslenskur að þjóðerni og skrifaði á íslensku. Íslendingar hafa látið þetta yfir sig ganga enda ekki viljað ganga í berhögg við „frændur“ sína í austurvegi á grundvelli frændsemi og vináttu þjóðanna á milli. Norð- menn hafa af einhverjum ástæðum ekki fundið hjá sér hvöt til að rækta frændsemina með þeim hætti að virða þjóðerni Snorra og láta hann í friði og hampa eigin skáldum frá síðari tímum. Þar er kannski skýringin fólgin, að engin eru nafnþekkt frá miðöldum í Noregi og síðfengið sjálfstæði Norðmanna varð þeim til- efni til að endurskapa eigin bókmenntasögu með þeim heimóttarlega hætti sem raun ber vitni hvað Snorra snertir.“ Þarna gætir furðulegrar vanþekkingar sem hæfir ekki Lesbók Morgunblaðsins. Í fyrsta lagi hafa Norðmenn aldrei haldið því fram op- inberlega að Snorri Sturluson hafi verið norsk- ur. Þeir hafa þvert á móti viðurkennt íslenskt þjóðerni hans með því að gefa Íslendingum styttu þá sem stendur fyrir framan héraðs- skólahúsið í Reykholti og á að tákna Snorra. Og fyrir fáeinum árum styrktu þeir byggingu Snorrastofu með myndarlegu frjárframlagi. Í norskum alfræðibókum stendur að Snorri Sturluson hafi verið íslenskur sagnaskrifari og þannig er hann kynntur í norskum námsbók- um. Sjálfur hef ég ferðast víða um Noreg og rætt við fjölda Norðmanna um Snorra og kon- ungasögurnar og ekki orðið var við annað en hann sé almennt álitinn Íslendingur. Í fyrra innti ég Jon Gunnar Jørgensen, prófessor við háskólann í Ósló og doktor í Heimskringlu, eft- ir því hvað Norðmenn segðu um þjóðerni Snorra. Hann var fljótur til svars og sagði að sú lífseiga þjóðsaga sem hefði lengi gengið á Íslandi, að Norðmenn teldu Snorra norskan, ætti ekki við nein rök að styðjast, Norðmenn vissu almennt að hann hefði verið Íslendingur. Vissulega hafa Norðmenn gert sig seka um að eigna sér Leif Eiríksson og vera má að vegna vankunnáttu hafi einhverjir Norðmenn einhvern tímann álitið Snorra norskan. Það væri raunar ekki undarlegt því einn aðaltil- gangurinn með útgáfu Heimskringlu í Noregi á 19. öld, þegar frelsisbarátta Norðmanna gegn yfirráðum Svía stóð sem hæst, var að stuðla að aukinni þjóðernistilfinningu Norð- manna og tilfinningu fyrir því að norska þjóðin ætti sér sögu, en eins og allir ættu að vita er í Heimskringlu sögð saga Noregskonunga. Um svipað leyti notuðu Íslendingar fornsögurnar til að efla andann í baráttunni fyrir frelsi sínu undan veldi Dana. Við áttum Íslendingasög- urnar en Norðmenn höfðu ekki annað en verk Snorra Sturlusonar. Það var allur heimóttar- skapurinn. Og víst áttu Norðmenn sín skáld. Snorri nefnir mörg þeirra í Heimskringlu: Þjóðólf frá Hvini, Eyvind skáldaspilli, Þor- björn hornklofa og Glúm Geirason, svo ein- hverjir séu nefndir. Norðmenn hafa vissulega sýnt Snorra Sturlusyni og verkum hans töluverðan sóma. Heimskringla var fyrst þýdd og gefin út í Nor- egi árið 1663, svo 1757, 1838 og 1859. Síðast- nefnda útgáfan var endurútgefin 1881. Næst gáfu Norðmenn út Heimskringlu á árunum 1893–1897, þá í þýðingu Gustavs Storm, sem var einn af helstu Heimskringlufræðingum þess tíma, en við þýðinguna studdist hann við textarannsóknir Finns Jónssonar, prófessors af Íslandi. Bókina myndskreytti myndlistar- maðurinn Erik Werenskiold og útgáfan var öll hin vandaðasta og glæsilegasta. En hún var dýr og ekki seldust nema um tíu þúsund ein- tök. Úr varð að norska Stórþingið styrkti út- gáfuna og Heimskringla, eða Snorri eins og hún nefnist, var gefin út enn á ný árið 1900 og kölluð „þjóðarútgáfan“. Upplagið var 100 þús- und eintök, 70 þúsund voru á bókmáli og 30 þúsund á nýnorsku, og verðið var við allra hæfi. Talið er að um þriðjungur heimila lands- ins hafi eignast þessa útgáfu Heimskringlu. Lesbókin ber Norðmenn röngum sökum, þeir hafa aldrei ásælst Snorra. En því miður virðast allmargir Íslendingar hafa undarlega neikvæða afstöðu til Norðmanna og telja sér skylt að vera með sífelld hnýfilyrði í þeirra garð. En það er ekki gott að byggja afstöðu sína til heillar þjóðar á þjóðsögum. Mín reynsla er hins vegar sú að Norðmenn beri almennt mikinn hlýhug til Íslendinga og taki okkur sem kærum nágrönnum og frændum. LESBÓKIN BER NORÐMENN RÖNGUM SÖKUM H ö f u n d u r e r b l a ð a m a ð u r o g r i t h ö f u n d u r. E F T I R Þ O R G R Í M G E S T S S O N ÉG klikkaðist. Já. Jahérna. Það er þessi húmor sem er nauðsynlegur. Algjörlega. Húmorinn er brú. Ég klikkaðist, ég sturlaðist, ég bilaðist, ég veiktist á geði, og ég tek þetta mjög hátíðlega, þetta er svo hátíðlegt. Ég set geðsjúklinginn á stall og færi honum fórnir. Dýrka hann. Það má ekki snerta hann. Það má ekki segja frá honum, ég er með hann í leyndum afkima sálarinnar, já, og skelf og nötra ef það á að snerta þennan geðsjúkling, afhverju er hann svona heilagur, af því að hann ræður, ræður lífi mínu, einsog guð ræður lífi sumra, hann vill ekki stíga niður og verða sýnilegur, hann er minn einkaguð í leyndu hugskoti mínu, ég já, eldur brennur úr augum hans, hann skelf- ur og nötrar, æðir áfram, hann talar tóma þvælu, hann heimtar sífellt stærri fórnir, stærra musteri, meiri leynd, hann tryllist ef það á að segja frá honum, þá virkilega tryllist hann, ekki segja frá, æpir hann linnulaust allan daginn. ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR Höfundur er rithöfundur. HIN MIKLA LEYND

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.