Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.2002, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 12. OKTÓBER 2002 15
M
ARGIR krakkar
þekkja vel hann Bene-
dikt búálf úr sam-
nefndum bókum Ólafs
Gunnars Guðlaugs-
sonar. Nú hafa
Draumasmiðjan og Ís-
medía sett upp söng-
leik sem byggður er á fyrstu bókinni um bú-
álfinn Benedikt og ævintýrum hans og
Dídíar mannabarns í Álfheimum.
Frumsýningin verður í Loftkastalan-
um kl. 20 í kvöld. Það er Gunnar
Gunnsteinsson sem leikstýrir upp-
færslunni, en sjálfur hefur Ólafur
Gunnar unnið leikgerðina. Fjöldi
þekktra leikara fer með hlutverk per-
sónanna og tónlistin er samin af Þor-
valdi Bjarna Þorvaldssyni.
Í leikritinu segir af Dídí manna-
barni sem einn góðan veðurdag finnur
búálf heima hjá sér. Þetta er Benedikt
búálfur sem nýkominn úr baði, og þar
sem að búálfar eru aðeins sýnilegir
mannabörnum þegar þeir eru blautir
kemur Dídí undireins auga á hann.
Benedikt býður Dídí með sér í Álf-
heima þar sem þau lenda í miklum æv-
intýrum, kynnast m.a. Jósafat manna-
hrelli og drekanum Daða sem er græn-
metisæta. Í Álfheimum er hins vegar ekki allt
með felldu því svartálfakonungurinn Sölvi
súri hefur tekið upp á því að ræna Tóta tann-
álfi sem passar upp á tennur álfanna í Álf-
heimum. Það mun hafa ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar því tannpína gerir álfa geðvonda og
myrkar hugsanir breyta þeim í dökkálfa.
Sjálfur Aðalsteinn álfakonungur er kominn
með tannpínu og því góð ráð dýr. Dídí og
Benedikt er falið að frelsa Tóta tannálf úr
greipum Sölva í Sortuhelli, enda eru það að-
eins búálfar og mannabörn sem geta hætt sér
inn í þau myrkviði án þess að breytast um-
svifalaust í dökkálfa.
Eftir að hafa fylgst með fjörugri æfingu á
verkinu sest blaðamaður niður með þeim
Ólafi, Gunnari og Þorvaldi til að spjalla um
verkið og tildrög þess að bókin um Benedikt
varð að fjölskyldusöngleik.
Enduðu alltaf á
sömu lausninni
„Þetta byrjaði nú með því að Hinrik Ólafs-
son leikari, sem fer með hlutverk Aðalsteins
álfakonungs í leikritinu, fékk augastað á bók-
inni um Benedikt þegar hann var að lesa
hana fyrir son sinn. Hann hafði samband við
Gunnar Gunnsteins og var í kjölfarið slegið
upp fundi þar sem við ræddum um hugs-
anlega leikgerð að sögunni. Þetta var nú fyrir
fjórum árum og hefur þetta verkefni því verið
í þróun í nokkurn tíma,“ segir Ólafur.
„Þorvaldur Bjarni kom snemma inn í verk-
efnið og veltum við ýmsum möguleikum fyrir
okkur við uppfærsluna. Við enduðum í raun
alltaf á sömu lausninni það er að það þýddi
ekkert annað en að búa til stóra sýningu í
kringum þetta,“ segir Gunnar Gunnsteinsson
sem vann náið með Ólafi að því að móta leik-
gerðina að verkinu. „Þetta er nokkurs konar
fjölskyldusöngleikur, enda er leikritið hugsað
fyrir aldurshópinn frá tveggja til tíu ára og
upp úr. Hópurinn sem stendur að uppfærsl-
unni er sá sami og setti upp Ávaxtakörfuna í
Íslensku óperunni, og fleiri verk eftir það og
er því hérna á ferðinni fólk sem hefur reynslu
af því að vinna saman og leggjast á eitt um að
skapa vandaða heild,“ segir leikstjórinn
Gunnar.
Tónlistin í verkinu kemur út á geisladiski
um helgina. „Við höfum farið dálítið wagner-
íska leið með þetta, hljómsveitin fær að njóta
sín til fulls og höfum við haft það að markmiði
að bjóða krökkunum hér ekki upp á síðri tón-
list en við myndum vinna fyrir fullorðna. Síð-
an vinnur Andrea Gylfadóttir textana
með mér og var fengur í því fyrir mig,
enda skipta textarnir ákaflega miklu
máli, alveg eins og tónlistin við að
miðla áfram sögunni,“ segir Þorvaldur
Bjarni höfundur tónlistar.
Jósafat hinn fjölhæfi
– Þetta er dálítið klassísk saga, ekki
satt?
„Já, þetta er klassískt ævintýri um
baráttu góðs og ills,“ segir höfundur-
inn. „Sagan er óstaðbundin og tíma-
laus, hún gæti gerst hvar sem er og
hvenær sem er. Bækurnar um persón-
urnar í Álfheimum er nú orðnar fjórar,
en sú nýjasta kemur út nú í haust. En
meginboðskapurinn í þessari fyrstu
sögu sem leikritið er byggt á er sá að
ljósið sigrar myrkrið.“
Með hlutverkin í leikritinu fara Björgvin
Franz Gíslason, Lára Sveinsdóttir, Selma
Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Hinrik
Ólafsson, Sveinn Þórir Geirsson og Tinna
Hrafnsdóttir. Í meðförum leikara verða sögu-
persónurnar hinar skrautlegustu og eiga
margar þeirra eflaust eftir að vekja kátínu
meðal gesta. „Í öllum ævintýrum hefur hver
persóna sitt hlutverk og reynum við því að
hafa persónurnar mjög skýrar. Þetta er
ákveðin forskrift sem maður verður að fylgja
og held ég að það sé mikilvægt að leyfa sér að
fara alla leið í því. Og þar sem við erum í Álf-
heimum er frelsið svo mikið. Ef maður leyfir
leikurunum að sleppa fram af sér beislinu
með persónurnar, jafnvel þótt það sé ekkert
alltaf rétthugsandi, geta mjög skemmtilegir
hlutir komið út úr því, eins og sést á mörgum
þessara persóna,“ segir Gunnar.
Ólafur segir það eins og að sjá barn sitt
fæðast að fylgjast með leikurunum gera
sögupersónurnar að veruleika og sé Benedikt
búálfur er ekkert minna en fullkominn í túlk-
un Björgvins Franz Gíslasonar. „En vægi
einstakra persóna hefur breyst talsvert milli
bókarinnar og leikritsins. Jósafat manna-
hrellir er t.d. persóna sem er mun fyrirferð-
armeiri í leikritinu en bókinni, á meðan dökk-
álfarnir birtast aldrei í persónumynd.“
Jósafat mannahrellir er tvímælalaust ein eft-
irminnilegasta persóna verksins. Gunnar
minnir á að hann gegni líka ábyrgðarhlut-
verki í Álfheimum. „Hlutverk Jósafats er
fyrst og fremst það að hrella allt mannfólk
sem kemur til Álfheima og hrekja það í
burtu. Til þess getur hann þurft að beita öll-
um aðferðum, því það eru ekki bara litlar
stelpur eins og Dídí sem slæðast þangað inn.
Til Álfheima koma allavega persónur og þar
hann því að hafa allt á valdi sínu, hvort sem
það er karate, þungarokk, jóga eða skjall.
Hann verður að geta gert allt,“ segir Gunnar.
Ólafur segir það hafa verið mjög áhugavert
ferli fyrir sig að fylgjast með mótun og upp-
færslu verksins. „Við höfum verið að fara í
gegnum ólík stig í vinnunni, handritastig, æf-
ingastig og tónlistarvinnu. Við hvert skref
hefur eðli verksins verið að breytast og er
það ekki fyrr en núna á síðustu dögunum að
maður hefur séð að hverju þetta er orðið,“
segir Ólafur Gunnar Guðlaugsson, höfundur
bókanna og leikgerðarinnar um Benedikt bú-
álf, að lokum.
Ljósið sigraði myrkrið
Fjölskyldusöngleikurinn
Benedikt búálfur verður
frumsýndur í Loftkast-
alanum í dag kl. 14.
HEIÐA JÓHANNSDÓTT-
IR brá sér í Álfheima og
spjallaði við fólkið á bak
við þetta leikrit.
Jósafat mannahrellir (Sveinn Þórir Geirsson) er fjölhæfur
mjög, kann jóga, þungarokk og karate.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dídí mannabarn (Lára Sveinsdóttir) reynir að stappa stálinu í Daða dreka (Jóhann Sigurðarson)
sem er allra dreka ljúfastur og grænmetisæta í þokkabót.
Benedikt (Björgvin Franz Gíslason) er ráða-
góður búálfur sem vingast við Dídí.
heida@mbl.is
MYNDLIST
Galleri@hlemmur.is: Þóra Þóris-
dóttir. Til 13. okt.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Jacquel-
ine og Sophia Rizvi. Til 13. okt.
Gallerí Kambur: Samsýning 16 lista-
manna. Til 13. okt.
Gallerí Skuggi: Kimmo Schroderus
og Charlotta Mickelsson. Til 20. okt.
Gallerí Sævars Karls: Óli G. Jóhanns-
son. Til 17. okt.
Gerðarsafn: Gallerí Hlemmur og
Unnar og Egill. Til 21. okt.
Hafnarborg: Tróndur Patursson. Jüri
Ojaver, Paul Rodgers, Jaan Toomik
og Jaan Paavle. Til 4. nóv.
Hús málaranna: Eyðun af Reyni og
Kári Svenson. Til 20. okt.
Hönnunarsafn Íslands: Óli Jóhann
Ásmundsson. Til 1. des.
i8, Klapparstíg 33: Helgi Þorgils
Friðjónsson/Kristinn G. Harðarson.
Til 12. okt.
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Krist-
ján Logason. Til 20. okt.
Listasafn Akureyrar: Hollensk
myndlist frá 17. öld. Til 27. okt.
Listasafn ASÍ: Annu Wilenius, Karla
Dögg Karlsdóttir, Sólrún Trausta
Auðunsdóttir. Til 20. okt.
Listasafn Borgarness: Þorri Hrings-
son. Til 30. okt.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga kl. 14–18, nema mánudaga.
Listasafn Íslands: Ljósmyndir úr
safni Moderna Museet. Til 3. nóv.
Listasafn Reykjanesbæjar: Einar
Garibaldi Eiríksson. Til 20. okt.
Listasafn Rvíkur – Ásmundars.: List-
in meðal fólksins. Til 31. des.
Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir:
Arne Jacobsen. Til 17. okt. Arno
Lederer, Jórunn Ragnarsdóttir og
Mark Oei arkitektar. Til 27. okt.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: And-
litsmyndir og afstraksjónir. Til 30.3.
Listasalurinn Man: Marielis Seyler.
Til 14. okt.
Ljósmyndasafn Rvíkur: Þýsk sam-
tímaljósmyndun. Til 15. okt.
Norræna húsið: Clockwise. Til 20.
okt.
Nýlistasafnið: Magnús Pálsson, Eric
Andersen & Wolfgang Müller. Til 24.
nóv.
Skaftfell, Seyðisfirði: Þrír listamenn.
Til 20. okt.
Þjóðarbókhlaða: Halldór Laxness. Til
31. des.
Þjóðmenningarhúsið: Handritin.
Landafundir. Skáld mánaðarins: Egill
Skallagrímsson.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Borgarleikhúsið: Ferðalög: Frönsk
fagurtónlist. Kl. 15:15.
Langholtskirkja: Listafléttan. Kl. 17.
Ráðhús Reykjavíkur: Lúðrasveitin
Svanur. Kl. 15.
Sunnudagur
Ráðhús Reykjavíkur: Hljómsveit
Sjötta flota Bandaríkjanna. Kl. 15.
Salurinn: KaSa-hópurinn. Kl. 16. Ást-
in er rósarunni. Þýskir tónlistarmenn.
Kl. 20.
Fimmtudagur
Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Einleikari og stjórnandi: Gerrit
Schuil. Kl. 19:30.
Föstudagur
Háskólabíó: Sjá fimmtudag. Kl. 19:30.
Salurinn: Barry Snyder, píanóleikari.
Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Lífið þrisvar sinnum,
fim., fös. Með fulla vasa af grjóti, lau.,
mið. Jón Oddur og Jón Bjarni, sun.
Viktoría og Georg, lau., fös. Karíus og
Baktus, sun. Veislan, sun., fim.
Borgarleikhúsið: Ljóti andarunginn.
Kryddlegin hjörtu, lau. Með vífið í
lúkunum, fös. Gesturinn, lau., sun.
Jón og Hólmfríður, fös. And Björk of
course, lau.
Íslenska óperan: Rakarinn í Sevilla,
lau., sun.
Loftkastalinn: Benedikt búálfur,
frums. lau. Sun.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Grettissaga,
frums. lau. Sun., fös. Sellófon, þrið.,
fim.
Möguleikhúsið: Prumpuhóllinn, sun.
Snuðra og Tuðra, sun.
Iðnó: Beyglur, lau.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Höfundur leikgerðar: Ólafur Gunnar
Guðlaugsson.
Leikarar: Björgvin Franz Gíslason,
Selma Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson,
Hinrik Ólafsson, Sveinn Þórir Geirsson,
Lára Sveinsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir.
Höfundur tónlistar: Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson.
Söngtextar: Andrea Gylfadóttir.
Leikmynd og búningar: María Ólafs-
dóttir.
Lýsing: Alfred Sturla Böðvarsson.
Gervi og förðun: Kristín Thors.
Aðstoðarleikstjóri og dansahöfundur:
Selma Björnsdóttir.
Leikstjóri: Gunnar Gunnsteinsson.
Benedikt
búálfur