Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.2002, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 30. NÓVEMBER 2002 15
MYNDLIST
Galleri@hlemmur.is: Hrafnhildur
Arnardóttir. Til 8. des.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Harry
Bilson í Baksal. Ljósafold: Guðmund-
ur Hannesson. Til 8. des.
Gallerí Skuggi: Rósa Sigrún Jónsd.,
Stella Sigurgeirsd. Til 1. des.
Gallerí Sævars Karls: Hildur Ásgeirs-
dóttir. Til 5. des.
Gerðuberg: Teikningar úr nýjum
barnabókum. Til 6.1.
Hafnarborg: Samsýningar Samspil og
Sambönd Íslands. Til 22. des.
Hallgrímskirkja: Aðalheiður Valgeirs-
dóttir. Til 1.3.
Hús málaranna, Eiðistorgi: Einar Há-
konarson og Óli G. Jóhannsson. Til 23.
des.
Hönnunarsafn Íslands: Óli Jóhann
Ásmundsson. Til 1. des.
Íslensk grafík: Skúffugallerí.Til 8.
des.
Listasafn Akureyrar: Hraun-ís-skóg-
ur. Til 15. des.
Listasafn ASÍ: Þorkell Þorkelsson. Til
8. des.
Listasafn Borgarness: Guðmundur
Sigurðsson.Til 23. des.
Listasafn Einars Jónssonar: Lokað í
desember og janúar.
Listasafn Íslands: Íslensk myndlist
1980–2000. Til 15.1.
Listasafn Rvíkur – Ásmundars.: List-
in meðal fólksins. Til 31. des.
Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: Inga
Svala Þórsdóttir. Nútímalist frá
arabaheiminum. Til 19.1.
Listasafn Rvíkur – Kjarvalsstaðir:
Martin Bigun. Til 15.1.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: And-
litsmyndir og afstraksjónir. Til 30.3.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur: August
Sander. Til 1. des.
Mokkakaffi: Hildur Margrétardóttir.
Til 15.1.
Norræna húsið: Veiðimenn í útnorðri.
Til 15. des.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B : Giovanni
Garcia-Fenech og JBK Ransu. Til
12.1.
Þjóðarbókhlaða: Halldór Laxness. Til
31. des.
Þjóðmenningarhúsið: Handritin.
Landafundir. Skáld mánaðarins: Ein-
ar í Eydölum. Til 8.8.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Langholtskirkja: Kvennakór Reykja-
víkur o.fl. Kl. 14 og 17.
Salurinn, Kópavogi: Jólabarokk Bar-
okkhópsins. Kl. 16.
Salurinn: Söngvar Jórunnar Viðar. Kl.
16.
Þriðjudagur
Iðnó: Hljómsveitirnar Jörð bifast og
Call him mr. Kid. Kl. 20.
Kristskirkja, Landakoti: Kvöldlokkur
– Blásarakvintett Reykjavíkur. Kl. 20.
Fimmtudagur
Hallgrímskirkja: SÍ. Jólaóratoría J.S.
Bach – Kantata 1–3. Stjórnandi Hörð-
ur Áskelsson. Einsöngvarar: Monica
Groop, Andreas Schmidt, Gunnar
Guðbjörnsson, Þóra Einarsdóttir,
Mótettukór Hallgrímskirkju. Kl.
19.30.
Föstudagur
Hallgrímskirkja: Kantata 4–6. Sjá
fimmtudag. Kl. 19.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Halti Billi, fös. Með
fulla vasa af grjóti, lau., sun. Jón Odd-
ur og Jón Bjarni, sun. Viktoría og
Georg, sun. Veislan, fös.
Borgarleikhúsið: Sölumaður deyr,
sun., fös. Honk! sun. Með vífið í lúk-
unum, fim. Jón og Hólmfríður, lau.
Rómeó og Júlía, lau., mið.
Íslenska óperan: Rakarinn í Sevilla,
lau.
Loftkastalinn: Benedikt búálfur, sun.
Vesturport: Kvetch, sun., fös.
Iðnó: Hin smyrjandi jómfrú, sun.
Beyglur, lau., fim., fös.
Möguleikhúsið: Jólarósir Snuðru og
Tuðru, lau., sun., mið., fim., fös. Hvar
er Stekkjastaur? Sun., þrið., fim.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Sellófon,
sun., mið., fim., fös.
Leikfélag Mosfellssveitar: Beðið eftir
Go.com air, lau.
Leikfélag Kópavogs: Hljómsveitin,
lau., sun., fim.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
G
IOVANNI Garcia-Fen-
ech og JBK Ransu sýna
verk sín á sýningu sem
opnuð verður í dag í
Nýlistasafninu.
Giovanni Garcia-Fen-
ech er bandarískur mál-
ari. Hann lauk prófi frá
the School of Visual Arts í New York árið
1995, og starfar nú þar í borg, þar sem hann
rekur galleríið The Project í Harlem. Verk
hans í Nýlistasafninu er innsetning sem hann
kallar „Sex hausar innandyra“, en það sam-
anstendur af sex portrettum og tveimur
veggmyndum. „Þarna er ein veggmynd, eig-
inlega stór útfærsla á þeim málverkum sem
ég hef verið að mála. Tvo aðra veggi mála ég
sem bakgrunn fyrir málverkin. Ég kalla
þetta ekki veggmyndir, frekar innsetningar
fyrir málverkin. Annar þessara veggja er
hálfabstrakt, – gæti litið út eins og tré um-
kringt af vatni; – er þó abstrakt. Hinn vegg-
urinn er málaður eins og hann sé aflagaður
múrveggur. Á þann vegg set ég sex hálf-
abstrakt málverk, sem ég byggi á hugmynd-
inni um portrettið. Þess vegna kalla ég þetta
Sex hausa innandyra.“
Giovanni Garcia-Fenech segir að þegar
horft sé á þessar sex myndir líti þær út fyrir
að vera abstrakt, en þegar farið sé að skoða
þær nánar votti lítillega fyrir höfði og búk.
„Á sama tíma og maður gæti séð þetta, eru
myndirnar abstrakt.“ Giovanni Garcia-Fen-
ech hefur einu sinni komið til Íslands áður,
en þetta er í fyrsta sinn sem hann sýnir hér.
Sagt hefur verið um verk hans að þau vegi
salt á milli sértekningar og framsetningar,
tilviljunar og hins áætlaða, hins óljósa og hins
þaul-mótaða. Hann heldur því fram að í verk-
um sínum sé enga dulda merkingu að finna
heldur einungis þá sem áhorfandinn ljær
verkinu. Þrátt fyrir kerskni í sumum verk-
anna sé ekki um íróníu eða kaldhæðni að
ræða heldur einlægni. Giovanni lætur lista-
söguna ekki þrúga sig heldur vinnur með-
vitað og með ánægju með ímyndir sem þegar
eru merkingarhlaðnar og sögubundnar.
Listaverkið felst í endurgerð – og endur-
nýjun. Giovanni hefur sýnt víðsvegar um
Bandaríkin á undanförnum árum og hefur
skrifað greinar um samtímamyndlist í ýmis
listtímarit. Nánari upplýsingar um hann er
að finna á vefnum: www.unutterable.org.
Andstæðum teflt saman
JBK Ransu lauk prófi frá listaháskóla í
Hollandi 1995. Hann hefur sýnt verk sín á
einkasýningum nær árlega frá 1995, og tekið
þátt í fjölmörgum samsýningum. Á hans
hluta sýningarinnar eru einnig málverk.
„Þetta eru abstrakt málverk sem ég byggi
annars vegar á abstrakt expressjónisma og
hins vegar á geómetríu. Ég er að blanda
saman þessum andstæðu pólum í abstraksj-
óninni. Ég tek þá fyrir slettuna, sem má kalla
endimörk expressjóníska málverksins; – lista-
maðurinn kemur ekkert við strigann; – þetta
er tilviljanakennt, og svo símynstur, endi-
mörk geómetrísku myndbyggingarinnar. Ex-
pressjónin er tjáningin, þetta mannlega, en
geómetrían er nær þessu huglæga. Í austur-
lenskri list eru símynstur til dæmis notuð
sem inngangur að hugleiðslu. Þetta er happ-
ening og non-happening.“ Ransu segir að
hugmyndin að verkunum hafi sprottið út frá
vangaveltum sínum um endimörk. „Þegar
listamenn byrjuðu að sletta, rétt uppúr síðari
heimsstyrjöldinni, þá voru það að vissu leyti
endimörk, þótt menn hafi getað unnið með
þau áfram. Menn geta líka endalaust unnið
með símynstur. Mig langaði að sjá hvernig
það kæmi út að tefla þessum andstæðum
saman í eitt. Ég velti líka mikið fyrir mér
hvernig við nálgumst málverk. Ég sé ex-
pressjóníska nálgun sem úthverfa, hún er
ástríðufull og kraftmikil, en geómetríuna sem
innhverfa nálgun; þar er jafnvægið og yf-
irvegunin.“
Kannski er þetta líka spurning um tíma, og
Ransu tekur undir það. „Expressjónin er í
andartakinu, – slettan er spontant, en það að
endurtaka sama mynstrið í sífellu er eins og
þegar búddamúnkar kyrja eða mála mandöl-
ur. Stuttur tími andspænis löngum tíma, eða
jafnvel tímaleysu.“
Giovanni Garcia-Fenech og JBK Ransu í Nýlistasafninu
Augnablikið og eilífðin
Morgunblaðið/Jim Smart
JBK Ransu og Giovanni Garcia-Fenech í Nýlistasafninu. Ransu með dóttur sína, Sóleyju Lúsíu.
TVÆR samsýningar verða opnaðar í Hafn-
arborg í dag kl. 15, annars vegar sýningin
Samspil og hins vegar Sambönd Íslands.
Það eru fimm listakonur sem eiga verk á
sýningunni Samspil: Bryndís Jónsdóttir,
Ása Ólafsdóttir, Kristín Geirsdóttir Magda-
lena Margrét Kjartansdóttir og Þorgerður
Sigurðardóttir. Þær koma einnig að sýning-
uninni Sambönd Íslands því þar má sjá
verk 70 listamanna sem tengjast þeim á
einhvern hátt. Magdalena Margrét er um-
sjónarmaður sýningarinnar og nýtur að-
stoðar hinna listakvennanna. Þetta er al-
þjóðleg sýning með þátttöku erlendra
listamanna sem hafa heimsótt Ísland og ís-
lenskra listamanna búsettra erlendis. Þeim
var boðið að sýna verk sem lýsa landi okk-
ar og þjóð í samræmi við reynslu þeirra af
dvölinni hér. Þetta er farandsýning sem
mun hafa viðkomu víðs vegar á landinu en
Pakkhúsið í Ólafsvík var valið sem fyrsti
sýningarstaðurinn. Flestir gefa listamenn-
irnir verk sín sem framlög til stofnunar
smáverkasafns hér á landi.
Einlægur samhljómur
Listakonurnar fimm hafa allar lært í
Myndlista- og handíðaskólanum og hafa lát-
ið að sér kveða í íslensku myndlistarlífi síð-
ustu tvo áratugina eða svo. Þær hafa líka
allar haldið eða tekið þátt í tugum sýninga,
hér á Íslandi og erlendis og verk þeirra er
að finna í helstu listasöfnum á landinu.
Verk þeirra eru ólík að efnisvali og
framsetningu. Engin þeirra hefur bundist
um of neinni sérstakri stefnu eða kreddu í
listunum heldur hver um sig nýtt sér það
sem hentar úr ýmsum aðferðum og tímabil-
um listasögunnar. Samhljómurinn sem
heyra má í þessari sýningu felst því ekki í
hugmyndafræðilegum kjörorðum heldur er
það sá tónn sem ómar þegar listamenn tak-
ast af einlægni og án fordóma á við efni
sitt og hugmyndir eins og segir í sýning-
arskrá.
Bryndís Jónsdóttir hefur einbeitt sér að
leirlist og höggmyndagerð. Ása Ólafsdóttir
vefur, saumar í og málar. Kristín Geirs-
dóttir fæst við málverk og teikningar.
Magdalena Margrét hefur unnið mest í
grafík. Þorgerður Sigurðardóttir beitir
bæði grafík og málaralist auk þess sem hún
hefur á síðustu árum nýtt sér tölvur til list-
sköpunar.
Jólasveinar Brians Pilkingtons
Þá hefur verið sett upp sýning í kaffi-
stofu Hafnarborgar á jólasveinamyndum
Brians Pilkingtons.
Sýningarnar eru opnar alla daga, nema
þriðjudaga, frá kl. 11–17 og þeim lýkur 22.
desember.
Stemning á
vinarnót-
um í Hafn-
arborg
Morgunblaðið/Jim Smart
Bryndís Ólafsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Þorgerður Sigurð-
ardóttir og Ása Ólafsdóttir í Hafnarborg. Í bakgrunni eru verk Magdalenu Margrétar.