Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.2002, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.2002, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. DESEMBER 2002 7 Vernharður þagði dolfallinn, þangað til Sig- ríður bætti við: karla- og kvennakórar. Af hverju ekki blandaðir? Þetta er allt mjög mikið aðskilið. Aðskilið? Það er ekki allt eins og um var talað. Vertu undir það búinn þegar þú kemur. En við skul- um láta það liggja milli hluta. Þetta kemur allt í ljós. Það væri nú fróðlegt að vita af hverju það er haft aðskilið. Okkur er ekkert sagt um það, þetta minnir bara að mörgu leyti á heimavist. Dáldið þröngt og svona. Og gangar. En vertu ekkert að breiða þetta út með fyr- irkomulagið, sagði Nonni, sem var mjög var- færinn maður. Og alls ekki að kalla það heima- vist. Það yrði varla vinsælt og gæti hreinlega valdið misskilningi. Ja þetta verða þokkaleg vistaskipti, sagði Vernharður. Ég sem er vanur svo stóru húsi að ég er meira en hálftíma núorðið að ráfa endanna á milli. Ætli ég reyni þá ekki að þrauka lengur í minni prívat heimavist. Gleymdu því ekki að þetta hefur sína kosti. Við höfum nú til dæmis félagsskapinn hvert af öðru, sagði Valli jákvæður. Við megum líka segja brandara eins og okkur lystir. Nema ekki klámbrandara. Það er ekki liðið. Hvers konar sóknarnefnd er að skipta sér af því hvernig brandara þið segið núna, spurði jarðarbúinn Vernharður. Gangaverðirnir sjá um að allt fari vel fram, sagði Raggi og hóstaði. Það má til dæmis ekki reykja inni. Gangaverðir? Ég hef aldrei heyrt annað eins. Það hlýtur að vera verra en heimilis- hjálp. Má ég spyrja í hvaða stað þið eruð. Næstbesta. Næstbesta. Er það rósamál fyrir neðra? Það eru í rauninni tvær hæðir á milli. Það er ekki bara efra og neðra eins og okkur var sagt. En þú kemst nú að þessu öllu nógu snemma. Það held ég síður. Finnst ykkur rétt að segja honum frá þessu, spurði Sigríður áhyggjufull og leit á Valla, Ragga og Nonna. Nei, sagði Raggi, mér finnst það ekki rétt, ég hefði ekki viljað vita þetta fyrir. Látiði ekki svona, það er skárra að hafa þetta svart á hvítu, sagði Vernharður. Það er best að þú segir þá frá Nonni, sagði Raggi, þú ert svo hlutlaus og greinargóður. Við skulum segja það, sagði Nonni. Ef við byrjum þá á þriðju og efstu hæð. Þar er mikið af dýrlingum og svona fólki sem hefur verið að fórna sér, eins og prestar og slökkviliðsmenn og einstæðar mæður. Á annarri hæð er bara venjulegt sæmilegt fólk eins og við, sem hefur ekki gert neitt sérstakt af sér annað en bara það að vera manneskja. Á fyrstu hæð er frek- ar vont fólk sem hefur gert eitthvað eitt sér- stakt af sér, og í kjallaranum eru raðmorð- ingjar og ódó og eitthvað af stjórnmálamönnum og fólk sem var alltaf að hækka róminn og ergja sig í lífinu. Það er tek- ið mjög hart á því af einhverjum ástæðum. Ertu ekki orðinn alveg hraðlyginn Nonni minn, spurði Vernharður. Neinei, sagði Sigríður, sem var mjög áreið- anleg manneskja. Og þau horfðu á Vernharð eins og þau hálfvorkenndu honum að hafa frétt þetta. Skyldi vera jafnleiðinlegt á öllum hæðum, sagði Vernharður. Vinirnir þögðu og litu undan allir sem einn. Valli sagði að það væri nú það. Það hefði kvisast út með gangavörðunum að það væri mesta fjörið í kjallaranum. Þar væri svo mikið af krassandi sögum. Sögur allan daginn, alveg fram að háttatíma. Þær væru náttúrlega ekki allar fallegar á þessum stað, en fólk breyttist ekkert með það að vilja frekar heyra ljótar sögur en fallegar. Og það var langmest hlegið í kjallaranum, sögðu gangaverðirnir. Hins veg- ar var góðsemin og fórnfýsin á þriðju hæð víst þreytandi til lengdar og mæðublandin. Svo gangaverðirnir tóku aukavaktir í kjallaranum fegins hendi. Klukkurnar slógu sex. Hljómurinn var svo margfaldur að það var engu líkara en heyrðist í öllum kirkjuklukkum Reykjavíkurborgar inn í gróðurhúsið í Laugardal. Núna voru allir í landinu nýbaðaðir, búnir að pakka öllu inn, há- tíðamaturinn til eða alveg að verða það, búið að ræsta út í öll horn, veskin tæmd, yfirdrátt- arheimildir fullnýttar, margra mánaða kapp- hlaupi við klukkan sex á aðfangadag var lokið. Þeir einu sem tóku ekki þátt í því voru ómálga börn, sumir glæpamenn, rónar og gamal- menni. En einmitt á þeirri stund stund varð gamalmennið hann Vernharður að hefja kapp- hlaup, eða kappgöngu öllu heldur heim á Sunnuveg. Annars yrði lýst eftir honum. Vinir mínir, ég verð að fara, sagði hann við Sigríði, Valla, Nonna og Ragnar. Það á að sækja mig í rjúpurnar, eins og mér finnast þær nú vondar á bragðið og synd að skjóta þær. Þú færð sjálfsagt eitthvert gott meðlæti, sagði Sigríður. Já ég ætti að skammast mín, sagði Vern- harður, og heimatilbúinn ís á eftir. En hvað fá- ið þið? Iss verum ekkert að fara yfir það, sagði Ragnar, og sogaði að sér reykjarkúlu sem hann virtist fyrst hafa blásið frá sér eins og tyggjói. Jú, mig langar að vita hvað þið fáið. Við fáum ekkert, sagði Ragnar hryssings- lega. Við verðum send beint upp á herbergi þegar við komum og fáum ekkert að éta fyrr en annað kvöld. Og það verða leifar. Það er samt einn gangavörður sem gæti reynt að smygla til okkar ef hann er á vakt- inni, af því það er aðfangadagskvöld. Hann er á móti þessum reglum, að það megi ekki bregða sér frá til að hitta gamla vini. Það er leitt að vita af ykkur svöngum, sagði Vernharður. Iss, okkur er alveg sama, sagði Valli. Og al- veg væri ég til í að koma aftur hingað að ári. Vinirnir tóku vel í það. En það var ekki laust við tár á gömlum hvörmum á kveðjustund. Vernharður náði ekki að vera sorgmæddur langan spöl því hann þurfti að hafa svo mikið fyrir því að komast leiðar sinnar til baka. Hann var líka niðursokkinn í hvar hann mundi lenda þegar þar að kæmi. Það var útilokað að hann hefði verið svo ótrúlega góður maður að hann mundi lenda hjá fórnfúsum mæðrum og slökkviliðsmönnum á þriðju hæð. Fyrsta hæð var heldur ekki sennileg, því hann hafði ekki gert neitt sérstakt eitt af sér um dagana, held- ur margt smátt eins og gengur og gerist. Það hlaut því að vera daufleg vistin á annarri hæð sem beið hans. Hvort það væri ekki skárra að möndla sér niður í kjallara meðan hann hafði enn svigrúm til að gera ráðstafanir. Hins veg- ar hafði hann ekki þrek í neinn sérstakan kvikindisskap eða raðmorð til þess að koma sér í versta stað. Hann gæti auðvitað reynt að fara að hækka róminn. En við hvern? Við skúringakonuna? Við Sigrúnu í búðinni? Og á hvaða forsendu? Útrunnir rúsínupakkar ? Gallinn var líka sá að þetta var honum ekki eiginlegt. Og jafnvel þótt honum tækist upp yrði kannski allt unnið fyrir gýg. Það yrði hugsanlega talið of seint ef hann færi fyrst að hækka róminn á síðustu árum eða mánuðum ævinnar. Þannig að úr yrðu tóm leiðindi hérna megin og engin umbun fyrir handan. Hann heyrði hrópin í Möggu litlu langafa- barni þegar hann nálgaðist Sunnuveg: Venn- afi, Vennafi, komdu í jólin. Hún var á undan ömmu sinni til gamla mannsins, og faðmaði á honum fótinn. Hann klappaði henni á kollinn og sagði að hún væri aðal Maggan. Hvaða flandur er á þér pabbi, sagði Hekla. Mér krossbrá þegar þú svaraðir ekki bjöll- unni. Það tók því. Og hvert fórstu eiginlega? Ég var búinn að öllu svo ég leyfði mér að skreppa í garðinn. Hvers konar uppátæki er þetta á aðfanga- dag? Þarftu ekki að hafa fataskipti? Þetta er allt í lagi, ég get komið beint. Ég veit að rjúpurnar mega ekki bíða. Við getum nú alveg hinkrað eftir því að þú farir í jólafötin pabbi minn. Ég er alltaf í jólafötum. Við skulum bara drífa okkur. Dífa sig, dífa sig, sönglaði Magga. Og með það fóru þau í rjúpurnar sem Vern- harður kunni ekki að meta og lýsti því yfir á hverju aðfangadagskvöldi að hann vildi ekki hafa að það væri verið að skjóta þennan fal- lega og bráðgáfaða fugl. En meðlætið bragð- aðist óvenju vel í dag. Waldorfsalat og brún- aðar kartöflur. Og hann tók vel til sín af ísnum hennar Heklu og hugsaði til veslings vina sinna sem sátu matarlausir í skammarkrókn- um á annarri hæð á ótilteknum stað. Á þriðja í jólum var komin snjóföl yfir borg- ina. Skrúðgarðsvörður rölti um Laugardals- garð í birtingu og dáðist að hvítu sáldrinu á trjám og jörð. Þegar hann tók í hurðarhúninn á gróðurhúsinu þá var ólæst. Hann fann reyk- ingalykt og sá vindlastubba á gólfinu hjá lú- inni Loftleiðatösku. Hún hafði að geyma köfl- óttan kaffibrúsa og flatköku í smjörpappír. Vernharður gamli á Sunnuveginum hringdi til skrúðgarðsvarðar þennan dag og sagðist vera orðinn sá rati að hann hefði orðið viðskila við skjóðuna sína, líklega í garðinum. Skrúð- garðsvörður spurði hvenær hann hefði gleymt henni, en Vernharður sagðist vera orðinn svo kalkaður fálki að hann kæmi því ekki fyrir sig hvenær hann var síðast á ferðinni, það væri nú komið þannig fyrir honum að það gætu auð- veldlega orðið skammhlaup milli páska og Þorláksmessu. En hann væri feginn að skjóð- an væri fundin. Þau hefðu átt langa og góða samleið og hann saknaði hennar. Skrúðgarðsvörður spurði kurteislega um vindlastubbana í gróðurhúsinu. Vernharður kannaðist auðvitað ekki við þá og sagði sem var að hann reykti hvergi nema heima hjá sér skúringakonunni til samlætis, og þá sígarett- ur. Höfundur er rithöfundur. Í Steinsmýrar tóftunum stendur minn biskup sem drengur og stráin sig vefja í golu að heimkomu fótum. Er víst að í grasfylgsnum logi ei eldurinn lengur, mun leynast þar glóðin sem fórnin í bernskunnar rótum? Úr torfinu seilist upp funandi faðmlag hans móður og frelsunarbaug yfir gránandi hvirfilinn setur. Hún lífið sitt gaf til að bjarga úr eldi hans bróður, en biskupskvöð skóp honum sjálfum það eldtungu letur. Í dulræðum augunum logi hver ljómar sem viti og lifandi neistaflug orðsins á hjálpræðið bendir. Enn streymir úr djúpsæjum tóftum sá trúarfars hiti, sem tvísýnu mannlífi heilu í friðarhöfn lendir. Hjá Steinsmýrar tóftum varð biskup minn aftur að barni og brennandi tungurót mælti: hví fór ég burt héðan? Þá fann ég að lífsþunga fórnin var helgunar kjarni, sem fékk hann til kærleikans glóandi þjónustu léðan. Hvar vaggan stóð flaug upp einn fugl eins og háborin sending og fólgið í grasinu sá ég hans hreiður með eggjum. Mér virtist sá Steinsmýrar búskapur einskonar bending, um brottflug míns vinar með heimþrá á grasgrænum leggjum. Efri-Steinsmýri er fæðingarstaður Sigurbjörns Einarssonar, biskups, en hann varð 91 árs 30. júní á þessu ári. INGIMAR ERLENDUR SIGURÐSSON Höfundur er skáld. STALDRAÐ VIÐ EFRI-STEINSMÝRI Teikning/Ingimar Erlendur Sigurðsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.