Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.2002, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.2002, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. DESEMBER 2002 11 Hvort er Biblían trúar- eða siðfræðirit? SVAR: Orðið Biblía er fleirtölumynd af orð- inu biblos sem merkir bók. Þetta er réttnefni á helgiritasafni kristinna manna því það er í raun heilt safn 66 sjálfstæðra bóka sem skiptast í tvo meginhluta: Gamla testamentið (39 rit) og Nýja testamentið (27 rit). Eftir inntaki, bókmenntaformi og sögu- legum uppruna má skipa ritum Biblíunnar með ýmsum hætti í flokka. Gyðingar skiptu ritum sínum í þrjár deildir: Lögmálið, spá- mennina og ritningarnar. Fyrsti flokkurinn náði yfir Mósebækurnar fimm. Annar flokk- urinn var tvískiptur. Náði hann yfir rit sem nú á dögum væru einkum talin söguleg, það er Jósúa- og Dómarabók auk Samúels- og Konungabóka er kölluðust eldri spá- mannaritin og auk þess svokölluð yngri spá- mannarit sem bera nöfn einstakra spámanna og segja frá boðun þeirra og starfi. Síðasti flokkurinn náði loks til þeirra rita sem þá voru eftir eins og Sálmanna, Orðskviðanna, Ljóðaljóðanna og Prédikarans. Í fræðilegri skiptingu ritanna nú á dögum eru flokkarnir fleiri. Oft er rætt um frásagn- arrit og lögbækur, ljóðræn rit, spekirit, spá- mannarit og heimsslitarit. Ritum Nýja testa- mentisins má hins vegar skipa í færri og samstæðari flokka: Í fyrsta lagi guðspjöll (og Postulasöguna), í öðru lagi bréf og í þriðja lagi opinberunar- eða heimsslitarit (það er Opinberun Jóhannesar). Auk þessara almennu atriða ber að hafa í huga að einstök rit Biblíunnar, einkum Gamla testamentisins, eru safnrit sem urðu til á löngum tíma fyrir tilverknað margra safnenda eða „ritstjóra“ og í heild sinni spannar ritasafnið hugmyndasögu óralangs tímabils. Þegar þetta er haft í huga er ljóst að textar Biblíunnar eru fjölþættir. Þar er að finna efni sem nú á dögum væri flokkað sem ljóð, lagagreinar, heimspeki, ættfræði, þjóð- sögur, trúarjátningar, helgitextar, prédik- anir, sagnfræði og ótal margt annað. Af þeim sökum kann að orka tvímælis að segja að Biblían í heild sinni sé til að mynda „siðfræðirit“ ef við eigum þá við rit sem heldur fram samstæðum siðaboðskap sem sé til eftirbreytni. Margt í efni Biblíunnar getur meira að segja orkað tvímælis eða orðið til ásteytingar út frá þeim bæjardyrum skoðað. Á sama hátt má segja að margt í Biblíunni kann að falla utan þess sem við nú á dögum mundum vilja flokka undir „trúarrit“ eða guðfræði í þröngum skilningi. Margir munu því einkum vilja skoða hana sem safn sögu- legra rita eða samsafn lífsspeki af einhverju tagi. Er þá komið að túlkun einstakra les- enda á ritunum og tilgangi þeirra með að lesa þau. Frá kirkjulegu sjónarhorni má þó ugglaust segja að Biblían sé fyrst og fremst „trúar- rit“. Í flestum ritum hennar og einstökum textum eða ritabrotum er skammt í glímu manna við Guð eða glímu Guðs við menn. Er þar átt við hina fornu Ísraelsmenn, Gyðinga og loks kristna menn. Í þeim anda les kristin kirkja að minnsta kosti upp valda texta úr hinum ýmsu ritum Biblíunnar í guðsþjón- ustum sínum enn í dag og ætlar þeim að varpa ljósi á glímu okkar við Guð. Hjalti Hugason, prófessor í guðfræði við HÍ. Getur maður einhvern tímann orðið fullmenntaður? SVAR: Það er ekki hægt að gefa eitt ákveðið svar við þessari spurningu því orðið full- menntaður er hægt að skilja á fleiri en einn veg. Hér eru þrjú af mörgum mögulegum svörum við spurningunni. 1. Fullmenntaður getur merkt að maður hafi næga menntun í einhverju fagi eða námsgrein til að hann geti gengist undir lokapróf, útskrifast, hlotið starfsréttindi, prófgráðu eða titil af einhverju tagi. Ef orðið er skilið svona er svarið við spurningunni „já“. 2. Ef menntun merkir lærdóm af því tagi sem miðlað er í skólum þá má skilja orðið fullmenntaður svo að maður sé fullmennt- aður í einhverri grein þegar hann hefur lært hana til hlítar, þannig að ekki sé hægt að læra meira í henni. Nær allar greinar lista, tækni, vísinda og fræða eru umfangsmeiri en svo að einn maður geti numið þær til hlítar. Þekking á flestum sviðum þróast líka og vex svo jafnvel þótt einhver kynni skil á allri speki sem nú er til á einhverju sviði væri hann ekki endilega fullnuma í þeim skilningi að hann gæti ekki bætt við þekkingu sína. Hann gæti gert það með því að afla sjálfur nýrrar þekkingar eða fylgjast með nýjum hugmyndum annarra sérfræðinga í greininni. 3. Orðið menntun er ekki aðeins notað um lærdóm á tilteknum sviðum eða nám í ein- hverjum námsgreinum, heldur líka um ýmsa mannkosti eins og smekkvísi, hagleik, víð- sýni, yfirsýn yfir margar fræðigreinar og ratvísi um heim vísinda, tækni, félagsmála og menningar. Það er afar ólíklegt að nokk- ur maður nái fullkomnun í öllu þessu og verði „fullmenntaður“ í þeim skilningi að hann geti ekki þroskað þessa mannkosti enn meir. Mér þykir ólíklegt að menn viðhaldi þeim kostum sem hér voru nefndir öðru vísi en með sífelldu námi og stöðugri leit. Ég held því að það vanti eitthvað á að sá maður sé fullmenntaður sem telur sig vera það og er af þeim sökum hættur að reyna að auka vit sitt og þroska. Atli Harðarson, heimspekingur og kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands. HVORT ER BIBL- ÍAN TRÚAR- EÐA SIÐFRÆÐIRIT? Af hverju hafa karlmenn geirvörtur, hvað er erfðamengun, hvernig þróaðist líf á fornlífsöld, eru sígarettur skaðlegri en vindlar, pípa eða munntóbak og tapa lög eða önnur gögn gæðum við flutning milli tölva? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undanförnu á Vísindavefnum. VÍSINDI Morgunblaðið/Ásdís Hvernig bók er Biblían? Um hjarta okkar þvert er hræelduð víglínan dregin en orrustan geisar í heitu höfði okkar í miðju hverju landi lýstur fylkingum saman og sérhvert lágt hús er sundurtættur vígvöllur óvona og vona – þannig er þetta vor er tré lifa í ljósi og þjótandi vindsveip stöðug í stormi iðandi í andvara kvöldsins – hvar mætti geymast á hausti þeirra dæmi? Píslarvottar og hetjur: þið sem einn dag áttuð allt undir böðli og presti ykkur var gefin sú von sem flytur fjöll og þessvegna risuð þið æðrulausir – í örvon sem skekur fjöll öndverðir gegn hinu ómennska gegn hinu ómælda og smátt varð það ykkar augum: dæmi ykkar mun geymast að hausti og ári og um aldir píslarvottar og hetjur sá Fönix sem fæðist von iðandi í ljósi. Lágvær rómur blóðs undir óvarðri húð í gagnsæju hjarta manna og goða mál og dulmál eilífðar eins lífs: af anda manns og í líkingu jarðar. (Hendur og orð, 1959.) Ef til vill má líta á öll ljóðin í bók Sigfúsar Daðasonar Hendur og orð semeins konar samfelldan ljóðabálk, þar sem innangengt er milli einstakraljóða, og þau kallist á í ýmsum sameiginlegum hugmyndum. SérstaðaSigfúsar meðal íslenskra skálda hefur meðal annars verið fólgin í tengslum við franska og rómanska ljóðagerð. Myndmál hans er oftlega fremur einfalt á ytra borði, og einhvern tíma nefndi Eysteinn Þorvaldsson „hátíðlegt lát- leysi“ í þessu sambandi, og er vel til fundið. En þó hefur mörgum reynst nokkur glíma að ráða í þessi ljóð, sem kallast mega stundum myrk og torræð. Og reynd- ar eru þau ósjaldan þrungin eins konar mælsku þótt þau séu ekki orðmörg. Eft- irtektarvert er hversu oft mælandi þessara ljóða ávarpar viðmælendur í fleirtölu (og stundum ærið hátíðlega) og þannig má líta á þau sem eins konar heim- spekileg samtöl. Í ljósi alls þessa skal strax játað, að túlkun þessa lokaljóðs er engan veginn auðveld viðureignar, enda verður ekki gerð krafa til þess að út- legging mín hljóti að vera rétt og gild í öllum atriðum. Þetta ljóð er bundnara eigindum hefðar í ljóðformi en flest önnur í bókinni og til að mynda er stuðst við stuðlasetningu, þótt persónuleg sé. Meginreglan er tveir stuðlar í hverju vísuorði, en þó er brugðið út af því (t.d. í þriðju línu annars erindis og fyrstu línu fjórða erindis). Hvert erindi er fjögur svo til jafnlöng vísu- orð, en ekki þó alveg. Myndmál er yfirleitt ljóst og orðaforði ekki torskilinn sem slíkur. Í upphafslínunni er beitt eins konar myndhverfingu og orðið hræeldaður er samsetning sem skáldið hefur sjálft smíðað, og ætti tæpast að misskiljast. Fönix var í egypskri goðafræði tákn sólarguðsins og hinnar daglegu hringfarar sólar og árlegra flóða Nílar. Þessu sneru Grikkir, Rómverjar og kristnir menn í hið algenga tákn fuglsins sem á ákveðnum fresti brennur í eldi en rís aftur ný- skapaður úr öskunni, og stendur því fyrir upprisu og endurnýjun. En þótt þetta megi allt skilja sæmilega vel, er hin dýpri merking ekki eins ljós, fremur en í mörgum öðrum ljóðum Sigfúsar. Þegar ég las fyrst upphaf þessa ljóðs, datt mér strax í hug samtal í lok 23. kafla Atómstöðvarinnar eftir Halldór Laxness þar sem Ugla spyr Búa Árland hvort Ísland hafi verið ofurselt atómstríði. Hann svarar: „Átökin eru milli tveggja grundvallaratriða, sagði hann: vígvöllurinn liggur eftir öllum löndum, öllum sjó, öllu lofti; en einkum þó gegnum miðja vitund okkar sjálfra“ (Atómstöðin 1948, bls. 250). Þetta svar lýtur auðvitað ekki aðeins að atómstríði, heldur hlýtur það að teljast miklu víðtækara, og beinist að lokum að innri átökum mannsins, okkar sjálfra, í eigin glímu við mannlegt eðli og manndóm. Sigfús Daðason beitir sterkum andstæðum og er rétt að taka sérstaklega eftir óvon – von, von – örvon annars vegar og hins vegar píslarvottur, hetja – böðull, prestur. Hin raunverulega barátta mannsins er innra með honum og þar er hon- um teflt fram á „sundurtættan vígvöll óvona og vona“. Þeirri baráttu er líkt við líf trjánna er standa stöðug af sér óveður og eru síðan iðandi af lífi laufblaðanna „í andvara kvöldsins“. Og skáldið spyr hvar finna megi hliðstætt dæmi í lífi mannsins. Og svarið kemur óðar: píslarvottar og hetjur, sem skáldið ávarpar. Við erum vön því að talað sé um að trú geti flutt fjöll, en hér er það vonin. Böðullinn og presturinn standa sem tákn fyrir pólítíska og trúarlega – eða réttara sagt – ver- aldlega og andlega, ytri og innri kúgun. Í örvæntingu sinni, örvon, gefast hetjur og píslarvottar ekki upp, heldur rísa „gegn hinu ómennska gegn hinu ómælda“, hefja sig yfir örlög sín líkt og þau séu smámunir. Slíkir menn falla reyndar fyrir kúguninni, en ekki í uppgjöf, og því endurfæðast þeir eins og fuglinn Fönix, að vísu ekki sjálfir, heldur sem „von iðandi í ljósi“ – sem má skilja sem lífsvon mannkyns, von um réttláta tilveru. Það er hinn lágværi „rómur blóðs“. Óvarða húð og gagnsætt hjarta skil ég sem svo að engin afmörkum sé á milli ytri og innri veruleika. Þar býr „dulmál eilífðar eins lífs“ – vonin um og trúin á ódauðleika lífs- ins. Sú niðurstaða leiðir hugann að öðrum stað í sömu bók, þar sem segir: „Og hin mesta gleði þegar sá tími kom að við vissum að hendur okkar og orð voru lifandi og fullkomin en ekki aðeins hendur og ekki aðeins orð“ (Hendur og orð IX). SIGFÚS DAÐASON HENDUR OG ORÐ XXV LJÓÐRÝNI N J Ö R Ð U R P. N J A R Ð V Í K

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.