Pressan - 16.03.1989, Qupperneq 9
' 'Fi m mt udág u r' f6'. 'mars '1989
9
100 bílar á
annað hundrað
milliónir króna.
Hvenær eru onin-
berir bílar notaðir
til vinnu og
hvenær ekki?
Hveriir fá bíla og
hveriir ekki?
pCTfÍ
■/*< m
* X M
i ‘-m 'ÆJ
Lúxusjeppi á 3,7 milljónir: BMW-bill forstjórans er bilaður.
Flaggskip bílaflota Landsvirkjunar JB ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ M M
kostar sama og íbúð j'tL M|Jl JK iM I L 1,1 llfl
í EIGII LANDSYIRKJUNAR
í haust keypti Landsvirkjun bíl af gerðinni RANGE
ROVER VOGUE, árgerð 1989. Lúxusjeppinn er flagg-
skip bílaflota Landsvirkjunar, sem telur um 100 fólks-
bíla og jeppa.
Range Roverinn kostar nýr 3,7 milljónir króna. í
Morgunblaðinu í gær var auglýst til sölu sjötíu og fimm
fermetra íbúð við Laugateig fyrir sömu upphæð.
TEXTI: PÁLL VILHJÁLMSSON — MYNDIR EINAR ÓLASON OG SIGURÐUR PÉTUR H ARDARSON
BMW-inn bilaöur
„Ef stærsta fyrirtæki landsins
getur ekki verið í friði með bíl af
þessu tagi, þá sé ég ekki hvert við er-
um komnir,” segir Halldór Jónat-
anssson, forstjóri Landsvirkjunar,
þegar bílakaupin eru borin undir
hann.
Range Roverinn er ætlaður yfir-
mönnum Landsvirkjunar þegar
þeir eru starfsins vegna á ferð um
vegi og.vegleysur úti um land. Ólíkt
flestum farartækjum Landsvirkj-
unar, og annarra opinberra stofn-
ana, er jeppinn ekki merktur fyrir-
tækinu.
Engar grunsemdir_______________
„Eg stend í þeirri trú að allir bílar
Landsvirkjunar eigi að vera merktir
stofnuninni” segir Sigurjón Péturs-
son, stjórnarmaður i Landsvirkjun.
Sigurjón segist ekki hafa neinar
grunsemdir um að bílar stofnunar-
innar séu notaðir til annars en verk-
efna á vegum fyrirtækisins.
Sigurjón sagðist ekki vita til þess
að aðrir en forstjóri og aðstoðar-
forstjóri hefðu samning við stofn-
unina um bílafríðindi.
Á hinn bóginn á stjórn Lands-.
Nissan Patrol-jeppi Landsvirkjunar við heimili starfsmanns. Fjölskyldubilinn hafði fennt inni.
Að sögn Halldórs er Range Ro-
verinn alla jafna staðsettur í bíla-
geymslu Landsvirkjunar, þegar
hann er ekki í notkun. Undanfarið
hefur Halldór sjálfur ekið jeppan-
um til og frá vinnu sinni á Háaleitis-
braut 68. Ástæðuna segir hann vera
að BMW-bíIlinn (tegundin er 528 I
árg. ’87, metinn á l,6 milljónir),
sem Landsvirkjun leggur Halldóri
til, sé bilaður.
Halldór og aðstoðarforstjóri
hans, Jóhann Már Maríusson, fá
samkvæmt samningi bíla frá
Landsvirkjun. Jóhann Már fékk í
byrjun árs 1987 bíl af gerðinni Saab
9000 turbo. Saabinn er metinn á
Aðstoðarforstjórinn er með Saab 9000 turbo til umráða: Hluti af
launakjörum.
virkjunar erfitt með að meta bíla-
kaup fyrirtækisins þar eð stjórnin
fær ekki sundurliðað hvaða bílar
eru keyptir og til hvers.
Bifreiðir opinberra stofnana eru
merktar á áberandi hátt til að koma
í veg fyrir misnotkun þeirra í einka-
þágu. Það er oft umdeilanlegt hve-
nær starfsmenn nota bifreiðir við
vinnu sína og hvenær til eigin nota.
Almenna reglan mun vera sú að bíl-
ar í opinberri eigu skuli ekki notað-
ir nema á vinnutíma þess starfs-
manns sem á í hlut.
eina og hálfa milljón króna í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá um-
boðinu hafa um 60 bílar af þessari
gerð verið fluttir til Iandsins. Ragn-
ar Júlíusson, þáverandi stjórnar-
formaður Granda, fékk samskonar
Saab á sínum tíma og vakti það at-
hygli.
„Draumabíll____________________
leigubilstjórans“______________
í bílaflota Landsvirkjunar eru
einir 15 Toyota Hi Lux-jeppar.
Fimrn bílar af þessari gerð voru
keyptir í byrjun þessa árs, en frá
umboði kostar hver l,3 milljónir
króna. Toyoturnar þykja góðir
vinnuhestar og eru notaðar á heið-
um uppi, til viðgerða og eftirlits.
Tólf Subaru-bifreiðir eru skráðar
í eigu Landsvirkjunar og sagði
Halldór að þær væru til brúkunar
upp til sveita og annars staðar þar
sem þörf væri á torfærubifreiðum.
Elstu Subaru-bílarnir eru frá 1982
og yngstu frá þessu ári. Nýr Subaru
kostar eina og hálfa millión króna.
Stöðvarstjórinn í Búrfellsvirkjun
er með til umráða Cherokce Laredo
árg. 1988, metinn á l,8 milljónir.
Annar yfirmaður ekur á Chevrolet
Blazer árg. 1987, metinn á eina og
hálfa milljón.
Um sama leyti og Range Roverinn
var keyptur voru tveir gamlir bílar
af sömu tegund seldir. í staðinn fyr-
ir þá voru keyptir japanskir jeppar,
líklegast af gerðinni Pajero.
Þá eru í eigu Landsvirkjunar
tveir bílar af gerðinni Peugeot 505
Gr Fam, „draumabíll leigubílstjór-
ans”, eins og sölumaður í Jöfri
nefnir bíltegundina.
Erfitt er að meta verðmæti bíla-
flota Landsvirkjunar. Varlega áætl-
að er jafnaðarverð bifreiðanna rúm
milljón króna. Samtals má gera ráð
fyrir að bílarnir kosti nokkuð á
annað hundrað milljónir króna.
Að sögn Halldórs Jónatanssonar
lét Landsvirkjun gera athugun á því
hvort það borgaði sig fyrir stofnun-
ina að eiga bíla eða leigja hjá bíla-
leigum. Hann sagði niðurstöðuna
þá að það borgaði sig að stofnunin
ætti eigin bílaflota.