Pressan - 16.03.1989, Blaðsíða 13

Pressan - 16.03.1989, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 16. mars 1989 13 Á fundi hjá Kvennalistanum í Reykjavík fyrir skömmu var tekin ákvörðun um að fresta fyrirhuguðum útskipt- um á tveimur þingkonum í vor. Fyrirhuguð þingkvenna- skipti áttu að fara fram á miðju kjörtímabili eins og lof- að var fyrir síðustu alþingiskosningar og áttu þær Guð- rún Agnarsdóttir og Kristín Halldórsdóttir að víkja fyrir þeim Guðrúnu Halldórsdóttur og Önnu Ólafsdóttur Björnsson. Formleg ákvörðun um þessa frestun hefur ekki enn verið tekin en meirihluti innan Kvennalistans er sagður á þeirri skoðun að heppi- legt sé að fresta þessari útskiptingu. Þó munu vera mjög skiptar skoðan- ir um málið. „Sumar vilja láta til- finninguna ráða en aðrar vilja halda fast við prinsippið," segir ein þeirra í samtali við Pressuna. Þá mun einnig hafa verið ákveðið að þegar að því kemur að skipt verður um þingkonur þá muni að- eins önnur þeirra vikja í fyrstu. Síð- an að hálfu eða heilu ári liðnu fari næstu skipti fram. Ýmsar kvennalistakonur sem rætt var við töldu að umræðunni yrði a.m.k. frestað fram yfir þing- lausnir í vor. Sumar töldu að þetta þýddi ennþá lengri frestun og Guð- rún Halldórsdóttir varaþingkona sagðist ekki vilja útiloka að innan Kvennalistans væru einhverjar þeirrar skoðunar að hætta ætti við þessi þingkvennaskipti alveg út kjörtímabilið. Kvennalistinn er þarna augsýni- lega að draga kosningaloforð í land. Reglan um að þingkonur list- ans sitji aldrei lengur en 6—8 ár á þingi var sett á landsfundi listans árið 1986. Á þeirri reglu var kosn- ingaloforðið vorið 1987 byggt, en þá var því lýst yfir að vorið 1989, á miðju kjörtímabili, myndu tvær kvennalistakonur víkja fyrir vara- mönnum. Röksemdirnar voru tvær; annars vegar átti þessi stefna að vera í samræmi við valddreifingu og koma í veg fyrir að þingfulltrúar Kvennalistans festust í valdakerfinu til Iangframa. Hins vegar var það talið til góðs að dreifa ábyrgðinni og nýta krafta og hæfileika sem flestra kvennalistakvenna. Hvað hefur þá orðið til þess að kvennalistakonur vilja nú fresta þessunt yfirlýstu aðgerðum? „Það er ekkert launungarmál að við höf- um fundið fyrir þrýstingi frá kon- um, ekki síst af landsbyggðinni, að endurskoða þessa ákvörðun um að skipta út á þingi,“ segir Sigrún Helgadóttir, starfsmaður á skrif- fyrst og fremst sú að við viljum finna heppilegan tíma fyrir alla að- ila til að láta þessi skipti fara fram. “ Á síðasta ári var Guðrún Agnars- dóttir reyndar þegar farin að viðra þá skoðun að Kvennalistinn kynni að endurskoða útskiptaregluna. Sagði hún í viðtali við Tímann að Kvennalistinn yrði að laga sig að breyttum aðstæðum og mætti ekki hika við að breyta fyrri ákvörðun- um sínum í samræmi við það. Ákvörðunin nú kemur hins vegar nokkuð skyndilega. í nýju hefti fréttatímaritsins Þjóðlífs eru birt viðtöl við þær Guðrúnu Halldórs og Önnu Ólafsdóttur Björnsson um væntanlega þingsetu (Deirra og verður ekki annað ráðið af þeim viðtölum en útskiptin eigi að fara fram í vor. Þegar Pressan ræddi þessi mál við Önnu og Guðrúnu voru þó báðar sáttar við að fresta ákvörðun um útskiptinguna. „Við erum samt alls ekki að víkja frá reglunni fyrir fullt og allt. Þetta er skammtímafrestun." segir Guð- rún. í tengslum við þessa umræðu hefur einnig verið rætt um að festa þá reglu að ef Kvennalistinn sest í ríkisstjórn verði ráðherrar flokks- ins ekki úr hópi þingkvennanna. Þá hefur Pressan heyrt að einhverjar kvennalistakonur hafi borið upp tillögu um að samþykkt verði að Guðrún Agnarsdóttir verði ráð- herraefni listans. Þessu hafna þær konur sem rætt var við og sögðu reyndar fráleitt að ákveða slíkt fyr- irfram. Kvennalistinn hefur hrapað í fylgi í skoðanakönnunum undan- farið. Því hefur verið talið að sú pólitíska staðreynd ráði einnig nokkru um að Iistinn dregur yfirlýs- ingar um útskiptin í land. Byggt verði áfram á reynslu þeirra sem hafa setið á þingi en jafnframt er tekin sú áhætta að Kvennalistinn verði staðinn að því að standa ekki við kosningaloforð. „Upphaflega ákvörðunin var sú að þessar útskiptingar ættu að ger- Guðrún fær að sitja áfram. Ákvörðun um að fresta útskiptunum í þingflokki Kvennaiistans getur þýtt að Guðrun Agnarsdóttir fái að sitja allt kjörtímabiiið. Hún hefur nú setið á alþingi i sex ár. Pressumynd/Einar Ól. Þingkonur Kvennalistans STÓLASKIPTUM Kvennalistinn frestar ákvörðun um að skipta út þingmönnum listans í vor. kosningaloforðinu um útskipti á miðju kjörtímabili Deilur innan flokksins um að víkja frá stofu þingflokksins. Ýmislegt er tínt til. Margar konur sem Pressan ræddi við segja að nú sé slík óvissa uppi í íslenskum stjórnmálum að lítið vit sé í því að skipta út í þingflokknum þegar ríkisstjórnin geti farið frá hvenær sem er og kosningar blasi við. Aðrar vísa til þess að nú megi ekki fórna ómissandi þingreynslu þeirra sem hafa setið á alþingi í nokkur ár fyrir Kvennalistann. Anna Ólafsdóttir Björnsson er þó á öðru máli: „Ég tel ekki að breyttar aðstæður í stjórnmálum hafi neitt með þetta að gera. Það hefur verið svo lengi óvissa í stjórn- málunum," segir hún. „Ástæðan er ast eftir tvö ár. Aðstæðurnar núna segja okkur að það sé skynsamlegra að fresta þessu. Það verður alltaf umdeilt að skipta svona út en við er- um allar harðar á því að það verði gert. Núna snýst spurningin um að velja réttan tíma,“ segir Sigrún Helgadóttir. Skv. heimildum Pressunnar er talið líklegast að það falli í hlut Kristínar Halldórsdóttur að hverfa af þingi þegar og ef ákvörðun verð- ur tekin síðar á kjörtímabilinu um að gefa útskiptareglu Kvennalistans gildi að nýju. Tími Guðrúnar Agn- arsdóttur verði þá lengdur um a.m.k. hálft ár frá því fyrsta skipt- ing fer fram. Kristín Halldórsdóttir. Ýmsar kvennalistakonur leggjast gegn því að fórna reyndum þingtulltruum listans með þvi að skipta út á þingi eins og lofað var fyrir kosningarnar 1987. Þá hefur verið ákveðið að láta aðeins eina þingkonu víkja i stað tveggja þegar og ef skiptingin verð- ur gerð síðar á kjörtimabilinu.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.