Pressan - 16.03.1989, Page 11
%'%‘i cteiri .8* rjpsl'L'irnrri'i
or
Fimmtudagur 16. mars 1989
pressupennar
Hagfrœði í kreppu
Fyrir rúmum 2.300 árum skrifaði
Xenofon, Iærisveinn Sókratesar,
verk um húshald og landbúnað sem
hann kallaði „Oikonomikos". í
verkinu endurspeglast upprunaleg
merking gríska hugtaksins „0kon-
omia“ sem á íslensku útleggst sem
hagfræði. Bækur segja mér að hug-
takið sé myndað úr orðunum
„oikos“ sem þýðir hús eða bústaður
og „némein" sem þýðir að skipu-
leggja eða útdeila. „0konomia“ er
með öðrum orðum ekkert annað en
húshald og af því leiðir Iíklega að
„okonom", sem við höfum gefið
hið virðulega starfsheiti hagfræð-
ingur, er sá sem heldur hús t.d. hús-
móðir.
í verki Xenofons ræða þrír sam-
tímamenn hans, Sókrates, Krito-
bulos og Ischomachos, m.a. um
mikilvægi þess að eiga góða eigin-
konu sem helgar sig innanhússiðju
og er undirgefin, iðin, hagsýn og út-
sjónarsöm. Þó karlar þessir hafi nú
legið um 2.300 ár í gröf sinni eru
viðhorf þeirra holdtekin í ótrúlega
mörgum karlmönnum enn þann
dag í dag. Það sem þó hefur tapast
á langri vegferð þessara viðhorfa er
kannski það sem síst skyldi; viður-
kenningin á því að vinna kvenna á
heimilunum hefur jafnmikla þýð-
ingu fyrir hagkerfið og vinna karla
utan þess.
Sú hagfræði sem nú er ástunduð
er afsprengi iðnvædds samfélags
Vesturlanda þar sem það eitt hefur
gildi sem hægt er að markaðssetja,
versla með og fá fyrir krónur og
INGIBJORG SOLRUN.
GÍSLADÓTTIR
aura. Allt verður ósýnilegt sem ekki
er hægt að meta í þeim eina gjald-
miðli sem gildur er — peningum.
Vinna telst því aðeins framleiðin og
marktæk í hagtölum ýmiss konar
að greitt sé fyrir hana. Þar með
komast heimilisstörfin aldrei upp á
borð hagfræðinganna og stjórn-
málamannanna, rétt eins og þau
væru alls ekki unnin. Því verður þó .
tæpast á móti mælt að heimilisstörf
eru ein stærsta atvinnugrein allra
samfélaga — hvort sem reiknað er
út frá fjölda einstaklinga í greininni
eða unnum ársverkum. Þessi störf
byggjast á ólaunaðri vinnu kvenna,
því þó konur hafi farið út á vinnu-
markað í síauknum mæli er langur
vegur frá að karlar hafi fetað sig inn
á heimilin að sama skapi.
Hagfræði og efnahagsmál hafa
hingað til verið talin til sérsviðs
karla sem konur hafi sýnt takmark-
aðan áhuga. Það má til sanns vegar
færa en það þarf víst engan að
undra í ljósi þess að veruleiki
kvenna á sér hvergi stað í hagfræð-
inni og hefðbundnar umræður um
efnahagsmál snúast fyrst og fremst
um efnahag fyrirtækja en ekki
heimila. í umræðum um efnahags-
mál er talað um þau ytri skilyrði
sem búa þurfi fyrirtækjunum í
landinu svo þau geti starfað og
framleitt áfallalaust. Það tilheyrir
aftur annarri og ómerkari umræðu
að ræða þau ytri skilyrði sem búa
þurfi heimilunum svo þau geti
framleitt — svo notuð séu hugtök
hagfræðinnar — vinnandi konur
og karla fyrir framtíðina og komið
þeim til manns áfallalaust. Það er
hins vegar sú framleiðsla sem konur
hafa borið ábyrgð á um aldir og sem
þær hafa mestan áhuga á.
Hagkerfi Vesturlanda er í kreppu
og ekki síður sú hagfræði sem það
byggir á. Hagfræði sem felur þá
staðreynd að sé litið á heiminn allan
lenda 75% allrar vinnu á herðum
kvenna en þær bera úr býtum að-
eins 10% launanna. Hagfræði sem
byggir á því að framleiða meira í
stað þess að hagnýta betur. Hag-
fræði sem verður til þess að ekki að-
eins vextirnir eru nýttir, þegar auð-
lindir jarðar eru annars vegar, held-
ur er líka gengið á höfuðstólinn.
Hagfræði sem hefur smækkað líf
okkar niður í atvinnulíf og athafnir
niður í sókn eftir gróða.
Það sem ég vildi sagt hafa er að
það þarf ekki að breyta konum til
að þær fái áhuga á hagfræði heldur
hagfræðinni svo hún veki áhuga
kvenna. Sú breyting verður þó tæp-
ast nema konur láti málið til sín
taka.
MEÐ
ÞÆGILEG
SJÓFERÐ
Á hverjum fimmtudegi yfir
sumarmánuðina fer bfl-
ferjan Norræna frá Seyðis-
firði. Nú skal siglt á vit
ævintýra í sumarleyfinu.
Möguleikamir eru margir:
Færeyjar, Noregur, Dan-
mörk og Hjaltland. Sé bfll-
inn með í för halda mönn-
um engin bönd. Fátt er
ánægjulegra en að vera sinn
eigin herra og aka þangað
sem hug-
3G SLAKANDI
NORRÆNU!
ir. Það fylgir því ljúf til-
finning að láta úr höfn á
góðu fleyi á góðum degi.
Fram und-
an er þægileg og
slakandi sjóferð^
sem gefur þér og
þínum færi á að ná áttum
á leiðinni í leyfið. Það
er eitthvað annað
en streitan og ösin
sem fylgir flugferðum.
Sigling yfir Atlantshaf
er líka ævintýri út af
fyrir sig. Ferð sem
menn verða að reyna til þess
að finna muhinn. Það þarf
enginn að óttast ó-
"V þægindi umborðí
Norrænu.
Fullkom-
inn stöð-
ugleika-
búnaður
veldur því að hún fer sérlega
vel í sjó og um borð er að
finna öll þau þægindi sem
ferðalangurinn þarfnast.
Veitingastaðir, barir og
aðrir skemmtistaðir seðja
hungur og stytta mönnum
stundir. Leikaðstaða fyrir
bömin gerir siglingu með
N orrænu að fýsilegum kosti
fyrir fjölskylduna. Ekki síst
þar sem lága verðið kemur
öllum á óvart.
NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN
SMYRIL-LINE ÍSLAND
LAUGAVEGUR 3 101 REYKJAVÍK
SÍMI 91-62 63 62
AUSTFAR HF.
N0RRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN
FJ^RÐARGÖTU 710 SEYÐISFIRÐI
SIMI 97-211 11
AFSLÁTTUR
ClfíftlAI / lÍÍT
dVINAl GULLASCH luul .. KR.690
M/KRYDDUÐUM HRÍSGRJÓNUM
SNITCHEL .. KR.895
SMÁRÉTTIR .. KR.735
M/GRÆNMETI
KÖTILETTUR ..KR.795
HNAKKI BEINLAUS... .. KR. 699
HAMBORGARHRYGGIR ..KR.655
HAMBORGARLÆRI ... ..KR.595
BAYON SKINKA .. KR.695
FOLALD
SNITCHEL.......... KR.795
GULLASCH...........KR.665
FILLET. ...........KR.820
MÖRBRÁÐ............KR.820
HAKK...............KR.210
SMÁSTEIK...........KR.305
PIZZA KYNNING!
VERÐ AÐEINS 296 KR./STK STÆRRI GERÐ
FIMMTUDAG OPIÐ TIL 18.30
FÖSTUDAG OPIÐ TIL 19.30
LAUGARDAG OPIÐ TIL 16.00
I
I
I**SSgðlB
68 5168.