Pressan - 16.03.1989, Page 27
Fimmtudagur 16. mars 1989
27
sjónvarp
FIMMTUDAGUR
16. mars
Stöö 2 kl. 21.55
ÆRSLA-
DRAUGURINN "
(Poltergeist II)
Bandarisk hrollvekja frá 1986.
Leikstjóri: Brian Gibson. Aðalhlut-
verk: JoBeth Williams, Craig T.
Nelson, Heather O’Rourke og Oli-
ver Robins.
Steven Spielberg átti heiðurinn af
fyrirrennara þessarar myndar. Sú
vakti mikla athygli og hlaut góða
aðsókn þannig að auðvitað varð að
fylgja því eftir. Söguþráðurinn í
númer tvö er ósköp svipaður; sak-
lausa vísitölufjölskyldan fær ekki
frið á heimilinu fyrir ófrýnilegum
afturgöngum, lífið verður hreinasta
víti en allt fer vel að lokum. Bætir
engu við fyrstu myndina, nema
kannski með enn betri brellur. Var-
ist væmin endalok. Alls ekki við
hæfi barna.
Stöð 2 kl. 23.25
LÍF ZAPATA * * * *
(Viva Zapata)
Bandarisk kvikmynd frá 1952.
Leikstjóri: Darryl F. Zanuck. Aðal-
hlutverk: Marlon Brando, Anthony
Quinn og Jean Peters.
Myndin fjallar um uppgang og
frægðarferil mexíkanska skæru-
liðaforingjans Zapata, sem steypti
stjórninni af stóli og varð að end-
ingu forseti Iandsins. Einstaklega
góð mynd þar sem svo virðist sem
valinn maður sé í hverju rúmi:
Marlon Brando samkvæmur sjálf-
um sér, Anthony Quinn hlaut Osk-
arsverðlaun fyrir leik sinn og hand-
ritshöfundur var Nóbelsverðlauna-
hafinn John Steinbeck. Þessi er vel
þess virði að vaka yfir.
FÖSTUDAGUR
17. mars
Stöö 2 kl. 16.30
EILÍF ÆSKA * *
(Forever Young)
Bresk mynd frá 1984. Leikstjóri:
David Drury. Aðalhlutverk: James
Aubrey, Nicholas Gecks og Alec
McCowen.
Ungur, einhleypur prestur verður
mjög hændur að tólf ára föðurlaus-
um dreng. Fyrr en varir verður hann
líka hrifinn af móður drengsins og
upp frá því byrja vandamálin. Sál-
arflækjur og fleira í ágætri mynd.
Stöð 2 kl. 21.50
APAPLÁNETAN
UNNIN * *'*
(Conquest of the Planet
of the Apes)
Bandarísk vísindaskáldsaga frá
1972. Leikstjóri: J. Lee Thompson.
Aðalhlutverk: Roddy McDowall,
Don Murray og Ricardo Montal-
ban.
Fjórða myndin í röð kvikmynda
sem gerðar voru um framtíð jarðar-
innar, þegar apar hafa öðlast gáfur
mannanna og gert þá að þrælum
sínum. Þessi mynd segir frá því þeg-
ar aparnir seilast eftir yfirráðum.
Þótt leikur sé stundum losaralegur
er þetta hin ágætasta vísindaskáld-
saga.
Ríkissjónvarpið kl. 22.50
MORANT
LIOÞJÁLFI ****
(Breaker Morant)
Áströlsk kvikmynd frá 1979. Leik-
stjóri: Bruce Beresford. Aðalhlut-
verk: Edward Woodward, John
Waters og Bryan Brown.
Áströlsk kvikmyndagerð sló ræki-
lega í gegn með þessari meistara-
Iegu mynd um þrjá ástralska her-
ntenn sem börðust með Bretum í
Búastríðinu upp úr síðustu alda-
mótum. Þeir eru ranglega dregnir
fyrir rétt, ákærðir um að hafa myrt
stríðsfanga, til þess að þjóna
áformum breska heimsveldisins.
Átakanleg mynd sem . unnendur
góðra mynda ættu ekki að missa af.
Stöð 2 kl. 23.20
GÓÐA NÓTT
MAMMA **
(’night Mother)
Bandarískt sjónvarpsleikrit frá
1986. Leikstjóri: Tom Moore. Aðal-
hlutverk: Sissy Spacek og Anne
Bancroft.
Óhamingjusöm, ung kona, sem býr
með móður sinni, ákveður að stytta
sér aldur. Móðirin eyðir nóttinni í
að reyna að fá dótturina ofan af
þessari örlagaríku ákvörðun.
Myndin er vel leikin og leikstjórn
ágæt, en það skemmir mikið að hér
er um kvikmyndað leikrit að ræða,
þar sem sagan missir talsvert í yfir-
færslunni.
Stöð 2 01.00
UPPLJÓSTRARINN
MIKLI
(The Supergrass)
Bresk gamanmynd. Leikstjóri: Pet-
er Richardson. Aðalhlutverk: Adri-
an Edmondson, Jennifer Saunders
og Peter Richardson.
Miðlungsgrínmynd um mann sem
freistar þess að endurvekja áhuga
kærustunnar með því að þykjast
vera eiturlyfjasmyglari. Þegar lög-
reglan stendur hann að verki við
lýsingu á verknaði sínum fer gam-
anið að kárna. Myndinni er haldið
uppi af einum besta gamanleikara
Breta, Adrian Edmondson, sem er
óborganlegur í hlutverkinu.
LAUGARDAGUR
18. mars
Stöð 2 kl. 12.45
FULLKOMIN *"
(Perfect)
Bandarísk mynd frá 1985. Leik-
stjóri: James Bridges. Aðaihiut-
verk: John Travolta og Jamie Lee
Curtis.
Blaðamaður Rolling Stone fær það
verkefni að fletta ofan af heilsu-
ræktarstöðvum í Kaliforníu. Hann
er ekki mikið fyrir líkamsrækt en
það viðhorf breytist þegar hann
verður ástfanginn af einum heilsu-
ræktarkennaranum. Frekar þunn
ntynd sem mætti alveg bæta á sig í
handritsdeildinni. John Travolta er
enn að reyna að endurheimta forna
frægð en tekst náttúrulega ekki.
Ríkissjónvarpið kl. 21.30
OFURMÆRIN *"
(Supergirl)
Bandarísk bíómynd frá 1984. Leik-
stjóri: Jeannot Szwarc. Aða/hlut-
verk: Heien Slayter, Faye Dunaway,
Peter O’Toole og Mia Farrow.
Það má reikna með því að velgengni
Superman-myndanna sé ástæðan
fyrir þessari gróðatilraun, en því
miður var tilefnið ekki nógu gott.
Þetta er frekar slöpp ævintýramynd
um fjarskylda frænku Ofurmennis-
ins sem kemur til jarðar til að
bjarga jarðarbúum frá tortímingu
(nema hvað?). Góðir leikarar mega
sín lítils gegn fáránlegu handriti
myndarinnar.
Stöð 2 kl. 21.50
KISULÓRUR * * *
(What’s New Pussycat?)
Bandarísk gamanmynd frá 1964.
Leikstjóri: Clive Donner. Aðalhlut-
verk: Peter O’Toole, Peter Sellers,
Woody Allen, Ursula Andress og
Romy Schneider.
Þetta var fyrsta myndin sem Woody
Allen kom nálægt, bæði sem hand-
ritshöfundur og leikari. Eins og við
er að búast tekst meistaranum
snilldarlega upp í þessum farsa,
sem fjallar um hálftruflaðan tísku-
blaðsútgefanda sem leitar til sál-
fræðings vegna kvennamála. Þar er
litla hjálp að fá, því sálfræðingur-
inn reynist enn brenglaðri. Stór-
skemmtileg mynd með úrvalsleik-
urum.
Rikissjónvarpið kl. 23.20
PENINGAR **"
(L’Argent)
Frönsk/svissnesk sakamálamynd
frá 1983. Leikstjóri: Robert Bress-
on. Aðalhlutverk: Christian Patey,
Sylvie Van den Elsen, Michel Brigu-
et og Caroline Lang.
Myndin er byggð á smásögu Tol-
stojs og greinir frá manni sem þigg-
ur peninga sem reynast falsaðir.
Hann lendir í höndum lögreglunnar
og eftir það fer að halla undan fæti
hjá honum.
LIFI KNIEVEL
(Viva Knievel)
Bandarisk vitleysa frá 1977. Leik-
stjóri: Gordon Douglas. Aðalhlut-
verk: Evel Knievel, Gene Kelly,
Lauren Hutton og Leslie Nielson.
Hryllileg mynd um vélhjólaofur-
hugann Evel Knievel. Fyrirmynd
myndarinnar, sem leikur sjálfan
sig, gerði sér það til dundurs að slá
heimsmet í því að stökkva á hjóli
sínu yfir fjöldann allan af bílum.
Hefði betur haldið sig við það.
Forðist þessa með öllum tiltækum
ráðum!
Stöð 2 kl. 02.15
MERKI Z0RRÓ * *
(The Mark of Zorro)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1974.
Leikstjóri: Don McDougall. Aðal-
hlutverk: Frank Langella, Ricardo
Montalban, Gilbert Roland og
Yvonne de Carlo.
Þetta er þriðja útgáfan af sögunni
um Zorró sem Hollywood lætur frá
sér og sú slakasta. Myndin segir frá
ungum aðalsmanni í hinum kon-
unglega spænska her, Zorró, sem
ákveður að halda aftur á heima-
slóðir. Þar kemst hann á snoðir um
svikráð gegn fjölskyldu sinni og
bregður upp kunnuglega gervinu.
Ágætisafþreying en lítið meira.
s
19. mars
Stöð 2 kl. 16.20
ÆRSLAGANGUR ***
(Stir Crazy)
Bandarísk gamanmynd frá 1980.
Leikstjóri: Sidney Poitier. Aðal-
hlutverk: Gene Wilder og Richard
Pryor.
Þessi afbragðsfarsi leiðir saman tvo
af bestu gamanleikurum Banda-
ríkjanna í hlutverkum tveggja vina,
sem lenda í skoplegum ævintýrum á
leið sinni til Kaliforníu. Þar hyggj-
ast þeir finna frægð og frama en
óvænt fangelsisvist setur strik í
reikninginn.
Stöð 2 kl. 23.10
REMAGEN-RRÚIN **"
(Bridge at Remagen)
Bandarísk stríðsmynd frá 1968.
Leikstjóri: John Guillermin. Aðal-
hlutverk: George Segal, Robert
Vaughn og Ben Gazzara.
Vel leikin mynd um atburði úr enda-
lokum seinni heimsstyrjaldar.
George Segal og félagar leika
bandamenn sem eiga að leggja und-
ir sig brú eina sem Þjóðverjar verja.
Söguþráðurinn kemur manni að-
eins of kunnuglega fyrir sjónir, en
það er nóg af sprengingum fyrir þá
sem hafa gaman af slíku.
dagbókin
hennar
Kæra dagbók.
Það er nú meira livað fullorðna
lólkið gerir mikið mál úr þessum
bjór. Maður gæti haldið að þaö
hefði ekki fengist dropi af'áfengi á
landinu fyrren hann kom. Pabbi og
mamma eru að minnsta kosti að
sálast úr áhyggjum yfir því að ég
verði bjórnum að bráð, þó þau hafi
næstum aldrei stressað sig út af því
að ég gæti Iagst í óreglu með hvit-
vín, rauðvín og alls konar sterkt
brennivín.
Kannski láta þau bara svona
vegna þess livað annna á Einimeln-
um hrærir ógeðslega í þeim með
þetta. Hún gerir alveg í þvi að dæla
í þau hörmungarsögum um bjór-
drykkju barna og unglinga, sem
hún hefur persónulega og prívat
orðið vitni að frá I. mars. El marka
má sögurnar ranglar dauðadrukkið
ungmenni ælandi niður Einimelinn
á svona þriggja mínútna fresti og
ekki færri cn þúsund strákar liafa
pissað upp við bilskúrinn hans ala
heitins, (Amma neitaði nelnilega
aö láta byggja skúrinn, en ali gerði
það samt. Þess vegna er hann alltaf
kenndur viö ala greyið, sem hefur
ekki halt neina þörf lyrir bíla-
gcymslu siðan hann dó lyrir mörg-
um árum.)
Þcssi bjórhræðsla náði hámarki,
þegar ég lór i bekkjarpartý hjá
Guggu Jóns tun daginn. Ég ætlaði
aldrci að komast af stað lyrir eilif-
um spurningum, en hvernig í ósköp-
unum átti ég eiginlega að vita
hvcrra manna hún Gugga væri? Ég
bara spyr! Auðvitað hlýtur pabbi
hennar að heila Jón, lyrst hún er
.lónsdóttir, en mamma hringdi í 03
og það var cinhver Sæmundur
skrifaður fyrir símanúmerinu. Það
þótti mömmu voða duló, þó mér
lyndist geta vcrið milljón skynsam-
legar skýringar á þvi . . .
Loksins þegar ég komst í partýið
var rosalega gaman og það var ná-
kvæmlega ekki sála að drekka bjór.
Ein stelpa kom með hvítvínsflösku
(lyrir sig og tvær aðrar) og einn
strákur með hálfan pela af ein-
hverju glæfu, sem hann nennti ekki
einu sinni að klára. Það var nú allt
svallið. En þegarég kom heim filaði
ég mig eins og fjöldamorðingja i
yfirheyrslu hjá Derriek, þvi pabbi
var ennþá sprellvakandi. Hann
heimtaði að lá að vita hvort einhver
hefði reynt aö hella mig l’ulla af bjór
og trúði ekki neinu, sem ég sagði.
Gvuuuð, livað liann var leiðinleg-
ur . . . (Nema hann hafi kannski
barasta verið fullur. Það voru
nefnilega sjö Budweiserdollur i
ruslinu inni í eldhúsi.)
Ég fékk ekki einu sinni að sofa út
í friði morguninn eftir partýið, því
síminn hringdi alveg brjálað klukk-
an hálftíu. Það var anuna, senr vildi
láta pabba keyra sig i morgunkaffi
til Dóru vinkonu sinnar. (Hún vildi
ekki fara á „tíkimii", af því Dóra er
alltaf með svo gott sérrí með kal f-
inu!) En pabbi var eitthvað ferlega
lasinn í maganum oggat ekki keyrt
liana, svo annna varð að láta sig
hafa það að taka „prívatbíl" (eins
og hún kallar leigubila, þegar hún
kallar þá ekki ,,stöðvarbíla“).
Bless, Dúlla.