Pressan - 07.09.1989, Blaðsíða 28

Pressan - 07.09.1989, Blaðsíða 28
PRESSU MOJLAR .VAVA’lv.'viv AUJ, hiYiYHi Híúverandi borgarfulltrúi Al- þýðuflokks, Bjarni P. Magnús- son, gæti fengið skæða keppinauta um fyrsta sætið á lista flokksins til borgarstjórnar. Aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, Birgir Arna- son, veltir fyrir sér að sækjast eftir sæti Bjarna og ennfremur eru sumir flokksmenn þeirrar skoðunar að Magnús Jónsson, veðurfræðingur og formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur, sé heppilegur í fyrsta sætið... r ■ íkisstjornarflokkarnir undirbua nú miðstjórnar- og flokksstjórnar- fundi í lok vikunnar, þar sem lögð verður formleg blessun yfir inn- göngu Borgaraflokksins í ríkis- stjórn og skoðanir um myndun nýrr- ar stjórnar viðraðar. Alþýðu- bandalagið og Framsókn munu væntanlega halda fundi sína á morgun, föstudag, en Alþýðu- flokkurinn heldur flokksstjórnar- fund sinn nk. laugardagsmorgun í Þórscafé í salnum Norðurljósum. — Reyndar munu flokksstjórnar- menn Alþýðuflokksins fjalla um meira, gengið verður nefnilega til kosninga um nýjan formann fram- kvæmdastjórnar en því embætti gegndi áður Elín Alma Arthúrs- dóttir í Vestmannaeyjum. Rætt hef- ur verið við fyrrum framkvæmda- stjóra Alþýðuflokksins, Guðmund Einarsson, sem nú starfar sem lekt- or við háskólann, og lagt hart að honum að hann taki formannsstöð- una að sér. Guðmundur mun vera að hugsa málið þessa dagana og væntanlega skýrist það á laugar- dagsmorgun... ^JPm helgina er nýtt Mannlíf væntanlegt og prýðir Rósa Ingólfs- dóttir sjónvarpsþula forsíðuna, en fyrir það tækifæri var hún mynduð í baði, sem í hafði verið stráð rósa- blöðum. í viðtali inni í blaðinu er Rósa hins vegar ekki mjúk á mann- inn. Hún gagnrýnir útlit kvenna í Kvennalistanum og Alþýðu- bandalaginu og segir að þær virð- ist ekki einu sinni nota snyrtivörur. Klykkir hún síðan út með því að kalla þær „vaðmálskerlingar — með fullri virðingu fyrir íslensku sauð- kindinni” og segir rauðsokkur hafa „subbað út” heimilin i landinu.. . A ^ÉFf að líkum lætur mega Birt- ingarmenn, ungu nýkratarnir í AI- þýðubandalaginu, búast við stór- árás frá gamla flokkseigendafélag- inu á miðstjórnarfundi flokksins um helgina. Að ósk Álfheiðar Inga- dóttur, sem er framarlega í flokki andstæðinga Ólafs Ragnars flokks- formanns og nýja alþýðubandalags- félagsins Birtingar, verður aðild Birtingar að Alþýðubandalaginu til umræðu á miðstjórnarfundinum. Upphaflega var til fundarins boðað að ræða miðaverð fyrir Borgara- flokkinn í ríkisstjórnina. Ásamt Álf- heiði úr gamla flokkseigendafélag- inu eru Steingrímur J. Sigfússon, Hjörleifur Guttormsson og Sig- urjón Pétursson sagðir vinna að liðsöfnun til að ganga á milli bols og höfuðs á Birtingarmönnum. Á fram- kvæmdastjórnarfundum munu and- stæðingar Birtingar hafa talað opin- skátt um að „útrýma krötunum”, þ.e. birtingarmönnum. . . ii leið og gamla flokkseig- endafélagið í Alþýðubandalaginu ræðst að Birtingu er það að ráðast að Ólafi Ragnar Grímssyni for- manni. Hin væntanlega aðför á mið- stjórnarfundi um helgina er einnig sögð liður i frekari árásum gegn stuðníngsmönnum Ólafs Ragnars í flokknum, þeim Guðrúnu Helga- dóttur og Kristínu Á. Ólafsdótt- ur. Fyrir andstæðinga Ólafs er tími að verða naumur til að skapa svig- rúm á framboðslistum fyrir næstu kosningar. Fyrirhuguð aðför að Birt- ingu á miðstjórnarfundinum um helgina er því sögð nokkurs konar liðskönnun. Ef vel tekst til verður eftirleikurinn auðveldur gagnvart formanninum. . . A ^^^anægju með kaup og kjör gætir víða úti í þjóðfélaginu. Ekki bara hjá óbreyttum starfsmönnum harðsvíraðra atvinnurekenda og hjá ríkinu, heldur líka á kontór Al- þýðusambands Islands. Einn starfsmanna ASÍ, Lilja Mósesdótt- ir hagfræðingur, mun vera á förum frá sambandinu, að sögn vegna ónægju með launaþróun kynjanna á skrifstofunni og starfsfyrirkomu- lag. Á skrifstofu ASÍ ku karlpening- urinn njóta meiri náðar en konurn- ar. Frelsi, jafnrétti og bræðralag virðast teygjanleg hugtök þar eigi síður en annars staðar. . . Þ að virðist ekkert lát á breyt- ingum í heimi veitingahúsa í Reykjavík. Við höfum frétt að brátt verði lagður niður kínverski veit- ingastaðurinn við hlið Regnbog- ans við Hverfisgötu, en í staðinn á að koma nýjung á íslandi: Mexík- anskur veitingastaður. Pað er Anna Peggy Friðriksdóttir sem mun reka matsölustaðinn, en hún sér Reykvikingum þegar fyrir ind- verskum, japönskum og ítölsk- um mat í veitingahúsum við Lauga- veginn. . . I verktakabransanum eru í gangi tvær gjaldskrár og aðeins önnur er opinber. Hin gengur undir nafninu „vörubílaprísinn” en þá er öll vinnan skráð á vörubíla og þar með undanþegin söluskatti. Annar brandari úr sömu starfsgrein er að ákveðin gerð traktors með skóflu að framan og aftan er flokkuð þannig að vinna á fremri skófluna er sölu- skattsskyld en hin ekki. Menn geta ímyndað sér á hvora skófluna verk- in eru (opinberlega) unnin. . . H^Éenning af ýmsu tagi verð- ur á boðstólum í vetur í svokölluðu Listamannahúsi við Hafnarstræti. Þar stendur nú yfir sýning á mál- verkum Dags Sigurðarsonar, en einnig eru þar tekin listaverk í um- boðssölu og leikhópar munu geta íengið salinn á leigu fyrir leiksýn- ingar. Það er Ijóðskáldið Ari Gísli Bragason sem stendur fyrir þess- ari menningarstarfsemi, en Bragi Kristjónsson, faðir hans, rekur fornbókasölu á jarðhæð hússins. . . w Oadgo Hún fékk góðar viðtökur VORsalan hjá okkur og nú þegar sumarið er að verða búið ætlum við að bjóða upp á haustsölu. Á haustsölu bjóðum við valda bíla á stórlækkuðu verði, en eins og á VORsöIunni aðeins í eína viku. Þessa vikuna bjóðum við Dodge Aríes, vinsælasta ameríska bílinn undanfarín ár. Um er að ræða dýrustu útfærslu með sjálfskiptingu og tilheyrandi þægindum. JÖFUR - ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL HAUSTSÖLUVERÐ Kr. 927,300 - 2ja dyra Kr. 997,900 - 4ra dyra Ath.: Aðeins þessa einu viku

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.