Pressan - 07.09.1989, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 7. sept. 1989
19
Fullorðinsfræðsla — endurmenntun
HVAÐ ER í BOÐI?
Fullorðinsfræðsla — Endurmenntun
— Hvaða kostir bjóðast?
Fullorðinsfræðslo verður sífellt umfangsmeiri og fram-
boð á allskonar námi eykst. Það er fario að bjóða upp á
námskeið í flestu milli himins og jarðar, auk þess sem
endur- og símenntun skipar æ stærri sess innan mennta-
kerfisins. Pressan kannaði á ýmsum stöðum hvaða nám
væri í boði í fullorðinsfræðslu, endur- og starfsmenntun,
auk námskeiða af ýmsu tagi. Hér á eftir verður greint f rá
nokkru af því sem í boði er:
Námsflokkar gegna víða viðamiklu
hlutverki í fullorðinsfræðslu. Þeir
eru reknir á vegum opinberra aðila
og nokkuð misjafnt hversu mikið
framboð þeirra á námsefni er. Um
starfsemi Námsflokka Reykjavíkur
vísum við til viðtals við Guðrúnu
Halldórsdóttur, skólastjóra NR.
Öldungadeildir: Öldungadeildir
eru starfræktar víða um land í
tengslum við framhaldsskóla lands-
ins. Þær eru hugsaðar fyrir fólk sem
fallið hefur út úr skólakerfinu og því
gefinn kostur á að komast inn í það
aftur. Öldungadeildirnar bjóða upp
á samskonar nám og framhaldsskól-
arnir. Þar geta menn lokið stúdents-
prófi og er það orðið býsna algengt.
Verslunarskólinn: Verslunarskól-
inn er með öldungadeild þar sem
menn geta lokið verslunar- eða
stúdentsprófi. Þá stendur hann
einnig fyrir ýmsum námskeiðum í
verslunarfræðum, tölvufræðum og
tungumálum. Eins stendur Verslun-
arskólinn fyrir námskeiðum í sam-
vinnu vtö ýmis fyrirtæki.
Háskóii Islands: í Háskóla íslands
er rekin endurmenntunardeild og á
síðasta ári voru haldin yfir hundrað
námskeið á hennar vegum. Nám-
skeiðin sóttu yfir 2.000 manns, en
þau eru alls ekki einvörðungu ætluð
háskólamenntuðu fólki. Sem dæmi
um námskeið sem endurmenntun-
ardeild háskólans stendur fyrir má
nefna: tölvunámskeið, stjórnun og
rekstur, umhverfismál, námskeið
fyrir heilbrigðisstéttir, tungumála-
nám og fleira.
Félagsmálaskóli alþýðu: Menn-
ingar- og fræðslusamband alþýðu
rekur Félagsmálaskóla alþýðu í Ölf-
usborgum. MFA starfar á vegum ASI
og aðildarfélaga þess. Á vegum fé-
lagsmálaskólans eru einkum haldin
námskeið til að öðlast færni í félags-
málastarfi og þau eru aðallega ætl-
uð félagsmönnum ASÍ og nú einnig
BSRB. Ný lög hafa verið samþykkt
um Félagsmálaskóla alþýðu og er
hann nú bæði á vegum ASI og
BSRB, en MFA fer með málefni
hans. Þá skipuleggur og aðstoðar
MFA félög og fyrirtæki vegna starfs-
menntunarnámskeiða. Tómstunda-
skólinn er einnig á vegum MFA.
Tölvufræðslan hf.: Tölvufræðslan
býður meðal annars upp á skrif-
stofutækninám þar sem kennt er á
tölvur ásamt ýmsu sem tengist skrif-
stofustörfum svo sem verslunar-
reikningi, gerð tollskýrslna og við-
skiptaensku. Námið er alls 256
klukkustundir að lengd og tekur um
3 mánuði á dagnámskeiðum en
4—5 mánuði á kvöldnámskeiðum.
Þá er Tölvufræðslan einnig með
námskeið í viðskiptatækni, þar sem
farið er yfir grunnatriði í stjórnun
og stefnumótun, fjármálum og
markaðsmálum, áætlanagerð og
fleiru. Námskeiðið er 128 klukku-
stundir.
Málaskólinn Mímir: Skólinn býð-
ur upp á hefðbundið málanám auk
þess sem ritaraskólinn er á hans
vegum. Námskeið á vegum skólans
taka yfirleitt eina önn eða 12 vikur.
Um er að ræða 48 stunda námskeið
og kennt tvö kvöld í viku. Slík nám-
skeið kosta 16.900 krónur. Mál sem
menn geta lært í skólanum eru;
enska á ýmsum stigum, þýska,
franska, danska, sænska, ítalska,
spænska og íslenska fyrir útlend-
inga. Þetta eru helstu tungumálin,
en einnig er boðið upp á nám í öðr-
um málum sé nægileg eftirspurn eft-
ir þeim og hafa til dæmis japanska
og portúgalska verið kenndar við
skólann.
Enskuskólinn: Enskuskólinn býð-
ur upp á 7 vikna námskeið í ensku
og auk þess íslenskunámskeið fyrir
útlendinga. Kennt er tvö kvöld í
viku, tvo kennslutíma í senn. 7
vikna námskeiðin kosta 9.500 krón-
ur.
Málaskóli Halldórs: Málaskóli
Halldórs býður upp á nám í 7 tungu-
málum auk íslensku fyrir útlend-
inga. Þau eru danska, enska,
franska, þýska, sænska, spænska og
ítalska. Nemendur mæta einu sinni
í viku, tvær kennslustundir í senn.
Námskeiðið stendur í 12 vikur eða
samtals í 24 kennslustundir og kost-
ar 9.000 krónur. Kennslugögn eru
innifalin í því verði.
Siglingaskólinn: Þar geta menn
lært og lokið prófi sem gefur skip-
stjórnarréttindi fyrir allt að 30 tonna
báta og námskeið í hafsiglingum á
skútum. Námskeiðið fyrir 30 tonna-
réttindin hefst nú 11. september og
stendur til 25.október. Námskeiðin
eru tvö kvöld í viku frá kl. 19—23.
Þar er kennsluefnið siglingafræði,
alþjóða siglingareglur, stöðugleiki
fiskiskipa, fjarskipti og veðurfréttir,
siglingatæki (þ.e. lóran, radar og
dýptarmælir), skyndihjálp, slysa-
varnir og eldvarnir. Námskeiðið
kostar 12.000 krónur.
Hraðlestrarskólinn: Hann býður
upp á námskeið í hraðlestri auk þess
sem eitthvað er farið í námstækni.
Um er að ræða 6 vikna námskeið,
kennt einu sinni í viku frá kl.
20—22. Námskeiðið kostar 11.800
krónur með námsgögnum.
Tómstundaskólinn: Tómstunda-
skólinn býður upp á margvíslegt
nám, þó ekki hafi verið búið að
ganga endanlega frá námskrá fyrir
veturinn. í skólanum eru kenndar
ýmsar myndlistar- og handmennta-
greinar. Þá er kenndur saumaskap-
ur og hönnun fata, handavinna,
tungumál og bókfærsla. Einnig sala
og markaðssókn, gluggaútstillingar,
innanhússskipulagning, skrautrit-
un, skrift og stafsetning, sjálfsnudd
og slökun, nokkurs konar bankað-
ferð. Þá er boðið upp á námskeið
sem heitir hollusta, hreyfing og heil-
brigði. Kennt er að spá í tarotspil í
tengslum við stjörnufræði. Þá hafa
verið námskeið í garðrækt og í að
gera við bílinn sinn. Einnig ákveðni-
þjálfun fyrir konur, fjölmiðlun og
sjónvarpsframkoma, uppsetning og
vinnsla fréttabréfa, gerð útvarps-
þátta og vídeómyndataka. Eins og
sjá má af þessari upptalningu er um
marga kosti að velja. Námskeiðin
eru mjög misjafnlega löng, allt frá
6—8 kennslustundum og upp í 40
kennslustundir eða 10 vikur. I fyrra
var viðmiðunarverðið um 400 krón-
ur á klukkustund og kemur eflaust
til með að verða eitthvað hærra í
vetur.
Nuddskóli Rafns: Nuddskóli Rafns
er tveggja ára skóli. Þar byrjar nám-
skeið nú í haust og því lýkur vorið
1991. Um er að ræða fullt nuddnám
sem gefur starfsréttindi. Alls er
námið 1.250 kennslustundir. Bók-
legu fögin eru kennd í fjölbrauta-
skólum og er það hátt í eins vetrar
nám. Námið kostar 228.000 krónur
fyrir þetta tveggja ára tímabil.
Hugefli: Hugefli er með námskeið í
sjálfsdáleiðslu og hugarþjálfun. Þar
getur fólk tekið fyrir ýmsa ávana
eins og reykingar eða ofát og breytt
þeim. Námskeiðin standa yfir í fjór-
ar vikur og er kennt eitt kvöld í
viku. Svo er boðið upp á framhalds-
námskeið þar sem meira er farið út
í framkomu og hegðun útávið. Nám-
skeiðin kosta 6.000 krónur og eru
kennslugögn þar innifalin. Hugefli
er á vegum Fræðslumiðstöðvarinn-
ar Ása.
Ættfræðiþjónustan: Ættfræði-
þjónustan býður upp á 7 vikna nám-
skeið. Mæting er einu sinni í viku og
yfirleitt 3—4 hópar í gangi í einu.
Námskeiðið kostar 11.800 krónur.
Nemendum er kennt að leita upp-
lýsinga og nota heimildir og meta
heimildagildi. Þá er einnig kennt
hvernig skuli skrá og varðveita upp-
lýsingar á kerfisbundinn hátt. 5—8
manns eru í hverjum hópi.
Bréfaskólinn: Bréfaskólinn hefur í
síauknum mæli farið út í starfs-
fræðslu á vinnumarkaðnum í sam-
vinnu við aðra. í upphafi var honum
einkum ætlað að sinna landsbyggð-
arfólki sem ekki átti þess kost að
sækja skóla og komaþannig til móts
við þarfir þess. Nú sinnir Bréfaskól-
inn í auknum mæli fólki sem er að
safna sér punktum sem gilda í fjöl-
brautakerfinu. Einnig er boðið upp
á nám fyrir þá sem hafa hlotið stutta
skólagöngu svo og starfsmenntun,
til dæmis fyrir bændur. Má þar
nefna heyverkun, landbúnaðarhag-
fræði, sauðfjárrækt og gerð bú-
reikninga. Eins er í boði siglinga-
fræði fyrir sjómenn sem veita skip-
stjórnarréttindi fyrir allt að 30 tonna
báta. Þá hefur Bréfaskólinn tekið
upp samvinnu við Fræðsluvarpið og
hyggst þannig nýta þá kennslu-
möguleika sem sjónvarpið býður
upp á. Núna eru að fara af staö nám-
skeið í tengslum við ferðaþjónustu
bænda. Þar verður kennt ýmislegt
sem við kemur ferðamannaiðnaðin-
um og þeim þáttum sem við koma
ferðaþjónustu bænda. Auk bréflegr-
ar kennslu verða teknir upp
kennsludagar víða út um land,i
svona inn á milli, og þá einnig reynt
að nota símann meira en gert hefur
verið hingað til. Bændur sem Ijúka
námskeiðinu fá sérstaka viðurkenn-
ingu sem gefur þeim rétt á að nota
sérstakt merki þegar þeir auglýsa
þjónustu sína. Auk þess býður bréfa-
skólinn upp á allskonar sjálfsnáms-
pakka, t.d. tungumál, skák, bók-
menntir, íslensku fyrir útlendinga
og í vaxta- og verðbréfareikningi.
Hér er hvergi nærri um tæmandi
úttekt á námsframboði utan hefð-
bundins skólanáms að ræða, heldur
hefur verið reynt að gefa sýnishorn
af því sem í boði er. Samræmd lög
um fullorðinsfræðslu og endur-
menntun eru ekki til. Fjölmargir að-
ilar sinna þó þessum málum, en
ekki er um að ræða neina mark-
vissa samhæfingu eða stjórn. Það
má þó til sanns vegar færa að náms-
framboðið sé fjölbreytilegt og á
margra höndum.
Á HVERJU
HEFURÐU ÁHUGA?
Viltu læra eitthvað nýtt í haust eða bæta við það sem þú
kannt?
Við höfum áreiðanlega námskeiðið fyrir þig.
Kennsla á haustönn hefst 26. september. Auglýsingar
og innritun um miðjan mánuð.
TÓMSTUNM
SKOLINN
Skólavörðustig 28
Sími 621488
Stýrimannaskólinnn
í Reykjavík
30 rúmlesta réttindanám
Innritun
Innritun á haustnámskeið hefst mánudaginn
4. setptember og er á skrifstofu Stýrimanna-
skólans alla virka daga frá kl. 08.30-14.00.
Öllum er heimil þátttaka.
Námskeiðið hefst mánudaginn 11. sept. nk.
kl. 18.00 og er kennt 3 kvöld í viku, mánu-
daga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl.
18.00-20.15 og laugardaga frá kl. 09.00-
13.00 og lýkur í byrjun nóvember.
Kenndar eru eftirfarandi greinar: Siglinga-
fræði, stöðugleiki, bókleg sjómennska, sigl-
ingareglur, siglingatækni, fjarskipti, skyndi-
hjálp og veðurfræði. Nemendur fá 10 klst.,
leiðbeiningar í slysavörnum og meðferð
björgunartækja, einnig verklegar æfingar í
eldvörnum og slökkvistörfum í Slysavarna-
skóla sjómanna, samtals 114 kennslustundir
samkv. reglugerð menntamálaráðuneytisins.
Þátttökugjald er kr. 12.000.
Allar nánari upplýsingar í síma 13194.
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík.
Forstöðumaður
Listasafn ASÍ vill ráða forstöðumann í
hálft starf. Umsóknir er greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist til Al-
þýðusambands íslands, Grensásvegi
16a, 108 Reykjavík, fyrir 18. september
næstkomandi merkt Forstöðumaður.
Nánari upplýsingar veitirframkvæmda-
stjóri ASÍ í síma 83044.