Pressan - 23.11.1989, Síða 10
10
Fimmtudagur 23. nóv. 1989
Athaffnamaður á Bolungarvík ffékk keypt-
an á 65 milljónir skelffiskbátinn Villa Magg
hjá Byggðastoffnun. Maðurinn borgaði
ekkert út og ffær kaupverðið lánað til 12
ára. Sjávarútvegsráðuneytið veitti bátn-
um „tilraunaveiðileyfi" á hörpudiski i ísa-
ffjarðardjúpi án nokkurs samráðs við Haff-
rannsóknastofnun. Villi Magg er sérsmið-
aður til kúffiskveiða og sjómenn við Djúpið
óttast að öflugur þrýstiplógur skipsins
eyðileggi hörpudisksmiðin.
EFTIR PÁl VILHJÁLMSSON
Athafnamaðurinn Finnbogi Bern-
ódusson fékk Villa Magg á góöum
kjörum sem sárabætur fyrir mis-
heppnaða tilraun til kúfiskvinnslu.
Fyrirtæki Finnboga, vélsmiöjan
Mjölnir, átti hlut í Bylgjunni á Suður-
eyri sem reyndi fyrir sér með veiðar
og vinnslu á kúskel. Deilur í stjórn
Bylgjunnar og óráðsía í fjármálum
fyrirtækisins, ónógar markaðsat-
huganir og slæm verkstjórn leiddu
til gjaldþrots Bylgjunnar í vor.
Byggðastofnun átti stóran hlut í
Bylgjunni og við gjaldþrot eignaðist
stofnunin Villa Magg. Guðmundur
Malmquist, forstjóri Byggðastofnun-
ar, segir Finnboga og Mjölni hafa
tapað einna mest á Bylgjuævintýr-
inu. Af þessum sökum þótti viðeig-
andi að láta Finnboga fá Villa Magg
á hagfelldum kjörum; engin útborg-
un og kaupverðið lánað til 12 ára.
Þegar blaðamaður leitaði til Finn-
boga Bernódussonar um upplýsing-
ar um hvað hann ætlaði með Villa
Magg svaraði hann; „Ég hef ekkert
við ykkur að tala og vertu blessað-
ur’’
Tengsl við Fram-
sóknarflokkinn
Villi Magg er sérsmíðaður fyrir
skelfiskveiðar og fluttur til landsins
með sérstöku leyfi stjórnvalda fyrir
rúmum tveimur árum. Innflutnings-
leyfið var háð því skilyrði að bátur-
inn yrði ekki notaður nema til kú-
skeljarveiða.
Eina leiðin til að gera verðmæti úr
kúfiski er að flytja hann á erlendan
markað. Sem stendur eru litlir
möguleikar á sölu kúfisks til út-
landa. Þess vegna þurfti Finnbogi
að koma Villa Magg á aðrar veiðar.
í ísafjarðardjúpi eru gjöful hörpu-
disksmið en það er kvóti á þeim
stofni. Litlir rækjubátar veiða jöfn-
um höndum rækju og hörpuske! fyr-
ir vinnsluna í landi. Til að komast í
hörpudiskinn varð útgerð Villa
Magg að fara í kringum þær sérregl-
ur sem gilda um bátinn.
Framsóknarflokkurinn fer með
sjávarútvegsráðuneytið og þeim
flokki tengist vélsmiðjan Mjölnir.
Bróðir Finnboga og jafnframt með-
eigandi í Mjölni er Sveinn. Sveinn
var í haust kosinn formaður kjör-
dæmissambands framsóknar-
manna á Vestfjörðum.
Á yfirreið þingmanna Framsókn-
arflokks um Vestfirði í september
heimsótti þingflokkurinn tvö fyrir-
tæki á Bolungarvík. Annað þeirra
var vélsmiðjan Mjölnir.
Málaleitan Mjölnismanna bar
þann árangur að fyrir tæpum tveim-
ur vikum fékk Villi Magg leyfi til að
stunda veiðar á hörpudisk í Djúp-
inu. Leyfið gildir til áramóta. Til að
fóðra undanþáguna er framtakið
kallað „tilraunaveiðar”.
Tveir menn unnu að málinu í sjáv-
arútvegsráðuneytinu: Halldór Ás-
grímsson ráðherra og Jón B. Jónas-
son skrifstofustjóri.
Ekkert samráð var haft við Haf-
rannsóknastofnun. Hvorki var
stofnunin beðin um umsögn né boð-
ið að fylgjast með veiðunum.
„Málið kom ekki inn á okkar
borð,” segir Guðmundur Skúli
Bragason, sem er í fyrirsvari fyrir
Hafrannsóknastofnun á ísafirði.
Hörpudisksmiðin í Djúpinu eru öll
þekkt og þarf ekki að leita að þeim.
Aðrar ástæður liggja að baki leyfis-
veitingunni.
Þegar Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra var spurður um for-
sendur fyrir leyfinu svaraði hann að
„ýmsir telja að það megi veiða
hörpudisk með sömu aðferðum og
kúfiskur er veiddur”.
Villi Magg notar kröftugan þrýsti-
plóg til að ná upp kúskelinni, en hún
grefur sig í sjávarbotninn. Það gerir
hörpudisksurinn ekki og er þess
vegna auðveldari viðfangs.
Það er hinsvegar löngu vitað að
þrýstiplógur Villa Magg getur nýst
til veiða á hörpudisk.
Skildu eftir
ördeyðu
Villi Magg kom til landsins vorið
1987. Verksmiðjutæki Bylgjunnar á
Suðureyri voru ekki tilbúin og fyrsta
kastið fór báturinn á tilraunaveiðar.
Meðal annars var plógurinn reynd-
ur á hörpudisksmiðum. Veiðitækin
gáfu góða raun og aflinn var þokka-
legur.
Eftir tilraunaveiðar Viila Magg
fyrir tveimur árum heyrðust
óánægjuraddir rækjusjómanna sem
sögðu að plógur bátsins skildi eftir
ördeyðu á hörpudisksslóðinni.
Menn töldu að plógurinn færi illa
með botninn og eyðilegði lífsskil-
yrði hörpudisksins.
Guðmundur Skúli Bragason hjá
Hafrannsóknastofnun segir það
mögulegt að þrýstiplógur Villa
Magg fari illa með sjávarbotninn og
hefðbundin hörpudisksmið gætu
skaðast af notkun hans.
Engar rannsóknir hafa verið gerð-
ar á áhrifum þrýstiplógs á fiskimið-
um hér við land. „Við hefðum gjarn-
an viljað fylgjast með þessum veið-
um Villa Magg,“ segir Guðmundur.
Sjómenn við Djúpið eru heldur
óánægðir með það að skipinu skuli
hleypt í hörpudiskinn. Ekki aðeins
eru þeir tortryggnir út í þrýstiplóg-
inn heldur minnkar sá kvóti sem
þeir fá í sinn hlut í réttu hlutfalli við
afla Villa Magg.
Það er þó ekki útséð með það
hvort Villi Magg fer á þær veiðar
sem áætlað er. Vinnslan sem bátur-
inn ætlaði að leggja upp hjá var seld
á nauðungaruppboði síðastliðinn
mánudag.
„Tek ekki
þátt í þessu"
Einn af hluthöfum skelfiskvinnsl-
unnar Bjartmars hf. á ísafirði var
Finnbogi Bernódusson. Bjartmar
var með hörpudiskskvóta og ætlun-
in að Villi Magg veiddi fyrir vinnsl-
una.
Á mánudag voru eignir Bjartmars
boðnar upp á nauðungaruppboði.
Sá sem bauð hæst í þrotabúið heitir
Gunnar Þórðarson, eigandi Isvers á
ísafirði. Gunnar fékk góssið á 130
milljónir.
í samtali sem blaðamaður átti við
Gunnar á mánudag sagðist hann
ekki ætla að láta Villa Magg hafa
neitt af þeim kvóta sem fyrirtæki
hans réði yfir. Gunnar taldi ekki rétt
að báturinn veiddi af þeim hörpu-
diskskvóta sem rækjusjómenn við
ísafjarðardjúp hafa notið góðs af.
„Það er geðþóttaákvörðun ráð-
herra að gefa Villa Magg þetta leyfi
og ég tek ekki þátt í slíku,” segir
Gunnar.
Það er aftur á móti ólíklegt að
Finnbogi Bernódusson hafi ekki
gert ráðstafanir til að mæta gjald-
þroti Bjartmars. Það er nokkuð
langt síðan séð varð hvert stefndi.
Jón R Jónasson, skrifstofustjóri
sjávarútvegsráðuneytis, staðfesti í
samtali við blaðamann að útgerð
Villa Magg hefði farið þess á flot við
ráðuneytið að báturinn fengi aukn-
ar veiðiheimildir. Enn sem komið er
svarar ráðuneytið því til að ef Villi
Magg eigi auknar heimildir verði að
úrelda annan bát á móti.