Pressan - 23.11.1989, Blaðsíða 18

Pressan - 23.11.1989, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 23. nóv. 1989 ÍKVEIKJA í STAÐ GJALDÞROTS Samsæri verslunareiganda og fíkniefnaneytanda Örþrifaráð gjaldþrota verslunareig- anda við Laugaveginn var að kaupa fikniefnaneytanda til að kveikja i versl- uninni. Samsærið komst upp þegar fikni- efnaneytandinn aðvaraði vin sinn sem bjó á hæðinni fyrir ofan verslunina. Lög- reglan vinnur að rannsókn málsins. EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON Það er þetta með að létta sér Kfið og nýta frítímann vel. Hver kannast ekki við að eiga von á áríðandi símtali og neyðast til að hanga heima í biðstöðu. Óþolandi. Fá svo kannski símhringingu frá gömlum vini sem hefur réttu hugmyndina um hvernig hægt sé að verja kvöld- inu, eða helginni og verða að hafna boðinu vegna þess að maður á von á símhringingu! Ha. Svarti sfminn náði feykilegri útbreiðslu hérlendis í gamla daga eins og allir vita. Hversu margir skyldu hafa lent í því að vera nýlagstir ofan í heitt og notalegt bað þegar sá svarti lét f sér heyra? Vafalaust margir. Þetta hvimleiða vandamál er úr sögunni: Komið er á markaðinn afburða nett tæki, GoldStar heimilissímsvarinn. Símsvari og nútímalegur sfmi í einu tæki. Allt þetta nýja. Minni, fjarstýring, hátalari o.s.frv., o.s.frv. en fyrst og fremst alveg hreint frábær gripur sem léttir Iffið. Eigi maður von á símtali en verði einhverra hluta vegna.að bregða sér frá er einfaldlega hægt að hringja f . heimilissímsvarann, stimpla inn lykiltöluna og hlusta á þau skil- aboð sem á bandinu kunna að vera. Ekkert mál. GoldStar heimilis- símsvarinn er loksins fémsúlmgmr íslandi *. - tæknibyiting á heimilinu - Gripurinn fæst á ótrúlega góðu verði eða kr. 14.800.- stgr. Svo er boðið uppá kjör sem allir eiga að ráða við, þ.e. greiðslukortasamninga til allt að 6 mánaða. Nákvæmar leiðbeiningar á íslensku fylgja, fullkomin viðhaldsþjónusta og ársábyrgð. Verið velkomin. A-RANSIT . TRÖNUHRAUNI 8 . 220 HAFNARFIRÐI . SÍMI 91-65250) • Verslunareigandinn átti um nokkra hríð í erfiðleikum með reksturinn. Þegar aðstoð frá erlendum sam- starfsaðila brást voru honum öll sund lokuð. Athafnamaðurinn þekkti lítillega ungan fíkniefnáneyt- anda og fékk hann til liðs við sig. Tryggingarupphæð á lager versl- unarinnar var hækkuð úr hálfri milljón króna í fimm milijónir. Með þeim hætti hugsaði eigandinn sér að komast yfir verstu greiðsluvand- ræðin. Ráðabruggið gekk út á það að fíkniefnaneytandinn skyldi bera eld að versluninni. Verslunareigandinn myndi segja til hvehær hann ætti að láta til skarar skríða. Fíkniefnaneytandinn féllst á að taka verkið að sér gegn borgun og samdist um upphæð á bilinu 15 til 25 þúsund krónur. Hann fékk að vita heimilisfangið og rann þá upp fyrir honum að kunningi hans bjó á hæðinni fyrir ofan verslunina. Til að eiga ekki á hættu að vinna voða- verk gerði fíkniefnaneytandinn kunningjanum orð um að hann skyldi fá viðvörun áður en íkveikjan ætti sér stað. Lögreglan komst á snoðir um samsærið þegar kunninginn var handtekinn fyrir meint fíkniefna- misferli. Væntanlegur brennuvarg- ur var yfirheyrður og hann játaði fyrirætlan sína. Ljúfur og vel þokk- aður Verslunareigandinn er vel þokk- aður af þéim sem hann á viðskipti við. Fyrir utan verslunina á Lauga- veginum rak hann aðra í Kvosinni. Húsnæðið leigði hann á báðum stöðunum. „Drengurinn lenti í vanskilum hjá mér. En hann kom alltaf og spjallaði við mig þegar hann gat ekki borg- að," segir kona sem leigði verslunar- eigandanum. „Hann reyndi að láta dæmið ganga upp en viðskiptin gengu bara ekki nógu vel,“ bætir hún við. Aðrir sem til þekkja taka í sama streng. Athafnamaðurinn, sem er ungur að árum, hafi reynt að standa sig en ekki tekist að halda rekstrin- um gangandi. Hann skuldar víða en í fæstum tilvikum er um að ræða há- ar upphæðir. Lögregluna grunar að áætlunin um að kveikja i búðinni við Lauga- veginn sé ekki fyrsta tilraun sama aðila til að sviðsetja eldsvoða. Verslunareigandinn var handtek- inn í kjölfar játningar fíkniefnaneyt- andans og látinn laus eftir yfir- heyrslu. Hann hefur áður komið við sögu lögreglunn^r, meðal annars vegna fíkniefnamála. Síðastliðinn vetur varð eldur laus í bakhúsi verslunar i Kvosinni. Næt- urvörður sá til tveggja unglinga sem pukruðust nálægt því húsi sem kviknaði í. Verslunareigandinn varð fyrir nokkru tjóni vegna eldsins, og var það bætt af tryggingafélagi. Ekki tókst að hafa hendur í hári ungling- anna og málið er óupplýst. Þegar uppvíst varð um ráðagerð-, ina milli verslunareigandans og fíkniefnaneytandans var bruninn í Kvosinni tekinn á ný til meðferðar lögreglu. Ekki er hægt að fá staðfest hver varð árangur rannsóknar lögregl- unnar. Jón Snorrason, deildarstjóri rannsóknarlögreglunnar, vildi það eitt segja að „allir brunar eru rann- sakaðir". Ólíklegt er að ákært verði i mál- inu fyrr en seinnipart vetrar. Það fer hinsvegar það orð af athafnamann- inum að undarlega oft sleppi hann við ákæru þó tilefnið sé ærið. „Hann er svo vel ættaður," er skýr- ing ónefnds heimildamanns.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.