Pressan - 23.11.1989, Side 22

Pressan - 23.11.1989, Side 22
Fimmtudagur 23. nóv. 1989 J Ævintýramaðurinn Bogi Jónsson selur kínarúllur að nae óstuddur einbýlishús yfir fjölskylduna ó daginn. Þeir eru eflaust margir sem hafa staldrað við hjá Boga, þar sem hann selur Kínarúllur úr einstökum sölu- vagni sínum í Austurstræti og hefur reyndar gert í nokkur ár. Margir láta það verða sitt síðasta verk, áður en haldið er heim eftir erfiða nótt á ein- hverju öldurhúsanna, að sporð- renna rúllu og spjalla svolítið við ná- ungann sem afgreiðir þær. Hann er jafnan glaðbeittur mjög, ekkert virðist koma honum úr jafnvægi, jafnvel þó að stundum liggi við að menn vegi hver annan framan við lúguna hjá honum. Hann segir reyndar að ofbeldið i miðbænum sé síst verra en það var þegar hann var þar slagsmálahundur í vímuneyslu. Það sé nefnilega þannig að í hvert skipti sem fjölmiðlar geri mikið úr ástandinu flykkist þeir sem eru í leit að vandræðum á þessar slóðir, og hafi oftar en ekki erindi sem erfiði. Maðurinn sem um er rætt er Bogi Jónsson, blikksmiður úr Kópavogi, sem eytt hefur fjölda stunda í stræt- inu í tvennum skilningi þess orðs og hefur farið yfir heiminn þveran og endilangan, þar sem hann fann loksins konuna sem hann leitaði að. Hann hefur sökkt sér í andleg mál- efni og flotið upp á yfirborðið á ný og byggir sér nú stórt einbýlishús á Alftanesinu. Þegar húsið verður til- búið getur hann nánast horft inn í stofu á Bessastöðum, liggjandi í baði! Það þykir reyndar ekki svo merki- legt í dag að fólk byggi sér stór hús hér á landi. Hitt er kannski öllu merkilegra að í stað þess að sökkva sér í skuldir og þar að auki mjög aukna vinnu, þá hætti Bogi að vinna, keypti sér hamar og nagla, timbur og smiðssvuntu og hófst handa. Þegar lesendur berja þetta viðtal augum er Bogi að Ijúka við að gera fokhelt, aðeins þremur mánuð- um eftir að fyrsti nagiinn var negld- ur. Ekki hefur hann flokk trésmiða og annarra fagmanna sér tii fullting- is, heldur gerir hann það sem gera þarf allt sjálfur! Byggði slðast dúfnakofa Bogi er blátt áfram, nánast svo blátt áfram að manni dettur einna helst í hug að hann hafi fundið orð- takið upp! Þar sem við sitjum hvor á móti öðrum, undirritaður með skrif- blokk og penna, hann með aðra höndina utan um konuna sína, hina um kaffibollann, spyr ég hann fyrst hvernig það hafi viljað til að hann tók upp á því að byggja sér einbýlis- hús? ,,Það er von þú spyrjir. Þetta hófst nú á því að árið 1982 keypti ég lóð- ina í rugli. Á þessum tíma var mitt sukktímabil að líða undir lok og sennilega er þetta eitt það skynsam- legasta sem ég tók mér fyrir hendur. Ég lét svo teikna húsið af einhverj- um orsökum, sennilega litið á þetta allt saman sem stórskemmtilegt æv- intýri, eða fjarlægan draum. Það var grafið fyrir húsinu 1983 og ég steypti sökklana fljótlega eftir að af mér rann, sennilega árið 1985. Að því loknu hélt ég að mér höndum í nokkur ár, svona rétt á meðan ég var að kynnast þessum Boga sem ég hef verið að ferðast með i gegnum tíðina. Það var svo fyrir rúmu ári sem ég tók þá ákvörðun að bygging þessa húss væri eitthvað sem ég virkilega vildi að yrði að veruleika. Ég ákvað um leið, að ég gæti byggt það sjálfur, einn og óstuddur að mestu, jafnvel þó að ég hafi síðast byggt úr timbri þegar ég var fjórtán ára og þá var byggingin dúfnakofi! Ég hef í þessu ævintýri mínu stuðst við þá kenningu að ég geti allt sem í mannlegu valdi stendur, ef ég bara vil það. Spurningin er ein- faldlega þessi: Hversu mjög vil ég það? Það má eiginlega segja að hjólin hafi svo byrjað að snúast fyrir al- vöru á afmæli Reykjavíkurborgar, þann 18. ágúst síðastliðið sumar. Þá byrjaði ég að slá upp og hef verið við þetta meira og minna síðan. Helgarnar hjá mér eru reyndar nokkuð frjálslega skipulagðar hvað byggingarvinnuna varðar, enda er ég í rúlluvagninum aðfaranætur laugar- og sunnudaga. Þá vinn ég iðulega frá 8—19 í húsinu, fer þá heim og legg mig til 22, vinn í vagn- inum frá 23—05 og er svo kominn í húsið að nýju um tíuleytið morgun- inn eftir. Ég hef vissulega staðið frammi fyrir því við þessa byggingu að nú þurfi ég á hjálp að halda og þannig var það til dæmis með þakið. Ég var þess fullviss að ég réði ekki við það einn og því var ég búinn að taka lof- orð af kunningja mínum, sem er tré- smiður, um að koma og aðstoða mig þegar þar að kæmi. Örlögin höguðu því hins vegar þannig að þegar kom að því að setja upp fyrstu sperruna flaug hann fyrirvaralaust til vinnu í Svíþjóð og hann kom ekki heim fyrr en sama daginn og ég lauk við að smíða þakið, sem ég gerði auðvitað einn. Það felst kannski ákveðin bilun í því að blikkari og rúllugerðarmaður skuli ráðast í þetta verkefni, en ég hef svo gaman af að sýna fram á að það sé hægt að storka þessari bless- uðu áunnu skynsemi okkar, sem oft segir okkur að eitt og annað sé ekki hægt, sem er svo ekkert mál. Þetta brölt mitt er kannski ekki það skynsamlegasta sem maður gerir sjálfum sér, en þetta er engu að síður stórkemmtilegt og verðugt verkefni að takast á við. Ég er hald- inn þeirri áráttu að verða stöðugt að vera að skapa eitthvað, að sjá eitt- hvað eftir mig, og þarna gefst tæki- færi til þess. Auk þess hef ég senni- lega aldrei haft jafngóð laun, þegar grannt er skoðað. Eg á oft í megn- ustu vandræðum með að sofna á kvöldin vegna þess hversu mikið ég hlakka til að takast á við næsta dag. Það er hins vegar ekkert sjálfsagt að fá tækifæri til að gera þá hluti sem ég er að gera og það get ég ein- faldlega vegna þess að ég er giftur góðri konu. Hún vinnur alla daga í vagninum okkar og við höfum, má segja, sama þankagang. Við lifum auk þess á austurlenska vísu sem kemur meðal annars fram á matar- reikningnum. Hann er fyrir tvo full- orðna og tvo matfreka stráka um 17.000 kr. á mánuði, sem ég held að hljóti að vera tiltölulega vel sloppið. Við búum frekar ódýrt, leigjum gamla tannlæknastofu sem búið er að gera íbúðarhæfa, nýtum fötin okkar betur en margur annar, feng- um gefin gömul húsgögn sem voru í lagi en aðrir voru hættir að nota og fleira í þeim dúr. Við erum þess minnug á hverjum degi að það er mun gáfulegra að njóta þess sem við höfum í dag, í stað þess að ætla sér að njóta þess

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.