Pressan


Pressan - 23.11.1989, Qupperneq 23

Pressan - 23.11.1989, Qupperneq 23
Fimmtudagur 23. nóv. 1989 23 urlagi en byggir einn og seinna sem mann langar í núna, ef maður getur eignast það þá!“ Tíu Búddamunkar í brúðkaupinu Nú kemur það fram hér að framan að þú fórst yfir hnöttinn þverán og endilangan á sínum tíma, og þar fannstu reyndar eiginkonu þína. Hvað var það sem dró þig til jafnfjar- lægs staðar og Thailand er? „Það var einkum tvennt sem dró mig þangað. í fyrsta lagi hafði ég heyrt að næturlífið þar væri í meira lagi fjölskrúðugt og fjörugt og í því hafði ég hugsað mér að taka þátt. Mér fannst ég einhvern veginn hafa farið á skjön við það hér heima og hugsaði mér því gott til glóðarinnar. Hitt atriðið sem togaði svo mjög í mig var löngun til að kynnast leynd- ardómum austurlenskrar dulspeki og athuga hvort ég myndi rekast á • vissa manneskju, nokkuð gamla, en andlit hennar hafði ég alloft séð fyr- ir mér. Þessa manneskju tel ég jafn- vel vera nokkurs konar andlegan Jeiðbeinanda og það má geta þess að ég hef fundið hana! Ég pæli mikið í andlegum málefn- um en ég er þess hins vegar fullviss að yfirkeyri maður sig á þeim hlut- um, þessum andlega krafti, þá dreg- ur maður um leið úr þeim verald- lega og öfugt. Það hefur verið mikil vakning í þessum málum hér að undanförnu og það er út af fyrir sig ágætt. Ég held hins vegar að þrátt fyrir að fólk trúi því að það hafi ver- ið til áður, trúi á fyrri líf og endur- holdganir, þá fæddumst við hér og nú í þessu lífi, til þess að takast á við það sem hér er. Fólk fer oft of geyst og notar svo kannski þar að auki „hjálpar- og bætiefni", eins og eitur- lyf allskyns sem gera hvern mann verri en hann er. í dag finnst mér að ég sé búinn að ná andlegu jafnvægi, en ég er samt viss um að eftir eitt ár eða svo sé ég að ég var alls ekki í svo góðu jafnvægi þegar allt kemur til alls. Með öðrum orðum að þótt okk- ur líði vei í dag og okkur finnist að við séum komin á einhvern leiðar- enda, höfum náð einhverju jafn- vægi, þá má í raun alltaf gera betur, alltaf bæta við. Þetta voru sem sagt tvær megin- ástæður þess að ég fór til Thailands haustið 1987. Ég hafði það í flimt- ingum þegar ég fór að kannski myndi ég ná mér þar í konu, jafnvel þó ég hafi ekki viljað viðurkenna að til þess væri leikurinn gerður. Samt sem áður hef ég kannski vitað innst inni að eitthvað slíkt myndi gerast. Ég hafði ekki enn fundið mér samferðamann í lífinu, kominn hátt á þrítugsaldurinn, og hafði reyndar ekki stórar áhyggjur af því. Mér fannst ég einfaldlega ekki vera nægilega þroskaður til að kunna að meta það sem konan mín, Nok, býð- ur upp á og krefst. Með öðrum orð- um að deila lífinu með öðrum. Ég hitti Nok reyndar ekki í þessari um- ræddu ferð. Hitt er annað mál að ég heillaðist svo gjörsamlega af landi og þjóð að ég var kominn til Thai- lands að nýju í febrúar 1988, aðeins nokkrum mánuðum eftir að ég kom þar fyrst. Þá var ég þarna austurfrá í u.þ.b. 2 mánuði og það var í þeirri ferð sem ég kynntist Nok. Hún kom svo hingað til mín það sama sumar og ég fór til hennar rétt fyrir síðustu áramót. Úr þeirri ferð kom ég í febrúar síðastliðnum, kvæntur með tvö börn. Við giftum okkur á thailenska vísu að búddískum sið, því ég hélt að ég myndi sleppa auðveldar frá slíkri giftingu en hér heima. Ég fékk loforð um að giftingin yrði látlaus í heimahúsi, en eftir 14 tíma nær stanslausa dagskrá í giftingunni fóru nú að renna á mig tvær grímur. Þarna voru meðal annars 10 Búdda- munkar svo nokkuð sé nefnt. Thailand er að mínu mati land andstæðnanna. Það má segja að manni ofbjóði á báða vegu. Annars vegar eru flottheitin svo gífurleg og hins vegar örbirgðin algjör. Það hreyfði verulega við mér að sjá fólk sem átti ekki neitt og hafði enga möguleika á að eignast neitt af þeim veraldlegu hlutum sem lífið snýst um hjá svo mörgum okkar, en var samt svo innilega hamingju- samt. Margfalt hamingjusamara og áhyggjulausara en við sem búum við alít þetta lífsöryggi og öll þessi gæði. Svo það er ekki nema von að maður spyrji sig hvað sé í gangi hér heima?!" Vilja konuna mína leigða Þú ert kvæntur og konan þín er úr annarri heimsálfu, þar sem lífið hef- ur upp á allt aðra hluti að bjóða og krefst allt annarra hluta af fólki. Er erfitt að eiga thailenska konu á ís- landi? Það má segja að það sé hörku- vinna en uppskeran er líka í sam- ræmi við það. Einn af kostunum við það er sá að þegar ég þarf að út- skýra fyrir henni hluti sem mér finnst sjálfsagðir sé ég að þeir eru í raun alls ekki svo sjálfsagöir. Hlutir sem við tökumst í mörgum tiffellum á við upp á hvern einasta dag. Sem dæmi get ég nefnt alla þá skatta sem við höfum hér. Til hvers eru þeir? Til hvers er rafmagnseftirlit, eða heil- brigðiseftirlit? Af hverju eiga versl- unarmenn sér frídag? Af hverju breytast íslendingar svo um helgar. Sumir verða einstakir vinir manns, svo góðir að maður losnar jafnvel ekki við þá heilu og hálfu kvöldin, en svo líta þeir ekki upp úr götunni á virkum dögum. Aðrir ganga ber- serksgang að nóttu til, illa til reika og sjást svo eftir helgi í stífpressuð- um buxum með bindi og skjala- tösku. Nok hefur, eins og ég sagði áðan, verið í vagninum að deginum til og oft er hún reyndar með mér þar á nóttunni. Því er ekki að neita að við höfum orðið fyrir nokkru aðkasti frá fólki, t.d. hefur eldra fólk stund- um sagt henni að hunskast heim til sín og láta ekki sjá sig hér. Fólk hefur líka spurt mig í fyllstu einlægni hvort ekki sé hægt að fá konuna mína leigða eina og eina nótt, eða hvað drátturinn kosti! Ég get nefnt sem dæmi að eitt sinn kom til mín maður sem var með konu upp á arminn. Hann spurði mig si svona hreint út hvort hann fengi ekki kon- una mína leigða eina nótt. Ég spurði hann að bragði hvað nóttin kostáði hjá hans konu og hann gekk gjör- samlega af göflunum, svo móðgað- ur varð hann! Ég get ekki orðið vondur út í þetta fólk, en mér sárnar verulega hvað fólk getur orðið lokað og tillitslaust. Kannski má rekja þetta ástand fólks til þess hraða, þeirrar óánægju og streitu sem alltof mörg okkar eru

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.