Pressan - 23.11.1989, Page 25

Pressan - 23.11.1989, Page 25
Fimmtudagur 23. nóv. 1989 25 NO spam 23. nóvember—28. nóvember (21. mars—20. upril) Metnaöi þínum veröur aö einhverju leyti fullnægt næstu dagana. Þú munt lenda í þeirri aðstööu aö hitta fólk í háum stöðum sem getur reynst þér afskaplega vel ef rétt er á málum haldið. Gættu þín einungis á aö þaö komi skýrt og greinilega fram að þú get- ir tekið við fyrirskipunum jafnauðveldlega og þú getur skipaö fyrir. rrv-l (21. upril—20. mui) Pér munu berast góöar fregnir einhvern tíma vikunnar, en það er ekki víst að þú skiljir til hlítar i hverju góðu tíðindin eru fólgin. Bjartsýni á lífið og tilveruna mun hjálpa þér við að ná áttum, gaettu hins vegar alla tíð að því að sýna einlægni og koma fram af heil- indum við alla, hverjar sem aðstæður eru. (21. mui—21. júni) Vertu á verði, ekkert er nákvæmlega eins og það sýnist, jafnvel ekki hjá þinum bestu vin- um. Það sem gerist að tjaldabaki er stund- um mun mikilvægara en það sem gerist í allra augsýn. Hugsanlega reynir einhver að blekkja þig og ef þú þarft að halda einhverju leyndu skaltu alls engum segja frá því. í raun er engum treystandi um þessar mundir. . (22. júni—22. júli) Ástvinir þinir eiga það skilið að þú komir fram við þá af hlýju og nærgætni. Það mtin borga sig í fleiri en einum skilningi þegar til lengri tima er litið. Láttu hefðirnar lönd og leið, breyttu til þannig að þess sjáist merki. Hér er ekki bara verið að tala um að skipta um rás á útvarpstækinu. (23. júlí—22. útjúsl) Óhófleg bjartsýni getur komið þér í koll, bæði í vinnu og ekki síður í umgengni við fólk. Ekki eyða peningum áður en þeirra er aflað og ekki treysta um of á aðstoð annarra, þú getur alltaf lent í því að þurfa að gera allt sjálfur og þá er um að gera að hafa til þess timann. Raunsætt mat á aðstæðum er gott þegar fram i sækir. a* (23. ágúst—23. sept.) Gættu þess alltaf að eiga tíma frátekinn fyrir skemmtan og afslöppun. Þér hættir til hins gagnstæða. Ferðalög gætu orðið skemmti- leg einmitt nú á þessum árstima þegar eng- inn býst við neinu úr þeirri áttinni, sérstak- lega ef einhver nákominn fæst í stutta ferð með þér. (23. sept.—24. okt.) Til þín verða gerðar óvenjulitlar kröfur á þessum næstu dögum. Það hefur í sjálfu sér enga merkingu, en á hinn bóginn gerir það að verkum að þú getur tekist á við verkefni sem þú hefur lagt til hliðar og geymt betri tima. Sá tími er kominn. Ekki láta happ úr hendi sleppa. Tækifærin gerast ekki betri. (24. okt.—22. nóv.) Hugmynd um að styðja ákveðið málefni hefur skotið upp kollinum. Nú er rétti tíminn til að gera það og láta skeika að sköpuðu um hvort þú þarft að leggja á þig meira eða minna til að ná árangri. Þitt göfuga framlag mun afla þér nýrra vina og gera tilveruna lit- rikari og auka henni tilgang. ^ (23, nóv.—21. des.) Vertu undir það búinn aö notfæra þér að- stæðurnar hverju sinni. Taktu meira frum- kvæði en þú hefur gert; þú hefur ekki mikið um það að segja hvað nákvæmlega gerist í þínu nánasta umhverfi, en þú getur ráðið með hvaða hætti það hefur áhrif á þig. Gættu þín á að sýna ekki of augljóslega til- finningar eða opinbera hugsanir um menn og málefni. Þögnin getur verið gulls ígildi. m ^ ’ T (22. des.—20. jan.) Skilin milli vináttu og ástar geta orðiö óljós i huga þínum vegna ákveðins atviks sem hendir þig. Gættu þin á að kasta ekki frá þér góðum vini vegna þess að þið eigið ekki saman sem elskendur og sómuleiöis eru elskendur ekki alltaf vinir þegar á þarf að halda. Ekki vera feiminn viö að kynnast nýju fólki og ná vináttu þess. w J M (21. janúur—10. febrúar) Þú ert fullur sjálfstrausts um þessar mundir. Nýttu þér það. Taktu forystu í hópi sem hef- ur alltaf vantað einhvern til að taka af skarið. Láttu vita að þú Kafir það sem þarf til að vera í forsvari. Gættu þín hins vegar á því að ganga ekki um of fram í þessum málum. Flas er ekki til fagnaðar. (20. febrúar—20. mars) Ákveðin merki benda til afbrýðisemi í ein- hverju þeirra sambanda sem þú stendur í. Óljóst er hver nákvæmlega öfundar þig eða af hverju og það veldur þér bobba, en þú finnur skrýtna tilfinningu leika um loftið á stundum. Taktu þessu með jafnaðargeði, þetta gengur yf ir ef menn gæta þess að hafa taumhald á sér. Réttu hinn vangann, það gengur oftast vel. i tframhjáhlaupi Önundur Björnsson, prestur og bókaútgefandi Gæti síst verið én leiðinlegs fólks — Hvaöa persóna hefur haft mest éhrif á þig? „Foreldrar mínir án tvímæla." — Án hvers gætirðu síst ver- iö? „Leiðinlegs fólks samkvæmt frekari skilgreiningu sem ég fer ekki út í að sinni." — Hvaö finnst þér leiðinleg- ast? „ Að þurfa að ganga á eftir fólki með sjálfsagða hluti." — En skemmtilegast? „Þegar hlutirnir ganga upp og ég er metinn að verðleikum." — Hvað fer mest í taugarnar á þér? „Björn Björnsson meðan hann gegndi stöðu bankastjóra Al- þýðubankans." — Manstu eftir einhverri ákvöröun sem breytti miklu fyrir þig? „Þegar ég ákvað að hætta prestskap og stofna útgáfufyrir- tækið Tákn með Guðmundi Árna Stefánssyni." — Við hvað ertu hræddur? „Mistök af hálfu hvers sem er." — Hvenær hefurðu orðið glaðastur á ævinni? „Þegar börnin litu dagsins Ijós og alltaf þegar ég get staðið við gefin loforð." — Ef þú þyrftir að skipta um starf, hvað vildirðu helst taka þér fyrir hendur? „Prestskap og þurfa ekki að vera bónbjargamaður eins og menn þurfa í þeirri stétt og hafa þurft að vera vegna lágra launa." — Áttu þér draum sem þú vilt upplýsa? „Að það sem ég tek mér fyrir hendur hverju sinni gangi far- sællega upp." lófales I þessari viku: Steinar (strákur, fæddur 22.3. 1977) Fæðing þessa barns gekk ekki eðlilega fyrir sig. A.m.k. hafa læknavísindin eitthvað þurft að grípa þar í taumana. Þetta er drengur, sem að öllum líkindum hefur við vandamál að stríða sem snerta höfuðið eða jafnvægisskynið. Þrek hans og út- hald aukast hins vegar stöðugt með árunum. Hann er dagfars- prúður og umburðarlyndur. Þetta er afar greindur en mjög viðkvæmur drengur, sem þarf mikla hlýju og umhyggju. Hann þarfnast einnig töluverðrar vernd- ar og uppörvunar, því eitthvað skortir á sjálfstraustið. Hann hefði gott af að stunda mikið íþróttir. Drengurinn verðurlengi háðurfor- eldrum sínum og æskuárin eru góður tími í lífi hans. Hann verður mjög varkár í tilfinningamálum, raunsær og hagsýnn — og alls ekki tilbúinn til að kvænast fyrr en eftir 26 til 27 ára aldur. Hann þarf að vera í vernduðu umhverfi og sækist eftir ró og næði. Seint á unglingsárum eða upp úr tvítugu verður stefna hans í námi fastmótuð og það er líklegt að hann snúi sér að einhverjum vísindum sem ævistarfi. VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM LÓFA? Sendu þá tvö góö Ijósrit af hægri lófa (nema þú sért örv- hent/ur) og skrifaðu eitthvert lykil- orð aftan á blöðin, ásamt upplýs- ingum um kyn og fæðingardag. PRESSAN — lófalestur, Ármúli 36, 108 Reykjavík. AMY ENGILBERTS m >7 fi draumar . . .Ijósan ber hún lokkinn.. . Og illt er að missa lokka sína í draumi. En fleira er varhugavert. Það er forn ráðning að slæmt sé að dreyma sig missa tönn. Hvernig gæti það verið öðruvísi? Fyrir daga tannlæknanna var það eitt af áföll- um hversdagslífsins að missa tenn- ur. Útlit og heilsa biðu hnekki. Slíkt gat héldur ekki boðað gott í draumi. Tannmissir er vinarmissir eða vin- áttuslit. Ef mikið blæðir verður sorg manns langvinn og sár. Sérlega slæmt er að missa augntönn í draumi. Að dreyma tennur sínar lausar og skröltandi er talið fyrir veikindum, fremur þó á einhverjum nákomnum en dreymandanum sjálfum. En ef engin tönn dettur þó úr, fær sjúklingurinn bata. Að missa tönn getur einnig verið missir barns eða ættingja. Fallegar tennur boða aftur dreymandanum gott. Draumar varðandi útlit manns eru yfirleitt skýrir og auðráðnir eins og sést á draumum um tennurnar. Svipað gildir þykist maður misaa hönd eða fót, draumurinn bendir til missis og því meiri sem manni þykir blæða meira. Þykist maður hafa áverka eða sár sem saumað hefur verið saman er það áfall sem maður kemst yfir. Þá skiptir ekki litlu hvernig maður er hærður í draumum sínum. Að hafa sítt, þykkt hár er gæfudraum- ur. Hrokknir loklcar eru líka gæfu- legir. Forn er sú ráðning að hver lokkur tákni afkomanda dreymand- ans. Þannig dreymdi Hálfdán svarta, föður Haraldar hárfagra, að hann hefði mikið og sítt hár sem hrökk alit í allavega litum lokkum. Draumur þessi var ráðinn á þann veg fyrir kónginn að af honum kæmi mikil ætt — og auðvitað var því bætt við að allt yrðu það konungar og stórmenni, en máske hefur það nú verið af því að dreymandinn vildi gjarna hlusta á það. Að dreyma sig gráhærða/n eða missa hár í draumi er fyrir mótlæti. Þykist maður greiða sér og greiðan fyllist af hári er það einnig fyrir örðugieikum eða leiðindum. Draumar um hár snerta mjög oft ástamál og fjölskyldulíf. Eins og um ástamálin er flestu fólki mjög annt um hár sitt, vill hafa það fallegt og aðlaðandi og leggur bæði tíma og peninga í að svo megi verða. Það er því ekki svo undarlegt þó að í draumum okkar sé hárið táknrænt fyrir lífsgæfuna. Ef við gæfum því eins mikinn tíma að rækta heimilis- hamingju okkar og við gefum hár- snyrtingunni, mörg hver, trúi ég að minna yrði um neikvæða drauma um horfið hár. Draumar um mildð og fallegt skegg eru einnig taidir körlum góðs viti. Dreymi konu að hún sé komin með skegg mun hún bera ábyrgð og standa í framkvæmdum. Þessi ráðn- ing er auðsjáanlega gömul, frá þeim dögum þegar valdamenn þjóðfé- lagsins voru síðskeggjaðir öldungar. Að raka skegg af sér er þá að sjálf- sögðu fyrir leiðindum og tjóni. Að hafa sítt skegg sem maður setur innundir peysu eða skyrtu merkir að maður hefur meira vald en í fljótu bragði sýnist og getur haft áhrif ef maður vill. Og megi ykkur öll dreyma að þið séuð með dragsítt hár eða skegg. Steinunn Eyjólfsdóttir

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.