Pressan - 23.11.1989, Side 28
11
þessar mundir er að koma
á markað endurminningabók
Sverris Hermannssonar banka-
stjóra, sem þekktur er fyrir að
segja meiningu sína umbúðalaust. í
bókinni heldur Sverrir því m.a. fram
að í stjórnarmyndunarviðræðum
árin 1974 og 1979 hafi Gunnar
Thoroddsen verið með í huga svip-
að ,,plott“ og síðan gekk upp við
myndun stjórnarinnar árið 1980,
þegar hann varð forsætisráðherra.
Einnig fullyrðir Sverrir að Geir
Hallgrímssyni hafi verið settir úr-
slitakostir á fundi i Stykkishólmi,
sem urðu til þess að hann bauð sig
ekki fram í formannskjöri í Sjálf-
stæðisflokknum — og þannig hafi
Þorsteini Pálssyni verið tryggt
embættið...
Íf jölmiðlar sem greindu frá átök-
unum á landsfundi Alþýðu-
bandalagsins virðast hafa horft
framhjá þeirri niðurstöðu sem varð
hvað alvarlegust fyrir stöðu Ólafs
Ragnars. Hún er sú að eftir þennan
fund virðist ölium helstu stuðnings-
mönnum hans hafa verið ýtt til hlið-
ar. Landsfundurinn var nokkurs
konar endapunktur á hreinsunum í
kringum höfuðóvininn Ólaf Ragnar.
Má nfja upp að fyrir tveimur árum
var Össur Skarphéðinsson felld-
ur í kosningu til framkvæmdastjórn-
ar og fyrir þennan landsfund var
honum ýtt til hliðar við fulltrúakjör-
ið í Alþýðubandalagsfélaginu í
Reykjavík. í vor fór Mörður Árna-
son ritstjóri út í hreinsuninni á Þjóð-
viljanum og nú er Kristín Ólafs-
dóttir hætt í framkvæmdastjórn
flokksins, Svanfríður Jónasdóttir
felld úr varaformannssætinu og
Björn Grétar Sveinsson hættur
sem ritari. „Það er enginn eftir í
ábyrgðarstöðu innan flokks eða
blaðs nema Ólafur úr þessum armi
flokksins," sagði viðmælandi
PRESSUNNAR sem hefur góða inn-
sýn í gang mála. Þess ber þó að geta
að þeir Björn Grétar og Már Guð-
mundsson, efnahagsráðgjafi Ólafs,
fengu kosningu í framkvæmda-
stjórnina, en næstkomandi mánu-
dag mætir stjórnin til síns fyrsta
fundar og ákveður hverjum skuli
falin formennskan. Útilokað er að
annar hvor þeirra fái stöðuna en
heimildir okkar herma að trúlega
haldist samkomulag um að „miðju-
maður“ sem ekki er of brennimerkt-
ur af átakafylkingum verði fyrir val-
inu...
Þ
að getur vel farið svo að hér
á landi verði stofnaður sérstakur
kvennabanki að erlendri fyrir-
mynd. Ekki er um að ræða banka,
sem verslar með konur (sbr. sæðis-
banki), heldur banka sem konur
starfrækja til þess að auðvelda
kvenfólki að verða sér úti um fjár-
magn vegna atvinnurekstrar.
Kvennabankar eru starfandi í ýms-
um löndum og eiga þeir aðild að Ai-
þjóðakvennabankanum og það
myndi hugsanlegur banki hér á
landi einnig gera. Konur innan
Kvennalistans hafa kynnt sér mál-
ið og eru um þessar mundir að viða
að sér frekari gögnum til að kanna
hvort mögulegt sé að stofna slíkan
kvennabanka á íslandi...
íHemar við ýmsar deildir há-
skólans hafa árlega þegið veislur á
kostnað ríkisins í ráðuneytum og
opinberum stofnunum, eins og fram
hefur komið í tengslum við alla
„brennivínsumræðuna" undanfar-
ið. Yfirleitt er yfirskinið „námsferð"
eða „kynning" þegar haldið er til
slíkrar veislu. Fyrir örfáum vikum
fengu laganemar svo að sækja flug-
málastjórn heim og var höfðing-
lega tekið með víni og veisluföng-
um öðrum. Það er þó varia á færi
annarra en færustu lögskýrenda að
túlka hvernig slíkt má samræmast
lögfræðinámi, nema þá að skyndi-
legur áhugi hafi vaknað á sérnámi í
loftferðarétti...
H^Éargir stuðningsmanna Ól-
afs Ragnars eru fokvondir út í for-
manninn fyrir „að svíkja" Svanfríði
Jónasdóttur á landsfundinum.
Þeir benda á að hann hafi staðfest í
viðtali við Stöð 2 að hann hafi vitað
þrem vikum fyrir fundinn að flokks-
eigendafélagið ætlaði að fella hana
en Ólafur lét ekkert uppi um það við
sína menn. Andstæðingar Ólafs
segja nú að þeir hafi leitað eftir sam-
komulagi við hann fyrir fundinn um
að koma sínum manni í varafor-
mannsstólinn án kosningaátaka. Þá
eru Ólafsmenn margir óhressir með
að hann skyldi ekki berjast fyrir
Svanfriði á landsfundinum sjálfum
og steininn hafi svo tekið úr þegar
hann lýsti engri andúð sinni á út-
komunni þegar úrslit lágu fyrir og
virtist bærilega sáttur við varafor-
mannsskiptin...
f^urnherbergið í Sambandshús-
inu var nýlega tekið í notkun. Her-
bergið er innréttað fyrir óformlega
fundi ráðamanna Sambandsins með
nokkrum stökum stólum og veit-
ingaborði. Útsýni í Reykjavík er
óvíða betra en úr turnherbergi Sam-
bandshússins við Kirkjusand. ..
NOKKRAR GRÁÐUR Á GELSÍUS
GETA RÁDID ÚRSUTUM
NÁKVÆM ÞJÓNUSTA
TRYGGIR VERÐMÆTI
Þekking flutningafyrirtækis á þörfum
viðskiptavina speglast í öruggu flutninga-
kerfi enda ræður vörumeðferð oft úrslitum
um hvaða verð fæst fyrir farminn þegar á
markað er komið.
Þegar EIMSKIP flytur vandmeðfama
vöru á borð við fisk eða ávexti fylgjast
starfsmenn félagsins nákvæmlega með
hitastigi og ástandi gáms - allt frá dyrum
seljanda að dyrum kaupanda.
Gámar EIMSKIPS eru í stöðugri endur-
nýjun og eru þeir ásamt vöruskálum félags-
ins sniðnir að kröfum viðskiptavina um
meðferð og hitastig hverrar vöru.
ALHLIÐA ÞJÓNUSTA
LÆKKAR KQSTNAÐ
Þau fyrirtæki, sem velja alhliða flutn-
ingaþjónustu EIMSKIPS, komast hjá
óþarfa umstangi og áhættu og lækka þann-
ig heildardreifingarkostnað sinn.
Fullkomið upplýsingakerfi EIMSKIPS
auðveldar eftirlit með vörum viðskiptavina
og dregur úr hættu á að sendingar þeirra
misfarist.
Þeir geta á skömntum tíma fengið
nákvæntar upplýsingar um hvar varan er í
flutningakerfinu.
Sú vitneskja reynist ómetanleg við
birgðahald, skipulagningu og í samskipt-
um við erlenda viðskiptaaðila.
ÖRUGG ÞJÓNUSTA GREIÐIR
FYRIR VIÐSKIPTUM
Forráðamenn fyrirtækja vita að í áætl-
unum sínum geta þeir reitt sig á faglega
þjónustu og þróað flutningakerfi
EIMSKIPS.
Það er EIMSKIP kappsmál að njóta þess
trausts áfram með því að vera vakandi yfir
síbreytilegum þörfum viðskiptavina sinna.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ