Pressan - 18.01.1990, Qupperneq 5
j *» j J.».».* .TJjr.lJ j» .f .♦ jf t.f* .♦ ♦ t.l ♦ .♦ *l.t ♦ ♦ ♦ ♦ t. ♦ ♦ ♦**>♦,♦»♦ il>;» *
”'vr:’ "iíí s vvjf-Of/inxtÁ
Fimmtudagur -18. jan. 1990
l
Hárið er orðið grátt en svörtu flauels-
augun hafa ekki breyst. Þessi augu sem
töfruðu milljónir kvenna um allan heim
þegar hann lék Shivago lækni. Hann býr
á efstu hæð i húsi i auðmannahverfi Par-
isar, við jaðar Boulogne-skógarins, og
hefur útsýni yffir þök borgarinnar. íbúðin
er dæmigerð piparsveinaibúð, segir
hann sjálfur. Á veggjum eru fimm stórar
myndir eftir Toulouse Lautree. í hillum
gegnt dyrum eru verðlaunabikarar.
„Þeir sem ég hef ekki týnt á flakkinu/1
segir hann. Marga þeirra fékk hann fyrir
snilli sina við bridgeborðið. Á gólffi er
stért billiardborð sem hægt er að breyta
i borðstofuborð eða leika á borðtennis.
Til hliðar er fallegt taflborð með útskorn-
um taflmönnum. Hann hefur leikið i étal
kvikmy ndum i 37 ár, en þykir enn gaman
að leika sér!
EFTIR: GUÐRÚNU FINNBOGADÓTTUR - MYNDIR: FAHAD JABALI
Omar teygir sig i kaffibollann og
kveikir í nýrri sígarettu áður en
hann svarar hinni óhjákvæmilegu
spurningu:
— Hefurðu komið til íslands,
Omar?
„Nei, ég hef aldrei haft tækifæri til
að fara til íslands. Mér hefur verið
boðið að taka þátt í bridgemótum á
íslandi, en ég hef því miður ekki
haft tíma til að þiggja þau boð. Ég
ferðast mjög mikið vegna vinnu
minnar og þegar ég er ekki að vinna
reyni ég að vera kyrr heima. En ég
hef heyrt mikið um landið. Ég veit
að forsetinn er kona, meira að segja