Pressan - 18.01.1990, Blaðsíða 6
6
mjög lagleg kona.
Ég hef kynnst íslenskum bridge-
spilurum og er kunnugt um að ís-
lendingar eiga mjög gott bridgelið
sem leikur á alþjóðamótum. Fyrir
um það bil viku var mér boðið að
leika á bridgemóti á íslandi, en því
miður kemst ég ekki vegna anna.
Ég verð mjög upptekinn þetta ár og
alveg fram í maí 1991. Ég hef mikið.
að gera núna og ég er mjög ánægð-
ur með það. Mér hafa boðist fleiri
hlutverk í kvikmyndum eftir að það
varð ljóst að ég er orðinn gamall og
þessi erfiði tími á milli aldursskeiða
er liðinn."
— Er það góð tilfinning?
„Já, þessi tími, þegar maður er
hvorki ungur né gamall, er mjög erf-
iður. Kvikmyndaleikstjórarnir vita
ekki hvort þeir eiga að láta mann
segja: Ég elska þig, eða segja: Meg-
um við tala við dóttur þína? Nú er
Ijóst að héðan í frá mun ég leika
gamla menn. Það er dásamleg til-
finning, vegna þess að nú er ég sátt-
ur við sjálfan mig. Þessi barátta er
mjög erfið, líka í einkalífinu. Fólk
segir ,,ó, hann er svo sætur" og svo
sér það allt í einu að maður er orð-
inn gamall. Þá verð ég að ákveða
það með þeim að ég sé orðinn gam-
all. Nú hefur mér verið boðið að
leika mjög áhugaverð hlutverk, í
rauninni miklu áhugaverðari hlut-
verk en áður, þegar það var aðal-
lega útlitið sem þurfti að nota.“
Kvæntist stjörnunni
— Þú hefur nýlega lokið við að
leika í kvikmynd á Ítalíu, er það
ekki?
„Ég lék þar í mynd sem var skrif-
uð af einum besta handritahöfundi
Itala, Nino Guerra, sem hefur skrif-
að handrit fyrir helstu kvikmynda-
leikstjóra Ítalíu, svo sem Antonioni
og Fellini, þar á meðal Amarcord
Þetta er mjög rómantísk mynd um
sjötug hjón, sem hafa verið gift í
fjörutíu ár og fara í ferðalag saman.
Falleg og klassísk mynd og mjög
einföld. Næsta mynd sem ég leik í
verður gerð á Fnglandi og þar leik
ég með Peter O’Toole. Það verður
mjög athyglisverð mynd."
— Hvenær byrjaðirðu að leika
í kvikmyndum?
„Ég byrjaði i Egyptalandi 1953.
Þá var ég 21 árs og ég kvæntist leik-
konunni sem lék á móti mér. Hún
var stjarna í Egyptalandi. Við skild-
um hins vegar fyrir tuttugu árum.
Við eigum einn son. Hann er upp-
kominn og býr í Montreal í Kanada.
Hann á einn son sem heitir líka
Omar og er sex ára.
Ég lék í um það bil tuttugu mynd-
um í Egyptalandi. Svo lék ég í Arab-
íu-Lárens og þannig hófst hinn al-
þjóðlegi ferill minn. Ég hef sem sagt
leikið í kvikmyndum í 37 ár. Ef ég
hefði verið opinber starfsmaður
væri ég komin á eftirlaun!"
— Hvaða hlutverk er þér kær-
ast?
„Það veit ég ekki. Það er skrýtið
að hugsa svona. Ég hugsa bara um
morgundaginn. Um næsta hlutverk.
Sum hlutverkin voru góð, en tök-
urnar voru erfiðar og mér leið ekkis
vel. Ég minnist kannski annarra
með ánægju, enda þótt kvikmyndin
hafi ef til vill ekki verið mjög merki-
leg. Jafnvel með meiri ánægju en
annarra hlutverka í kvikmyndum
sem urðu frægar. Það er lífið sem er
mikilvægt og vinnan er hluti af líf-
inu.“
— Hefurðu leikið í leikhúsi?
„Já, á Englandi fyrir fjórum árum.
Leikritið var á fjölunum í sjö mánuði
og ég hafði mikla ánægju af að leika
í því. Nú ætla ég að setja leikrit á
svið hér í Frakklandi í lok þessa árs
og leika í því sjálfur. Það er amerískt
Ieikrit sem aldrei hefur verið sett
upp áður og ég læt sjálfur þýða það
á frönsku.
Mér finnst gaman að leika í leik-
húsi vegna þess að í kvikmyndun-
um fer allt eftir leikstjóranum. Ef
hann er góður eru leikararnir góð-
ur, ef hann er slæmur eru leikararn-
ir líka slæmir. Allt er á hans valdi, en
ekkert á valdi leikarans. En á svið-
inu stjórnar leikarinn hraðanum. Ef
maður finnur að áhorfendur eru að
byrja að verða órólegir getur maður
aukið hraðann. Ef maður leikur illa
í leikhúsinu er það manni sjálfum að
kenna. Hins vegar ber leikstjórinn
ábyrgðina, ef maður leikur illa í
kvikmyndum. Það er hægt að taka
mann beint af götunni og láta hann
leika í kvikmynd og hann getur
verið frábær, ef leikstjórinn er góð-
ur. Það er auðveldara að leika í leik-
húsi, ef maður er verulega góður
leikari. Það sem er erfiðast af öllu er
að leika vont hlutverk hjá vondum
leikstjóra. Að leika í kvikmynd er
mjög auðvelt ef leikstjórinn er góð-
ur og hlutverkið gott.“
Mér mistókst
i einkalífinu
— Hefurðu leikið í kvikmynd-
um í Egyptalandi síðan í gamla
daga?
„Ég gerði eina mynd í Egypta-
landi. Eg skrifaði handritið, stjórn-
aði og lék í myndinni. Hún fékk
mjög góða dóma. Hún fjallaði um
pólitísk og félagsleg vandamál
heima og gagnrýndi ástandið þar.
Ég fékk raunar verðlaun fyrir mynd-
ina á nokkrum litlum kvikmyndahá-
tíðum. Ég fer heim svona einu sinni
eða tvisvar á ári en það þreytir mig.
Ég er of vinsæll þar! Þá langar mig
aftur til Frakklands þar sem fólk læt-
ur tilfinningar sínar í ljós á kulda-
legri hátt. Mér finnst það ágætt, því
þá fæ ég að vera í friði.“
— Frægðin hefur þá ýmsa
ókosti?
„Ég er orðinn vanur þessu núorð-
ið. Þegar ég fer á mannamót bý ég
mig undir það í huganum að fólk
komi til mín og vilji tala við mig og
fá eiginhandaráritun. Og þá er þetta
ailt í lagi, ég get þolað það. Ég fengi
áreiðanlega áfall ef ég færi út á götu
og enginn þekkti mig! Ég hugsa að
ég yrði líka óánægður með það!
Það sem er hræðilegt við frægð-
ina er ekki þessi ágangur fólks, held-
ur það að maður getur ekki átt
einkalíf. Mér hefur mistekist hrapal-
lega í einkalífi mínú.-’Ég hef ekki
gifst eftir að ég skildi fyrir tuttugu
árum. Það er útilokað. Engin kona
myndi þola að lifa svona lífi með
mér, að vera stöðugt á ferðalögum
og búa á hótelum alla ævina. Það er
heldur ekki hægt að ætla að búa
saman, en vera stöðugt aðskilin.
Það er þetta sem er erfitt. Sonur
minn og sonarsonur búa í Montreal,
móðir mín býr í Madrid og systir
mín í Bandaríkjunum svo ég hef
ekki þá ánægju, sem er fólgin í því
að hafa fjölskyldu sína nálægt sér.
Mig langar til að eiga fjölskyldu, eða
eiga félaga. Konu til þess að búa
með.“
Daglega flengdur
með inniskó
— Sérðu eftir þessu núna?
„Nei, ég get ekki sagt það. Ég veit
ekki hvað hefði orðið annars.
Kannski hefði ég átt betra líf ef ég
hefði ekki orðið frægur, kannski
hefði ég orðið hamingjusamari. Ég
er ekki viss. Það er tilgangslaust að
hugsa um það. Þetta voru mín örlög.
Eg er örlagatrúar. Ég trúi því að
maður eigi örlög sem maður getur
ekki breytt mikið. Ég var viss um að
ég yrði frægur maður, þegar ég var
drengur, alveg frá tóif ára aldri.
Kannski var það mamma mín, sem
kom þessu inn hjá mér. Hún er enn
á lífi, Guði sé lof. Hún ákvað, þegar
ég fæddist, að ég ætti að vera eitt-
hvað merkilegt og flengdi mig á
hverjum degi með inniskó. Við
hverja smáyfirsjón sló hún mig með
inniskónum. Hún vildi að ég yrði
fullkominn. Hún vissi ekki hvað ég
ætti að vera frægur fyrir, heldur
ákvað bara að ég skyldi verða fræg-
ur. Kannski hafði þetta áhrif...“
— Vildirðu snemma verða
leikari?
„Ég hefði getað orðið stærðfræð-
ingur eða eðlisfræðingur, því ég
hafði mjög góða hæfileika á því
sviði. Kennararnir mínir vildu að ég
lærði stærðfræði, en ég var hrifinn
af leikhúsinu. Mér var sagt að ég
væri fífl, fyrst ég gæti orðið eitthvað
sem væri verulega merkilegt; ekki
bara leikari. Það þótti ekki merki-
legt. Pabbi var á móti því, vegna
þess að á þessum tíma var skömm
að því að vera leikari, en mamma
viidi allt sem ég vildi. Þegar ég var
lítill flengdi hún mig, en seinna meir
var mér allt leyfilegt. Pabbi skipti
svo um skoðun, auðvitað, þegar ég
var orðinn frægur. Þannig er lífið,
þannig eru feður. Sonur minn vildi
verða leikari og ég var á móti því.
Hann hlýddi mér. Hann er mjög
ánægður með það núna, en hins
vegar hefði ég ekki orðið ánægður
ef ég hefði hlýtt pabba mínum.“
Hætti að spila þeg-
ar ég er óstfanginn
— Býrðu hér í París?
„Já, en ég er hér ekki nema 3—4
mánuði á ári. Ég er stöðugt á ferða-
lögum og leik í kvikmyndum í ýms-
um löndum. Ég vinn ekki hérna. Ég
bý mestan hluta ársins á hótelum,
upp úr ferðatöskunum, svo að segja.
Ég er þreyttur á þessu og reyni að
vera heima þegar það er mögulegt.
Þetta er staðurinn þar sem ég geymi
bækurnar mínar og fötin mín.
Hérna er ráðskonan mín og ritari
sem hafa báðar verið hjá mér í 22 ár.
Húsgögnin og allt hér er ódýrt, eng-
inn íburður. Þetta er piparsveina-
íbúð.“
— Ertu ekki fjárhættuspilari?
„Jú, út úr leiðindum. Ég spila bara
þegar mér leiðist. Þegar ég er ást-
fanginn spila ég ekki fjárhættuspil.
Ekki heldur bridge. En þegar ég er
ekki ástfanginn og er ekki að vinna
— því oft hefur maður nokkurra
mánaða frí á milli mynda — þá spila
ég. Ég spilaði bridge í nokkur ár svo
að segja samfleytt. Þá var ég ekki
ástfanginn!"
Vil greinda, úti-
vinnandi lconu
— Hvernig konur finnst þér
mest spennandi?
„Konur!? Ég vil ekki alhæfa um
konur. Ég þekki ekki konur. Ég vil
bara þekkja eina konu. Það er nóg.
Fyrsta skilyrðið er að hún sé greind,
vegna þess að ég get ekki búið með
manneskju sem er ekki greind. Svo
er betra að hún vinni. Kona sem sit-
ur heima allan daginn og gerir ekk-
ert hefur frá engu að segja. Aðgerð-
Fimmtudagur 18. jan. 1990
arleysi er leiðinlegt. Nútímakonur
eru áhugaverðari vegna þess að
þær eru þátttakendur í þjóðfélag-
inu. En ég vil að konur séu blíðar,
ekki hörkulegar eða árásargjarnar.
Ég er sjálfur ekki árásargjarn maður
og mér geðjast ekki að þannig fólki.
Nútímakonur eru stundum árásar-
gjarnar til þess að sanna að þær séu
jafnokar karlmanna, en það sannar
bara ekkert. Mér finnst að konur
ættu að vera ánægðar með að vera
konur og stoltar af því."
— Þú hefur leikið á móti feg-
urstu leikkonum heimsins.
Hvaða konur finnst þér falleg-
astar?
„Mikil fegurð er leiðinleg til
lengdar, vegna þess að henni fylgir
sjálfsdýrkun. Fólk segir oft um fal-
legar konur að þær séu heimskar,
en þær eru það kannski alls ekki.
Þær nota bara ekki heilann. Þær eru
svo fallegar að þær þurfa það ekki.
Svo þykjast þær vera að gera manni
mikinn greiða, ef þær láta svo lítið
að elska mann. Það er eitthvað ann-
að en bara fegurðin sem dregur mig
að konu. Ég fell kannski fyrir ein-
hverju í augnaráðinu."
Tala sex tungumól
— með hreim
— Þú sagðist áðan hafa vitað
að þú yrðir frægur. Trúirðu á yf-
irskilvitlega hluti?
„Ég trúi öilu sem ekki er víst. Það
sem ekki er víst er mögulegt. Það er
betra að trúa en trúa ekki. Allt sem
er mögulegt gæti hugsanlega orðið.
Ég held að það sé ágætt að hugsa
svona og það er alls ekki óvísinda-
legt í rauninni og mjög jákvætt. Ég
fæst samt ekki við neinskonar dul-
ræn fræði, stjörnuspár eða þvílíkt.
Ég get ekki notað hugsun og lífsvið-
horf annarra manna, ég verð að
hafa mitt eigið. Viðhorf þýsks heim-
spekings á 19. öld henta ekki mér,
sem fæddist í Alexandríu á þessari
öld. Ég verð að hafa viðhorf sem
henta mínu lífi, hér og nú. Sömu
hlutir henta ekki fólki í New York
og á Indlandi. Ég myndi fljótlega
missa vinnuna ef ég ætlaði mér að
vera búddisti í New York en á Ind-
landi væri það frábært, að sitja und-
ir tré og hugsa um lífið og dauðann."
— Þú talar mörg tungumál, er
það ekki?
„Ég tala sex tungumál, en ekkert
þeirra án hreims; jafnvel ekki arab-
ísku. Ég var svo heppinn að alast
upp í alþjóðlegu umhverfi, í Alex-
andríu, þar sem bjó fólk af ýmsu
þjóðerni, Grikkir og ítalir og ýms-
ir fleiri. Það er þetta umhverfi sem
Lawrence Durrell lýsir í bókum
sínum. Ég talaði fjögur tungumál
strax í æsku, enda er enginn vandi
að læra mál sem barn og unglingur.
Nú finnst mér þetta stundum verra,
því það er svo mikið kvalræði að
koma til lands þar sem maður getur
ekki tjáð sig, þegar maður er vanur
að geta það hvar sem er.“
— Hvað gerir þú í frístundum?
„Ég les mikið. Svo finnst mér
gaman að borða góðan mat og
drekka gott vín. Ég fer sjaldan í bíó.
Bara þegar um er að ræða myndir
sem þarf að sjá á stóru tjaldi. Vanda-
málið er að fólk vill tala við mig þeg-
ar ég fer í bíó. Ég get ekki bara farið
í biðröðina, keypt miða og sest svo
í sætið mitt. En eins og ég sagði áð-
an yrði ég sennilega hræddur ef
enginn tæki eftir mér. Ég héldi að
allir hefðu gleymt mér! Auðvitað
mun ég gleymast, en ég reyni að
fresta því augnabliki eins lengi og
kostur er!“
jr fMuðvitað mun ég gleymast, en ég
reyni að fresta því augnabliki eins
lengi og kostur er!"
Omar Sharif bauð Guðrúnu Finnbogadóttur, blaöamanni PRESSUNN-
AR, heim í íbúðina sina i París. Hér er Guðrún mætt til leiks.
„Eg fengi áreiöanlega áfall, ef ég færi út á götu og enginn þekkti mig!"
Mér hefur mistekist hrapattega í
einkatífí mínu.77
M
kominn
fíengdi mig á hverjum degi
i. Hún viidi að ég yrði fuii
//
Þegar ég er ástfanginn spiia ég ekki
fjárhættuspii. Ekki heidur bridge.
//
// Mað myndi engin kona
þoia að iifa
svona iífi með mér."