Pressan - 18.01.1990, Blaðsíða 24

Pressan - 18.01.1990, Blaðsíða 24
24 Fimmtudagur 18. jan. 1990 Vimium aðfimm ára Nú eru komnar frain á sjón- arsvidið nokkrar meginstærð- ir tölva og bitist er um mark- aðshlutdeild þeirra en kannski ekki síður um markaðshlut- deild stýrikerfa. Hver heldur þú að þróun í þessum málum verði á næstunni? „Tölvum hefur verið skipt upp í þrjá meginflokka. Óar er um aö „Fyrsli visir að hugbúnaðardeild hjó EJS mó segja að hafi orðið til um leið og ég hóf störf hjá f yrirtæk- inu, árið 1981. Frá þvi '82 hefur þessi starf semi orð- ið æ meira áberandi i rekstri fyrirtækisins en fyrstu fjögur árin unnum við eingöngu fyrir Reiknistofu bankanna. Við sáum að mestu leyti um forritun á Kienzle-tækjunum sem notuð eru i bönkum um allt land og eigum þar með að stærstum hluta heiðurinn af beinlinukerfi bankanna. Síðan þessu verki lauk höfum við unnið að viðhaldi kerfisins sem þö er hverfandi iítið og við tökum að okkur ýmis verkefni sem upp koma hverju sinni. Nú erum við til dæmis að vinna að ákveðnu verkefni fyrir Lána- sjóö íslenskra námsmanna, sem er mjög áhugaverl. Við notum við þetta verkefni gagnagrunn sem heitir Oracle og er mest seldi gagnagrunnur í heimi. Þetta verk- efni var boðið út í opnu útboði og við tókum þátt í því. Við buðum bæði í vélbúnaö og hugbúnað og viö þetta verk er beitt nýrri tækni. Þar er um að ræða svokallaö Case-hönnunarkerfi. Þetta er kerfi sem notað er viö hönnun og spar- ar bæði mikla vinnu auk þess sem öll hönnun verður mun áreiöan- legri. Svo ég nefni önnur verkefni má til dæmis benda á aö með vorinu hyggjumst viö ráðast til atlögu viö viðskiptahugbúnað á innanlands- markaði. Við höfum i heiit ár unn- iö að hugbúnaðarpakka, bókhald- spakka, sem markaðssettur verð- ur með vorinu. í þessum pakka verður í raun miklu fleira en hefðbundið bók- hald, því auk þess verða þarna ýmsar nýjungar, ýmsir möguleik- ar til aö fylgjast með rekstri fyrir- tækja. Þessi pakki er byggöur á nú- tímagagnagrunni og notað er fjórðu kynslóðarmál. Fjóröu kyn- slóðarmál er öflugra en þau mál sern mest er unnið með i dag og hefur innifalda ýmsa hluti sem annars þyrfti að leggja mikla vinnu í aö búa til sérstaklega. Þetta gerir svo að verkum að allt viðhald og breytingar forritanna einfaldast til muna. Með þessu útspili teljum viö okkur vera að vinna að einskonar fimm ára áætlun, svo segja má aö um sé að ræöa byitingu á þessu sviði. Gagnagrunnurinn sem viö not- um gerir viöskiptavinum okkar sjálfum kieift að gera alls kyns skýrslur sem annars þyrfti að fá einhverja kerfis- eða hugbúnaðar- sérfræöinga til að gera. Þessi hugbúnaðarpakki er einn- ig valinn með tiliiti til vélbúnaðar. Hann keyrir á PC, einmennings- netum, UNIX-vélum og VAX-vél- um. Vinnsluheiti pakkans hefur verið Magni og ég reikna með að það komi hann til með að heita blessaður." Þú minntist litillega á kerfis- og hugbúnaðarfræðinga. Er þörfin fyrir slíkt fólk að minnka? „Þaö verður að segjast alveg eins og er að fyrir 1(1 árum eða svo þóttu þetta afskapiega merkilegir menn, allt að því hálfguðir. Hlutir sem þeir voru að vinna þá, og fólk leit upp til þeifra fyrir, eru á færi skólakrakka undir fermingu i dag! Þróunin er svo gífurlega ör í þess- um efnum, en það fólk sem virki- lega er þörf fyrir nú eru hönnuðir ýmiss konar kerfa. Á því sviði eru miklir möguleikar fyrir fært fólk í dag, enda er þar um að ræða miklu flóknari hluti en að skrifa forrit." f/ aænun lega vinnu í þýðingar á forritum og handbókum. Þessi vinna fæst aldrei borguð, svo miklu er stolið. Þetta er mjög aivarlegt mál þó fólk virðist alls ekki gera sér grein fyrir því. Við fiytjum inn forritin og frarn- leiðum og það segir sig sjálft að slíkt kostar peninga. Þessi ítrekaöi þjófnaður veröur til þess að inn- flytjendur sjá engan hag i því að ís- lenska forritin vegna þess að slíkt stendur hreinlega ekki undir sér. Word Perfect er eina ritvinnslu- forritið sem hefur verið íslenskað og er jafnframt það besta. Það sést best á því að það hefur yfir 5(1% markaðshlutdeild í Bandaríkjun- um, sem hingað til hafa verið stærstu framleiðendur á hugbún- aðarmarkaönum. Með tilkomu einmenningstölv- anna varð framleiðsla hugbúnaö- ar stóriðnaður og stóru fyrirtækin í þessari grein setja nú i auknum mæli upp hugbúnaðarverksmiöj- ur í þróunarlöndum á borð við Indland og fleiri. Framleiðsla á hugbúnaði er dýr iðnaöur og þvi er leitaö til þessara staða þar sem laun eru aðeins brot af því sem gerist á Vesturlöndum. Ég tel því litlar likur á að íslendingar muni nokkurn tíma verða stórir fram- leiðendur hugbúnaðar á heims- mælikvarða, en við eigum aö kappkosta að búa til góðan hug- búnað fyrir eigin markað. Ef stóru tækifærin gefast á heimsmarkaöi er hins vegar ástæðulaust að láta þau fara fram hjá athugasemda- laust!" Forráðamenn sumra tölvu- fyrirtækja hérlendis tala um f að þróunin á næstu árum verði í átt að stöðlun á ýmsum svið- um. Telur þú einnig að svo sé? „IBM hefur í gegnum tíðina sett upp mikið af stöðlum sem þeir hafa fyrst og fremst ætlað sjálfum sér. en hafa svo seinna meir orðiö alþjóðlegir. Nú síöast kom fram á sjónarsviöið staðall sem þeir kalla AD-Cycle. Þessi staðall fjallar um það hvernig hönnunarumhverfi á að vera. Það var orðin brýn þörf á þess háttar staðli og til aö útskýra hvað ég er að tala um má líkja þessu við þaö þegar mannvirki eru hönnuö. Það er gegnið út frá ákveðnum staðli, arkitektinn skilur hann, verkfræðingurinn, smiðurinn _og starfsmenn viðkomandi bæjarfé- lags sem að lokum taka mannvirk- ið út. í hugbúnaði hefur ekki verið til neinn slíkur staðall sem aftur hefur leitt af sér að ákaflega erfitt hefur verið að leita eftir tilboðum i ákveðin verkefni. Hvernig á að bjóða út hugbúnað? Viðskiptavin- urinn veit hvað hann vill, en kann ekki að segja það. Hugbúnaðar- hönnuðurinn heldur að hann skilji viðskiptavininn og kemur með til- lögu. Viðskiptavinurinn heldur þá að hönnuðurinn sé að tala um sömu hluti og hann en þegar verk- inu ér lokið kemur kannski i Ijós að allan tímann voru þessir tveir aðilar að misskilja hvor annan! Við getum rétt ímyndað okkur hvernig hús sem smíðað væri eftir texta á blaði liti út! Þessu er ÍBM að breyta og er það vel. Þessi stað- all markar algjör tímamót, það er einróma álit þeirra sem ég hef rætt við og vit hafa á." DOS er í einmenningstölvunum. Þegar gluggað er í erlend fagtíma- rit kemur í Ijós að sum þeirra spá því að vöxtur í UNIX-stýrikerfinu verði aiit aö 36% á næstu árum á meðan vöxtur tölvumarkaðarins í heild veröi ekki nema 7%. Opin stýrikerfi á borð við UNIX bjóða upp á val. Notendur geta valið um ólíka prentara, skjái og fleira og fleira. auk þess sem þeir eru ekki bundnir framleiðanda tækjanna hvaö varðar hugbúnaö.- Það er engin launung að veldi IBM valta yfir UNIX, en það hefur ekki enn gerst. OS/2 er heldur ekki fjöl- notenda heldur fjölverka og getur þar með ekki keyrt marga notend- ur samstundis heldur unnið nokk- ur verkefni á sama tíma. Eins og sagði áðan höfum víð veðjað á UNIX og sérþjálfað okkur í því kerfi. UNIX-vél getur til dæm- is veriö þjónustustjóri í einmenn- ingskerfi, auk þess að sinna ýms- um öðrum verkefnum um leið. Þetta getur OS/2 ekki. Það er því Ijóst að einmennings- Olgeir Kristjónsson hja Einari J. Skúlasyni. „Höfum veðjaö á UNIX." ræða einmenningstölvur eöa PC, millitölvur og megintölvur (stór- tölvur). PC-tölvan verður alltaf öflugri og öflugri og slagar þegar hátt í milliflokkinn og sama má segja um tölvur í þeim flokki, þær eru farnar að nálgast megintölvurnar. Hér á landi má hins vegar segja að ekki séu til nema tvær megintölv- ur. Önnur þeirra er hjá Skýrsluvél- um ríkisins og Reykjavíkurborgar og hin hjá Reiknistofu bankanna. Á miðtölvumarkaðnum eru fyrst og fremst tölvur frá Digital sem kallast VAX, IBM meö AS/400 og Hewlett Packard sem eru allar með lokuð kerfi, en HP er einnig með tölvu meö opnu kerfi sem keyrir undir UNIX. Til viðbót- ar við þessar tegundir eru svo all- ar hinar sem keyra á UNIX. UNIX er að mínu viti að veröa í sama flokki t miðtölvum eins og og Digital, sem eru tvö stærstu tölvufyrirtæki heims, byggist fyrst og fremst á lokuðum stýrikerfum. Þannig halda þeir utan um kúnn- ana, þeir verða háðir framleiöand- anum. Á síðustu misserum hefur verið unniö gífurlegt starf í stöðlun á UNIX og árangurinn af því starfi er gríðarlegur. Við hjá Einari J. Skúlasyni höfum veðjað á UNIX og reiknum meö að íslenski mark- aöurinn muni á næstunni taka þvi kerfi fagnandi, þó það hafi ekki gerst enn, ekki að ráði í þaö minnsta. UNIX er þó til í háskólanum og nokkrum rannsóknarstofnunum auk þess sem LÍN kaupir UNIX-vél þó af minni gerðinni sé. Hún getur þó keyrt alit að 60 notendur með stækkun. Því hefur verið spáð síðustu A ár að OS/2-stýrikerfið frá IBM myndi og millitölvuflokkar eru að verða að einum. Það sem skilur í milli er hins vegar hugbúnaðurinn. Ég tel líka alveg Ijóst að MS/DOS veröur ekki leyst af. Til þess er það orðið allt of útbreitt og viðamikið. Ein- menningstölvurnar verða í fram- tíðinni notaðar sem vinnustöðvar og það sem snýr að notandanum verður æ fullkomnara. Ég er klár á því að nú fara í hönd tímar sem eru sérlega skemmtilegir fyrir „tölvufrík"." Hugbúnaðarþjófnaður er vandamál sem framleiðendur og innflytjendur hugbúnaðar verða að horfast i augu við. Hafið þið gert eitthvað til að bregðast við þessum vanda? „Það er vissulega hægt að koma í veg fyrir stuldi af þessu tagi en menn hafa valið að gera þaö ekki. EJS er t.d. með umboð fyrir Word Perfect og við höfum lagt gríðar-

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.