Pressan - 18.01.1990, Blaðsíða 31

Pressan - 18.01.1990, Blaðsíða 31
oc 31 Oftfí* *i'\i S' .• Fimmtudagur 18. jan. 1990 FIMMTUDAGUR 18. janúar Stöö 2 kl. 21.50 LINCOLN Bandurísk sjónvarpsmynd Leikstjóri Lamunt Johnson Adalhlutverk Sam Waterston, Mary Tyler Moore Framhaldsmynd í tveimur hlutum sem greinir frá forsetatíð Abrahams Lincoln. Lincoln er einn nafnkunn- asti forseti Bandaríkjamanna, og eins og líklegast flestum er kunnugt var hann myrtur í embætti sem hef- ur auðvitað aukið á frægð hans og allt umtal um hann, fært hann í goð- sögulegar hæðir næstum því. Lin- coln er m.a. þekktur fyrir andstöðu sína gegn þrælahaldi og hann sam- einaði Bandaríkin eftir borgara- styrjöldina. Síðari hluti á dagskrá 25. janúar. FÖSTUUAGUR 19. janúar STÖÐ 2 kl. 21.55 KÚREKI NÚTÍMANS *** (Urban Cowboy) Bandarísk bíómynd Gerd 1980 Leikstjóri James Bridges Adalhlutuerk John Travolta, ■Debra Winger, Scott Glenn, Madolyn Smith Hér takast á draumur og veruleiki, ímyndun og sannleikur. John Tra- volta, þarna á hátindi frægðar sinn- ar, leikur ungan mann sem hrífst af skemmtistaðnum Gileys, vergjörn- um konum sem þar finnast, vél- knúnu nauti og síðast en ekki síst þeirri ímynd sem staðnum fylgir, einhvers konar karlmennskuímynd sem reyndar stenst ekki í raunveru- .leikanum, þegar út fyrir veggi skemmtistaðarins kemur. Þessi mynd fær þrjár stjörnur hjá Maltin en hún snarféll reyndar á sínum tíma. Þetta er einskonar lítil sneið af mannlífinu þar sem fólk reynir að lyfta sér upp úr hversdagsleikanum með því áð ímynda sér tilveruna á annan hátt en hún er. Verður því sennilega grátbrosleg eða bara sorg- leg á endanum. Sjónvarpið kl. 22.20 HÁLENDINGURINN (The Highlander) Bandarísk bíómynd Gerö 1986 Leikstjóri Russel Mulcahy Aöalhlutverk Christopher Lambert, Roxanne Hart, Sean Connery Mikil ævintýramynd um ódauðlega veru og óvin hennar og eltingaleik- ur þeirra gengur fram og aftur í tíma og rúmi, hendist um einar þrjár ald- ir og tvær heimsálfur. Frá I7du ald- ar Skotlandi til Bandaríkjanna á 20. öld. Hér er ágæt hugmynd gerð heimskuleg og leikstjórinn hefur augsýnilega fengið skólun í gerð myndbanda fyrir rokk- og popp- bransann, þannig að áhorfendur þurfa að hafa sjóveikitöflur við höndina, a.m.k. þeir sem ekki eru vanir slíkum myndböndum. Conn- ery þykir sýna nokkur tilþrif en þá er það því miður upptalið. Stöð 2 kl. 00.30 SKIKKJAN *** (The Robe) Bíómynd Gerö 1953 Leikstjóri Henry Koster Aöalhlutverk Richard Burton, Jean Simmons, Michael Rennie Myndin er byggð á skáldsögu Lloyds C. Douglas um rómverskan hundr- aðshöfðingja sem hefur yfirumsjón með krossfestingu Krists. Burton heitinn var tilnefndur til Óskars- verðlauna fyrir leik sinn sem hundr- aðshöfðinginn. Á þessum þrjátíu og sjö árum sem liöin eru frá gerð myndarinnar hefur leikstíll hins vegar breyst svo mikið að Burton virkar stífur og fullur af tilgerð. Myndin er annars í meðallagi, sæmileg en ekki meir. LAUGARDAGUR 20. janúar Stöð 2 kl. 21.20 SKYNDIKYNNI **%' (Casual Sex) Bandarísk bíómynd Gerö 1987 Leikstjóri Genevieve Robert Aöalhlutverk Lea Thompson, Victoria Jackson, Stephen Shellen, Jerry Levine Hér er á ferð ákaflega nútímalegt viðfangsefni, nefnilega hræðslan við skyndikynni á tímum eyðniveir- unnar sjálfrar. Tvær ungar stúlkur, um þrítugt það er, leita hamingjunn- ar. Þær eru ólíkar, önnur á margt sambandið að baki, hin er feimin og hlédræg. Stúlkurnar ákveða aö fara og leita gæfunnar á heilsuræktar- hæli í Kaliforníu, markmiðið er aö ná sér í stöndugan eiginmann. Vandinn er hinsvegar mikill, því ekki er hægt að steypa sér í skyndi- kynni á þessum síðustu og verstu. Myndin segir'söguna út frá sterkri kvenlegri vitund sem er afar áber- andi. Mynd í meðallagi, heiðarleg en gengur ekki upp. Stöð 2 kl. 22.55 V0PNASMYGL **% (Lone Wolf McQuade) Bandarísk bíómynd Gerö 1983 Leikstjóri Steve Carver Aöalhlutverk Chuck Norris, David Carradine, Barbura Carrera Hér er komiö Rambótilbrigöi, Chuck Norris, sem einkum er þekkt- ur fyrir að slá á hvíta tjaldinu, a.m.k. fremur en fyrir snjallan leik. Hér leikur hann náunga frá Texas sem reynir að hafa hendur í hári óvinar síns en inn í málin fléttast aðrar per- sónur sem hafa áhrif á framvindu mála. Myndin er dálítið of langdreg- in, að vísu er umgjörð hennar góð en aulaleg hliðarsaga skemmir mik- ið. Norris slæst af miklum krafti og fegurö eins og alltaf, hafi menn gaman af slíku á annað borð. Sjónvarpið kl. 23.35 HANNA 0G SYSTUR HENNAR **** (Hanna and Her Sisters) Bandarísk bíómynd Gerö 1986 Leikstjóri Woody Allen Aöalhlutverk Mia Farrow, Michael Caine, Carrie Fisher, Max Von Sydow, Woodie Allen, Burbaru Hershey, Diana Wiest o.fl. Tvímælalaust kvikmyndaupplifun vikunnar að þessu sinni, ein besta mynd síðustu ára, og jafnvel þó miklu aftar væri leitað. Enn tekst Woody á við samband karla og kvenna í New York og tekst það frá- bærlega. Það er léttara yfir þessari mynd en mörgum öðrum sem leik- stjórinn smávaxni hefur gert áður og eftir en hér segir af Hönnu, fjöl- skyldu hennar og venslamönnum og einu og öðru sem á daga þeirra drífur. Woody Allen fékk Óskars- verðlaunin fyrir handrit sitt og þau Michael Caine og Diana Wiest fengu Oskarsverölaun sem bestu leikarar í aukahlutverki. SUNNUDAGUR 21. janúar Stöð 2 kl. 00.05 HEIMURINN í AUGUM GARPS **** (The World According to Garp) Bandarísk bíómynd Gerö 1982 Leikstjóri George Roy Hill Aöalhlutverk Robin Williums, Mary Beth Hurt, Glerin Close, John Lithgow, Hume Cronyn Skruggugóð mynd, svo ekki sé meira sagt. Segir af ævi rithöfundar- ins Garps og tekur á privatmálum hans ef svo má segja. Hann lifir í skugga móður sinnar sem, og það tekur hann nærri sér, hristir met- sölubók fram úr erminni, á meðan hann puðar og puðar við skriftirnar en selur lítið. Hér er tekiö á hvers konar vandamálum, víða komið við og í myndinni eru margir frábær- lega góðir karakterar. Þar má fyrsta nefna móðurina (Glenn Close sem þarna lék sitt fyrsta hlutverk í kvik- mynd), kynskiptinginn (John Lith- gow) og svo auðvitað Garp sjálfan (Robin Williams). Leikstjórinn á aðra mynd á dagskrá Stöðvar 2 í þessum mánuði, öðruvísi en líka góða, nefnilega The Sting. FEUlKifl eftir Mike Atkinson vi€? K'fern R VJUU PVR. dagbókin hennar Það vissu nú allir að amma á Eini- melnum væri háð símanum, en núna er þaö ekki lengur neitt grín. Það bilaði sko síminn á Einimeln- um fyrir tíu dögum, eins og stund- um kemur fyrir án þess að fólk veröi beinlínis viðþolslaust. En síminn er svona álíka mikilvægur fyrir ömmu og hendurnar, þannig að það mynd- aðist verulegt hættuástand á svæð- inu. (Hún er með samtals fimm sím- tæki í húsinu, af því það er allt út í stöllum og svoleiöis og hún vill geta komist í síma á andartaki, hvar sem hún er stödd. Amma er þessi týpa, sem aldrei kæmist yfir þaö ef hún missti af djúsí kjaftasögu eða heim- boði.) Þar sem amma er ekki vön aö tala viö neina plebba eða einhvern al- menning, ef hún þarf aðstoð, byrjaði hún á að tékka á því hver væri „símamálaráðherra". Það reddaði liins vegar litlu. Konurnar á skipti- borðinu í stjórnarráðinu sögðu nefnilega, eftir smávandræöagang, að það væri sköllótti komminn með rauða háriö (æ, eöa þannig . . .) sem réði öllum símamálum á landinu. ()g amma hefur sko engin sambönd í Álþýðubandalaginu! Það er alveg á tæru. Hún byrjaði nú á að rífast soldiö viö skiptiborðskonurnar út af því aö símamálum væri stjórnað í sam- gönguráðuneytinu. Ómmu finnst að félagsmálaráðherra eigi að sjá um að síminn sé í lagi, vegna þess aö maöur fær svo mikinn félagsskap út úr símanum. En aumingja konurnar ráöa víst litlu um svona mál og þeg- ar þær voru orönar þreyttar á frekj- unni í ömmu gáfu þær henni bara beint samband við félagsmálaráðu- neytið. Þar kom einhver meiriháttar Ijúf kona í símann, sem hafði rosa- lega þolinmæði við aö hlusta á kröf- ur um að félagsmálaráðherra fengi strax í gær yfirumsjón með félags- legum öryggistækjum eins og sim- um. Loksins fattaði amma þó að þetta þýddi ekki neitt, en hún var grútspæld, því hún hafði vonaö aö kona skildi betur þetta neyðar- ástand sitt en karlmaður. Næst sneri amma sér að Pósti og síma, en þetta stríð hennar fór nátt- úrulega fram heima hjá mér og teppti okkar síma í heilan dag, þó hún hefði ekki mikið samviskubit af svoleiðis smámunum. Hún talaði við alla yfirmenn, sem til voru í fyr- irtækinu, en enginn gat sagt hók- us-pókus og kippt símanum hennar í lag. Ég meina það . . . annaðhvort er verkfall eða ekki. En amma kall- aði mennina bara rolur og óhæfa stjórnendur og ég veit ekki hvað og hvað, þangað til þeir skelltu á hana. Aumingja mamma varð næst fyrir barðinu á ömmu, bara af því hún er .soldið framarlega í Kvennalistan- um. Amma sagði að hún væri ekki almennilegur pólitíkus, ef hún gæti ekki reddað smámáli eins og einum símaræfli, og nú skyldi hún sýna vald sitt. En mamma blés nú barasta á þetta kjaftæði og gerði ekkert — og þess vegna er amma flutt heim til okkar þangað til verkfallið leysist. (Ég býst við aö mamma endist styttra en verkfallið. Hún fer örugg- lega að nota einhver sambönd í kerfinu á allra næstu dögum, þegar amma verður búin að endurraða húsgögnunum í stofunni, krítísera matinn og teppa símann í nokkra daga!)

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.