Pressan - 18.01.1990, Page 19

Pressan - 18.01.1990, Page 19
Fimmtudagur 18. jan. 1990 19 | fólk i dettur heima hjá sér er meira bölvað vesenið, endurtók konan reiðilega, svo heimtar hún örugglega að við heimsækjum hana daglega í spítalann. Hvaö á hún lengi í þessu? — Það er ekki vitað, svaraði ég, en reiknaðu með nokkr- um vikum. Margt gamalt fólk er lengi að jafna sig eftir svona bein- brot, það liggur oft mikið fyrir og það veikir beinin enn og auk þess missa margir kjarkinn við að detta. Varúdarrádstafanir — Hvað á maður aö gera, sagði konan, svo þetta endurtaki sig ekki? — Fyrst skaltu fleygja út þessari hryllilegu rýamottu, sagði ég, mamma þín datt á henni og sagðist iðulega hafa hrasað um hana gegn- um tíðina. — Æ, sagði konan, hann rýaði þetta hann Bói bróðir einu sinni, og mamma hefur alltaf haldiö upp á þessa mottu. — Svo á hún mamma þín aö ganga með gleraug- un sín, þó henni finnist þau Ijót, og ekki að ganga á þessum lausu inni- skóm. Hún verður óstöðug á fótun- um á þeim, svo hún ætti aö fá sér betri skó. Svo þarf að koma hlutun- um þannig fyrir, að allt sem hún not- ar daglega sé í neðri hillunum í skápunum, svo hún þurfi ekki að prtla upp á stóla að óþörfu. Setjiöi líka handföng inn á baðherbergiö svo hún geti stutt sig við eitthvaö og vegið sig upp úr baðkerinu. — Kn þessi lyf, sem hún er að taka, verður hún ekki óstöðug af þeim? spurði konan. — Jú, það er satt, sagði ég. einhvern tímann sá ég að stór hluti gamalmenna sem dettur inni í sjúkrahúsum er með umtalsvert magn af einhverju svefnlyfi í líkam- anum sem gerir þau óstöðug á fót- unum. Auðvitað á helst ekki að gefa gömlu fólki svefnlyf til langframa, heldur hjálpa því yfir svefnleysið með hættuminni aðferöum. Mikið af lyfjum sem gömlu fólki er gefiö vegna blóðþrýstingshækkunar, svefnleysis, svima og þunglyndis getur haft slæm áhrif á jafnvægið og aukið hættuna á byltum. Við ver(S- um að skoða þetta allt meðan hún er í sjúkrahúsinu. Auk þess veröur að hafa reglulegt samband við hana á hverjum degi. Ég þekkti einu sinni gamla konu úti i Svíþjóö sem hitti alltaf nágrannakonu sína í hverfis- sjoppunni daglega, því gamla kon- an fór alltaf þangatí og keypti sér bita af Klóetta-súkkulaði. Svo var það einn morguninn aö nágranna- konan hitti ekki þá gömlu í búðinni og fór og hringdi hjá henni. Knginn svaraði svo hún lét lögregluna vita og þá kom í Ijós aö gamla konan lá á gólfinu heima hjá sér fótbrotin. Kf nágrannakonan hefði ekki veitt því eftirtekt aö sú gamla var ekki mætl á venjulegum tíma til að kaupa Kló- etta-súkkulaðið hefði hún sennilega legiö á gólfinu til eilífðarnóns. — Eigum við kannski að pína mömmu til að fara að borða súkku- laði? spurði konan og hafði misskil- ið alla söguna. — Seigar eru gam- alla manna sinar, en brotthætt bein, sagði ég spekingslega, fékk greitt fyrir vitjunina og fór heim. WVG KOTASÆLA fitulítil og freistandi Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni: Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d. kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika. KOTASÆLA - fitulítil og freistandi Um áramótin lækkaöi allt lambakjöt um 8%. I Sparaðu og kauptu lambakjöt. SAMSTARFSHOPUR U M SÖLU LAMBAKJÖTS

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.