Pressan - 15.03.1990, Page 3
Fimmtudagur 15. mars 1990
3
PRESSU
loðdýrarækt og fóðurstöðvar
voru til umræðu utandagskrár á Al-
þingi á mánudag. Margir tóku til
máls og þar kom að Skúli Alexand-
ersson Alþýðubandalagi sté í pontu
og gagnrýndi byggðastofnun fyrir
að gera ekkert í málinu. Forseti sam-
einaðs þings, Guðrún Helgadóttir,
var búinn að loka mælendaskrá,
enda nokkuð liðið á þann tíma sem
ætlaður var þingflokksfundum. En
þeir framsóknarmenn Stefán Guð-
mundsson og Guðni Ágústsson
heimtuðu og fengu með semingi að
,,bera af sér sakir" vegna um-
mæla Skúla og sagðist Guðrún um
leið vænta þess að fleiri þyrftu ekki
að bera af sér sakir. Þegar Stefán og
Guðni höfðu lokið sér af bankaði
Ólafur Þ. Þórðarson í borðið og
krafðist einmitt þess sama, en það
leyfði Guðrún ekki og sleit fundi. Er
hún gekk frá forsetastól beindi hún
orðum að Ólafi og sagði að þing-
menn mættu ekki misnota þingsköp
með þessum hætti. Ólafur mót-
mælti en Guðrún sagði: „Láttu ekki
svona, þú ætlaðir ekkert að bera af
þér neinar sakir!" Þá trylltist Ólafur
og hrópaði: „Ég tek ekki þátt í því
að kjósa fífl sem forseta aftur!" Um
leið strunsaði hann út og skellti
hurð á eftir sér svo glumdi i saln-
um . . .
c
^^veitarstjórinn á Suðureyri,
Ragnar Jörundsson, er ekki mjög
hress um þessar mundir. Ástæðan
er sú að ekki hefur verið mokað af
flugvellinum á Suðureyri í tvo
mánuði og síðasta flug þangað var
5. janúar. Sveitarstjórinn mun hafa
leitað skýringa hjá samgönguráð-
herra og flugmálastjóra en einu
svörin munu vera þau að það
strandi á fjárveitingu frá fjárveit-
ingavaldinu til að unnt sé að opna
flugvöllinn. Umdæmisstjóri flug-
málastjórnar segir hins vegar að
flugvöllurinn á Suðureyri sé svo illa
nýttur að ekki sé réttlætanlegt að
kosta hundruðum þúsunda til að
opna hann . . .
leikstarfsemi í Reykholtsdal
hefur löngum verið gróskumikil. Nú
dregur að næstu frumsýningu og
verkið í ár er ærslasöngleikurinn
Rjúkandi ráð, en höfunda þess hef-
ur hingað til aðeins verið getið und-
ir dulnefninu Pír Ó Man. Upplýsist
hér að hinir raunverulegu höfundar
eru þríeykið Stefán Jónsson rit-
höfundur, Jónas Árnason rithöf-
undur og Jón Múli Árnason, sem
er höfundur söngva og tónlistar.
Leikstjóri verksins er enginn annar
en Flosi Ólafsson, pistlahöfundur
PRESSUNNAR með meiru, sem fært
hefur verkið í nýjan hátíðarbúning í
tilefni þess að í ár eru þrjátíu ár síð-
an það var fyrst frumsýnt í Fram-
sóknarhúsinu í Reykjavík. Hefur
söngleikurinn verið færður í búning
viö hæfi og bætt í hann skírskotun-
um til dagsins í dag. Æfa Reykdæl-
ingar af kappi undir leikstjórn Flosa
þessa dagana. en frumsýnt verður
17. mars . . .
f
■ élagar í Röskvu, samtökum fe-
lagshyggjufólks í háskólanum,
hyggjast kæra fréttastofu sjón-
varps og Boga Ágústsson fyrir
hlutdrægni í fréttaflutningi
kringum kosningar í háskólanum.
Röskva ætlar að láta reyna á málið
í siðanefnd blaðamanna og í út-
varpsráði. Röskvumenn telja að
sjónvarpið hafi gleypt hráar fréttir
sem hægrisinnar réttu þeim í
áróðursskyni og að fréttaflutning-
urinn hafi engan veginn verið
hlutlaus. Málið snýst fyrst og fremst
um frétt sem ríkissjónvarpið flutti á
miðvikudagskvöldið. í fréttinni var
Páll Pétursson gagnrýndur fyrir
að hafa lánað syni sínum og kunn-
ingjum hans skrifstofu sína, en son-
ur Páls er í framboði fyrir Röskvu.
Upphafsmaður þessarar fréttar er
Sigurbjörn Magnússon, fráfar-
andi framkvæmdastjóri þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, fyrrum Vöku-
maður og fulltrúi námsmanna í
lánasjóðL Flutningsmaður fréttar-
innar, Ólafur Jóhannsson, er
einnig fyrrverandi Vökumaður og
Heimdellingur að auki. Röskvufé-
lögum finnst fréttin koma úr hörð-
ustu átt þar sem Sigurbjörn er, því
hann hafi bæði leynt og ljóst unnið
fyrir Vöku í margar vikur fyrir há-
skólakosningar þó hann eigi ekki
lengur að vera viðriðinn stúdenta-
pólitík. Stuðningsmenn Röskvu
segjast vita til þess að Sigurbjörn
hafi reynt að koma málinu um skrif-
stofu Páls Péturssonar til ónafn-
greinds dagblaðs, en ekki orðið
ágengt í fjölmiðlum fyrr en sjón-
varpið tók á málinu á kosningadag-
inn. Bogi Ágústsson lenti einnig í
ósátt við frambjóðendur Röskvu eft-
ir kynningu á frambjóðendum
beggja fylkinga fyrir kosningarnar.
Þar töldu vinstrisinnar í háskólan-
um Boga hafa brotið gróflega á sér
með þvi að klippa fréttina þannig að
það sem birtist yrði hagstæðara fyr-
ir Vöku. Einnig var sýnt frá fram-
boðsfundi þar sem lokaorð fram-
bjóðanda Vöku voru áskorun til
stúdenta um að kjósa ekki Röskvu-
menn því þeir hefðu farið með
óhróður í kosningabaráttunni. Þetta
var það eina sem sýnt var frá fund-
inum og Röskvu var ekki gefið tæki-
færi á að svara fyrir sig ...
u
^^^mferð við Snorrabraut hef-
ur minnkað til mikilla muna eftir að
áfengisverslunin var flutt úr hús-
inu númer 56. í Herraríkinu hafa
viðskiptin eitthvað róast, en þó ekki
það verulega að ástæða þyki til að
loka versluninni. Húsið á Snorra-
braut 56 er í eigu Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga, sem
hefur ekki gefið frá sér hugmynd
um að selja alla húseignina. Ef af
sölu verður er því liklegt að Herra-
ríkið verði flutt í nýtt húsnæði...
JíSSlill
og íbúðarkaup
Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Hvað eru húsbréf ?
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem
kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Hvemig faia íbúðarkaup fram?
/\^ \Greiðslumat.
Tilvonandi kaupandi verður að
sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar.
«^/Skrifleg umsögn.
Að fenginni skriflegri umsögn
ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint
hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða
sig um á fasteignamarkaðnum.
/\ *x\íbúð fundin - gert kauptilboð.
L—\ V________A Þegar seljandi hefur gengið að
tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa-
skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á
fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og
húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna-
veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði
íbúðarinnar.
\ A \ Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar.
~Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverös.
Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum
kaupanda fasteignaveöbréfið til undirritunar, útgefið
á nafni seljanda.
C. \ Kaupandinn lætur þinglýsa
. \ kaupsamningnum.
Seljandi lætur þinglýsa
fasteignaveðbréfinu.
C. \ Kaupsamningur undirritaður -
„ ’T.,\ fasteignaveðbréf afhent
seljanda.
(búðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér
kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna-
veðbréfið.
/\ cl \ Seljandi skiptir á fasteigna
L—\ u \ veðbréfi fyrir húsbréf.
AOy \Greiðslur kaupanda hefjast.
—A Húsnæðisstofnun innheimtir
afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum.
Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi
fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl.
og hafa lánsrétt.
SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI.
Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að
greiðslugeta hlutaðelgandi íbúðarkaupanda og
veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en
fbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin.
HUSNÆÐISSTOFNUN
RfKISINS
HL'SBRÉFADEILD
SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI • 696900