Pressan - 15.03.1990, Blaðsíða 29

Pressan - 15.03.1990, Blaðsíða 29
Fimmtudagur 15. mars 1990 spáin 15. — 20. mars Pú ættir að beina huganum meira að því óþekkta, og dulræna ef til vill lika. Það gæti komið sér vel fyrir þig. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að beina huganum einvörð- ungu að efnisheiminum. i vikunni er líklegt að þess verði farið á leit við þig að þu geymir verðmæti fyrir nákominn. Láttu innsæið ráða ferðinni sem frekast er kostur. (21. ufiril—20. muí) Haltu þig við þær manneskjur sem styðja þig og þínar hugmyndir. Mundu gamla mál- tækið: Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Einhverjir kunna að þykjast styðja þig en gera það ekki þegar i harðbakk- ann slær. Á sliku fólki er best að vara sig. Það er varhugavert. í þessari viku má heita réttast að taka fjár- málin í gegn og koma á þau betra skipulagi. Margt getur unnist með góðu skipulagi. I ákveðnum málum þarftu að seilast ansi langt eftir upplýsingum. í sliku tilfelli er gott að hafa fólk sem þú getur treyst og irúað — og öfugt verður það reyndar líka að vera. Annars gæti verr farið. (22. júni—22. júlij Gefðu forvitni þinni lausan taum, leiktu einkaspæjara ef þig langar til, rannsakaðu, skoðaðu og leitaöu. Liklegast er reyndar að þér liki ekki allt sem þú kemst aö i ákveönu máli sem hefur verið að angra þig. En þegar til lengri tima er litið er betra að hafa leitað og fundið en leitað ekki og ekkert fundið. (22. júli—22. úiiúsl) Eitthvað er um það að þú hafir vanrækt samband þitt við fólk, jafnvel við eldra fólk, foreldra, ömmu og afa eða skyldmenni á há- um aldri. Þessu er þér best að breyta sem fyrst þvi oft er það gott sem gamlir kveða. Þetta gæti hugsanlega orðið valdur að skemmtilegum endurfundum. (22. ájjúsl—22. sept.j Liklega þarftu að skila frá þér verkefni eða verki á ákveðnum tima og getur í engu hnik- að þeim tíma. Jafnvel þó þú sjáir sæng þína uppreidda. Það sem gildir er aö vera ákveð- inn og ganga hiklaust til verks, hálfkák mun ekki færa þér nokkurn skapaðan hlut. Skýrðu mál þitt hratt, ákveðið og skýrlega ef einhver æskir skýringa. (22. sept —24. okl.) Það sem þú hefur leitað er nærri sem stend- ur og kemur liklegast í leitirnar alveg á næst- unni. Taktu eftir þessu. Einbeittu þér að pen- ingamálum, vöxtum, ávöxtunarleiðum og þessháttar. Ef allt fer eins og liklegast er þá mun þér aukast ábyrgð á næstunni en það þýðir lika meiri vinna. Ohjákvæmilega hlýtur þetta að fara saman. (24. okt.—22. nóv.) Það eru fyrst og fremst dómgreind þin og frumkvæði sem á reynir á næstu dögum. Mikilvægt er að vikka sinn eigin sjóndeildar- hring með umræðum við aðra. Batnandi manni er best að lifa og maður manns gam- an. Einhverjar likur eru á að rómantíkin geti leikið stóra rullu í lifi þinu á næstunni, jafnvel með manneskju sem þú hefur enn ekki séð. (22. núv.—2l. des.) Það eru góðar likur á þvi að þú lendir i hring- rás sem þú ræður kannski ekki mikiö við. en gæti á hinn bóginn fært þér umtalsverðan gróða. Erfitt er þó að segja nákvæmlega á hvaða sviði það er. Margir heillast af þér þessa dagana, það finnst þér gott en gættu þess einvörðungu að láta það ekki stiga þér til höfuðs, ef til vill munu nokkur leyndarmál upplýsast í þessari vikunni. (22. des.—20. jun.) Margvislegar veislur, samkvæmi og reyndar teiti hverskonar eru nokkuð mikilvæg um þessar mundir. Að vísu getur þetta lif leitt af sér hærri reikninga að borga, en sá kostnað- ur er léttvægur fundinn miðað við þann akk sem þú getur haft af samskiptum við fólk um þessar mundir. Littu til langs tima. (21 junúur—10. íebrúur) Nú verðurðu að þrýsta á að tekin verði ákvöröun um feril þinn. Þú ættir að sækja um fund með yf irboöurum þinum og ganga hreint til verks. Láttu þá svara því hver raun- veruleg framtið þín er. Mikilvægt er einnig aö halda vel til haga öllu sem þú hefur gert og gæti nýst þér þegar til lengri tima er litið. (20. febrúur—20. mars) Sveigjanleiki gæti komið þér að góðum not- um á næstu dögum, sem og umburðarlynd- ið. Þú verður að horfa fram hjá göllum fólks og taka því eins og það er. Annaö þýöir ekki. Einhver nákominn þér mun líða nokkuð fyrirí heilsuleysi og það leggst þungt á þig. Réttu, úr bakinu engu aö siður. Það stoðar litt að bera harm heimsins á herðum sér. i 29 i frqmhjáhlqupi Sæmundur Palsson, byggingarmeistari og lögreglumaöur „Neyðarlegast þegar ég stjórnaði umferí með opna — Hvaða persóna hefur haft mest áhrif á þig? „Faðirminn, Páll Magnússon." — Án hvers gætirðu síst ver- ið? „Heilsunnar." — Hvað finnst þér leiðinleg- ast? „Að bíða á læknisstofu." — En skemmtilegast? „Dansa, ferðast, tefla og spila bridge." — Hvenær varðstu glaðast- ur? „Þegar við hjónin eignuðumst okkar fyrsta barn." — Hvað fer mest í taugarnar á þér? „Þras og ósamkomulag." — Manstu eftir ákvörðun sem breytti miklu fyrir þig? „Er ég hætti að smíða og gerð- ist lögregluþjónn." — Við hvað ertu hræddur? „Helst við að missa heilsuna." — Manstu eftir neyöarlegu buxnoklðuf atviki sem hefur hent þig? „Eitt sinn kom saumspretta á buxurnar þegar ég var að sýna dans í Þjóðleikhúskjallaranum. Annað neyðarlegt atvik var þeg- ar það myndaðist algjört um- ferðaröngþveiti þegar ég var að stjórna umferð með opna buxnaklauf og skyrtuna úti!" — Hver er eftirlætisbílteg- undin þin? „Mercedes Benz 280 SEL." — Hver er tilgangurinn með lífinu? „Að sjá börnin sín dafna og vaxa úr grasi og láta gott af sér leiða með jákvæðu hugarfari." — Ef þú þyrftir að skipta um starf, hvað vildirðu þá helst taka þér fyrir hendur? „Fara aftur til smíða eða starfa við byggingareftirlitsstörf." — Hvað er betra en kvöld- stund í góðra vina hópi? „Það er fátt, nema þá helst kvöldstund með fjölskyldunni sem orðin er nokkuð stór." lófalestu í þessari viku: Bogmadur (karl fæddur 29.11. '55) Þessi maður er undir miklu álagi og þarf að öllum líkindum að ein- beita sér mjög mikið í vinnunni. Frá 17 til 22 ára aldurs átti hann af- ar erfitt með að gera upp við sig hvaða starfi hann ætti að stefna að. Hann er ástríðufullur og hönd hans minnir á hendur franskra að- alsmanna til forna. Greindarlína hann er sérlega bein, svo hann ætti aö hafa góða rökhugsun og er því eflaust snjall í raungreinum. Þessi hæfileiki hefur vaxið stig af stigi á undanförnum árum. Bestu ár hans í starfi eru frá 45—48 ára aldri og allt fram undir sjötugt. Hann er diplómatískur og vill frekar semja en standa í átökum. En hann er viðkvæmur og líður oft ekki nógu vel á tilfinningasviðinu. VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM LÓFA? Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af hægri lófa (örvhentir Ijósriti þann vinstri) og skrifaöu eitt- hvert lykilorð aftan á blöðin, ásamt upplýsingum um kyn og fæðingardag. Utanáskrift: PRESSAN — lófalestur, Ármúla 36, 108 Reykjavík. AMY ENGILBERTS draumar íslendingar eru með eindæmum Ijóðelsk þjóð. í draumum sínum yrkja þeir og það jafnt látnir sem lif- andi. Það er jafnvel ekki trútt um að þeim látnu sé enn auðveldara að nota bundið mál. Margar sögur eru til af draumvís- um, þær eru eiginlega sérstakur kafli í hinu flókna kerfi draumanna. Oftast rættust vísnadraumarnir beint, voru bein aðvörun eða bara frásögn. Ef einhvern af lesendum dreymir vísu, hvort sem hann þykist yrkja sjálfur eða að einhver annar hafi vísuna yfir, þá vil ég biðja þann hinn sama að. snarast fram úr og skrifa vísuna.’ Draumvísur eru svo bráðskemmtilegt fyrirbæri að við höfum ekki efni á að láta þær glat- ast. Mig langar að segja ykkur örfá- ar sögur um draumvísur — og ítreka við ykkur að gæta þeirra vísna sem ykkur kann að dreyma og skrifa nið- ur ef þið þekkið gamlar frásagnir um slíkt sem ekki hafa komist á prent. Ég mundi taka fegins hendi við öllu slíku ef þið vilduð vera svo vinsamleg aö senda mér það. Amma mín sagði mér sögu um tvö systkini. Pilturinn fór til sjóróðra á veturna — eins og það hét í þá daga sem menn fóru á vertíðir á opnum árabátum. Stúlkan öfundaði bróður sinn af því að fá að fara að heiman og róa, sjálfsagt hefur hana einnig langað til að kynnast nýju fólki og stöðum. ,,Og svo hlýtur að vera gaman á sjónum," sagði hún. ,,Það er svo notalegt að láta báruna vagga sér.“ Ekki breyttist þó hlut- verkaskipting systkinanna. En eina vertíðina dreymdi stúlkuna að bróð- ir hennar kæmi til hennar og hefði yfir vísu þessa: Ég er á íloti út vtö sker öll er þrotin vörnin. Báran vota vaggar mér — þú veist hvaö notalegt þaö er. En pilturinn hafði farist um þetta leyti á vertíðinni. Flestar draumvísurnar tengjast dauðanum og sambandi ástvina eft- ir hann, svo sem vísur Skáld-Rósu sem hún kvað á glugganum hjá Rós- ant syni sínum í draumi. En hann hafði haft miklar áhyggjur af því hvort móðir hans, sem honum þótti mjög vænt um, hefði farið vel eins og það var kallað, þ.e. hlotið Guðs blessun eftir dauðann. Slíkar áhyggjur voru algengar á dögum bókstafstrúarinnar. Svo dreymdi hann að móðir hans kæmi að glugg- anum yfir rúminu hans og kvæði nokkrar vísur í glöðum rómi. Ein þeirra er svona: Á hausti fölnar rósin rauö, reifast hvítum hjúpi. Móöir þín í Drottni dauö dó á Stóra-Núpi. Þetta er þeim mun merkilegra sem Rósant vissi ekki að móðir hans hefði dáið á Stóra-Núpi en hélt að hún hefði verið stödd á öðrum bæ. En Skáld-Rósa lést á ferðalagi sem kunnugt er. Þegar svo sannar fregn- ir komu af andlátinu þóttist Rósant ekki þurfa að efast lengur og áhyggj- ur hans hurfu með öllu. Enn eru þekktar ævagamlar draumvísur svo sem þessi: Gengiö hef ég um garöinn móö, gleöistundir dvína. Hauskúpuna, heillin góö, hvergi finn ég mína. Einhver hafði farið óvarlega með bein sem komu upp úr kirkjugarði og höfuðkúpa týnst. Eigandi henn- ar, löngu látin kona, kom svo áhyggjum sínum á framfæri með þessum hætti. Kannske komast skilaboð betur milli heimanna ef máttur Ijóðstafanna bætist við hina venjulegu orku.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.