Pressan - 15.03.1990, Síða 4

Pressan - 15.03.1990, Síða 4
4 npQ.1: oií'rr: I **• !,Vf^ 1 ! + ~rr~Vr\r»r\ Fimmtudagur 15. mars 1990 Ktllræði af frjálshyggiuölæði Grímur frændi konunnar minnar er búinn aö vera erfiöur uppá síökastið, vægast sagt afar erfiöur. Sannleikurinn er sá að þaö fór heldur lítið fyrir Grími allt síðastliöiö ár, hann var megniö af árinu aö vinna í því aö hætta aö drekka brennivín, sem kvaö vera fúlltæm djobb, jafn- vel fyrir heljarmenni. Síöan um áramót hefur svo Grímur verið „á léttari nótunum", einsog hann kallar það sjálf- ur, þegar hann er fullur vikum eöa jafnvel mán- uðum saman og er í famelíunni kallaö aö hann sé „á svörtu nótunum". Stundum ræöa aöstandendur Gríms þaö af miklum alvöruþunga hversvegna í ósköpun- um maðurinn sé svona ofboðslega sólginn í brennivín og sýnist sitt hverjum í því efni. Fólkið hans er flest þeirrar meiningar aö brennivínsþorsti Gríms stafi af því aö hann var sem ungur maður leýnilega trúlofaöur innan- búöardömu í álnavöruverslun, eöa taldi sig aö minnsta kosti vera þaö og vissi ekki betur en að trúlofunin væri gagnkvæm. Reiðarslagið dundi svo yfir Grím, þegar hin heittelskaða tjáði honum aö hún væri ólétt eft- ir annan kokk á Lagganum. Þaö var ekki aö sökum aö spyrja, Grímur stórjók drykkjuna eftir þetta áfall og hafði enda ástæðu til þess að dómi sinna nánustu. Ég hef hinsvegar alltaf haldið því fram aö Grímur drekki brennivín dægrin löng af því hann er fyllibytta. Hvernig sem nú á því stendur hefur varla runniö af Grími síðan álnavörudaman stakk hann af og það undarlegasta er að aldrei minn- ist ég þess aö Grímur hafi drukkuö aö ástæöu- lausu. Stundum hefur hann verið ölóöur vikum saman útaf vinnuálagi og síðan á skallanum næsta tímabil útaf því aö hafa misst vinnuna.- Ósjaldan er hann fullur dögum eða vikum saman útaf veörinu og þá segir hann gjarnan: — Þaö er ekkert hægt aö gera annað en drekka í veöurfarinu á Islandi. Viöstöðulaust hlandveöur meö skítkasti. En þegar rofar til kveður við annan tón: — Það er blíðan. Bara sólskin dag eftir dag. Nú er sannarlega ástæöa til að taka tappa úr flösku og fá sér einn. Grímur hefur semsagt aldrei sett oní sig dropa af brennivíni nema hafa til þess ærna ástæöu. En aldrei hefur þaö flökraö aö fólkinu hans Gríms, og síst af öllu aö honum sjálfum, aö ef til vill sé ástæðan sú að hann sé vínhneigöur. Það er bara ég einn sem held þaö. Nema Grímur er semsagt búinn aö vera á herðablöðunum eöa réttara sagt á augnalok- unum — einsog krakkarnif kalla þaö — síöan um áramót. Og hann kom í kurteisisheimsókn í gær. Það vildi svo vel til aö frænka hans ein var stödd hjá okkur, semsagt ein af þeim sem vita aö Grímur drekkur ekki nema hafa til þess ástæöu. Hún tók svo til orða: — Hversvegna í ósköpunum hættiröu ekki þessu fylliríi? Að mínum dómi heföi eölilegasta svarið viö þessu verið: — Afþví ég er svo drykkfelldur. En Grímur haföi haldbærari skýringu á fyllirí- inu og viti menn. Hann er semsagt að drekka þessa dagana vegna þess að hann tekur örlög íslenska handboltans svo nærri sér. — Þar fór handboltahöllin öskraði hann í djúpa stólnum mínum fullum hálsi og meö tár- in í augunum, þaö er til lítils að byggja hand- boltahöll sem íslenska liöið fær svo aldrei aö keppa í á stórmótum. Svo bætti hann viö aö hann þyldi þetta ekki lengur, fiskaði brennivínsflösku upp úr buxna- strengnum og hellti vænum slurk útí kaffiö. Ég sá aö við þetta þykknaði talsvert í kon- unni minni, því hún hefur á síöari árum hallast að því aö þaö sé bannað aö blanda á okkar heimili nema sérstaklega standi á. Hún kallaði í mig fram í eldhús og spuröi mig hvort ég gæti ekki lempað Grím út en ég svar- aði því til aö ég bæri enga ábyrgö á hennar nánustu. I þeim töluðum orðum ruddist Grímur inní eldhúsið og öskraöi að þaö vantaði Framfara- flokk á íslandi, flokk sem stemmdi stigu við framgangi þessara andskotans sníkjudýra sem lægju uppá þjóðfélaginu og aö við ættum aö lesa í síöustu Pressu viðtalið við Carl Hagen stjórnanda þriðja stærsta þingflokksins í Nor- egi og formanns Framfaraflokksins þar. Og nú fór Grímur frændi konunnar minnar reglulega í gang og í anda Hagens hins norska: — Þaö á að hætta aö sauma púöa undir rass- gatiö á einstæöum mæörum sem liggja uppí sóffa og unga út krógum meö hinum og þess- um og láta þjóðfélagið punga út stórfé í styrki og meðlög. Þær geta bara séð fyrir sínum börnum sjálfar ef þær vilja alltaf vera að láta barna sig. Og svo bætti hann viö: — Vonandi að Jóni Magnússyni lögfræðingi takist að stofna Framfaraflokk á íslandi, flokk sem hefur þaö aö markmiöi aö gefa öllum í þjóðfélaginu sama sénsinn, einsog Framfara- flokkurinn í Noregi gerirl Og svo á aö hætta aö ausa peningum í þessa andskotans negra, hélt Grímur áfram, ef þeir eru svangir geta þeir bara étiö hver annan einsog þeir hafa alltaf gert. Þaö eiga bara allir að hafa sama sénsinn. Nú voru þær konan mín og frænka hennar — frænkur Gríms — orðnar afar þungbúnar svo ekki sé nú meira sagt og farnar að gera sig lík- legar til að leggja hendur á Grím frænda sinn. — Þaö eru sjöþúsund og fimmhundruð ein- stæðar mæöur á íslandi öskraöi Grímur, sjö- þúsund og fimmhundruð kvenmenn sem nenna ekki aö vinna nema í mesta lagi hálfan daginn og láta þjóðfélagið sjá fyrir sér. Liggja bara uppí sóffa og unga út ómegð á kostnað ríkisins. Ég hugsaði sem svo: — Það er greinilegt aö Grímur frændi kon- unnar minnar hefur innbyrt fleira en brennivín síöustu daga. Hann hefur líka drukkiö í sig frjálshyggju Carls Hagen formanns Framfaraflokksins í Noregi. Guö láti gott á vita. Svo yfirgaf ég eldhúsið og hugsaði sem svo: — Þaö er Ijóst að Grímur hefur ærna ástæðu til að drekka, en líklegast er þó að Grímur sé svona sólginn í brennivín vegna þess hvaö hann er vínhneigður. NÝIR BÍLAR Á HAGSTÆÐU VERÐI HRINGDU OG VIÐ KOMUM MEÐ 6ÍLINN TIL ÞIN BÍLALEIGAN í GEYSIR sími: 688888 Suðurlandsbraut 16, Reykjavík, gengið inn frá Vegmúla. • Nissan Micra, Mazda 323, Toyota Cor- olla, Nissan Sunny, Lada 1500 Station • FJÓRHJÓLADRIFSBÍLAR: Subaru Sta- tion, Toyota Tercel, Lada Niva, Range Rover, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol, Toyota Landcruiser, Ford Econoline • 5-12 SÆTA: Mitsubishi Pajero (5-7), Nissan Patrol (7), Toyota Hiace (11), Toyota Litace (8), Ford Econoline (12)

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.