Pressan - 15.03.1990, Síða 22

Pressan - 15.03.1990, Síða 22
22 Fimmtudagur 15. mars 1990 FARANDI Ahersla á þjónustu Ferðaskrifstofan Farandi mun eins og hingað til leggja áherslu á að sinna einstaklingum, sem sækjast eftir hug- myndum um áhugaverðar ferðir, svo og þeim sem hafa ákveðnar hugmyndir um dvalarstaði og ferðatilhögun. Þeim viðskiptavinum fer mjög fjölgandi ár frá ári, sem vilja breyta til frá hefðbundnum sólarlandaferðum og líta á fleiri fleti veraldar. í sumar er fyrirhuguð hópferð til Tékkóslóvakíu, önnur ferð til Vínar og Prag, en þessi ferð er sett upp með tilliti til listahátíðanna í báðum borgunum. A dagskrá er vikuferð til Parísar í apríllok. Farandi skipuleggur Túnisferðir fyrir einstaklinga hvenær sem er en þangað hefur fólk sótt í vaxandi mæli á undan- förnum árum, bæði til að baða sig í sólinni og svala fróðleiks- þorsta, en þetta er verulega áhugavert land. Albaníu-félagið efnir til ferðar til Ungverjalands og Albaníu á vegum Faranda. Öllum er heimil þátttaka en félag- ið sér um skráningu í ferðina. Farandi vill minna á íbúðir í miðborg Vínar, en þær eru til- tölulega ódýrari en hótel og bjóða upp á öll þægindi sem nú- tíminn krefst. Sitthvað fleira er í deiglunni sem of snemmf er að (jölyrða um. í byrjun júní á hverju ári er efnt til öja vikna Grikklands- ferðar. AL|S Ferðir á sérkjörum Ferðaskrifstofan Alís vill vekja sérstaka athygli á ferðunií til Danmerkur á sérkjörum; ferðum beint til Vínar og Salz-1 borgar í Austurríki; frábærum feröamöguleikum í Ungverja-| landi; ferðafyrirgreiðslu í Tékkóslóvakíu. Sumarhús, íbúöir, j hótelgisting á óöalssetrum. Óteljandi möguleikar. Sólarlandaferöir eru einnig í bóð hjá Alís í beinu leiguflugi \ eöa um einhverja heimsborgina, London, Kaupmannahöfn j eða Amsterdam. Kgyptaland er nú viö þröskuldinn. Kinstaklega hagkvæm-jj ar ferðir til Kairó eru í boði með skoðunarferðum til Aswan og Luxor. Sigling á Níl — ævintýraferðir. Kynnið ykkur möguleikana — komið með ykkar hug- myndir og sameiginlega sköpum við skemmtilegt og spenn- andi sumarfrí. Danmörk Sumarflug ferðaskrifstofunnar Alís til Jótlands hefst 19. júní. Billund verður áfangastaðurinn í þessu flugi, en frá Bil- lund er létt leið um alla Skandinavíu, hvað þá til Þýskalands og Mið-Kvrópu. Dvöl í sumarhúsaborgum er mjög vinsæl á meðal Danmerkurunnenda. Kæmi kastalasigling til greina, þá er hún líka í boði. Austurríki Land Mozarts, alpanna, fallegra halla og litríkra bæja. Fjöldi sumardvalarstaða upp til fjalla eða niður við friðsæl vötn um allt Austurríki eru í boði hjá Alís. Beint flug til Salz- borgar og Vínar með Flugleiðum og Alís-bílaleigusamning- ar á báðum stöðum létta leiðina í ánægjulegt sumarfrí. Því ekki að veita Austurríki möguleika á að hýsa þig í sum- arfríinu? Hótel, sumargistihús, fjölskyldugisting og bílaleigubílar. Skemmtilegar skoðunarferðir og vinsæl sigling á hinni fögru Dóná frá Vín til Búdapest eða bregða sér á bílnum til Ung- verjalands í nokkra daga. Talaðu við okkur hjá Alís. Ungverjaland Nú er opin leið fyrir þig og þína til Austur-Kvrópu með flugi til Búdapest eða á eigin bíl frá Austurríki. Það gefst sennilega ekki langur tími til að upplifa austur-evrópska siði og venjur áður en vestrænir siöir, venjur og verö taka völdin. Feröaskrifstofan Alís skipuleggur skoðunarferðir fyrir hópa um Ungverjaland. Heimsókn til Búdapest er upplifun á heimsmælikvarða. Hallir, kirkjur og bara venjuleg hús. Söfn, baöhús, merki og minnisvarðar um merkilega sögu lands- ins. Kftirminnileg heimsókn sem stendur fyrir sínu. Skotland og England Ferðin hefst með þægilegri og ódýrri flugferð til Glasgow, menningarborgar Kvrópu 1990. Skemmtiferð á þínum eigin hraða um forkunnarfagurt hálendi Skotlands og auðvitað í góðum breskum bílaleigubíl. Gisting í vinalegum sveita- þorpum, á sveitabæjum eða í fornum sögufrægum skoskum köstulum. Kdinborg, höfuðborg Skotlands, er góð heirr. aö sækja. Fal- leg borg í fögru umhverfi þar sem Kdinborgarkastali gnæfir yfir höfuðstaðinn. Glasgow skartar sínu fegursta í sumar með margháttuðum listviðburðum. Óperur, leikrit, tónleikar og listsýningar við allra hæfi. | Kn Skotland getur líka verið fyrsti áfanginn á stórskemmti- j| legu ferðalagi um Bretaveldi sem Ijúka má í London. Akstur suður Bretland er ógleymanleg ferð. Gisting í boði i á smáhótelum, stórum hótelum eða þá aö hafa tjaldið með. Fornar minjar eins og þær sem varðveittar eru í Víkinga- i safninu í Vork laða óneitanlega til sín forvitna ferðamenn í sem vilja kynnast sögu þjóðarinnar Önnur tækifæri gefast til að skoða söguna í hinum fjölmörgu tignarlegu höllum j víðsvegar á leiðinni. Sérkennileg þorp, glæsilegir kastalar og frábær náttúru- j fegurð gefa þessari ferð sérstakt gildi. Hvers vegna e'kki að idvelja nokkra daga í góðu yfirlæti hjá Magnúsi húshaldara |í Manor House-hótelinu í Tarquay og slappa vel af í nokkra f daga í stórhuggulegu umhverfi áður en haldið er heim? . Frakkland Frakkland veröur vinsælla með hverju árinu sem líður. | í Ferðaskrifstofan Alís sér um lengri og skemmri ferðir til Par-1 ísar. Hótel í öllum verðflokkum á boðstólum — bílaleiga. Tyrkland Ferðaskrifstofan Alís hóf almennar ferðir til Istanbúl sl.i vetur með góðum árangri. Nú er boöiö upp á baöstrendur viö borgina Antalya og skoðunarferðir víðsvegar um Tyrk- land. Allir dvelja í nokkra daga í Istanbúl, borg tveggja heima, Kvrópu og Asíu. Sigling um Bosporus-sund, Bláa i moskan og Bazarinn eru efst á skoðunarlista ferðamannsins. I Egyptaland Nú ferðast vanir menn til Kgyptalands. Hvort sem er í af- |slöppunarferð eða til að lifa meö ævafornum munum ogj minjum. Nokkurra daga dvöl í Kairó eða á ströndinni. Síöan Ifarið til Aswan og l.uxor og augum smellt á frægustu forn- jminjar heimsins. Nokkurra daga sigling á Níl í góðu yfirlæti jgetur góðan tíma til að meðtaka áhrif hinnar fornu menn-§ fingar. Ferðir til Kairó gefast á góðu verði hjá Alís. : ■ m 11 Éfii FERÐASKRIFSTOFA HARÐAR ERLINGSSONAR Skipulagning hópferða fyrir útlendinga MB :§§:§ Ferðaskrifstofa Harðar Krlingssonar hefur starfaö frá ár-j linu 1980 en eigandi hennar hóf skipulagningu gönguferðal I fyrir þýska ferðamenn árið 1974. Skrifstofan starfar einungisl að skipulagningu hópferða fyrir útlendinga, einkum þýska og ítalska. Ferðirnar eru fyrst og fremst ætlaðar fólki, sem I vil! njóta sem mestrar útiveru en jafnframt kaupa það bestaI § sem völ er á á hverjum stað hvað snertir gistingu og veiting- I ar. Gist er á hótelum og boöið upp á fullt fæði — alíslenskt.l IÁ ferðunum eru flutt erindi um sögu og þjóðhætti fyrr og nú. I um jarðfræði, dýralíf og gróður o.fl. Flestar ferðirnar eru 14; I daga langar. FERDASKRIFSTOFAN ALÍS h'rumh. uf fyrri síðu verður ekki það sama sagt um verð- lag á öðrum hlutum t.d. matvörum. Maturinn í þessum löndum er víða mjög góður og sums staðar kostar hann um 20% af því sem við eigum að venjast hér heima! Matargerð þessara þjóða á sér víða mjög gamla hefð og til dæmis ættu þeir sem leið eiga um Ung- verjaland alls ekki að láta ung- versku gúllassúpuna framhjá sér fara. Þetta þýðir hins vegar ekki það að hvergi megi finna vestræna veit- ingastaði því þeir eru einnig víða og það bara nokkuð góðir, margir hverjir. Þeir sem leggja leið sína til Austur-Kvrópu geta líka drýgt ferða- gjaldeyrinn með því að skipta hon- um á svarta-markaðnum og þá ekki síst hjá leigubílstjórum. Þeim má í langflestum tilfellum treysta og þeir eru til í að borga vel fyrir erlendan gjaldeyri! Tilvalinn rúntur fyrir þá sem vilja ferðast á eigin vegum í Austur-Kvr- ópu í sumar gæti t.d. verið frá Vín til Búdapest, Prag, um Austur-Þýska- land og fleiri staði í Austur- og Vest- ur-Kvrópu sem eru vel þess virði að skoða. Fyrir þá sem hafa hug á að koma til þessara landa en treysta sér ein- hverra hluta vegna ekki til að aka sjálfir um þau munum við sennilega bjóða upp á rútuferðir í sumar. Þar sem breytingar eiga sér stað allt að því daglega á þessum vettvangi er hins vegar erfitt að segja til um hvernig ferðatilhögun verður, að svo stöddu." íslendingum vex sífellt þor Þið taliö um vaxandi áhuga ls- lendinga á ferðalögum til Aust- ur-Kvrópu. Krum viö að verða áræðnari hvað ferðir til annarra landa varðar? ,,Já, það er ekki nokkur vafi á því. Austur-Kvrópa er dæmi um það og svo einnig ferðalög fólks til Tyrk- lands, Kgyptalands og landa eins og Thailands og fleiri Asíulanda. Kgyptaland og Tyrkland eru sér- lega freistandi fyrir þá sem vilja reyna eitthvað nýtt. Fargjöld til Ist- anbul og Kaíró eru hlutfallslega hag- stæð og þessi lönd njóta vaxandi vinsælda sem ferðamannalönd. Þarna býðst tveggja heima sýn, meðal annars með siglingu um Bos- porussund og þeir sem fara til Kg- yptalands fara og sjá pýramídana og Sfinxinn, fara til Luxor og Aswan og er þá fátt eitt nefnt. Tyrkland er mjög hagstætt fyrir ferðamenn og það má geta þess að verðlag þar er miklu hagstæðara en t.d. á Spáni. Þar koma tilboð amerískra flugfé- laga til góða, t.d. Delta-passinn, sem kenndur er við samnefnt flugfélag. Þessir passar virka þannig að fyrir u.þ.b. 15.000 íslenskar krónur get- urðu fengið passa sem gildir milli fjögurra borga í Bandaríkjunum og fyrir 50$ eða nálægt 3.000 krónum geturðu bætt hverri einni borg við, rétt eins og vilji er til. Þannig væri t.d. hægt að fara fyrir 15.000 kr. frá New York til Texas, frá Texas til San Francisco og frá San Francisco til New York á ný. Fyrir 50$ í viðbót kemstu svo t.d. til Chicago og fyrir enn eina 50$ til Las Vegas! Þessi ferðamáti hefur verið nefndur því ágæta íslenska nafni „Raðmiða- flug". Tökum að okkur saumaklúbba! Alís hefur að undanförnu skipu- lagt æ fleiri hópferðir þar sem saumaklúbbar, spilaklúbbar, vinnu- félagar eða aðrir hópar fólks taka sig saman og fara í helgarferðir til útlanda. Fyrir stuttu var t.d. 150 manna hópur frá Nóa-Síríus á okkar vegum í helgarferð í Trier í Þýskalandi. Þau fengu besta veður sem komið hefur á þessum slóðum það sem af er ár- inu, 22 stiga hita og blíðu! Annar álíka hópur var frá okkur í Amster- dam á sama tíma þannig að alls voru hátt í 300 manns á okkar veg- um í Evrópu þessa helgi. Þessar ferðir verða æ vinsælli og þegar við tökum að okkur slíka hópa sendum við fararstjóra með hópnum sem sér um að ferðin verði hverjum og einum ógleymanleg." SAMVINNUFERDIR/ LANDSÝN Frumh. uf fyrri síðu Þú talar um að náðst hafi sérlega hagstæðir samningar í ár. Skilar sá árangur sér ! auknum fjölda við- skiptavina? ,,Það er alveg Ijóst að sumarið 1990 ætla íslendingar í frí! Til margra af áætlunarstöðum okkar hefur verið meira bókað nú en oft áður. Við höfum aldrei fengið önnur eins viðbrögð við Mallorka-ferðun- um og nú og það er fyrst og fremst verðiö á þeim sem heillar. Það er nefnilega ekki nóg með að við bjóð- um hagstæðasta verðið, heldur bjóðum við viðskiptavinum okkar að dvelja þarna suðurfrá í 3 vikur fyrir verð tveggja ef þeir ganga frá ferðum sínum í síðasta lagi í dag, 15. mars! Ég vil þó taka fram að það dæmi er algjörlega fyrir utan þann verðsamanburð sem ég nefndi að Stöð 2 hefði gert, þetta er hreinn bónus! Annars hafa aðrir staðir einnig gengið mjög vel og sem dæmi um það sem við bjóðum viðskiptavin- um okkar nú upp á og mætum þannig aukinni eftirspurn eru ódýr- ar ferðir til Ítalíu. Við köllum þessar ferðir „Flug og pasta", seljum þær á tæplega 27.000 krónur og innifalið er flug til og frá landinu, fyrsta nótt- in á hóteli á Ítalíu og ein máltíð. Síð- an getur hver og einn hagað ferðum sínum að vild, það eina sem hann er bundinn af er að mæta á réttum tíma í flugið heim. Ítalía hefur reyndar enn aukið að- dráttarafl sitt í ár vegna heimsmeist- arakeppninnar í knattspyrnu sem fram fer þar í júní og júlí. Ég veit um fjölmargar fjölskyIdur sem ætla að dveljast þar á þeim tíma og sjá nokkra ógleymanlega leiki. Þetta eru í mörgum tilfellum fjölskyldur sem voru á Ítalíu þegar þeir hrepptu heimsmeistaratignina á sínum tíma og gleyma aldrei þeirri gleði sem sigrinum fylgdi. Þá fékk margur Is- lendingurinn frían mat og drykk í heila viku, svo kátir voru ltalirnir." Walt Disney verður í næsta nágrenni Samvinnuferðir-Landsýn hafa löngum flutt farþega sína í sumar- hús í Hollandi og víðar. Er sá feröa- máti enn vinsæll? ,,Já, svo sannarlega. Við flytjum þangað fleiri farþega en margir keppinautar okkar flytja til sólar- landa og það segir sína sögu. Við köllum þetta Sæluhús og þau eru það svo sannarlega. Þetta eru fjöl- skyldustaðir eins og þeir gerast bestir því þarna er allt miðað við að öll fjölskyldan geti tekið þátt í fjör- inu. Það eru líka margir sem nota hús- in sem einskonar miðstöð og ferðast út frá henni til allra átta, t.d. í nokkra daga til Sviss, nokkra til Ítalíu eða Þýskalands og þannig mætti áfram telja. Húsin í Frakklandi eru líka kjörin fyrir þá sem hafa heillast af landi og þjóð en veigrað sér við að ráðast til atlögu við Fransmanninn. Þarna gefst fólki kostur á að vera út af fyrir sig á sínu „heimili", en það getur jafnframt gægst inn í franska menningu í þeim mæli sem það sjálft kýs. Þau hús verða sífellt vin- sælli og eiga eftir að verða enn vin- sælli því í náinni framtíð mun rísa í nágrenni þeirra fyrsti og eini Walt Disney-skemmtigarðurinn í Evrópu og þá fyrst verður gaman að lifa. Besta gistingin á Benidorm Einn stað vildi ég nefna enn þar sem við höfum náð sérlega hag- stæðum samningum í ár og það er Benidorm. Við getum nú boðið upp á bestu mögulegu gistinguna þar, í orðsins fyllstu merkingu, og það á sama verði og aðrir bjóða sína ódýr- ustu! Álíka gististaðir hjá keppinaut- um okkar kosta hins vegar 76.000 krónum meira sé miðað við 4 manna fjölskyldu. Slíkar upphæðir hljóta að skipta máli og það að við skulum í ár hafa náð sama verði og í sumum tilfellum lægra verði en í fyrra sýnir þó a.m.k. að við erum að reyna!"

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.