Pressan - 15.03.1990, Blaðsíða 26
26
Fimmtudagur 15. mars 1990
Jóhanna Harðardóttir útvarpskona
OG ÞAÐ
KLIKKAÐ
ÍIIIVllli
HEFUR EKKI
HINGAÐTIL!
Þegar hún var tiu ára ffann hún leið til
að komast i útvarpið. Þær bjuggu neffni-
lega i sömu götu, Jóhanna Harðardóttir,
sem nú er dagskrárgerðarmaður á rás 2,
og Valborg Böðvarsdóttir ffóstra, sem sá
um barnatimann hjá rikisútvarpinu. Jó-
hanna bankaði upp á hjá Valborgu og
spurði hvort hún mætti ekki lesa bókina
„Þrir kátir kettlingar" i útvarpið.
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYND EINAR ÓLASON
Þegar þetta átti sér stað var Jó-
hanna löngu búin að ímynda sér
hvernig útvarpsmenn litu út. Hún
sat við útvarpið öllum stundum,
hlustaði með andakt á hvert orð og
í hennar huga voru menn eins og
Pétur Pétursson, Jón Múli Árnason
og Jóhannes Arason í útliti eins og
Cary Grant og aðrar stórstjörnur.
Tók tvær vikur i að
vakta nemendurna
Á þessum tíma sá hún þó ekki fyr-
ir sér að hún ætti eftir að starfa við
útvarp. Hún fór í Kennaraskólann
og lauk þaðan kennaraprófi árið
1972. Flutti sig þá úr Kópavoginum,
hvar hún er fædd og uppalin og býr
reýndar nú, yfir til Hafnarfjarðar og
kenndi við Víðistaðaskólann. Þar
kenndi hún unglingum næstu sjö ár-
in og náði svo góðum tengslum við
þá að hún hefur enn samband við
marga þeirra: „Núna er þetta orðið
fullorðið fólk, komið með heimili og
börn," segir Jóhanna brosandi.
„Mér fannst mjög skemmtilegt að
kenna unglingum. Ég kenndi ensku,
dönsku og íslensku og jú, ég viður-
kenni það að fyrstu tvær, þrjár vik-
urnar fóru i að vakta nánast hvern
einasta mann í bekknum til að ná
aga. En um leið og aganum var náð
var líka allt í lagi og ég varð nokkuð
góð vinkona þeirra."
Aðdóandi
útvarpsleikrita frá
fimm ára — þar til
ég komst á karlafar
Eftir sjö ár við kennslu ákvað Jó-
hanna að taka sér hvíld frá því starfi,
enda þá komin með synina þrjá,
sem nú eru 19, 17 og 10 ára. Hún
sótti um starf hjá ríkisútvarpinu við
að sjá um barnatímann: „einkum
vegna þess að þá var yngsti strákur-
inn nýfæddur og það hentaði mér
vel að taka að mér hlutastarf". Hún
rifjar upp þann mikla áhuga sem
hún hafði alltaf á útvarpi: „Ég hugsa
að það hafi ekki verið flutt eitt ein-'
asta útvarpsleikrit frá því ég var
fimm ára og þangað til ég komst á
karlafar sem ég missti af! Og þá
missti ég bara af einu og einu, hin
hlustaði ég á...“ segir hún skelli-
hlæjandi. „Ég bjó til myndir af öll-
um þessum útvarpsmönnum og
varð mjög hissa þegar ég sá þessa
menn í fyrsta skipti. í mínum huga
voru þetta filmstjörnur og það lá við
að maður yrði fyrir vonbrigðum að
þeir skyldu svo bara vera venjulegir
menn. . .!“
Hún starfaði hjá ríkisútvarpinu á
árunum frá 1980—1983 og' færði sig
yfir á rás 2 þegar hún byrjaði ’83:
„Langur líftími hjá útvarpinu?" spyr
hún. „Maður er að minnsta kosti
ekki þarna fyrir launin, það er alveg
Ijóst. Jú, það er rétt að við erum ekki
mörg eftir á rás 2 sem byrjuðum þar
í upphafi. Mér finnst þetta ennþá
óskaplega skemmtilegt, annars
væri ég ekki í þessu. Ég neita því þó
ekkert að ég verð stundum alveg
ofsalega þreytt og á slíkum stundum
get ég ekki hugsað mér einn dag
enn í þessu starfi. Slíkur leiði hverf-
ur þó oftast um leið og ég heyri i ein-
hverjum hlustanda. Ég passa mig
líka á að skipta nokkuð oft um verk-
efni og er aldrei mjög lengi í hverju.
Ekki aðeins verð ég sjálf leið, heldur
verða hlustendur líka leiðir á mér.“
Svolítið fiktað í
tökkum útvarps-
tækisins. . .
Það var meðal annars þess vegna
sem hún færði sig yfir á Bylgjuna í
eitt ár. Þar stýrði hún „Flóamark-
aðnum", þætti sem var mjög vin-
sæll. Hún samþykkir ekki að eigin-
maðurinn hafi átt nokkurn hlut að
máli í því efni að hún skyldi fara yfir
á Bylgjuna. Jóhanna er nefnilega
gift tæknistjóra Bylgjunnar/Stjörn-
unnar, Sigurði Ingólfssyni: „Við eig-
um að minnsta kosti sömu áhuga-
málin: útvarp og útvarpsrekstur!”
segir hún og hlær en neitar staðfast-
lega að nokkur rígur sé á milli þeirra
hvað starfinu viðkemur: „Það
versta sem gerist er að við skipt-
umst á að fikta í tökkunum á út-
varpstækinu heima...!“
Áhugi þeirra hjónanna virðist
hafa smitað elsta strákinn en Jó-
hanna segist ítrekað reyna að draga
úr honum að fara strax til starfa á út-
varpsstöð: „Ég vil nefnilega að
hann verði dagskrárgerðarmað-
ur, ekki plötusnúður,” segir hún.
„Því miður hafa þessir ungu krakk-
ar sem núna eru að byrja á frjálsu
stöðvunum lítinn möguieika á að
læra dagskrárgerð. í mörgum þeirra
er góður efniviður, en það er hvorki *
tími né peningar til að framleiða
nokkuð á þessum stöðvum.”
Þegar Jóhanna hafði starfað í eitt
ár á Bylgjunni keypti hún ásamt vin-
konu sinni, Grétu Pálsdóttur, at-
vinnumiðlunarfyrirtækið „Vett-
vang“: „Það fyrirtæki keyptum við í
ársbyrjun 1988 og rákum það í eitt
ár. Það var skemmtilegur tími en til-
fellið var bara að við vorum alltof
bundnar yfir þessu. Það hefur auð-
vitað sína kosti að vera eigin herra,
en það hefur líka þann galla að mað-
ur stendur alltaf einn.” Vettvangur
sér meðal annars um að útvega
heimilishjálp og Jóhanna segir að
einna mest hafi verið að gera í þeim
ráðningum: „Hér er gífurlega mikill
markaður fyrir heimilishjálp,” segir
hún.
Draumastarfið var
á ferðaskrifstofu
Kaupin á Vettvangi höfðu þó ekk-
ert með það að gera að Jóhanna
teldi það draumastarf að vera eigin
herra. Hún hafði nefnilega nokkru
áður prófað draumastarfið:
„Þá hætti ég á rás 2 til að fara í
draumastarfið, á ferðaskrifstofu.
Það er skemmst frá því að segja að
þar entist ég í eitt ár og sneri þá aft-
ur í fjölmiðlaheiminn. Sumarið sem
ég vann á ferðaskrifstofunni Atl-
antik var að sjálfsögðu rigningar-
sumarið mikla og ég sat inni á skrif-
stofunni og sendi fólk í sólina. Þetta
ár fór ég í eina utanlandsferð og
held ég hafi aldrei komist eins sjald-
an út fyrir landsteinana!” Hún segist
þó síður en svo sjá eftir þessu ári:
„Það hafa allir gott af að prófa
draumastarfjð,” segir hún af sann-
færingu. „Öðruvísi getur maður
ekki vitað hver rétta hillan er.“
í sama sæti
og Bjarni Dagur
Á gamlársdag hlotnaðist Jóhönnu
sá heiður að lenda í fjórða sæti sem
„maður ársins” í vaii hlustenda rás-
ar 2: „Mér fannst þetta ofsalega
fyndið!” segir hún og skellihlær.
„Enda gerðu vinnufélagar mínir
óspart grín að mér og spurðu hvort
ég hefði sett ættina í að hringja
inn.. .!“Húnvarðeinnigmjögfram-
arlega í skoðanakönnun sem meðal
annars laut að því hverjir væru vin-
sælustu útvarpsmenn þjóðarinnar:
„Þar lenti ég í sæti með Bjarna
Degi...“
Veit að það er
alltaf einhver
að hlusta
Jóhanna Harðardóttir er óskap-
lega kát þennan dag þrátt fyrir að
hún sé fárveik og hafi meira að áegja
gert tilraun til að fresta fundi okkar.
Hún játar umsvifalaust þegar ég
spyr hvort hún sé alltaf svona létt:
„Já, það held ég. Yfirleitt er ég mjög
glaðlynd. Þeir eru ekki mjög margir
sem mér semur ekki við og mér er
óhætt að segja að þeir séu afar fáir
sem ég hef lent í útistöðum við um
ævina.” Þetta létta skap gerir henni
kleift að sitja alein í útsendingar-
klefanum í einn og hálfan tíma á dag
og tala út í loftið: „Ég upplifi hlust-
andann alltaf sem einstakling.
Hvort sem ég hef hlustandann á lín-
unni eða ekki, þá finnst mér alltaf
að ég hafi einhvern fyrir framan
mig. Ég veit alltaf af því að það er
einhver þarna úti að hlusta á mig og
við þann einstakling er ég að tala.”
Frá því Jóhanna byrjaði á útvarp-
inu fyrir tíu árum hefur hún alltaf
jafnframt skrifað í blöð og tímarit og
ritstýrði reyndar einnig tímaritinu
„Gróandanum" fyrir nokkrum ár-
um: „Ég byrjaði reyndar að skrifa
strax í barnaskóla og ég held ég geti
aldrei hætt alveg að skrifa,” segir
hún. „Fyrir utan blaðagreinar og
annað efni sem hefur birst á prenti
hef ég skrifað ljóð sem eru eingöngu
ætluð mér einni. Svo hef ég skrifað
barnabækur sem ég ætla mér ein-
hvern tíma að gefa út. Tvær barna-
bókanna eru vélritaðar en sú þriðja
er í kollinum. Þær koma sjálfsagt
aldrei út...!“
Vatnsdreki
Þegar ég spyr Jóhönnu hvort hún
ætli að starfa áfram hjá útvarpinu
hlær hún og svarar að bragði: „Ég
gef aldrei út neinar yfirlýsingar um
neitt slíkt. Ég er nefnilega þannig
gerð að ef mér dettur eitthvað í hug,
þá framkvæmi ég það strax. Ég tek
alltaf skyndiákvarðanir...“ Það
þýðir ekkert að fara út í stjörnu-
merkjaumræður við Jóhönnu því
þótt hún segist vera fædd í fiska-
merkinu bætir hún strax við: „En ég
hallast ekki að þeirri stjörnuspá,
heldur kínverskri. Samkvæmt þeirri
kínversku þá er ég dreki og það er
ekta lýsing á mér. Ég er vatnsdreki
og hann gerir það sem honum dett-
ur í hug. Ef hann heldur sjálfur að
honum takist eitthvað, þá tekst hon-
um það. Þannig er ég líka. Ég held
alltaf að ég geti allt og hingað til hef-
ur það ekki klikkað!” Hún þagnar
örlitla stund og segir svo: „Samt er
ég róleg og hugsa. . . Fyrir tíu dög-
um keyptum við hjónin hús, en fyrir
þremur vikum stóð ekki til að setja
íbúðina í sölu. Ég sá bara allt í einu
auglýsingu um hús fyrir utan bæinn
og hugsaði með mér: „ÉG ÞANG-
AÐ!“ Hringdi í fasteignasala og setti
íbúðina í sölu, hringdi svo í Sigga og
sagðist vera búin að ráðstafa aleig-
unni hans. — Svo keyptum við auð-
vitað ekki húsið sem til stóð að
kaupa heldur allt annað hús! Og við
eigum að vera flutt fyrir 10. apríl."
Sætustu rsemendur
sem ég hef haft
Ein aðalástæða þess að hana lang-
ar að búa fyrir utan borgina eru
hundarnir hennar tveir: „Þeir eru
alíslenskir, alveg yndislegir og heita
Lagsi og Sammi. Það eru ekki nema
120 ættbókarfærðir fjárhundar til á
íslandi og því gaman að eiga tvo
þeirra sem eru sýnishorn af báðum
gerðum íslenska hundsins. Það er
eiginlega ekkert sem á eins vel við
okkur í fjölskyidunni og að vera úti
að ganga, einhvers staðar uppi í
fjöllum með hundana." Áhugi henn-
ar á hundum nær út fyrir heimilið
því vikulega mætir Jóhanna í
„hvolpaskólann" hjá Hundaræktar-
félagi íslands og kennir með Helgu
Finnsdóttur dýralækni: „Mér finnst
það eigi að skylda alla sem eignast
hvolp til að sækja svona námskeið.
Fólk hugsar nefnilega ekkert út í að
hvolpar eru lifandi verur og það
fylgja þeim alls konar vandamál.
Þeir naga og pissa á gólfið, hlaupa á
undan manni og þar fram eftir göt-
unum. í nvolpaskólunum kennum
við eigendunum að kenna hvolpun-
um þannig að þeir séu sjálfum sér
og eigendunum til sóma. Hvolparn-
ir mæta auðvitað með eigendunum
og það segi ég satt að þeir eru sæt-
ustu nemendur sem ég hef nokkurn
tíma haft...“
Dagskrárgerdarkonan
vinsœla í PRESSUspjalli um
kennarastarfid, hvolpa-
kennslu og kinverska
stjörnuspá.