Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 10
10
GEÐDEILDIR, frh.
endanum beri þeir ábyrgð-
ina á meðferð sjúklings.
Togstreita milli þessara
tveggja stétta er því ekki ný
af nálinni og að öllum líkind-
um á hún óvíða jafn auðvelt
uppdráttar og á geðdeildum.
A endanum hlýtur hún að
bitna á þeirri þjónustu sem
þar er veitt og þar með þeim
sem síst skyldi - sjúklingun-
um. Hin eiginlega meðferð
þeirra fer að miklum hluta til
fram inni á deildum sem ger-
ir miklar kröfur til allra sem
þar starfa dags daglega
Helgason ræður öllu og þeg-
ar því sleppir þá tekur Þór-
unn Pálsdóttir við í hans um-
boði. Það sem stendur
barna- og unglingageð-
deildinni fyrir þrifum er að
hún skuli vera viðhengi við
aðrar geðdeildir Landspíta-
lans. Hún ætti að vera sjálfs-
tæð eining, bæði fjárhags-
lega og stjórnunarlega. Eins
og málum er háttað í dag eru
hjúkrunarframkvæmda-
stjórar geðdeildanna ófjárr-
áða og geta varla keypt svo
mikið sem penna nema með
hæfan hjúkrunarfræðing
sem hrakist hafði áður úr
starfi vegna gagnrýni á vinn-
ubrögð hjúkrunarstjórnar
geðdeilda. Tel ég það hæpna
röksemd fyrir því að útiloka
vel menntaða og hæfa hjúkr-
unarfræðinga frá störfum við
geðdeildir Landspítalans að
hjúkrunarforstjóri sé í per-
sónulegri andstöðu við þá
einstaklinga og misnoti þar
með vald sitt gegn þeim“.
Sá hjúkrunarfræðingur
sem hér um ræðir er
menntaður geðhjúkrunar-
Starf á barna- og unglingageðdelldum er mjög erfltt og gerlr mlklar kröfur tll starfs-
fólks.
þ.á m. hjúkrunarfræðinga.
Mörk milli ábyrgðar og
stjórnunar lækna og annarra
sérfræðinga annars vegar og
hjúkrunarfræðinga hins veg-
ar hljóta við slíkar aðstæður
að verða nokkuð óljós en
það kallar óumflýjanlega á
gott samstarf allra sem hlut
eiga að máli.
En þar virðist hnífurinn
einmitt standa í kúnni
a.m.k. hvað einstakar
deildir varðar. Hjúkrunar-
fræðingar sem PRESSAN
ræddi við kvarta undan því
að í stað góðrar samstjómar
ríki stjórnleysi á bama- og
unglingageðdeildinni. Þær
eigi erfitt uppdráttar eða
eins og fyrrverandi deildar-
stjóri legudeildar barna, Sig-
ríður H. Bjarnadóttir, segir í
bréfi til Hjúkrunarfélags ís-
iands: „...þaðerviðurkennd
staðreynd að hjúkrunar-
fræðingar eru ekki vinsælir á
deildinni...". Segir hún að
sérfræðingar deildarinnar
hafi leitað „...með einstaka
meðferðarþætti beint til
starfsfólksins án samráðs við
hjúkrunarfræðing og var því
ekki nokkur leið að fylgjast
með því sem fram fór á
deildinni“.
PRESSAN hafði sam-
bandi við Pál Ásgeirsson, yf-
irlækni á barna- og ungling-
ageðdeildunum, vegna
þeirra uppsagna sem sett
hafa svip sinn á deildina, en
hann vildi ekki tjá sig um
málið og vísaði því alfarið til
hjúkrunarstjórnar og hjúkr-
unarfræðinga deildanna.
Úttekt á stöðu
barna- og unglinga-
geðdeildanna
Hugtök eins og „stjórn-
leysi“ og „miðstýring" ganga
eins og rauður þráður í gegn-
um samtöl sem PRESSAN
hefur átt við hjúkrunarfræð-
inga sem sagt hafa upp störf-
um á geðdeildunum, sem og
uppsagnarbréf þeirra. I
fljótu bragði virðist í þessu
fólgin ákveðin mótsögn en
það má líka færa gild rök að
því að mikil samþjöppun
valds í efstu lögum stofnunar
leiði af sér stjórnleysi þegar
neðar dregur. Þar fái sjálf-
stæði og frumkvæði ekki að
njóta sín.
Þannig segir Borghildur
Maack: „Hjúkrunin á að
hafa sína eigin faglegu yfir-
stjórn á geðdeildunum rétt
eins og á öðrum deildum
allra sjúkrahúsa. En þannig
er það ekki í raun. Tómas
leyfi frá hjúkrunarfor-
stjóra.“
í bréfi til stjórnamefndar
ríkisspítalanna lagði Borg-
hildur til að gerð yrði hlut-
laus úttekt á faglegri stöðu
og starfsemi barna- og ung-
lingageðdeildanna. í samtali
við PRESSUNA sagði Da-
víð Á. Gunnarsson, forstjóri
ríkisspítalanna, að stjóm-
endur spítalans hefðu ærið
oft velt því fyrir sér með
hvaða hætti væri skynsam-
legt að gera slíka úttekt á
deildunum. „Barnageðl-
ækningar eru tiltölulega ný
grein og það er flókið að
gera slíka úttekt. Barna- og
unglingageðdeildir alls stað-
ar í heiminum eru mjög erf-
iðar deildir og starfinu þar
fylgir mikil streita sem þeir
sem þar vinna taka óneitan-
lega inn á sig. Starfið er ein-
faldlega þess eðlis.“ Að-
spurður sagði Davíð að hug-
myndin um úttekt væri ekki
ný af nálinni. „í geðlækni-
ngum eru oft uppi mismun-
andi sjónarmið og í tengslum
við þau koma auðvitað upp
ágreiningsmál en ég tel ekki
að ágreiningur á barna- og
unglingageðdeildinni sé
meiri en reikna má með á
slíkri deild. Mál Borghildar
Maack finnst mér ekki
dæmigert fyrir þann
ágreining.“
Geðhjúkrunar-
frœðingur
útilokaður
frá stöifurn
Það sem vekur athygli
varðandi uppsagnir hjúkr-
unarfræðinganna á barna-
og unglingageðdeildinni er
að þær telja sig ekki njóta
þess stuðnings í starfi sem
þær þurfi frá yfirstjórn
hjúkrunarinnar. Borghildur
Maack segir t.d. í fyrrnefndu
bréfi til heilbrigðisráðherra
að hjúkrunarforstjórinn,
Þórunn Pálsdóttir, hafi hind-
rað sig „...sem hjúkrunarf-
ramkvæmdastjóra svo og
aðra hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra geðdeildanna
í að sinna okkar störfum
samkvæmt starfssviði hjúkr-
unarframkvæmdastjóra, þar
undir er m.a. ráðning starfs-
fólks til eininga þeirra er þær
eru hjúkrunarframkvæmda-
stjórarfyrir, m.a. nú nýverið
bannaði Þórunn Pálsdóttir
öllum hjúkrunarfram-
kvæmdastjórum geð-
deildanna að ráða til starfa
vel menntaðan og faglega
fræðingur og starfar nú á
geðdeild Borgarspítalans.
Eins og fyrr er fram komið
gagnrýndi hann hjúkrun-
arstjórnina harðlega í upp-
sagnarbréfi sínu árið 1986.
Hann sagði í samtali við
PRESSUNA að vissulega
hefði hann notað sterk lýsin-
garorð í uppsagnarbréfi sínu
en það hefði hann gert til að
freista þess að skapa um-
ræðu um stöðu hjúkrunar á
geðdeildunum. Sér vitan-
lega hefði sú umræða hins
vegar ekki farið fram. ,,En
við búum í lýðfrjálsu landi
og mér hlýtur að vera frjálst
að hafa skoðanir á yfir-
stjórninni án þess að það
verði til þess að útiloka mig
frá störfum á geðdeildum
ríkisspítalanna. Eg hef hins
vegar óneitanlega orðið var
við að þaðan andar köldu til
mín og ég nenni ekki að
sækjast eftir starfi á stofnun
sem ekki vill mig þegar til
staðar er önnur sem vill
mjög gjarnan nýta sér-
menntun mína.“
Erfitt að fá
hjúkrunarfrœðinga
til starfa
Uppsagnarbréfi þessa
hjúkrunarfræðings lauk með
þeim orðum að það mætti
velta því fyrir sér „... hvort
það flokkist undir tilviljun
hversu illa gengur að halda í
faglega menntað starfsfólk
við stofnunina og/eða laða
að nýtt fólk“.
Ljóst er að það er erfiðara
að manna stöður hjúkrun-
arfræðinga á geðdeildum
Landspítalans en á öðrum
deildum hans. Þannig er nú
um 61% af stöðuheimildum
hjúkrunarfræðinga setið á
geðdeildunum en 94% á
öðrum deildum. Þessar tölur
verða þó að túlkast með var-
úð vegna þess að orsaka-
þættir geta verið margir og
samverkandi. Það mun vera
alþjóðlegt fyrirbæri að geð-
deildir njóta ekki sömu virð-
ingar og aðrar deildir sjúkra-
húsa en auk þess nefna
margir að geðhjúkrun sé
ekki gert sérlega hátt undir
höfði í námi hjúkrunarfræð-
inga hér á landi.
PRESSAN hafði sam-
band við Þórunni Pálsdóttur
hjúkrunarforstjóra vegna
allra þeirra mála sem hér eru
til umfjöllunar, en hún sagði
að þarna væru erfið og flókin
mál á ferðinni sem hún kysi
að tjá sig ekkert um.
KNATT
Fimmtudagur 21. júní 1990
RNAN
Leikir í 1. deiid karla: Möguleikar liöanna: Athyglisverðir leikmenn:
FRAM
KAPLAKRIKAVELLI
miöuikudaginn 27. júní kl. 20
Frammarar mega varast það
að vanmeta andstæðinga sína
eins og þeir gerðu gegn Víking-
um í síðustu umferð en þá töp-
uðu þeir óvænt og við það
hljóp kærkomin spenna í topp-
baráttuna. FH-ingar voru ekki
sannfærandi í tapleik sínum
gegn KR og voru heppnir að
tapa ekki með meiri mun. Eng-
inn vafi leikur á því að fá lið
standast Fram snúning þegar
það nær sínum besta leik. FH-
ingar geta verið erfiðir and-
stæðingar þegar þeir sýna sitt
besta en ekki lítur út fyrir að lið-
ið ætli að verða i toppbaráttu
að þessu sinni.
Fram er sigurstranglegra en
jafntefli eru hugsanleg úrslit.
Markvörður FH, Halldór Hall-
dórsson, bjargaði liði sínu frá
stórtapi gegn KR um daginn.
Hann gæti reynst FH-ingum
dýrmætur í þessum leik. Þá
hljóta FH-ingar ávallt að binda
vonir við markahrókinn skæða
Hörð Magnússon en hann hef-
ur ekki sýnt sínar bestu hliðar
það sem af er sumri.
Birkir Kristinsson, markvörð-
ur Fram og landsliðsins, hefur
verið í sviðsljósinu í sumar
vegna frábærrar frammistöðu.
Ef hann hefur mikið að gera í
þessum leik er hann vís til
afreka. Gaman er að fylgjast
með varnarmanninum efni-
lega Jóni Sveinssyni en eins og
flestir vita er krökkt af stór-
stjörnum í Fram-liðinu.
KA
ÍBV
AKUREYRI
midvikudaginn 27. júní kl. 20
KA-menn eru komnir í gang
eftir herfilega byrjun og hafa
unnið tvo leiki í röð. Liðið er of
sterkt til að vera í fallbaráttunni
og við spáum KA-mönnum allt
að fjórða sæti þegar upp verð-
ur staðið í haust. Eyjamenn
hafa komið mjög á óvart og eru
í toppbaráttunni um þessar
mundir. Það er hins vegar
skoðun okkar að þegar línur
fara að skýrast í næstu umferð-
um stefni þeir heldur niður en
KA upp. Við spáum norðlensk-
um sigri í þessum leik.
Unglingurinn í framlínunni,
Þórður Guðjónsson, varnar-
maðurinn Ormar Örlygsson og
framherjinn Jón Grétar Jóns-
son eru meðal þeirra leik-
manna KA sem geta blómstr-
að á góðum degi. Þá er spurn-
ing hvort varnarmaðurinn
sterki Gauti Laxdal fer ekki að
koma inn í liðið en hann hefur
verið meiddur.
Hlynur Stefánsson hjá ÍBV
hefur komið á óvart og virðist
þar vera framtíðarleikmaður á
ferðinni og mikill markaskorari.
Gamla kempan Sigurlás Þor-
leifsson hefur einnig verið
drjúgur svo og Júgóslavinn
Andrei Jerina.
ÍA
ÞÖR
AKRANESI
miduikudaginn 27. júní kl. 20
Fallbaráttuleikur, því hér eig-
ast tvö neðstu liðin við. Þórsar-
ar eru sterkir á heimavelli en
það er getuleysi þeirra á útivelli
sem gerir þeim lífið erfitt. Við
höllumst að Skagasigri á
heimavelli liðsins.
Hjá ÍA hefur Alexander
Högnason átt mjög góða leiki.
Spurning hvort hann heldur
áfram að skora í þessum leik.
Þá er alltaf gaman að fylgjast
með hinum síunga kappa Karli
Þórðarsyni sem orðinn er 35
ára gamall. Hjá Þórsurum hefur
Júgóslavinn Luca Kostic í senn
verið höfuðið í vörn liðsins og
skorað flest mörkin.
VALUR
KR
VALS-VELLI
miövikudaginn 27. júní kl. 20
Tvímælalaust stórleikur um-
ferðarinnar eins og sést af
stigatöf lunni hér að neðan. KR-
ingar gætu skotist í fyrsta eða
annað sætið með sigri og Vals-
menn gætu staðið einir á
toppnum ef þeir sigra. Bæði
liðin hafa leikið vel að undan-
förnu en spurning er hvort
heimavöllur og margir gamlir
sigrar á KR reynast Valsmönn-
um sterkt sálrænt vopn gegn
Vesturbæingum. Við spáum
jafntefli.
Atli Eðvaldsson leikur sinn
fyrsta leik í KR-peysunni en
hann gerði það ekki gegn FH
um daginn eins og áður var
haldið. Ef Atli fellur vel inn í lið-
ið gæti það haft geysilega góð
áhrif á varnarleik KR-liðsins
sem er veikasta hlið liðsins.
Rúnar Kristinsson kom sterkur
til leiks eftir fjögurra leikja bann
um daginn og Þorsteinn Hall-
dórsson hefur verið jafnbesti
maður liðsins að undanförnu
með miklum dugnaði sínum
og baráttu á miðjunni. Og Pét-
ur Pétursson er alltaf skæður.
Hjá Val hefur Sigurjón Kristins-
son átt mjög góða leiki í sumar
og skorað mörg mörk. Þá hefur
Steinar Adolfsson vakið mikla
athygli.
VÍKINGUR
STJARNAN
VÍKINGSVELLI
föstudaginn 29. júní kl. 20
Víkingar komu sannarlega á
óvart með sigri á Fram um dag-
inn en þrátt fyrir sigurinn lék
Vikingsliðið ekki sérlega vel.
Hér eru tvö baráttulið á ferðinni
sem ekki eru líkleg til að verða
mjög ofarlega í deildinni. Erfitt
að spá um úrslit.
Júgóslavinn Goran Micic er
alltaf jafnsterkur í liði Víkings
og er iðinn við að skora. Aðal-
steinn Aðalsteinsson og
Trausti Ómarsson hafa verið
sterkir á miðjunni. Þá hljóta
Víkingar að binda vonir við
hinn sprettharða framherja
Atla Einarsson. Hjá Stjörnunni
beinist athygli að Árna Sveins-
syni og Lárusi Guðmundssyni
sem hafa verið drjúgir við að
skora undanfarið.
STAÐAN í FYRSTU DEILD:
leikir u i t mörk stig
Fram 6 4 1 1 13:1 13
Valur 6 4 1 1 11:5 13
KR 6 4 0 2 10:7 12
ÍBV 6 4 0 2 8:10 12
Víkingur 6 2 2 2 7:7 8
Stjarnan 6 2 1 3 7:12 7
FH 6 2 0 4 9:9 6
KA 6 2 0 4 6:10 6
ÍA 6 1 2 3 5:10 5
Þór 6 1 1 4 3:8 4