Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 16

Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 21. júní 1990 HEIMSÓKN Á SAMBÝLI STYRKTARFÉLAGS VANGEFINNA í VÍÐIHLÍÐ: „Hefðum aldrei sett son okkar á stofnun“ Foreldrar Ólafs eru vinsælir gestir á heimil- inu. Þau eru einmitt í heimsókn um leið og blaðamaður og hljóta sömu góðu viðtökurn- ar, ekki bara hjá syni sínum heldur öllum íbú- unum. Guðmundur, sem erspariklæddur, tek- ur fram sérríflösku sem hann keypti á Spáni og veitir af mikilli rausn. Ólafur kemur með konfektið og býður öllum margsinnis, en steingleymir að fá sér sjálfur. Meðan foreldrar Ólafs ræða við blaðamann PRESSUNNAR virðast Ólafur, Guðmundur og Ása hlusta með athygli á það sem fram fer. Strákarnir skjóta stöðugt inn athugasemdum, oftast um eitthvað allt annað, og Asa situr hjá mjög kímnisleg á svipinn og hlær með sjálfri sér að öllu saman. Umræðuefnið er engu að síður alvarlegt. Foreldrar Ólafs eru að segja frá reynslu sinni. „Óli hefur aldrei verið á stofnun. Við hefðum aldrei látið hann frá okkur inn á stofnun ótil- neydd. En reynsla okkar af því að hafa hann hér hefur eingöngu verið jákvæð. Við kviðum fyrir því að hann flytti að heiman, en hann var sjálfur með í ráðum og var farinn að hlakka til að flytja. Það er ómetanlegt að hann skuli geta flutt að heiman eins og sjálf- stæður einstaklingur á meðan við erum enn í fullu fjöri. Hérna hefur hann fengið nýtt, gott heimili og nýja fjölskyldu en við getum áfram haldið miklu og góðu sambandi við hann,“ segja hjónin Ragna og Björgvin. „Sonur minn er fæddur og uppalinn hér í Reykjavík á heimili okkar. Það er okkur öllum mikilvægt að hann geti haldið áfram að búa í sínu umhverfi, á eðlilegu heimili eins og hann hefur gert alla tíð. Hvers vegna ætti hann að vera lokaður inni á stórri stofnun eða vera sendur til dæmis út á land þegar hann getur búið við fullkomið öryggi á eigin heim- ili?“ segir Björgvin, faðir Óla. þegar ég spyr hvort þau haldi að börnin þeirra hefðu haft betra af því að eiga aðra ná- granna. Ein dóttir þeirra er með þeim. Hún er hvergi feimin við íbúana á 11. Þeir eru líka barngott fólk. Ólafur er fljótur að sækja kon- fektið þegar þau koma, því í dag er hátíð hjá Spánarförunum sem eru nýkomnir heim. Helgi og Birna reyna að siða dóttur sína sem tekur tvo mola, þegar Óli réttir henni kon- fektið. „Það á bara að taka einn,“ segir Helgi. Þetta finnst Óla óþarfa athugasemd. „Hún ræður sér sjálf,“ segir Óli. heimsókn hjá Ólafi og við sitjum öll inni í stofu. íbúarnir á 11 eru nýkomnir heim frá Spáni, brúnir og sællegir, allir nema Heba. Hún er blind og í hjólastól og hafði ekki tæki- færi til þess að vera með. „Þau skemmtu sér mjög vel, dönsuðu öll kvöld og við vorum samferða góðu fólki," segir Solveig. „Eg var á Spáni að dansa og Ása var á Spáni líka,“ segir Ólafur. Hann og Ása eru bestu vin- ir og Ólafur býður henni og öðrum gestum oft út í litla húsið sitt sempabbi hans hefur smíð- að í bakgarðinum. „Ása á Spáni líka," segir Ása. Hún er kona um fimmtugt síbrosandi og ánægjuleg. Hún á erfitt með að tala og sér mjög illa, en það er auðvelt að komast í sam- band við hana þótt ekki sé einfalt að ráða fram úr því sem sagt er. Pau vilja ráða sínu lífi sjálf „Þetta er í rauninni það sem skiptir mestu máli. Fatlað fólk þarf líka að fá að stjórna lífi sínu sjálft eftir því sem hægt er og við sem stöndum betur að vígi eigum að veita því að- stoð til þess," segir Solveig. Hún telur að það sé alveg ómetanlegt fyrir þetta fólk að lifa utan stofnana og inni á sínum eigin heimilum. „Hér eru þau eins sjálfstæð og ábyrg og þau geta orðið. Þau eru sjálfráða og fjárráða, þó þau geti ekki skrifað nafnið sitt, þau kosta heimilisreksturinn sjálf með því að borga húsaleigu af örorkubótum og tekjutryggingu. Þau fara stundum saman í frí og lifa að miklu leyti eins og lítil fjölskylda," segir Solveig. „Fjölskyldan er núna nýkomin heim úr fríi sem alfarið var hugmynd íbúanna sjálfra. Þau hafa meira en tillögurétt um hvernig þau nýta frístundirnar. Hlutverk starfsfólksins er ekki að segja þeim fyrir verk- um, heldur að hjálpa þeim til þess að lifa eigin lífi." Mannréttindi fyrir alla Ragna og Björgvin eru foreldrar Ólafs, sem býr á sambýlinu. Ólafur er einkabarn þeirra, og þar til hann fluttist í sambýlið í Víðihlíð bjó hann heima hjá foreldrum sínum. Þau eru í Foreldrum Óla finnst ómetanlegt að sonur þeirra hefur haft tækifæri til þess að stofna eigið heimili. Óli og Ása hafa verið góðir vinir í mörg ár. Óli og Þórhildur að skoða myndir úr Spán- arferðinni. Guðmundur bauð gestunum sérríglas með kaffinu. ; Til vinstri: Hérna eru allir íbúarnir í Víðihlíð 11 úti á stétt- inni í góða veðrinu. Sitjandi frá vinstri: Heba, Ása og Óli. Standandi: Þórhildur og Guðmundur. Pabbi hans Óla smíðaði kofann sem Óli á í bakgarðinum. Honum finnst gaman að bjóða gestum í kofann sinn.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.