Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 28
j
I nefndakjörinu í borgarstjórn í
dag er viðbúið að upp komi drama-
tísk augnablik þegir hlutkesti raðar
mönnum í nefndir og ráð. Þeir sem
keppa um fimmta og síðasta saetið í
borgarráði eru fjórði maður Sjálf-
ið heyrum að upp sé kominn
klofningur innan Nýs vettvangs,
þar sem menn eru ósáttir um skipan
í nefndir. Þegar Samtök um nýjan
vettvang voru stofnuð var mikil
áhersla lögð á að fá Ragnheiði
Davíðsdóttur ritstjóra til liðs við
samtökin sem óháðan aðila sem
beitt hefði sér fyrir öryggismálum í
umferðinni og þá kannski einkum
vegna þátttöku hennar í áhuga-
hópi um bætta umferðarmenn-
ingu. Ragnheiður lét til leiðast á
þeim forsendum að umferðarörygg-
ismál yrðu sett á oddinn í kosninga-
baráttunni og þeim gert hátt undir
höfði. I kosningabaráttu NV var
mikið talað um hina svonefndu
„svörtu bletti" í borginni og að auka
þyrfti umferðarfræðslu og fleira.
Þegar að nefndamálunum kom var
hins vegar annað upp á teningnum.
Þá kom nefnilega i Ijós að engin
áhersla var lögð á að Samtök um
nýjan vettvang fengju fulltrúa í um-
ferðarnefnd þegar valið var í hinar
svokölluðu níu „öruggu" nefndir.
Þar var hafnarstjórn tekin fram
fyrir umferðarnefnd. Þá var kom-
ið að „hlutkestisnefndunum" og
enn var umferðarnefndin sett aftur
fyrir en stjórn veitustofnana tekin
fram fyrir. í kosningabaráttunni var
einnig lögð mikil áhersla á hús-
næðismál en einn þeirra sem skip-
uðu sæti á lista Nýs vettvangs í borg-
arstjórnarkosningunum er Reynir
Ingibjartsson, framkvæmdastjóri
Búseta. Töldu margir eðlilegt að
hann yrði settur í húsnæðisnefnd
en sú nefnd var ekki á óskalistanum
hjá borgarmálaráði Nýs vettvangs
og á oddinn settar nefndir eins og
skipulagsnefnd, byggingar-
nefnd og hafnarstjórn. Þykir því
mörgum sem hinn góði ásetningur
hafi farið fyrir lítið að kosningunum
afstöðnum og PRESSAN hefur
heimildir fyrir því að Ragnheiður
Davíðsdóttir íhugi nú að segja af
sér formennsku í samtökunum og
jafnframt úrsögn úr borgarmála-
ráði Nýs vettvangs . . .
stæðisflokksins, Árni Sigfússon,
og annar maður minnihlutans,
Kristín Á. Olafsdóttir. Þá má geta
þess að þeir sem lenda í hlutkestinu
inn í stjórn veitustofnana verða
Bjarni P. Magnússon frá minni-
hlutanum og Þórir Lárusson frá
Sjálfstæðisflokknum, en Þórir er aft-
ur mættur til leiks hjá Sjálfstæðis-
flokknum eftir „útlegð", fyrst í
Borgaraflokknum en síðan hjá
Frjálslyndum hægrimönnum . . .
L
■eyrst hefur að Arnaldur
Bjarnason, sem verið hefur bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum sl. kjör-
tímabil, komi sterklega til greina
sem bæjarstjóraefni í Hvera-
gerði. . .
I gær var haldinn fundur hjá
stjórn Samtaka um nýjan vett-
vang og við heyrum að ákveðnir
stjórnarmenn þar vilji láta leggja
samtökin niður. Þá ákvörðun
byggja umræddir aðilar á því að ætl-
unarverki samtakanna sé lokið, en
farið var af stað með Nýjan vettvang
með það að leiðarljósi að efna til op-
ins prófkjörs og skipa borgarmála-
ráð sem starfaði alveg sjálfstætt.
Var það lýðræði sem Nýr vett-
vangur lagði fram sem sérstöðu
sína i kosningabaráttunni og á borg-
armálaráðið að starfa án afskipta
þeirra stjórnmálaflokka sem aðild
eiga að því, þ.e. án afskipta Samtaka
um nýjan vettvang, Alþýðuflokks-
ins, Æskulýðsfylkingar Alþýðu-
bandalagsins og Reykjavíkurfélags-
ins Betri borgar. Menn greinir því á
um hvort hlutverk samtakanna hafi
einungis snúist í kringum borgar-
stjórnarkosningarnar, eða hvort
samtökin eigi að víkka út starfssvið
sitt og vera leiðandi afl í sameiningu
á vinstri væng stjórnmálanna ...
/ ’/•
\ LADA SAMARAs \
\
' ' LADA SAMARA er glæsi-
> lega útfærður framdrifsbfll,
' sem hefur verið á götum .
- \ landsins síðan árið 1986,
- _ hefur sýnt að þörfin fyrir
fjölskyldubíl, með þeim
eiginleikum sem þessi bíll'
-----, býryfir, ermikil. -
X .* I V \ \ ■ • . X ,
^Tökum gamla bílinn upp ínýjan
og semjum um eftirstöðvar.
\ ’ * \ '/ ' / . ‘ • V
Opið laugardaga f rá ki. 10-14.
: \ ■ •' • _ \ • . ■
VerölistiLM
1200 SAFÍR 4ra g Staðgr. verð 345.268,-
1500 STATI0N 4rog 429.763,-
1500 STATI0N 5ro g 452.71 1,-
1500 STATI0N LUX 5 g.... 467.045,-
1600 LUX 5 g 454.992,-
1300 SAAAARA 4 g., 3 d. 452.480,-
1300 SAAAARA 4 g., 5 d. 492.349,-
*1500 SAMARA 5 g., 3 d. 495.886,-
‘1500 SAMARA-LUX 5 g., 3 d.507.714,-
*1500 SAMARA 5 g., 5 d. 523.682,-
‘1500 SAMARA-LUX 5 g., 5 d. 542.029,-
1600 SP0RT 4 g .-678.796,
1600 SP0RT 5 g 723.328,-
* „Metallic" litir kr.l 1.000,-
Armúla 13 -108 Keykiavík - sími 31236 ■ 681200
og taka síðdegísflugið, annað hvort á
mánudegi, miðvikudegi eða föstudegi.
Brottför frá Keflavík er nefnilega ekki fyrr en
kl. 16:00 og í Lúxemborg bíður þín ung
nóttin oq meira til...
Mlinn er Ford Sierra eða önnur tegund í
sama flokki og þú getur ekið eins og þig
xstir án þess að greiða svo mikið sem franka
xrir hvern ekinn kílómetra. Og allt þetta
kostar aðeins frá kr.
iið gildir aðeins í júlí og ágúst
miðast við a.m.k. tvo í bíl.
tta ekki eitthva
'GLEIDIR
þegar ferðalögin liggja í loftinu
Allar nánari upplýsingar færðu
á söluskrlfstofum Flugleiða, hjá umboðs
mönnum og ferðaskrif stof um .
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2
Hótel Esju og Kringlunni.
Upplýsingar og farpantanir
í síma 690 300. ______
*