Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 21

Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 21
21 Fimmtudagur 21. júní 1990 PRESSU c ^Vtarfsiiði Vinnuskóla Reykja- víkur vex stöðugt fiskur um hrygg. Frá því í fyrra hefur sérstakur hópur unnið við landgræðslu á Nesjavöll- um. í sumar eru 180 unglingar á Nesjavöllum og starfa þeir meðal annars við lúpínugræðslu og við að stinga upp rofabörð. Reynslan af starfi vinnuskólanna á Nesjavöllum í fyrra þótti góð þegar árangur starfsins var metinn í vor... una haida þeir áfram að funda í Templarahöllinni, bæði um aðgerð- ir dagsins og væntanlega einnig um framhaldið . . . V ið greindum frá því á dögun- um að liðsmenn úr Nýjum vett- vangi hefðu gengið til liðs við Al- þýðuflokkinn og vakti innganga Hrafns Jökulssonar athygli. Nú fregnum við að Alþýðuflokknum hafi bæst fleiri liðsmenn úr þeirri átt þótt engin nöfn fáist uppgefin í því sambandi. Hins vegar vekur athygli að þrátt fyrir meintar ófarir krata í kosningasamvinnunni með Nýjum vettvangi og ólgu og óánægju í kjöl- far þess hefur enginn sagt sig úr flokknum af þeim sökum eftir kosn- ingarnar, skv. heimitdum af skrif- stofu flokksins . .. ^Íveir hópar fatlaðra vinna í sumar hjá Vinnuskólum Reykja- víkur. Þetta eru 26 einstaklingar, sem eru staðsettir á Miklatúni og vinna fjóra tíma á dag. Þessi hópur hefur starfað við vinnuskólana síð- astliðin nokkur ár með góðum árangri. Hjá bæjarvinnunni er einnig starfandi hópur fatlaðra við garóyrkjustörf. . . Í^yrirtækið Myndbær vinnur nú að gerð fræðslumyndbands um Evrópubandalagið, sem dreift verður til fyrirtækja og samtaka í þjóðfélaginu og væntanlega víðar. Þá er einnig í undirbúningi frétta- blað um EB af hálfu fyrirtækisins. Umsjónarmaður er Glúmur Bald- vinsson sem starfað hefur sem fréttamaður að undanförnu. Hon- um ætti líka að vera málið skylt á annan veg því Glúmur er sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra, sem eins og aliir vita hefur látið sig Evrópumálin nokkru skipta . .. Í^élagar í BHMR hafa nóg að gera, en þeir mæta ekki til vinnu í dag vegna ósættis við ríkisstjórn- ina um launamál. 3.500 manns eru í félaginu og búist er við því að stærstur hluti þeirra leggi niður vinnu á morgun. Aðgerðanefnd hef- ur skipulagt allan daginn frá morgni til kvölds. Dagurinn hefst með fundi og trúlega kaffidrykkju í kjallara Templarahallarinnar klukkan 9. Um hádegisbilið ganga háskóla- menntaðir ríkisstarfsmenn í kröfu- göngu niður að Alþingi og afhenda bæði forsætisráðherra og fjármála- ráðherra mótmæli. Eftir afhending- ii ^^^mhverfið kringum Tann- garð, hús tannlæknanema við há- skólann, kvað vera heldur andfúlt í sumar. Skammt þar frá er nefnilega safnað í haug grasi og garðúrgangi og geymt einhvern tíma, þar til henta þykir að fjarlægja úrganginn. Þessu er safnað saman á flötinni rétt við Vatnsmýrarveginn. Gangandi og hjólandi vegfarendur kvarta yfir sterkum rotnunarfnyk af þessum völdum og telja að úrbóta sé þörf. . . I Morgunblaðinu um síðustu helgi var greint frá kapphlaupi um tilboð í Leiguflug Sverris Þór- oddssonar og afskiptum banka- stjóra Landsbankans af málinu, en vélar fyrirtækisns eru veðsettar í bankanum. Fram kom í greininni að vélar Leiguflugsins væru metnar á 15 milljónir en áhvílandi skuldir á þeim næmu 23 milljónum. Ekki virtist þetta atriði hafa vakið upp spurningar Morgunblaðsmanna en ýmsum þykir þetta athyglisvert í meira lagi þegar svo virðist sem traust lánastofnun á borð við Lands- bankann hafi lánað til fyrirtækis með veði í eignum sem standa ekki nema að hluta undir skuldunum . . . að heyrist að háskólamennt- aðir ríkisstarfsmenn hafi ekki orðið hrifnir þegar Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra sendi þeim óvæntan glaðning í launaumslaginu á dögunum. Þetta var orlofsuppbót sem BHMR hafði aldrei samið um. Þykir félögum BHMR að Ólafur Ragnar sé að gefa tóninn um það að hann ætli að troða samningum BSRB og ASI upp á BHMR að þeim forspurðum. Ekki er vitað hvort félagar í BHMR munu skila launauppbótinni aftur til föðurhúsanna . . . Mercedes Benz árg. 1982 Ekinn 126 þús. V8-vél. velour-innr., bensínmiðstöð, rafmagnssóllúga, litað gler ásamt fl. Skipti möguleg. Uppl. í síma 621314 í kvöld og yfir helgina TIL SÖLU Beltagrafa J.C.B. 808 L.C. í mjög gódu lagi. 1500 lítra ný skófla med nýjum snúningskransi og pinjón. Upplýsingar gefur Haraldur í síma 83151. SIEMENS Sjónvarpstœki | Sjónvarps- | myndavélar I Hljómtœkja- samstœöur Utvarpsvekjarar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 IUMFEROAR RAD Ferðaviðtœki

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.