Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 14
Fimmtudagur 21. júní 1990
14
EFTIR: ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR
- MYNDIR: EINAR ÓLASON
Við dægurmálaútvarp
rásar 2 starfa nokkrar konur
sem við heyrum i hvern virk-
an dag vikunnar og það eru
þær konur sem við ætlum að
leyfa ykkur að sjá framan í
núna.
Að sögn einnar útvarps-
konunnar, Katrínar Bald-
ursdóttur, hafa konur átt á
brattan að sækja innan dæg-
urmálaútvarpsins:
,,Hér á dægurmálaútvarp-
inu hafa verið mjög sterkir og
ákveðnir karlmenn en nú er
farið að halla á þá. Til
skamms tíma var Guðrún
Gunnarsdóttir eina konan á
dægurmálaútvarpinu, en á
síðustu mánuðum hefur orð-
ið breyting á. Það má eigin-
lega segja að Guðrún hafi
barist nánast vonlausri bar-
áttu innan um karlmennina.
Við konurnar erum með
mjög gott samtryggingar-
kerfi í gangi milli okkar og
hér ríkir góður samstarfs-
andi.“
Katrín segir að daglega sé í
gangi barátta milli kynjanna
innan dægurmálaútvarpsins,
þótt hlustendur verði að sjálf-
sögðu ekki varir við slíkt:
„Það líður ekki sú mínúta hér
að ekki sé háð barátta," segir
Katrín. „Þetta er mikil,
skemmtileg og skapandi bar-
átta og stundum má ekki á
milli sjá hvort kynið hefur yf-
irhöndina! Hlutfall karla og
kvenna innan dægurmálaút-
varpsins hefur verið að breyt-
ast og þar sem við erum allar
sterkar og ákveðnar konur
eiga karlarnir mjög erfitt
uppdráttar með sína karl-
rembu... Við veitum þeim
mjög gott aðhald og það er
ekki ennþá séð fyrir hvort
kynið muni sigra baráttuna."
Borgaðu rafmagnsreikninginn
áður en þú ferð í fríið!
Þáverður heimkoman ánægjuiegri
Það er ómetanlegt að komast í
gott sumarfrí en það er líka notalegt að
koma heim aftur — ef allt er í lagi. Áður
en við förum göngum við tryggilega frá
öllu. Við greiðum rafmagnsreikninginn
svo að heimilistækin geti sinnt skyldum
sínum í íjarveru okkar og þjónað okkur
strax við heimkomuna.
Dreifikerfi Rafmagnsveitu Reykja-
víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi.
Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og
ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir
hana á eðlilegum tíma. Verði misbrestur
þar á bætast við dráttarvextir — og þá er
líka stutt í hvimleiða lokun.
Rafmagnsreikningar eru sendir út á
tveggja mánaða fresti. Gjalddagi þeirra er 5. dagur
næsta mánaðar eftir útgáfudag (15. dagur næsta
mánaðar hjá ellilífeyrisþegum). Ef reikningur hefur ekki
verið greiddur á gjalddaga reiknast á hann dagvextir.
Láttu rafmagnsreikninginn hafa
forgang!
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT34 SÍMI686222
PRESSU
MOLAR
menn muna voru þrjú dag-
vistarheimili opnuð formlega rétt
fyrir borgarstjórnarkosningarnar,
Gullborg, Klettaborg og Heiða-
borg. Ákveðið hafði verið að mála
heimilin í íslensku fánalitunum, eitt
yrði að mestu blátt, annað að mestu
rautt og hið þriðja að mestu hvítt, en
allir þrír litirnir annars notaðir. í
ræðuhöldum var meðal annars bent
á hversu gott yrði að kenna börnun-
um fánalitina og menn settu upp
sína þjóðlegustu ásjónu. Nú vekur
það hins vegar mikla athygli að
Gullborg hefur að stofni til verið
máluð græn en að auki hvít og rauð
og spyrja menn hvað orðið hafi af
hinni þjóðlegu hugsjón! Gárungarn-
ir hafa auðvitað fundið skýringuna;
heimsmeistarakeppnin í fótbolta
hefur ruglað arkitektana svo í rím-
inu að þeir völdu óvart liti ítalska
fánans ...