Pressan - 21.06.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 21. júní 1990
PRESSU
önnum hefur þótt heldur
dauft yfir verslunarhúsnæðinu í
Kringlunni 4. Við heyrum að fyrir
dyrum standi miklar breytingar á
húsnæðinu og verði það tengt
Kringlunni 6. Breytingum og sam-
tenginu húsanna á að vera lokið 1.
nóvember og þá mun herradeild P
& Ó líklega fara aftur á sinn fyrri
stað. Núna eru starfræktar þrjár
verslanir í Kringlunni 4, Rodier,
Karen og Naf Naf, auk blómaversl-
unarinnar Blóma og listmuna,
sjoppu og myndbandaleigu. Þessir
aðilar hyggjast ekki gefast upp og
bíða átekta eftir að líf færist í bygg-
inguna á nýjan leik næsta vetur...
I dag fer fram fyrsti fundur ný-
kjörinnar borgarstjórnar og á
dagskrá m.a. kjör í borgarráð og
nefndir/stjórnir borgarinnar. Eftir
stíf fundahöld og erfiða samninga
tókst loks samkomulag milli minni-
hlutaflokkanna. Fyrst náðist sam-
komulag um að standa saman, sem
ekki var sjálfgefið. Síðan hófust
flóknir samningar um nefndasæti,
en svo háttar til að minnihlutinn er
aðeins öruggur með einn fulltrúa í
5-manna-nefndir en annar maður-
inn lendir í hlutkesti gegn fjórða
manni Sjálfstæðisflokksins.
Flokkarnir skiptast á með öruggan
mann í borgarráð og byrjar Sigur-
jón Pétursson. Samkvæmt heim-
ildum PRESSUNNAR fær Nýr vett-
vangur örugglega fulltrúa í hafnar-
stjórn, byggingarnefnd, stjórnir
heilsugæslustöðva miðbæjarins og
austurbæjar nyrðri, atvinnumála-
nefnd, stjórn SVR, skipulagsnefnd
og íþrótta- og tómstundaráð.
Kvennalistinn fær örugglega full-
trúa í stjórn sjúkrastofnana, stjórn
Dagvistar barna, umferðarnefnd,
Sorpu, memingarmálanefnd,
barnaverndarnefrd og stjórn heilsu-
gæslustöðvar austurbæjar syðri.
Framsóknarflokkurinn fær ör-
uggan mann í fræðslu- og skóla-
málaráð, stjórn veitustofnana,
Landsvirkjun, framtalsnefnd, jafn-
réttisnefnd og stjórn heilsugæslu-
stöðvar vesturbæjar og Alþýðu-
bandalagið fær öruggan mann í
endurskoðunarnefnd borgarreikn-
inga, heilbrigðisnefnd, félagsmála-
ráð, umhverfisnefnd, húsnæðis-
nefnd, stjórn innkaupastofnunar og
ferðamálanefnd. Samsvarandi
skipting er um framboð í hlutkestis-
sætin, en þar bia menn við e.k.
„lottólýðræði"; ánn flokkur gæti
unnið öll sín hlutlesti meðan annar
tapar öllum. . .
s
^^saga er í gangi þessa dagana
að Björn Guðmundsson og Ulfur
Sigurmundsson hafi hætt störfum
fyrir Útflutningsráð íslands en
starfi áfram erlendis á launum frá
Félagi íslenskra iðnrekenda. Þetta
mun heldur ónákvæm frétt og það
rétta í málinu er að samkomulag
hefur tekist milli útflutningsráðsins
og Landssambands iðnaðarmanna
um að samtökin kosti viðskiptaf-
ulltrúa í Kaupmannahöfn og New
York næstu tvöárin. Verður Björn
búsettur í Kaupmannahöfn
og Úlfur í New York. Pótt þeir
verði kostaðir af samtökum iðnað-
arins munu þeir starfa í mjög nánu
samstarfi við Útflutningsráð ís-
lands...
lítillega hefur verið fjallað um
pólitíska hlið Mógilsármálsins í
fjölmiðlum og þótt starfsmenn hafi
afneitað pólitískum þætti málsins í
blaðagreinum á það sér þrátt fyrir
allt hápólitískan aðdraganda. Inn í
deiluna hafa blandast yfirvinnu-
greiðslur til Jóns Gunnars Ottós-
sonar, forstöðumannsins sem sagt
var upp á dögunum og allt snýst um.
Sambýliskona hans er Margrét Frí-
mannsdóttir sem sæti á í fjárveit-
inganefnd Alþingis og mun
flokksbróðir hennar, Steingrímur
Iandbúnaðarráðherra, hafa talið
sig í verulegri klemmu þegar
ágreiningur kom upp á síðasta ári
vegna yfirvinnureikninga frá Mó-
gilsá. A síðustu mánuðum hafa svo
stofnanaátök blandast deilunni þar
sem forstöðumaðurinn er sagður
hafa viljað að rannsóknarstarfsemi
skógræktarinnar færðist undir hið
nýja umhverfisráðuneyti, sem
landbúnaðarráðuneytið vill ekki
heyra á minnst. ..
Þ
að var mikið fjör í Lækjarg-
ötunni 17. júní þegar
skemmtikraftar komu þar fram.
Eitt skyggði þó á að fólk nyti
skemmtunarinnar sem skyldi. Það
var hvítur fíll sem af einhverjum
orsökum var ekki fjarlægður þegar
Batman og aðrir gestir hurfu af
sviðinu. Ffll þessi skyggði á sviðið
og sáu þeir sem ekki náðu stæði í
brekkunni við menntaskólann því
lítið sem ekkert af þeim sem á svið-
inu stóðu. Þakkar fólk sínum sæla
að hvítir fflar eru sjaldséðir á göt-
um borgarinnar...
s
^^tuðningsmenn homma og les-
bía í Noregi halda því fram að hæg-
risinnaðir einstaklingar þjáist af
„fóbíum“ í garð samkynhneigðra.
Skoðanakannanir í Noregi sýna
engu að síður að 70% norsku þjóð-
arinnar eru fylgjandi því að hom-
mar og lesbíur njóti sömu réttinda
og aðrir í sambúð. Reyndin hefur
þó verið önnur hingað til og langt í
land með að hommar og lesbíur
njóti sömu réttinda og í Danmörku
þar sem pör af sama kyni geta gifst.
Nú hefur verið lögð fram tillaga á
norska Stórþinginu um ný lög sem
tryggi rétt homma og lesbía. Að
baki tillögunni standa einstak-
lingar úr þremur stjórnmálaflokk-
um, tveimur á vinstri vængnum og
einum á þeim hægri. Norska ríkis-
stjórnin hefur ekki á dagskrá að
greiða götu homma og lesbía...
^fastagestir em oftast fremur
íhaldssamir, þegar „staðurinn
þeirra’’ er annars vegar. Það vakti
því víst litla lukku meðal föstu kúnn-
anna, þegar ákveðið var að breyta
útlitinu á Mímisbar á Hótel Sögu.
Breytingin var samt sem áður gerð
og nú hefur barinn verið opnaður
aftur í nýrri mynd. Forráðamenn
hótelsins vonast auðvitað til að
fastagestirnir skili sér aftur, þrátt
fyrir „helgispjöllin”, og hafa m.a.
tekið ákvörðun um að hafa opið
fjögur kvöld í viku í stað tveggja. ..
b.....................
handa við myndatökur á íslenskum
framhaldsþáttum fyrir börn og
unglinga. Þeir verða gerðir eftir bók
Guðmundar Ólafssonar leikara,
Emil og Skunda, en Guðmundur er
jafnframt leikstjóri þáttanna. Upp-
tökustjóri verður Gunnlaugur
Jónasson. . .
M
Isafirði hafa menn fundið
upp nýtt lögmál; „Péturslögmál-
ið ”. Er það kennt við Pétur Sig-
urðsson, forseta Alþýðusam-
bands Vestfjarða, og til komið
vegna þess að Pétur er gjarna kall-
aður til þegar krötum liggur lífið á.
Kölluðu þeir Pétur til liðs við bæjar-
stjórnarframboðið í þriðja sæti
listans í vor en útkoman varð sú að
A-listinn tapaði þriðja manninum í
kosningunum og fékk tvo kjörna.
Svipað var upp á teningnum fyrir
allnokkrum árum þegar Pétur var
kallaður til leiks í þriðja sæti. Þá
misstu þeir það einnig. Unnu það að
vísu upp árið 1986 (án Péturs) en
„Péturslögmálið” endurtók sig í vor
eins og kunnugt er.. .
Þ
að hefur komið á daginn að
fyrsta konan í heimi sem sest hefur í
stól varnarmálaráðherra uppfyllir
ekki þau skilyrði sem þarf til þess
að gegna þessu embætti. Þessi
kona er fínnsk og heitir Elisabeth
Rehn. Hún var útnefnd af finnska
forsetanum Mauno Koivisto til
starfans fyrir rúmri viku. Það eru
sjálfsagt skiptar skoðanir um hvort
það sé skref í rétta jafnréttisátt að
kona verði æðsti yfirmaður stríðs-
manna. En hitt er öruggt að
jafnrétti er óþekkt fýrirbæri í hern-
um. Það hefur til dæmis verið sett
sem skilyrði fyrir því að mega
gegna embætti varnarmálaráð-
herra að viðkomandi hafi lokið
herskyldu. Finnskar konur gegna
ekki herskyldu og þess vegna átti
Elisabeth Rehn ekki að fá þennan
ráðherrastól þó að hún hafi verið
svokölluð Lotta í sínu ungdæmi...
Er synd að
vera skynsamur?
I Pressunni 14. júní sl. er birt grein
þar sem getgátur eru leiddar að því
að vélarnar í sex togurum séu rangt
skráðar, vegna þess að sá sjöundi er
með of litla vél. Aður en farið var lít
í endurbyggingu sex togara sem
byggðir voru í Japan á árunum
'72—73 var gerð ítarleg úttekt á
orkusparnaðarmöguleikum þess-
ara skipa. Breytingarnar á skipun-
um voru síðan framkvæmdar í sam-
11
ræmi við það. Valdar voru hagstæð-
ustu vélar og skrúfubúnaðir sem völ
var á fyrir þessi skip og skipt var um
framstefni, sett var mjög stór pera á
skipin sem lengdi vatnslínuna um
fjóra metra. Þessi pera dregur stór-
lega úr „stampi” skipanna á móti
vondu veðri og skilar vélarorkan sér
þess vegna betur á togi, auk þess
minnkar mótstaða skipsins á sigl-
ingu.
Útgerð togarans Drangeyjar, nú
Aðalvíkur, valdi að fara aðrar leiðir;
öðruvísi vél, öðruvísi skrúfubúnað
og sleppa perustefninu.
Orkuþörf Aðalvíkur er því miður
töluvert meiri en hinna skipanna,
eins og sést best á því að hún eyðir
u.þ.b. 25% meiri olíu en þau, þar
sem hún notar fleiri hestöfl.
Bolli Magnússon
skipatæknifræðingur
nisbimingar - æfíngagallar — töskur
sundfatnaður — skór — boltar - dómaravörur.
Sjáum um að merkja búninga.
HOFFELL UMBOÐS & HEILDVERSLUN
Ármúla 36 Fteykjavík • Símar 91 - 83830 oq 91 - 82166 • Fax 91-678047
NfSEHm
AF
RÚSKim-
ÚS
LEÐÚRFAMÐI
LÍTIÐIRR
Þ/IBBÚRGAR
SIG
PILOT
Hafnarstræti 16,
sími 624404