Pressan - 09.08.1990, Qupperneq 7
noo ’■ ♦ ,, x n . . ^ -,u ,^
Fimmtudagur 9. ágúst 1990
ILÝSINGANNA:
SKOPASTOGSTELA
in á auglýsingastofu: „Það er
ekkert gert i svona málum
hjá SÍA ef hætt er að birta
auglýsinguna. Það gerist ekk-
ert í slíkum tilvikum nema er-
lendi aðilinn vilji sjálfur eitt-
hvað aðhafast."
Dauður
lagabókstafur?
Mjög hafa færst í aukana
verðlaunasamkeppnir af
ýmsum toga. Þær eru að
mestum hluta bannaðar.
Verðlagsstofnun og SÍA hafa
ítrekað reynt að sporna við
þessari þróun án þess að
nokkuð hafi verið á þau
hlustað. Þessi lagagrein bygg-
ir á því að vöruna eigi að selja
á eigin kostum en ekki með
því að lokka fólk til að koma
á einhvern stað eða með öðr-
um óskyldum hætti. Hugsan-
lega er þessi lagabókstafur
núorðið á skjön við tilfinn-
ingu almennings.
Einnig stendur það skýrt í
lögunum að menn megi ekki
koma sér á framfæri með til-
vísun í alls óskyld atriði.
Dæmi um það er þegar hér á
árum áður var auglýst kaffi
þar sem ein króna af hverjum
pakka rynni í sjóð aldraðra.
Það sama er að gerast hjá Ol-
ís þessa dagana þar sem fyr-
irtækið auglýsir að ákveðinn
hluti af verði hvers bensín-
lítra renni til landgræðslu. Þó
málefnið sé í sjálfu sér ekki
slæmt er það, eins og áður
segir, bannað að upphefja
Hálfberar konur og bílar,
hvað er á bak við það? Sól-
veig Ólafsdóttir lögfræð-
ingur SÍA segir slíkar aug-
lýsingar ekki búnar til á ís-
landi lengur. Þarna er sið-
gæðisvitundin að breyt-
ast.
sjálfan sig með þessum hætti.
Skógrækt hefur ekkert með
bensín að gera fremur en
aldraðir tengjast kaffi. SÍA
hefur hins vegar enga kæru
fengið í hendurnar vegna
þessarar auglýsingar.
Févíti í frumvarpi
í frumvarpi um breytingar
á verðlagslögum sem lagt var
fram á Alþingi í vor eru í
sjálfu sér ekki miklar efnis-
breytingar frá því sem er í
siðareglunum. En þar er gert
ráð fyrir að auglýsinganefnd
komi inn í það sem siðanefnd
auglýsingastofa nær ekki yfir.
Ef menn ekki hlýða geta þeir
átt yfir höfði sér févíti. í þessu
frumvarpi er tekið fram að
auglýsingar skuli vera á lýta-
lausri íslensku.
Þetta atriði í frumvarpinu
segir Kristín Þorkelsdóttir,
eigandi auglýsingastofunn-
ar AUK, hafa bæði kosti og
galla. „Auðvitað er gott að
auglýsingar séu á lýtalausri
íslensku en hver á dæma
það? Það tíðkast t.d. í auglýs-
ingaheiminum að nota slang-
uryrði sem notuð er á götum
úti en ekki er að finna í orða-
bókum. Það á sér stað mál-
þróun. Ég er svolítið hrædd
við þetta ákvæði í frumvarp-
inu,” sagði Kristín. Að öðru
leyti sagðist hún vera sátt við
siðareglurnar og lögin.
Bannað að misnota
reynsluskort og
trúgirni
Það sem má ekki þegar
verið er að auglýsa er t.d. að
auglýsingar innihaldi boð-
skap, í orðum eða myndum,
sem brýtur gegn almennri
velsæmiskennd. Auglýsingu
verður að semja þannig að
traust neytandans, takmörk-
uð reynsla hans og þekking
sé ekki misnotuð, ekki má
höfða til ótta fólks né hjátrúar
og auglýsingar mega ekki
innihalda neitt sem getur
hvatt til ofbeldisverka. Og
ekki má birta staðhæfingar
og myndir sem líklegar eru til
að villa um fyrir neytandan-
um.
Ef samanburður er í auglýs-
ingunum verður að gæta
þess að hann sé ekki villandi.
Samanburðaratriði verða að
vera byggð á staðreyndum
sem ganga má úr skugga um.
Þannig að hástigsorðin mest-
ur, bestur og stærstur verða
að standast. Auglýsingar eiga
ekki innihalda vitnisburð eða
meðmæli nema slík umsögn
sé raunverulega fyrir hendi
og reynsla vitnisburðargjafa
málinu skyld. Það er bannað
að hallmæla fyrirtæki eða
samkeppnisvöru. Það sama
gildir um fyrirlitningu, skop
og önnur brögð í sama til-
gangi.
I siðareglum um auglýsing-
ar er ákvæði um verndun
einkalífsins og eignir
fólks. Bannað er að stæla í
auglýsingum uppsetningu
texta, myndar, tónlistar og
hljóðnotkunar annarrar aug-
lýsingar. Auglýsing verður að
hafa greinileg sérkenni í
hvaða formi sem hún birtist,
hún má ekki sýna hættulegt
atferli eða atvik þar sem ör-
yggi er vanvirt nema að sér-
stök ástæða sé til í menntun-
arlegum eða félagslegum til-
gangi. Einnig er bannað að
misnota trúgirni barna eða
reynsluskort.
Ábyrgð á auglýsingum er í
höndum auglýsanda, semj-
anda auglýsingar eða auglýs-
ingastofu, og einnig útgef-
anda, eiganda fjölmiðils eða
öðrum slíkum samningsaðila
við birtingu.
Einnig eru til ýmis lög og
reglugerðir varðandi auglýs-
ingar. T.d. er í áfengislögum
bannað að auglýsa áfengi,
í jafnréttislögum segir að
óheimilt sé að birta auglýs-
ingar er geta orðið öðru kyn-
inu til minnkunar eða lítils-
virðingar. í lögum um tóbaks-
varnir er ákvæði um bann
við að auglýsa tóbak. í lögum
um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta við-
skiptahætti stendur m.a. að
óheimilt sé að örva sölu og
þjónuslu með því að úthluta
vinningum með hlutkesti í
formi verðlaunasamkeppni
eða á annan hátt þar sem til-
viljun ræður að öllu eða hluta
hver niðurstaðan verður.
Vib styðjum
skóqræktarátakið
Olís er að brjóta reglur með því að auglýsa að ákveðnir
auraraf verði hvers bensínlítra renni til landgræðslu. Eng-
inn mun hafa kært ennþá. (Mynd Kristín)
UM ÚRVAL AF DÝNUM?
fali og með frágangi eftir þínu höfði. Hér eru nokkur dæmi um verð á óklæddum svampdýnum:
// Eggjabakkadýna
Heilsuyfirdýna,
og einangrar.
instök fjöðrun
//
VERÐ
5.998,-
7.686,-
4.200,-
7.997,-
10.248,-
5.040,-
10.282,-
13.176,-
6.160,-
1 3.709,-
17.568,-
160
8.960,-
18.278,-
23.424,-
SNÆIAND
útbúum að sjálfsögðu dýnuver og kfæðum með áklæði af lager
eða tillögðu efni. Bjóóum einnig uppá hundruð mismunandi áklæða
með pöntunarþjónustu okkar. LÍTTU INN OG KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ
SKEIFAN 8-108 REYKJAVÍK SÍMI 685588