Pressan - 09.08.1990, Side 10
10
Fimmtudagur 9. ágúst 1990
Friöjón Þórðarson hefur enga ákvöröun tekiö
um aö hœtta í pólitík
Ekkert kominn að
fótum traml
Þingkosningar eru nú á næsta leiti og
verða ekki síðar en næsta vor. Innan
stjórnmálaflokkanna er þegar farið að
ræða um framboð og munu þar mun fleiri
kallaðir en útvaldir sem oftar og að sjálf-
sögðu er spáð í það hverjir muni nú hætta
þingmennsku. Friðjón Þórðarson er einn
þeirra sem hve lengst hafa setið á þingi.
EFTIR: GUÐRÚNU FINNBOGADÓTTUR
MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR
Það eru ekki margir ís-
lenskir stjórnmálamenn sem
hafa átt eins mikilli velgengni
að fagna og eiga eins langan
feril að baki og Friðjón
Þórðarson, þingmaður i
Vesturlandskjördæmi og
fyrrverandi dómsmálaráð-
herra. Hann var ráðherra í
hinni umdeildu ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen og
gekk þar í berhögg við meiri-
hluta þess flokks sem hann
hefur alla tíð verið fulltrúi
fyrir á Alþingi, Sjálfstæðis-
flokkinn. Það mun hafa ver-
ið stormasamasta tímabil
stjórnmálaferils sem annars
hefur verið lygn og hnökralít-
ill í hátt á fjórða tug ára.
Blaðamaður Pressunnar
náði tali af Friðjóni á dögun-
um og innti hann eftir því
hvort þessum langa ferli hans
væri nú að ljúka eða hvort
liann hygðist bjóða sig fram
enn á ný í næstu kosningum
til Alþingis.
„Velgengnin hófst nú
reyndar á falli. Það var vorið
1953 þegar ég bauð mig fram
í Dalasýslu sem einmenn-
ingskjördæmi og svo komst
ég inn á broti úr atkvæði
1956, sem 11. landskjörinn
þingmaður. Ég sat á þingi til
1959 þegar kjördæmabreyt-
ingin var gerð. Þá féll ég aftur
út og kom ekki inn aftur fyrr
en 1967.
En síðan hef ég setið sam-
fleytt á þingi, svo það er satt
að ég hef verið mjög lengi í
þessu starfi. Það er raunar
satt líka að mér hefur gengið
vel alla tíð síðan, bæði í próf-
kjörum og kosningum. Og þó
ég hafi ekki alltaf verið sam-
mála mínum fylgismönnum
og okkur greint á um margt,
hef ég alltaf sagt að við skyld-
um halda hópinn sem lengst
og það hefur gengið vonum
framar.
Ég get ekki svarað því enn
hvort ég muni nú að hætta í
pólitíkinni, ég hef einfaldlega
ekki enn tekið ákvörðun um
það. Ég geri ekki ráð fyrir að
kosningar verði fyrr en
næsta vor. Það kemur auðvit-
að að því að ég hætti, en nú
er ég þingmaður og störfum
hlaðinn sem slíkur. Ég er alls
ekki elstur þingmanna nú og
nokkrir hafa setið lengur en
ég á þingi."
— Er nú alveg gróiö um
heilt á milli þín og Sjálf-
stæðisflokksins eftir aö þú
gekkst til liðs við Gunnar
Thoroddsen um árið?
„Það lifir lengi í gömlum
glæðum! Þó held ég að ég
megi segja að nú sé alveg gró-
ið um heilt. Samstarf mitt við
Sjálfstæðisflokkinn er gott
enda vakti aldrei fyrir mér að
kljúfa hann heldur halda hon-
um sameinuðum á breiðum
grunni."
— Hvað segja sjálf-
stæðismenn í Vestur-
landskjördæmi um
framboð þitt í næstu
kosningum?
„Það má vel vera að sum-
um finnist tími til kominn að
ég hætti. Það getur verið að
ein og ein rödd láti þá skoðun
í ljós á Vesturlandi, en ég
hef ekki heyrt þær. Það vita
það margir að nú fer að líða
að því að ég hætti og ég skal
svo sannarlega ekki dylja þá
þess lengi þegar þar að kem-
ur. Ég er ekki kominn að fót-
um fram og ég vil líka benda
á að það eru a.m.k. 5 eða 6
þingmenn eldri en ég.“
— Hvernig líst þér á
horfurnar í stjórnmálum
núna?
„Það eru ýmsar blikur á
lofti. Ég held að það verði
ekki kosningar fyrr en næsta
vor, þótt ríkisstjórnin sem nú
situr eigi oft í miklum vanda.
Fyrst þeim tókst að klóra sig
fram úr bráðabirgðalögun-
um, held ég að þeim takist að
sitja til vors."
— Þú átt fjóra syni sem
eru frammámenn í þjóðlíf-
inu og eina myndarlega
dóttur. Þekkir þú einhverja
töfraformúlu í barnaupp-
eldi?
„Ég átti ágæta konu sem
helgaði heimilinu alla krafta
sína og uppeldið hvíldi meira
á henni en mér sem var upp-
tekinn í pólitíkinni. Það hefur
átt mikinn þátt í því hvað
börnunum hefur vegnað vel.
Þau urðu líka að læra að
spjara sig sjálf. Það var ekki
mulið undir þau. Elsti sonur
minn, Sigurður, byrjaði til
dæmis að vinna við mjólkur-
búið í Búðardal þegar hann
var um fermingu. Nú er hann
mjólkurbússtjóri þar, eftir að
hafa lært til þess í Dan-
mörku. Næstur í röðinni er
Þórður sem nú er settur for-
stöðumaður Þjóðhagsstofn-
unar. Síðan kemur Helgi
Þorgils, sem er talinn efni-
legur listmálari og ég veit að
hann er góður kennari, því
það er talsvert kennarablóð í
ættinni. Síðastur af strákun-
um ér Lýður Árni sem er
framkvæmdastjóri Vífilfells.
Yngst barnanna er Steinunn
Kristín sem er flugfreyja. Ég
á þrettán barnabörn. Það
elsta, Friðjón Rúnar Sig-
urðsson, átti einmitt 22ja
ára afmæli sl. þriðjudag."
— Hvað hefurðu fyrir
stafni á sumrin þegar þú
ert ekki á þingi?
„Það eru margir sem halda
að þingmenn séu í sumarleyfi
frá vori til 10. október, þegar
þing hefst að nýju. Það er
misskilningur. Ég hef til
dæmis undanfarið verið á
ferðalagi um Vestfirði með
fjárveitinganefnd Alþingis og
er á förum til Austfjarða,
með ferðamálanefnd sam-
gönguráðuneytisins.
Við erum nú að endur-
skoða ferðamálalöggjöfina.
Sérhver þingmaður sem ekki
vill verða eins og fiskur á
þurru landi verður að ferðast
um kjördæmi sitt og kynnast
mönnum og málefnum. Þess-
vegna hef ég lagt rækt við að
kynnast mönnum, búnaðar-
háttum og atvinnulífi á Vest-
urlandi. Eg tel mig þekkja
kjördæmið mitt vel, eftir all-
an þennan tíma."
— Hver eru helstu
áhugamál þín, auk starfs-
ins?
„Ég hef mikinn áhuga á ís-
lenskri sögu og bókmenntum
og hef gaman af ferðalögum.
En frístundirnar tengjast
óneitanlega mjög oft mínu
pólitíska starfi. Ég hef ferðast
til mjög margra landa en það
hefur aðallega verið á vegum
þingsins. Ég hef sótt fundi og
ráðstefnur hjá Sameinuðu
þjóðunum, Nato og í Norð-
urlandaráði. En nú orðið
hef ég meiri áhuga á að ferð-
ast um ísland. Ég hef líka
mikinn áhuga á tónlist og hef
sungið í ýmsum karlakórum,
Karlakór Reykjavíkur,
Lögreglukórnum og fleiri
kórum. Á árunum 1945 til
1952 söng ég í kvartettinum
Leikbræður sem ég stofnaði
ásamt félögum mínum. Carl
Billich, sem nú er nýlátinn,
útsetti fyrir okkur. Þegar ald-
arfjórðungur var liðinn frá
fyrstu tónleikunum okkar,
gáfum við út safnplötu sem
nú er löngu uppseld. í haust
ætlum við að gefa út bók með
raddsetningum Carls Billich
en ég held að það sé í fyrsta
sinn á íslandi sem gefin er út
bók með raddsetningum fyrir
kvartetta."
—• Hvað hyggstu taka
þér fyrir hendur þegar þú
hættir stjórnmálaafskipt-
um?
„Ég hef góða heilsu og hef
engar áhyggjur. Að sjálfsögðu
eru slíkar breytingar við-
brigði en þá er að taka sér
eitthvað nýtt fyrir hendur. Ég
er lögfræðingur og gæti tekið
upp þráðinn á því sviði. Ég á
góða vini og er bjartsýnis-
maður svo ég kvíði ekki
framtíðinni."
KNATTSPYRNAN
ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU
Leikir í 13. umferð karla: Möguleikar liðanna: Athyglisverðir leikmenn:
IBV
KAPLAKRIKAVELLI
laugardaginn 11. ágúst /;/. 14
Vestmannaeyingar verða án
tveggja lykilmanna í þessum
leik, varnarmaðurinn Jón Bragi
Arnarson og sóknarmaðurinn
Tómas Ingi Tómasson sem
hefur skorað næstum öll mörk
liðsins undanfarið verða í leik-
banni. Þetta dregur mjög úr
sigurlíkum Eyjamanna. Það
getur hins vegar haft áhrif að
FH-ingar hafa ekki að neinu að
keppa en Eyjamenn eru í topp-
baráttu og verða að vinna leik-
inn.
Markahrókurinn Hörður
Magnússon hjá FH heyr nú ein-
vígi við Guðmund Steinsson
um markakóngstignina. Andri
Marteinsson hefur leikið vel og
krækt sér í landsliðssæti nokk-
uð óvænt. Hjá Eyjamönnum
hefur borið mikið á Inga Sig-
urðssyni sem meðal annars lék
afskaplega vel í sigurleiknum
gegn Fram og Hlynur Stefáns-
son hefur verið góður í allt
sumar.
KR
ÞÓR
KR-VELLI
sunnudaginn 12. ágúst kl 16
KR-ingar hafa leikið vel und-
anfarið en brenna sig oft á því
að slaka á þegar þeir hafa náð
forystu í leikjum. Úrslit í þess-
um leik velta umfram allt á
hugarfari KR-inga. Þórsarar
munu án efa leggja sig fram en
leiki bæði liðin af eðlilegri getu
á KR að sigra.
Pétur Pétursson náði sér á
strik í bikarleik gegn Keflavík
um daginn eftir að hafa verið
slakur og baráttulaus í mörg-
um leikjum. Mikilvægt er fyrir
KR-liðið að hann sýni sitt rétta
andlit i næstu leikjum. Rúnar
Kristinsson hefur leikið af-
bragðsvel undanfarið, svo og
Ragnar Margeirsson. Hjá Þórs-
urum er það liðsheildin og bar-
áttan sem gildir en helst hefur
Bjarni Sveinbjörnsson skorið
sig úr undanfarið fyrir góðan
leik.
KA
FRAM
AKUREYRI
sunnudaginn 12. ágúst kl. 19
Leiki Framarar eins vel og
þeir geta sigra þeir í þessum
leik. Geri þeir það ekki geta þeir
alveg eins tapað. KA er á
heimavelli og enn i fallhættu
og munu norðanmenn án efa
veita harða mótspyrnu.
Steingrímur Birgisson KA
lék mjög vel í síðasta leik og var
valinn í landsliðshópinn gegn
Færeyjum. Steingrímur er bak-
vörður. Þórður Guðjónsson,
framherjinn kornungi vekur
eftirtekt knattspyrnuáhuga-
manna. Jón Erling Ragnarsson
í Fram hefur vakið mikla athygli
eftir að liða tók á mótið i sumar
en Framliðið nær sér ekki á
strik nema máttarstólparnir
Pétur Ormslev og Guðmundur
Steinsson leiki vel.
VALUR
STJARNAN
VALSVELLI
sunnudaginn 12. ágúst kl. 19
Valsmenn hyggja á hefndir
því þeir töpuðu fyrri leik lið-
anna nokkuð óvænt. Stjarnan
hefur sýnt það í sumar að hún
getur lagt hvaða lið sem er að
velli. Valsmenn eru samt sigur-
stranglegri því þeir eru einfald-
lega betri.
Nýliðinn Ágúst Gylfason
skoraði sitt fyrsta mark fyrir
Valsmenn í bikarkeppninni ný-
lega. Þorgrimur Þráinsson og
Sævar Jónsson hafa verið
bestu menn liðsins í sumar. Hjá
Stjörnunni eru það Sveinbjörn
Hákonarson og Lárus Guð-
mundsson úr hópi eldri leik-
manna sem mest hefur borið á
en Valdimar Kristófersson og
Ingólfur Ingólfsson af hinum
yngri.
ÍA
VÍKINGUR
AKRANESI
sunnudaginn 12. ágúst kl. 19
Skagamenn virðast stefna
beint niður í aðra deild og mikil
breyting þarf að verða á leik
þeirra ef þeir ætla sér að sigra
Víkinga sem hafa verið sterkir i
sumar. Það getur hins vegar
haft áhrif að á meðan ÍA berst
fyrir fyrstu deildar sætinu hafa
Víkingar að engu að keppa.
Atli Helgason er ungur fram-
herji í Víkingsliðinu sem hefur
vakið athygli undanfarið fyrir
góða leiki. Máttarstólpar Vík-
ingsliðsins í sumar hafa verið
Trausti Ómarsson í vörninni,
Goran Micic og Aðalsteinn Að-
alsteinsson á miðjunni og Atli
Einarsson i framlínunni. Eftir
síðustu leiki er ekki ástæða til
að nefna neinn Skagamann
öðrum fremur, það er helst að
elstu mennirnir í liðinu, Karl
Þórðarson og Guðbjörn
Tryggvason, sýni lit.
STAÐAN I FYRSTU DEILD:
leikir u j t mörk stig
Valur 12 8 2 2 21:12 26
KR 12 7 2 3 18:12 23
Fram 12 7 1 4 23:11 22
ÍBV 12 6 4 2 19:19 22
Víkingur 12 3 7 2 14:13 16
FH 12 5 1 6 16:18 16
Stjarnan 12 4 2 6 14:17 14
KA 12 4 1 7 14:16 13
ÍA 12 2 2 8 13:23 8
Þór 12 2 2 8 6:17 8