Pressan - 09.08.1990, Page 15
15
Fimmtudagur 9. ágúst 1990
Persónuleikiinn rnótcis/ í
systkinahópnnm
Þykist þú vera þinnar eigin gæfu smiður? Því miður er það
ekki rétt nema að litlu leyti. Örlög þín eru ráðin frá upphafi og
miklu máli skiptir hvar íröð systkina þú fæðist. Þegarþú velur
þér maka eða ævistarf, er trúlegt að valið byggist á því hvort þú
ert stórasystir eða litlibróðir, hvort þú átt fleiri systkini eða
hvort þú ert einkabarn.
EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR
Oft verðum við undrandi á því að vinkon-
an sem er hrókur alls fagnaðar, hlý, opin og
mikil atorkumanneskja getur átt bróður sem
er hálfgerður drumbur, seinlátur, lokaður og
þurr á manninn. Þetta er furðulegt, því þau
eru alin upp á sama stað, af sömu foreldrum
við svipaðar aðstæður. Ef svipaða sögu er að
segja af tveim bræðrum, er þetta enn ein-
kennilegra því þá er ekki einu sinni hægt að
kenna því um að kynin séu alin upp á mis-
munandi hátt. Skýringin er einfaldlega sú að
við fæðumst inn í ákveðin hlutverk eftir því
hvort við erum elst systkina, yngst, í miðj-
unni eða kannski einbirni.
Danski geðlæknirinn Oluf Marten-
sen-Larsen fullyrðir að persónuleiki okkar
mótist allverulega af stöðu okkar í systkina-
hópnum. Martensen-Larsen hefur rannsak-
að feril 15.000 einstaklinga og gerir grein
fyrir kenningum sínum í bókinni „Forstaa
ditt opphav og bli fri", sem þýðir eitthvað á
þá leið að ef þú skilur upphaf þitt getir þú
orðið frjáls. Geðlæknirinn heldur því fram að
hægt sé að ná betri stjórn á lífinu ef maður
gerir sér grein fyrir því hlutverki sem manni
er áskapað.
Ef stórasystir þekkir sjálfa sig hugsar hún
sig til dæmis tvisvar um áður en hún giftist
stórabróðurnum sem hún er svo hrifin af.
Þeirra samband getur hæglega endað með
ósköpum eða orðið eilíft stríð.
Foreldrar geta líka haft gagn af því að
þekkja eðlisþættina sem koma fram í systk-
inahópnum, svo þau geti forðast verstu gildr-
urnar. Þá er gott að vita að sama hversu
mörg börn þið ætlið að eignast ættuð þið að
hafa 3—4 ár á milli þeirra, til þess að öll börn-
in fái næga athygli og hafi eðlilegt svigrúm til
þess að þroskast.
Ef þér finnast eftirfarandi lýsingar ekki
eiga við þig, finnast auðvitað skýringar á því
líka. Málið er ekkert einfalt og fleira getur
skipt máli en röð systkinanna. Meðal þess
sem danski geðlæknirinn telur hafa áhrif eru
þættir úr uppvexti foreldra þinna. Sam-
kvæmt kenningunni skiptir það líka máli
hvar í systkinaröðinni foreldrar þínir voru,
því áhrifin eru svo sterk að þau ná allt til
næstu kynslóðar og jafnvel ennþá lengra.
Einnig skiptir máli hvað systkini eru mörg.
Því fleiri sem þau eru því ákveðnari verða
systkinaáhrifin á persónuleika þinn, líklega
vegna þess að uppeldisáhrifin frá þeim
skyggja á foreldrana að einhverju leyti. Stór-
ir systkinahópar og hálfsystkini eru líklega
algengari hér en á hinum Norðurlöndunum.
Danski geðlæknirinn sleppir hins vegar hálf-
systkinum alveg í sínu dæmi, en auðvitað
hafa þau líka áhrif á systkini sín, jafnvel þó
þau alist ekki upp saman nema að nokkru
leyti.
Eftirfarandi lýsir.gar úr könnuninni gefa til
kynna stöðuna að dómi danska geðlæknis-
ins. Svo er þitt að ákveða, hvort þetta sé hið
mesta rugl eða eigi við einhver rök að styðj-
ast.
Systkinin Lilja, Ivar og Sunnar.
___________EINBIRNI________________
Það eru alls ekki slœm örlög ad vera ein-
birni. Oft eru þau hœfari að umgangast full-
orðið fólk og ná sum skjótari andlegum
þroska en önnur börn. Yfirleitt eru. þau laus
við allan undirlœgjuhátt og óhrædd við að
fara ótroðnar slóðir. Aberandi margir geim-
farar eru einbirni.
Einkabörn standa alltaf sjálfum sér nœst
og eru því aðeins tillitssöm að það henti
þeim sjálfum. Þau giftast oft öðrum einbirn-
um. Það œttu þau þó ekki að gera, vegna
þess að þau skortir hœfileika til þess að lifa
sig inn í heim barna. Þessvegna er hætta á að
barnið þeirra geti orðið einrænn sérvitring-
ur.
___________TVÍBURAR_________________
Eineggja tvíburar vilja helst styrkja og
styðja hvor annan og hið sérstaka samband
þeirra variryfirleitt alla tíð. Tvíeggja tvíburar
lenda hinsvegar yfirleitt í eilífri samkeppni
og deila oftast með sér hlutverkum á sama
hátt og systkini sem ekki er lengra á milli en
18 mánuðir.
SYSTKINI FÆDD MEÐ
STUTTU MILLIBILI
Strákur sem eignast fljótlega yngri systur á
oft við geðræn vandamál að stríða þegar
hann eldist, en systir hans er hinn fœddi sig-
urvegari. Stelpur þroskast fyrr en strákar og
hún verður honum þvíyfirsterkari og það er
hœtta á því að hann gefist nánast upp. Oft
verður stelpan nœstum því eins og stórasyst-
ir, þó að hún sé aðeins yngri. Bróðirinn elst
því upp íþeirri trú að stelpurnar geti mest og
viti mest. Hann giftist helst ímynd systur sinn-
ar, sterkri og duglegri konu. Systir hans ætti
helst að velja sér eiginmann sem er litlibróð-
irinn í s'mum hópi.
Ef strákur eignast bróður innan 18 mán-
aða getur það líka orðið erfitt fyrir báða.
Samkeppnin verður hörð og báðir eiga á
hættu að verða uppstökkir œsingamenn.
Stelpur sem eru fœddar með stuttu millibili
eiga líka í samkeppni. Þœr berjast um hylli
föðursíns og líður trúlega best í hjónabandi
með manni sem er töluvert eldri.
Stelpa sem á litlu yngri bróður verður trú-
lega dœmigerð stórasystir bróður síns.
STÓRIBRÓÐIR
LITLASYSTIR
Þetta er óskadraumur hverrar fjölskyldu,
því niðurröðun systkina á þennan hátískap-
ar réttu skilyrðin miðað við uppbyggingu
þjóðfélagsins. Nokkur aldursmunur þarf þó
helst að vera á milli systkinanna, helst ekki
minna en tvö og hálft ár. Stóribróðir verður
ábyrgðarfullur einstaklingur og litla systir
kennir honum listina að sýna tilfinningar.
Bróðirinn þarf ekki að berjast fyrir yfirráð-
unum og verður ekki of framagjarn. Litla-
systir getur klifrað í trjám og leikið sér jöfn-
um höndum að dúkkum og bílum. Hún á
auðvelt með að umgangast karlmenn og hef-
ur góða möguleika á að ná langt í atvinnulíf-
inu samfara góðu heimilislífi. Makar við
hœfi eru: litlasystir fyrir stórabróður og
stórasystir fyrir litlabróður.
STÓRASYSTIR
LITLIBROÐIR
Stórasystir gætir bróður síns og er líkleg til
þess að láta hans þarfir ganga fyrir sínum.
Systkinin verða góðir vinir, en staðföst trú
stórusystur á því að karlmenn séu hjálpar-
þurfi bendir til þess að henni líði best með