Pressan - 09.08.1990, Qupperneq 22
í í t
22 Fimmtudagur 9. ágúst 1990
Konráð Halldórsson framkvcemdastjóri í Kaliforntu:
LAUS VIÐ LÍFSGÆl
Konráð Halldórsson hélt til Bandaríkj-
anna á nýársdag árið 1980. Hann var með
eittþúsund dollara í vasanum ogloforð um
starfen hann vissi svosem ekkert útí hvað
hann var að fara. ISúna, tíu árum síðar, er
hann framkvæmdastjóri á virtu veitinga-
húsi í Carmel í Kaliforníu.
Konráð sá ég fyrst síðla kvölds, fyrsta kvöldið mitt í Carmel.
Við vorum nokkrir íslendingar í „stjörnuleit" því mér hafði
verið sagt að leikarinn og fyrrum bæjarstjóri Carmel, Clint
Eastwood, sæti gjarnan á ákveðnum bar og fengi sér drykk
fyrir svefninn. Það er skemmst frá því að segja að ég fann ekki
Clint. í staðinn hitti ég Konráð Halldórsson og eftir á að
byggja var það síst verri kostur en að finna Clint.
Hann er greinilega skipulagður og varkár og lofar engu sem
hann ekki getur staðið við. Hann sagðist skyldu koma í viðtal
um hádegi næsta dag og á slaginu hálf eitt vorum við lögð af
stað í bílnum hans, hvitum Porsche árgerð ’65 inn í Carmel dal-
inn, þar sem við komum okkur fyrir við útisundlaug undir heit-
um sólargeislum Kaliforníu.
Konráð lauk námi frá Hótel- og veitingaskóla Islands árið
1969 og starfaði á Hótel Loftleiðum og Esju þar til hann og
bróðir hans, Birgir Viðar, tóku að sér rekstur Hótels Vest-
mannaeyja um áramótin 73/74. Móðurætt þeirra bræðra er
úr Vestmannaeyjum og þegar sú staða kom upp eftir gos að
hótelið var til sölu ákváðu bræðurnir að gera tilboð og ráku
hótelið um fimm ára skeið.
Ekki gull og grænir skógar
Hann fór í Bandaríkjaferð árið 1978 og aftur 1979 og þar
fæddist draumurinn um að flytja út. Fyrsti staðurinn sem hann
heimsótti var Chicago, þangað sem hann fér með
Skál-klúbbnum svonefnda, en meðlimir í honum eru
frammáfólk fyrirtækja sem tengdust ferðamálaiðnaðinum.
,,Ég hafði alltaf verið hrifinn af Bandaríkjunum, jafnvel áður
en ég heimsótti þau fyrst," segir Konráð. I þessari fyrstu ferð
sinni til Chicago kynntist hann eiganda veitingastaðar í borg-
inni, sem bauð honum starf hvenær sem hann vildi:
„Það tók um tvö og hálft ár að fá atvinnuleyfi á þessum
tíma," segir Konráð. „Nú hafa lögin hins vegar verið hert til
muna þannig að það er ekki hlaupið að því að fá atvinnuleyfi.
Ég ráðlegg engum að rjúka til Bandaríkjanna í þeirri von að
hér sé gull og græna skóga að finna. Það er ekki eins auðvelt
og margir halda að koma sér áfram í Bandaríkjunum. Það á
enginn að hreyfa sig að heiman fyrr en hann er kominn með
örugga atvinnu hér og atvinnuleyfið í hendurnar."
Þegar hann fór í síðari Bandaríkjaferðina var draumurinn
um að setjast þar að orðinn enn sterkari. Hann frétti að Ari
Garðar matreiðslumaður væri starfandi í Carmel og hringdi
til hans: „Ég þekkti Ara lítið sem ekkert en hafði heyrt að það
væri möguleiki að fá starf hjá fyrirtækinu sem hann vann hjá,
Quail Lodge sem er staðsett í Carmel Valley. Mér hafði verið
boðin vinna í Chicago og á Miami Beach en Ari ráðlagði mér
eindregið að koma frekar hingað. Hér hef ég verið síðan."
Ari Garðar var fyrsti íslendingurinn sem hóf störf í Carmel
og nokkrum dögum eftir að Konráð fór út kom þangað einnig
Jón Magnússon matreiðslumaður, sem þið eigið eftir að lesa
um síðar í PRESSUNNI.
„Ari vann á „Fish-house“ en fyrsti staðurinn sem ég vann
á heitir „Covey", en báðir þessir staðir eru í eigu Quail Lodge.
Fyrst í stað bjó ég inni á Ara, en síðar leigðum við Jón Magnús-
son ásamt Einari Sigurðssyni hús, þangað til fjölskylda mín
kom út."
í tvöfaldri vinnu
Á þessum tíma var Konráð giftur og konan hans, Margrét
Sveinsdóttir kom til Carmel með nýfædda dóttur þeirra í ág-
ústmánuði 1980: „Það þýddi ekki annað en að ég færi einn út
í fyrstu til að kanna aðstæður. Það er útilokað að byrja á að
flytja út með fjölskyldu. Við eignuðumst aðra dóttur ári síðar
en konan mín undi sér ekki hér. Ég var í vinnunni frá morgni
til kvölds og það var erfitt fyrir Margréti að vera innilokuð með
ungbarn; hvað þá þegar þau voru orðin tvö. Ég vann tvöfalda
vinnu, á daginn á ítalska staðnum Casanova inni í Carmel og
á Covey inni í dal á kvöldin. Það er erfitt að koma sér áfram
hér,“ segir hann. „Byrjunarlaunin eru mjög lág, húsaleiga dýr
og allt í Carmel er mun dýrara en í Monterey, borginni sem
er í tíu mínútna fjarlægð."
Þjónustulundin er öllum í fjölskyldunni í blóð borin. Bræður
Konráðs, Birgir Viðar og Halldór ráku ásamt móður þeirra,
Fanneyju Magnúsdóttur, veitingastaðinn „Hauk i horni" á
Hagamelnum um skeið: „Birgir byrjaði í Hótel- og veitinga-
skólanum og ég fylgdi á eftir, en það er tveggja ára aldursmun-
ur á okkur."
Eftir eins og hálfs árs starf á Casanova var Konráð gerður að
yfirþjóni staðarins: „Ég starfaði þó áfram á Covey, en aðeins
tvö kvöld í viku undir það síðasta. Þá varð ég veitingastjóri á
Casanova, en það er næsta skref fyrir ofan yfirþjónsstöðuna.
Eigendur Casanova kevptu síðan annan stað, þar sem ég var
einnig yfirþjónn á sama tíma, Fandango. Sá staður var í
spænskum stíl og maturinn að hætti Baska."
A kosningahátíð hjá Clint Eastwood
I framhaldi af vonlausri leit að kvikmyndastjörnum kvöldinu
áður spyr ég Konráð hvort það sé rétt að það sé daglegur við-
burður að þekkt fólk gangi um götur Carmel: „Maður sér þetta
fólk stundum," svarar hann. „Bæjarbúar láta það alveg í friði,
en það eru einstaka ferðamenn sem stökkva á stjörnurnar."
Honum finnst lítt merkilegt að hafa þjónað þessum stjörnum
og það var ekki fyrr en síðar í þessari Carmel dvöl að ég sá
mynd af Konráð með Clint Eastwood á kosningahátíðinni
þegar Clint var kosinn borgarstjóri: „Það er kannski gaman að
geta sagt að ég hafi þjónað þessari stjörnu eða séð aðra, en að-
alatriðið er að þær eru bara venjulegt fólk sem vill fá að njóta
matarins og kvöldsins og það í friði. Ég reyni alltaf að sjá til
þess að svo sé.“ Aðrar þekktar stjörnur sem hafa borðað á veit-
ingastöðunum sem Konráð hefur veitt forstöðu eru Stephanie
Hvert sem farið var með Konráði þekkti hann fólk. Meira að segja
á sundlaugarbarminum kallaði þessi fallega Ijósmyndafyrirsæta
á hann, en hún hafði sýnt fatnað á veitingahúsi sem Konráð starf-
aði á áður fyrr.
Powers, Allan Funt stjórnandi og framleiðandi þáttanna
Candid Camera, Morgan Fairchild, Doris Day og fleiri.
Meðlimir hljómsveitarinnar Earth, Wind and Fire áttu líka
stóra landareign og hús með fullkomnu stúdíói í Camel daln-
um: „Þeir voru með stórt hús á leigu í bænum og höfðu þar
fullkomið stúdíó. Allan Funt býr hér einnig og John Travolta
kemur stundum hingað í frí.“
Enginn hefur getið upp á
að hann sé íslenskur
Honum finnst reyndar skemmtilegra að fá íslendinga á veit-
ingastaðina en frægt fólk: „Nei, það vita fáir að ég er frá ís-
landi," segir hann aðspurður. „Margir reyna að geta upp á því
frá hvaða landi ég er, en það hefur enginn nefnt Island ennþá!"
Þegar Konráð vann á Casanova var staðurinn opinn allan
daginn og það var þar sem hann hitti fyrstu íslendingana:
„Einn morguninn þegar við vorum að skipta frá morgunverði
yfir í hádegisverðarseðil hitti ég fyrst íslendinga í heimsókn í
Carmel," segir hann. „Ég var eitthvað upptekinn þegar ég
heyrði íslendinga vera að tala saman frammi í sal. Þetta voru
þá Jakob Frímann Magnússon, Anna Björnsdóttir, Sigur-
jón Sighvatsson og Jónas R. Jónsson. Jakob leit á matseðil-
inn og spurði mig síðan — auðvitað á amerísku — hvort ekki
væri hægt að fá morgunverð: „Við hljótum að geta bjargað
því," svaraði ég á íslensku!"
Fleiri íslendingar hafa komið inn á staðina sem Konráð hefur
starfað á, en hann hefur ekki hitt þá alla: „Stundum sé ég ís-
lensk nöfn á kreditkortanótunum. Það er alltaf einhver reiting-
ur af íslendingum hér. Einu sinni var ég staddur í Lake Tahoe
í Nevada þegar ég heyrði í íslendingum. Þá kom í ljós að þetta
voru ferðamenn á vegum Landsýnar með Dóru Hjartar sem
fararstjóra og ætluðu sér að fara til Kaliforníu og í gegnum Car-
mel. Ég var ekki lengi að bjóða þeim öllum heim í drykk og
snittur, því það er ekki á hverjum degi sem íslenskur hópur
mætir hér!“
Hann vissi ekkert hvaö hann var að fara út í þegar hann lagði af
stað til Kaliforniu á nýársdag 1980. Nú er Konráð Halldórsson
framkvæmdastjóri á virtu veitingahúsi í Carmel.
Konráð starfar núna sem framkvæmdastjóri á veitingastað
sem heitir „Diána" og er í eigu Grikkja: „Þessi staður tekur 90
manns innandyra og 35-40 úti á „patíói", þar sem er arineldur,
litrík tré og plöntur og sólhlífar," segir hann. „Við erum með
nokkra gríska rétti eins og grísk salöt, osta, lambahrygg að
hætti Grikkja, sem er marineraður og við notum eingöngu
grískar olíur. Síðan erum við einnig með Egg’s Iceland í há-
deginu, en það eru hleypt egg með reyktum laxi. Mitt starf felst
í því að sjá um rekstur salar og eldhúss og fara yfir innkaup og
bókhald, — semsé staðinn í heild."
Hann bauð mér til kvöldverðar á veitingastaðnum sem hann
rekur. Diána er staðsett á jarðhæð verslunarbyggingar, Car-
mel Plaza, „Kringlunnar okkar hér," segir Konráð, en hún
stendur við aðalgötu bæjarins, Ocean Avenue. Þarna eru
verslanir af ýmsu tagi, sem og veitingastaðir, og fyrir framan
veitingastaðinn Diönu er allt þakið blómum og trjám. Það þarf
ekki að leita að Konráði þegar niður stigann er komið: hann
stendur uppábúinn fyrir framan dyrnar og tekur á móti gest-
um.
Þetta kvöld sýndi það sig enn einu sinni að heimurinn er lít-
ill. Þegar blaðamaður PRESSUNNAR mætti til kvöldverðar
voru fjórir íslendingar nýfarnir út af staðnum. Þetta voru hjón-
in Anna Agnarsdóttir og Ragnar Árnason hagfræðingur
ásamt tveimur börnum sínum, en þau hafa verið búsett í Kan-
ada síðasta ár. Þau höfðu staðið fyrir utan veitingastaðinn og
verið að lesa á matseðilinn þar sem börnin vildu fá hamborg-
ara. Konráð heyrði til þeirra, gekk að þeim og sagði að þetta
væri ekkert vandamál, dæturnar skyldu fá hamborgarana
sína!
Það er áberandi að Konráð er eins og heima hjá sér í Carmel.
Hvert sem farið var heilsaði honum fólk og margir þurftu að
ræða við hann um lífið og tilveruna. Og það voru ekki aðeins
þeir bandarisku sem báru þessum íslendingi góða sögu; í litlu
Islendinganýlendunni í Carmel er sama virðingin í fyrirrúmi.
Nær allir sem þangað hafa komið á síðustu árum hafa átt vísan
samastað á heimili Konráðs. Hann býður íslendingunum húsa-
skjól, lánar þeim peninga og styður við bakið á þeim meðan
fyrstu skrefin eru stigin. Og skiptir aldrei skapi.
Drykkjusiðir Bandaríkjamanna
og íslendinga ólíkir
Þegar Konráð er spurður hvort honum finnist einhver mun-
ur á að þjóna íslendingum og Bandaríkjamönnum svarar
hann: „Mér fannst munur á þeim þegar ég flutti út. Matarvenj-
ur eru ekki mjög ólíkar, en drykkjusiðirnir allt aðrir. Banda-
ríkjamenn eru almennt kurteisari gestir en íslendingarnir voru