Pressan - 18.10.1990, Blaðsíða 18

Pressan - 18.10.1990, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 18. OKTÓBER HVAÐ ER SVONA LOKKANDI VIÐ en dökkhærðar og rauð- hærðar. Þær eru mýkri og kvenlegri og ímynd þeirra og ára minna á æsku og sakleysi. LJÓSKA í GEGN Það er því kannski ekki furða að goðsögnin um ljósk- una er eins og samsafn jafn- vel ýktustu hugaróra karl- manna um konuna. En finna konur fyrir því hvort þær eru ljóskur eða ekki: „Ég er afskaplega meðvit- uð um að ég er ljóska," segir Rósa Ingólfsdóttir, yfirljóska Islands. „Mér finnst ég nor- ræn og það er það sem ég vil vera. Eg hef prófað að vera dökkhærð og það klæðir mig afskaplega vel. En ég kann samt ekki nógu vel við það vegna þess að ég er ljóska í gegn og verð það fram í rauð- an dauðann. Þetta er svo mikill hluti af persónuleika mínum.“ En hvað er það við ljósk- urnar sem gerir þær svona sérstakar? „Ég held að það komi til vegna þessa geislandi útlits," segir Rósa. „Það er allt svo létt og leikandi í kringum þær. Allt sem er dökkt erj veg eins og það átti að vera. Og síðan skapaði Guð fyrstu Ijóskuna. Þannig er sköpunarsagan í meðförum Paulu Yates, fjöl- miðlungs og ljóskusérfræð- ings. Paula, sem einnig er þekkt sem eiginkona Bobs Geldof, hefur skrifað bók um Ijóskur; það er ljóshært kven- fólk, „Blondes". Þar endurrit- ar hún mannkynssöguna og rekur þráðinn frá einni ljósku til annarrar; allt frá Evu til Evu Peron og frá Messalínu til Mae West. Það eru svo sem engin stór- afrek mannsandans sem skrifast á reikning ljóskanna hennar Paulu, utan hvað þær ærðu karlmenn. Samkvæmt sögu Paulu hefur alltof mikið verið gert af því að velta upp sakleysi ljóskunnar og við- kvæmni en sjónum ekki ver- ið beint að hinu eiginlega eðli hennar, sem er; að rífa öll föt- „Þá lét Drottinn Guð fastan svefn falla á mann- inn; og er hann var sofnað- ur tók hann eitt af rifjum hans og fyllti aftur með holdi. Og Drottinn mynd- aði konu af rifinu, er hann hafði tekið úr manninum, og leiddi hana til manns- ins." Mósebók 2:21—22 „ÓÁ" sagði Guð þegar hann leit yfir handverk sitt. „Það er eitthvað vitlaust við þetta." Og hann komst að því að hárið var ekki al- eru fieiri eru þau jafnframt þynnri og mýkri viðkomu. Það hefur því sömu áhrif á karlmanninn að strjúka sín- um hrjúfu höndum í gegnum hár ljóskunnar og það hefur yfirleitt á hann að strjúka húð konunnar, sem er miklu mýkri viðkomu en húð karls- ins vegna fleiri fitukirtla. Önnur ástæða fyrir því að karlar falla fyrir ljóskum er sú, að þær hafa unglegri ímynd en dökkhærðar konur. Æskan hefur kynferðislegt aðdráttarafl og ljósi liturinn er tengdur æsku og sakleysi. Þannig eru ekki til dökk- hærðir englar og varla nokkrar hreinlyndar hetjur. Auk þess verða eliimörk meira áberandi á dökkhærð- um konum. Líkamshár auk- ast með aldrinum og minna á ellina en þau verða síður sýnileg á ljóshærðum kon- um. Samkvæmt Desmond Mor- ris eru ljóshærðar konur því einfaldlega kynþokkafyllri in út úr fataskápnum, kasta þeim á gólfið og kveina: „Ég á ekkert til að vera í.“ LÍFFRÆÐILEGAR SKÝRINGAR Á GOÐSÖGNINNI En það hafa fleiri en Paula Yates velt fyrir sér marg- slungnum goðsögnum um ljóskuna. Einn þeirra er Des- mond Morris, mannfræðing- ur og höfundur „Nakta ap- ans“. Eins og hans er von og vísa reynir að hann að finna skýringar á goðsögninni. „Gentlemen prefer blon- des“ eða „herramenn kjósa fremur ljóskur" er útbreitt orðatiltæki í enskumælandi löndum. Desmond Morris kemst að því að það sé í hæsta máta eðlilegt. Þannig er að ljóshært fólk hefur mun fleiri hár á höfðinu en dökk- hært, að ekki sé talað um rauðhært. Og þar sem hárin -

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.