Pressan - 18.10.1990, Side 21
21
LISTAPÓSTURINN
Haraldur C.
Geirsson
kemur heim
Trúarleg ljóð hafa ekki átt upp á
pallborðið hjá skáldum um árabil,
með örfáum undantekningum að
vísu. Það sætir hins vegar nokkrum
tíðindum að einn glataður sonur ís-
lands, HARALDUR C. GEIRSSON, send-
ir frá sér bókina „Hin nýja sýn“, sem
inniheldur 34 trúarleg ljóð. Harald-
ur þessi er Vestur-Islendingur á
miðjum aldri og hefur alið aldur
sinn í Kanada. íslenskan er honum í
blóð borin og mun skáldskapur
hans einkar þróttmikill og innblás-
inn. Smekkleysa hefur tekið Harald
C. upp á arma sína og gefur bókina
út...
Heimakærir
Sykurmolar
Sykurmolarnir, óskabörn íslensku
þjóðarinnar, fara sér hægt um þess-
ar mundir en eigi að síður er hljóm-
plata í deiglunni. Hljómsveitin ætlar
ekki að fara til útlanda til þess að
taka upp lög sín, en fær útlenska
tæknimenn hingað upp á klakann.
Á næstunni er áformað að taka
nokkur lög upp en engin dagsetning
hefur verið ákveðin vegna útgáfu.
Sykurmolarnir ætla sem sagt að
taka það rólega meðan vasapening-
arnir endast...
Lao Tse
áfram veginn
Bókin um veginn, spekimál Lao
Tse, er nú væntanleg í þriðju útgáfu.
Bræðurnir jakob j. smári og yngvi
jóhannesson íslenskuðu bókina á
sínum tíma, en halldór laxness
skrifaði formála að 2. útgáfu. Bókin
um veginn hefur ratað víða hérlend-
is, og keppir við Hávamál í vinsæld-
um þegar valdar eru tilvitnanir í
minningargreinum ...
Sverrir til
Mexíkó
Háskólasafnið í Mexíkóborg hefur
boðið SVERRI ÓLAFSSYNI mynd-
höggvara til sex vikna vinnudvalar
og þátttöku í sýningu safnsins á
framúrstefnuskúlptúr. Sverrir er í
hópi tíu listamanna frá jafnmörgum
löndum sem safnið býður til sín.
Ekki þarf að efast um að dvölin þar
vestra verði hinum frumlega lista-
manni ríkulegur innblástur ...
„Sumum
fannst ví st
Ibba vera
djöfulódur
dóni“
Morgunspjall við Vigdísi Gnmsdottur um
Minningabók, ísbjörgu og götótta strætisvagna
Verkamenn meö hávœrar vinnuvélar fletta malbikinu
af Skarphéöinsgötu eins og appelsínuberki. Ærandi há-
vaöinn berst inn í litla íbúö viö Njálsgötu og nístir gegn-
um merg og bein. Þaö er eins og tannlœknir meö ógnar-
stóran borgangi laus. „Þeireru mjög vinnusamir" segir
Vigdís og lítur út um gluggann, „og alveg sérstaklega
snemma á morgnana og um helgar. Meö þessu áfram-
haldi veröur enginn Mozart-taktur í nœstu bók, heldur
drr-brr-drr-taktur."
EF FRAMTÍÐIN ER TIL
Á næstu dögum kemur út fimmta
bók Vigdísar Grímsdóttur, „Minn-
ingabók". Áður hefur hún sent frá
sér tvö smásagnasöfn og tvær skáld-
sögur. Sagan um ísbjörgu var umtal-
aðasta bók síðasta árs. Mörgum
þótti Isbjörg vond manneskja. Hún
var fyrsta skáldsagnapersónan sem
sló í gegn í saumaklúbbum. En
„Minningabók" hefur að geyma
ljóð, Eða hvað?
„Ég er ekki viss um að þetta sé
endilega ljóðabók. Þetta er ein sam-
fella, einn fljótandi ljóðabálkur. Mér
finnst erfitt að skilgreina bókina,"
segir hún, og bætir svo við til út-
skýringar: „Það er oft lítið á síðu.“
Við tölum um þá tilætlunarsemi
blaðamanna að krefja höfunda um
efnislýsingar á glóðvolgum skáld-
skap. Og svo spyr ég náttúrlega um
efni bókarinnar.
„Hún fjallar um fortíð og nútíð —
og framtíð. Ef hún er til.“ Hlær. „Ég
held að það sé ekki gáfulegt að tjá
sig mikið um bókina. Þetta er stysta
bók sem ég hef skrifað, en samt sú
lengsta. Hún er „lengri" en bæði ís-
björg og Kaldaljós."
Eigum við að tala um ísbjörgu?
segi ég.
„Ænei, ekki Ibbu. Það er ekkert
um hana að segja. Hún er mynd
uppi á vegg.“ Vigdís þagnar en
vinnuvélarnar fylla upp í þögnina.
„Mynd uppi á vegg sem fer í taug-
arnar á fólki. Fólk kunni ekki við
Ibbu, fannst hún djöfulóður dóni.
Eins og mér finnst hún nú hlý stelpa.
En sumum fannst hún svo ljót og
vilja ekki að skrifað sé um annað en
fegurðina. Afmarkaða og fyrirfram
mótaða fegurð. Það eru þeir sem
upplifa náttúruna með því að ganga
út í grænt gras og anda að sér hreinu
lofti. Þeim þykir ekki gott að éta
moldina þó það sé kannski ekki síð-
ur fallegt. í bókmenntum er því mið-
ur ákveðinn stíll, rammi, alveg eins
og í tískuheiminum til dæmis. Það
þykir ekki gott að fara út fyrir
rammann."
Komu viðbrögðin við ísbjörgu þér
á óvart?
„Á óvart? Nei, í sjálfu sér ekki.
Nema kannski hvað þau voru mikil.
Menn mega alveg halda að ég sé að skrifa um sjálfa mig í nýju bókinni...
En auðvitað voru ekki allir nei-
kvæðir í garð ísbjargar. Og maður
getur alltaf verið ánægður með við-
brögð, þótt þau séu misgleðjandi
fyrir hjartað. Það er allt í lagi. Það
kom mér mest á óvart hvað margir
héldu að ég væri að skrifa um sjálfa
mig, bæði þegar Kaldaljós og ís-
björg komu út. En menn mega alveg
halda það þegar þeir lesa nýju bók-
ina. Enda er hún ekki í neinum dul-
búningi.“
Ég spyr um auglýsingaflóðið sem
fylgdi Isbjörgu. Vigdís kom sjálf
fram í sjónvarpsauglýsingum: „Hún
er...“
„Ég sá aldrei eina einustu auglýs-
ingu og vissi ekkert af þessu," segir
hún sannfærandi. „Mér var ekki
sagt frá því fyrr en löngu síðar hvað
bókin var auglýst mikið. Ég var að
sinna öðrum og mikilvægari mál-
um.“
ÞAÐ SEM ALLIR SPYRJA UM
Yfir í aðra sálma. Finnst þér gam-
an að skrifa?
„Já, það finnst mér!“ Vigdís ljóm-
ar. „Að skrifa er það skemmtileg-
asta sem ég geri. Svo spyrðu áreið-
anlega hvort það sé ekki erfitt að
skrifa."
Nei.
„Ekki það? En ég væri ekki að
skrifa ef mér fyndist það leiðinlegt.
Fólk spyr mig stundum hvort þetta
sé þá ekki eins og leikur, hvort ég sé
bara að leika mér í vinnunni."
En er ekki erfitt að skrifa?
„Nei. Það er ekki svo erfitt," svar-
ar hún eins og í hálfkæringi. „Uss,
jú, stundum. En það er ekki það erf-
iðasta sem ég geri. Og ég hef aldrei
verið aðframkomin af erfiðleikum.
Það er ekki fyrr en ég er búin með
bók sem alls kyns vafstur byrjar.“
Eins og viðtöl til dæmis?
„Ja ... stundum. Það eru þessar
sömu spurningar, aftur og aftur. En
þú ert ekki búinn að spyrja mig
þeirrar spurningar sem allir blaða-
menn koma með.“
Hvaða spurning er það eiginlega?
„Um kvennabókmenntir. Og
hvort það sé ekki erfitt að vera kona
og skrifa."
Ég hafði bara ekkert hugsað út í
það, segi ég hálfskömmustulegur.
Tölum frekar um vafstur. Finnst þér
erfitt að koma fram opinberlega?
„Mér finnst voðalega erfitt að lesa
upp. Það venst eins og allt annað, en
maður sjóast ekki mikið. Hún fylgir
alltaf, tilhugsunin um að byrja allt í
einu að stama, missa málið, týna
þræðinum...“ Nú heyrist ekki
mannsins mál um stund fyrir vinnu-
glöðum verkamönnum. „Nú reynir
á þolinmæðina," segir Vigdís æðru-
laus þegar skarkalinn deyr út. Held-
ur svo áfram: „Bestu bækurnar
verða til þegar maður er að vakna,
áður en maður getur eyðilagt hugs-
unina með því að festa hana á blað.
Það er líka gott að semja bækur í
huganum í strætó. Sérstaklega í
Hafnarfjarðarvagninum."
Er hann skáldlegur?
„Já, Hafnarfjarðarvagnarnir eru
góðir. Þeir leka. Þeir eru götóttir. En
þeir hafa einkaleyfi, eru þeir einu á
landinu sem hafa leyfi til að láta
snjóa á farþegana." Vigdís lítur
rannsakandi á stílabókina mína.
„Ætlarðu að skrifa þetta allt?“
Já. En þú getur náttúrlega strikað
allt út ef þú vilt.
„Já, já“ segir Vigdís ánægð.
„Þetta er auða viðtalið. Svo geta les-
endur sjálfir skrifað það sem þá lyst-
ir. Auðvitað."
Hrafn Jökulsson