Pressan - 18.10.1990, Page 26
iruð hjón á Arnarnesi
Skilnðn inn nafnskírteinnnnm
og sögðn sig úr þjöðfélaginn
— aldrei lifað
óhyggjulausara
og betra lífi,
segir eiginmaðurinn
Faðir Donalds Trump er íslenskur
Hef einn sinni
fengið jólakorl
frá syni mínnm
— segir faðirinn
sem býr við
bógan kost á Flateyri
Einstæð móðir í Árbæjarhverfi
Fékk þrettán milJjón
króna símareikning
— Þriggja óra sonur hringdi
í klukkuna í Japan áður en
þau fóru í sumarleyfi
og símtalið stóð yfir
■ 675 klukku-
Halldóra Jörgensen
með Þórhall, þriggja
ára son sinn, sem
hringdi óvart í klukk-
una í Japan
Steingrímur 1 Sigfússon
landbúnaöarráöherra
leitar hjálpar
Afturgengið
riðufé
ásækir
ráðherrann
— kallar hann
fjöldamoröingja og unnir
honum ekki svefns
Kópaskeri, 17. október
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR hefur
Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra leit-
að aðstoðar þjóðkirkjunn-
ar til að kveða niður aftur-
gengið riðufé sem ásækir
hann.
Ráðherrann vildi ekkert tjá
sig um málið í samtali við
GULU PRESSUNA. Einn af
nánustu vinum Steingríms
sagðist hins vegar óttast um
heilsu hans.
„Hann hefur vart náð að
festa blund í margar vikur. í
hvert sinn sem honum renn-
ur í brjóst birtast rollurnar
honum og hann hrekkur upp
aftur. Það getur tekið marga
klukkutíma að róa hann aft-
ur,“ sagði fjölskylduvinurinn.
Féð, sem ásækir Steingrím,
var skorið niður í fyrra og
hitteðfyrra samkvæmt til-
mælum ráðherrans. Hin op-
inbera skýring á niðurskurð-
inum er sú að koma ætti í veg
fyrir útbreiðslu riðuveiki.
„Rollurnar halda því hins
vegar fram að þær hafi ekki
verið með neina riðu. Niður-
skurðurinn hafi einungis ver-
ið einn liðurinn í fækkun
sauðfjár. Þær ganga hart á
ráðherrann og kalla hann
fjöldamorðingja og öðrum
ónefnum. Ein þeirra gekk svo
langt að kalla ráðherrann
Eichmann," segir fjölskyldu-
vinurinn.
Jakob Frímann
Magnússon
Studmaður
Kjörinn í
flokksstjórn
Alþýðu-
flokksins
Egilsstöðum, 10. október
ÍSLENDINGAR GANGA ÚR
SAMEINUÐU ÞJÓDUNUM
SJAMPÓ
FYRIR
ÓHREINT
HÁR
ESCO, barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna, vegna árs læs-
is. Albert mun hins vegar,
vegna ókunnugleika, hafa
farið í höfuðstöðvar OPEC,
Samtaka olíuframleiðslu-
ríkja, og skrifað þar undir
umsögn um inngöngu. Þegar
sendiráðinu í París varð þetta
ljóst var Albert sendur aftur
af stað til að leiðrétta mistök-
in, en svo óheppilega vildi til
að Albert fór húsvillt á ný, nú
inn í höfuðstöðvar OECD, og
dró umsókn íslendinga frá
1951 til baka. Enn var reynt
að draga umsóknina í OPEC
til baka en það tókst ekki bet-
ur en svo að Albert sendi
harðort bréf um úrsögn á vit-
Iaust heimilisfang, það er til
höfuðstöðva Sameinuðu
þjóðanna.
„Það er ekki fyrir hvítan
mann að þekkja allar þessar
stofnanir í sundur," sagði Al-
bert í samtali við GULU
PRESSUNA. „Auk þess sýnist
mér þetta allt vera meira og
minna sama tóbakið."
Júlíus Þórmundsson
uppfinningamaður
íslensk uppfinning:
New Yorky 18. október
Islendingar gengu úr
Sameinuðu þjóðunum í
gær. Fyrir tveimur dögum
drógu íslendingar auk
þess til baka umsókn sína
um aðild að OECD, Efna-
hags- og framfarastofnun-
inni í París.
Samkvæmt heimildum
GULU PRESSUNNAR gérðist
þetta með þeim hætti að Al-
bert Guðmundssyni, sendi-
herra í París, var falið að
skrifa undir samþykkt UN-
Þórshöfn, 17. október
Þorfinnur Jökulsson
loðdýrabóndi situr nú
uppi með tvo fullvaxna
fíla og sjö nashyrninga
vegna misskilnings sem
varð við pöntun á ang-
órakanínum til undan-
eldis. Þorfinnur er einn
margra loðdýrabænda
sem hafa orðið illa úti
vegna erfiðleika í grein-
inni. Samkvæmt ráð-
leggingum búnaðarfé-
lagsins hugðist hann
snúa sér að ræktun ang-
órakanína. En svo
óheppilega vildi til að
pöntun hans á kanínum
til undaneldis misfórst
og í stað þeirra fékk
hann send villidýr frá
Afríku.
„Úr því sem komið er
segja sérfræðingar búnað-
arfélagsins að ekki verði
aftur snúið," segir Þorfinn-
ur. „Þeir hafa lofað mér
hagstæðum lánum til að
stækka eldisbúrin og segj-
ast ætla að verða mér inn-
an handar í alla staði.“
„Miðað við fyrstu
viðbrögð virðist sem
þetta hafi vantað á
markaðinn," sagði
Júlíus Þórmundsson,
uppfinningamaður á
Egilsstöðum, en hann
hefur þróað nýtt
sjampó sem sérstak-
lega er gert fyrir
óhreint hár.
„Eftir að hafa kannað
markaðinn komst ég að
því að það var til
sjampó fyrir þurrt hár,
feitt hár, lífvana og líf-
legt, grátt hár, hár með
flösu og jafnvel venju-
legt hár. En það hefur
engum áður dottið í hug
að framleiða sjampó
fyrir óhreint hár,“ sagði
uppfinningamaðurinn
og sagðist bjartsýnn á
framhaldið.
Þjóöarflokkurinn:
FER FRAM í NOREGI
Stofangru 17. október
Þjóðarflokkurinn ís-
lenski hefur ákveðið að
bjóða fram í sveitar-
stjórnarkosningum í
Norður-Noregi næsta
haust og jafnframt
leggja niður alla starf-
semi á íslandi.
„Við vorum ekki sátt við
útkomu okkar úr síðustu
kosningum," sagði Pétur
Valdimarsson, formaður
flokksins, við GULU
PRESSUNA. „Eftir að hafa
skoðað stöðuna gaumgæfi-
lega sáum við ekkert at-
hugavert við stefnu flokks-
ins eða málflutning fram-
bjóðenda. Hins vegar virð-
ist sem íslenska þjóðin hafi
ekki áttað sig á stefnumál-
um okkar. Við hófum því
leit að nýrri þjöð og teljum
okkur hafa fundið hana í
Norður-Noregi og einkum á
svæðinu í kringum Lofo-
ten.“