Pressan - 31.01.1991, Blaðsíða 4

Pressan - 31.01.1991, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. JANÚAR 1991 Dagbók barnsins Ef einhverjir eru svo illa upplýstir að vita ekki deili á frænda mínum Reimari þá er þeim ekki viðbjargandi. Hann er orðinn svo frægur að mér var sagt að maður nokkur hefði nýlega afþakk- að góða stöðu á Isafirði með þessum orðum: Ég læt ekki börnin mín alast upp í kaup- stað sem getur af sér annað eins afkvæmi og hann Reim- ar. Kona sagði hins vegar að það væri trúa sín að sá dagur kæmi að ísafjarðarkaupstað- ur yrði skrautlýstur honum til heiðurs. En best að byrja á sögunni. Reimar fór i skrifstofu- skúffuna mína og sótti sér doilu með brilljantíni. Hann byrjaði að maka í hárið. Hann var fölur í framan og freknóttur. Hann hallaði höfðinu á víxl á meðan hann kembdi sér i vöngum. Svo bar hann handarbakið aftur á hvirfil og myndaði geil með því að strjúka í einni snoturri hreyfingu þungan rauðan slöngulokk fram á enni. Hann sýndist fölari í framan en raun var vegna háralitsins. Hann greiddi hnakkann og horfði í hand- spegil sem ég hélt á. — Svona á spíss að vera frændi, sagði Reimar. ,shrdingur og ævintýri hans í Reykjavík Reimar hafði dregið kass- ann með sínum jarðnesku eigum undan rúmi til að leita að greiðu og nú rak hann augun í rauða minningabók með gulu látúnshjarta utan á. Hann fletti minningabók- inni og hló með sjálfum sér. — Svo ias hann upphátt: All- ar stundir okkar hér / er mér Ijúft að muna / fyllstu þakkir flyt ég þér / fyrir samveruna. Mundu mig, ég man þig, þin, Dúa. — Og það var nú samvera í lagi Dúa mín, sagði Reimar og hló. Hann tók apótekaralakkrís upp úr vasa sínum og tottaði hann hugsi. Ég bjó um kojuna mína. Við Reimar vorum báðir á taugum. Við vorum að fara í próf. Ég rak augun í græna bók í kassanum hans og teygði mig í hana svo lítið bar á. Það var Dagbók barnsins. Þegar ég opnaði bókina blasti við mér mynd af berrössuðu barni á gæru- skinni sem teygði álkuna á móti Ijósmyndara. Barnið var með eina tönn i efri góm og tvær í þeim neðri. Þetta var hinn ungi Reimar. Ég fletti á fyrstu síðu, þar stóð: Þann 31. mars 1946 klukkan 10.15 að kvöldi. Fætt svein- barn. Ég fletti við og las þann fróðleik að fyrstu tönn- ina hefði hann tekið þann 8. febrúar 1947. Reimar byrj- aði að skríða fyrsta apríl sama ár. Ég fletti fram á „Merkir atburðir", og las eft- irfarandi romsu: Reimar horfði á pabba og brosti. Reimar byrjaði að hjala. Reimar byrjar að leika sér. Reimar klæddur í fyrsta sinn. Reimar fór á gólfið. Reimar veltir sér. Reimar A LAUGARDAGSMORGNI En það er greinilegt að aðrir skemmtistaðaeig- endur ætla að berjast og hefur ÁRNI SAMÚELSSON, sem rekur Breiðvang í Mjódd, nú rekið Ríó tríó og ætlar þess í stað að troða upp með minningardag- skrá um VILHJÁLM heitinn VILHJÁLMSSON söngvara. Verður frumsýningin 2. febrúar. Meðal þeirra sem þar munu koma fram eru ÓMAR RAGNARSSON, HEMMI GUNN og söngvar- arnir ELLÝ VILHJÁLMS, RUT REGINALDS, PÁLMI GUNN- ARSSON og ÞORVALDUR HALLDÓRSSON. Fréttastofa útvarpsins hefur misst tvo frétta- hauka að undanförnu. JÓ- HANN HAUKSSON hefur tekið að sér að kynna nýja álverið og ÞORGRÍMUR GESTSSON verður rit- stjóri Vinnunnar. segir dada. Reimar fór í felu- leik. Reimar hneigir sig. Reimar stóð upp. Reimar stendur einn. Bókin var snarlega þrifin af mér. — Ertu algjör bandítt drengur? Hvað ertu að gera? Reimar lagðist í mína koju og byrjaði að lesa um sjálfan sig. — Reimar stendur einn, -æi-já, heyrði ég hann stynja, — þannig hefur öll mín ævi verið. Helvítis kall- inn hann pabbi að hafa aldrei samband. Réttast væri að láta sig hverfa og ganga í frönsku útlendingahersveit- ina. — Segðu mér meira af þessari Dúu sem skrifaði í minningabókina, bað ég. — Helvítið hún Dúa. Reimar hló stórkallalega. Ha ha. — Hvað viltu með að vita um hana. Það mætti skrifa margar gleðisögur um hana Dúu. Nú hringdi síminn. Það var samtal frænda míns utan af sjó. Reimar tók símtólið og sagði: Ha? Nei, ert þetta þú elsku pabbi minn? Ja, ég er svo aldeilis bit. Ég var ein- mitt að hugsa til þín áðan. Langt síðan maður hefur heyrt í þér. Jú, jú, mér líður vel. Nú á að landa í Hafnar- firði? í skóla, ég? Jú, auðvit- að. Ég er að fara í gáfnapróf. Ha, hvar? Nú, hérna hinum megin við götuna. í Lindar- götuskólanum. Er systa flutt suður, ha, hvað segirðu? Já, við sjáumst þá eftir viku. Hann lagði símtólið á. — Hvað er gleðisaga? spurði ég. — Nú skal ég segja þér frá henni Dúu, sagði Reimar. Hún var sú alkræfasta á ísa- firði. Þegar ég hef gert þér grein fyrir henni, frændi, ferðu ekki í neinar grafgötur um hvað er gleðisaga. Og frá því og gáfnaprófinu verður greint eftir viku. Ólafur Gunnarsson Vinsælasti skemmtistaö- urinn i dag er Amma Lú. Þangaö hópast fólk og er greinilega „in" að vera þar inni enda má jafnvel sjá ráðherra þar á vappi. Fljót- lega upp úr klukkan 11 á kvöldin er farin aö mynd- ast biðröö við staðinn sem tekur aðeins 500 gesti. Er augijóst að TÓMAS Á. TÓM- ASSON hefur enn einu sinni dottið niður á rétta formúlu. UFAÐ AF MEO STÆL Þetta verður langt strið segja þeir Bush og Major og þvi kominn timi til að búa sig undirþað. En þó gasgrimur bæti ekki útlit flestra þá er engin ástæða til að vera of halló. Réttur jakki og húfa í stil getur gert gæfumun- inn. í svona múnderingu getur maður lifað strið af með stæl. „Ég var hjá lögreglunni í Hverfissteininum þegar Aggi og Bubbi komu og sóttu mig. Við fórum síðan og myndudum þetta,“ sagði Bóbó sem reyndar heitir því hátíðlega og al- þjóðlega nafni Halldór Pi- errot Hostert. Bóbó er þekktur persónuleiki í ís- þjóðlífi og sést nú hverju á sjónvarps- skjáum landsmanna. Hann leikur nefnilega í mynd- bandi við lag Bubba Mort- hens, Laugardagsmorg- unn. „Lagið lýsir vel að líf- ið er enginn dans á rós- um,“ sagði Bóbó. Bóbó er frændi Þórarins Þórarinssonar sem einnig leikur í myndbandinu en flestir þekkja hann líklega úr myndinni Skyttunum. Þórar- inn, sem flestir kannast við undir nafninu Aggi, sagðist lengi hafa ætlað sér að koma frænda sínum á filmu enda væri hann merkilegur mað- ur. Það er óhætt að taka undir það'þvPBóbó er fyrirmyndin að einni þekktustu bók- menntapersónu seinni ára eða Badda í sögum Einars Kárasonar. Baddi flakkaöi á milli Ameríku og íslands eins og Bóbó hefur gert. Bóbó segir að þetta flakk komi til af því að móðir hans hafi verið gift Bandaríkjamanni en hann er ástandsbarn. „Ég fór sem innflytjandi til Ameríku 17 ára 1957. Ég keypti mér þennan voðalega bíl eins og segir frá í bókinni og kom með hann hingaö. Þessi bíll var svolítið sér- kennilegur og það bar á manni. Eg var í bleikri skyrtu í þá daga og fór ekki leynt," sagði Bóbó sem einnig upp- lifði það að vera kallaður í herinn í Víetnamstríðinu. Þá tókst honum að flýja til ís- lands. Anita Gustafsdottir er15 ára Reykjavíkurmær sem hefur ákveðið að taka þátt í Elite-keppninni. 5. Hver heldurðu að sé virk- asti tími ævinnar? „Milli tvítugs og þrítugs." 6. Klæðirðu þig eftir veðri? „Yfirleitt, nema þegar ég fer í veislur." 7. Hefurðu lesið Grámos- ann? „Nei." 8. Ertu daðrari? „Nei, langt í frá." 9. Hvað viltu verða miklu ríkari en þú ert í dag? „Ekki svo mikið. Ég vil bara eiga hús og bíl." 10. Ferðu ein í bíó? „Nei, ég held að það sé leiðinlegt." 11. Ertu góður dansari? „Það er sagt." 12. Á hvaða skemmtistaði ferðu? „Ég kemst ekki inn á skemmtistaði þannig að ég fer bara á menntaskólaböll." 13. Trúirðu á ást við fyrstu sýn? „Já, ég geri það. Ég held að fólk geti orðið ást- fangið af útliti alveg strax." 14. Ef ég gæfi þér fyrir fegr- unarskurðaðgerð, hvað myndir þú láta laga? „Ekki neitt — ég færi bara í megr- un." 15. Hvers konar gæjar eru mest kynæsandi? „Smartir og góðir gæjar — ekki töff- arar." 16. Hvað borðar þú í morg- unmat? „Cheerios. Nema á laugardögum þá fæ ég mér brauð." 17. Hvað má vera mikill aldursmunur á pörum? „Á ungum pörum tvö til þrjú ár en þegar þú ert orðin full- orðin er aldurinn ekkert mál." 18. Gætirðu hugsað þér að búa úti á landi?„Neei, ég er svo mikið borgarbarn." 19. Hvenær hættirðu að sofa með bangsa? „Ég veit það ekki en ég giska á að það hafi verið þegar ég var fimm, sex ára." 20. Varstu skotin í kennar- anum þínum? „Nei." 21. Finnst þér gott að iáta klóra þér á bakinu? „Jahá, það er æði." 22. Finnst þér Simp- son-fjölskyldan skemmti- leg? „Aldrei horft á það." 1. Syngur þú í baði? „Stundum en yfirleitt ekki." 2. Sefurðu í náttfötum? „Það er mitt mál." 3. Hvaða ilmvatn notar þú? „Boucheron — það er dýr- asta ilmvatnið á markaðin- um." 4. Ertu morgun- eða kvöld- manneskja? „Hvorugt. Ég n- fer snemma að sofa og a vakna seint." (/> BÓBÓ & BUBBI S.ÞÓR

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.