Pressan - 31.01.1991, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. JANÚAR 1991
25
væru ekki sýnd áberandi á tjaldinu
þætti ekki fært að láta íslensk lög
stöðva slíkar sýningar. Skildist mér
að kæra mín hefði strandað á sýn-
ingarskorti slíkra færa. Nú leyfa for-
ráðamenn þessa sama kvikmynda-
húss sér að sýna aðra og langtum
svæsnari klámmynd, Táknmál ást-
arinnar. Skortir þar sannarlega ekki
aö þessi „færi" karls og konu séu
sýnd rækilega og útskýrð — og lif-
andi maður og kona keypt til þess
að sýna, á dýrslegan hátt, hvernig
þessi færi eigi að nota og séu notuð
í ýmsum afbrigðum. Ef þetta er ekki
svæsið klám, hvað er þá klám?“
Freymóður, sem sumir gárung-
anna tóku að kalla Meyfróð, kærði
fleiri myndir og lét ekki þar við sitja.
1971 kærði hann útgáfu bókarinnar
Bósa sögu, krafðist þess að útgáfan
yrði stöðvuð og upplagið gert upp-
tækt. „Ég tel teiknimyndirnar
í kverinu ásamt lesmáli heyra
tvímælalaust undir hugtakið
klám," sagði hann í ákærubréfi
sínu til lögreglustjóra.
Freymóði varð að vísu ekki
mikið ágengt í baráttu sinni,
en óneitanlega gerði þessi
ötuli bindindismaður sitt
besta. Lögin hans heyrast
ennþá í útvarpi, einkum
„Draumur fangans" og
„Blikandi haf'.
onna
Þegar diskóœdið reis huad hœsl
uoru plötusnúðar meö vinsœlustu
og nauðsynlegustu mönnum í
skemmtanalífinu. Hollywood var
aðalskemmtistaðurinn í Reykjavík
og H-100 á Akureyri. Það var nokk-
ur metingur á milli þessara staða og
sá metingur gat ekki endað nema
með þuí að annar skoraði hinn á
Haukur Haraldsson: „Pan-kóngur-
inn".
boltamaður en dansari. Hann lék 96
landsleiki fyrir ísland. Lengst af var
hann í Víkingi. A árunum 1986 til
1990 lék Steinar í Noregi. Fyrsta árið
með KIF og síðustu þrjú árin með
Runar. Nú leikur Steinar með Hauk-
um í 1. deild. Áður en Steinar fór til
Noregs var hann lögregluþjónn en
nú er hann sölumaður hjá Tölvuvör-
um.
„Þetta er örugglega síðasta
keppnistímabilið mitt í handboltan-
um. Það er svo margt annað sem
mig langar að gera. Eg er að leika
mér í golfi og á skíðum. Það er
ákveðið að ég hætti í handboltanum
í vor,“ sagði Steinar.
Stærsti atburður í hnefaleikum
hér á landi var þegar veðmálin voru
yfirgengileg, mér liggur við að segja
eins og í Bandarikjunum. Á Islands-
mótinu 1945 var mest spennandi
þegar Hrafn Jónsson, en hann var
nemandi minn, og Thor R. Thors
kepptu. Það var mikil spenna um
þennan leik. Hrafn sló Thor þrisvar
sinnum niður í fyrstu lotu. Thor var
prýðisdrengur og ágætur hnefaleik-
ari en Hrafn var betri."
Guðmundur Arason er járnsmíða-
meistari. Hann rekur fyrirtækið
Guðmundur Arason, GA-stál. „Þetta
er gott fyrirtæki og sennilega það
stærsta í þessari grein á landinu."
Guðmundur var forseti Skáksam-
bandsins á árunum 1966 til 1969.
Hann hefur auk þess sinnt mörgum
trúnaðarstörfum fyrir skákhreyfing-
una. Meðal annars vann hann mikið
í kaupunum á félagsheimilinu við
Grensásveg og eins við kaupin á
heimili skákiþróttarinnar við Faxa-
fen. Lengi hefur Guðmundur verið í
fjáröflunarnefnd Skáksambandsins.
Þá hefur hann verið í áratugi í stjórn
síns gamla félags, Ármanns. Hann
var formaður bygginganefndarinn-
ar.
„Ég er með íþróttasal í fyrirtæk-
inu minu. Þar eru þrír boxpokar, tvö
þrekhjól, tveir boxboltar, þrekæf-
ingatæki, gufubað og hvað eina."
Steinar Birgisson er
þekktastur sem
handknattleiksmaö-
ur. En hann varö
þekktur um stund á
yngri árum sem
maraþon-diskó-
dansari.
Hnefaleikar voru bannaðir á Is-
landi árið 1956. Þar með hurfu af
sjónarsviðinu miklar hetjur, boxar-
arnir.
„Ég varð íslandsmeistari 1944. Ég
þjálfaði mikið og samtals áttum við
60 til 70 íslandsmeistara. Hin félög-
in áttu samtals 12 meistara," sagði
Guðmundur Arason, fyrrverandi
hnefaleikakappi, en hann var einn
sá allra fremsti í íþróttinni hér á
landi. Auk þess að keppa sjálfur var
hann lengi leiðbeinandi hjá félagi
sinu, Ármanni.
„Hnefaleikarnir voru bannaðir
1956. Fyrst voru þeir æfðir hér á
landi um 1920 og þá hjá KR. 1926
kom Pétur Wigelund hingað og
kenndi Ármenningum til 1930. Þá
fluttist hann til Keflavíkur. Eftir það
lá þetta meira og minna niðri til
1934. 1936 var fyrsta íslandsmótið
haldið og það var háð á Melavellin-
um.
Ég tók við þjálfun hjá Ármanni
1943. Það ár var haldið íslandsmót
og eftir það var mótið árlegur við-
burður þar til íþróttin var bönnuð
1956. Aðstaðan var fyrst verulega
góð þegar við fengum inni í Háloga-
landi. Þar voru fullkomin Ijós í lofti,
fóðraður pallur og upphækkaður og
allt var löglegt. Við seldum allt að
1700 manns aðgang. Það þurftu
hundruðir manna að hverfa frá þar
sem allt var uppselt. Miðarnir seld-
ust upp á tveimur til þremur tímum.
Það lá við að við yrðum að flýja
hreinlega úr bænum slík voru lætin.
1938 keppti ég gegn Chile-manni,
en hann hafði verið í landsliði, og ég
vann hann. Leikurinn var mjög jafn.
Málið var það að það voru tveir ís-
lenskir dómarar og sá þriðji var
skipsfélagi hans. Eins keppti ég við
Norðmanninn Otto Van Torak í
Austurbæjarbíói.
Sigurjón M. Egilsson og Friðrik Þór
Guðmundsson ásamt Gunnari Smára
Egilssyni
Listmálarinn og tónskáldið Frey-
móður Jóhannsson, öðru nafni
Tólfti september, dó fyrir átján ár-
um, en minning hans lifirenn í huga
eldri kynslóðarinnar. A árunum
1969 til 1972 var Freymóður hins
vegar á allra vörum fyrir annað en
listsína.
Á þessum árum barðist Freymóð-
ur hatrammlega gegn bylgju af
klámmyndum sem þá reið yfir og
ritaði hann ófáar greinar í blöðin
um þessar svæsnu kvikmyndir.
1969 tók hann til dæmis fyrir
myndina „Vixen" og kærði sýningu
hennar í Hafnarbíói og árið eftir
kærði hann „í nafni siðmenningar-
innar og íslenskra laga" sýningu á
myndinni „Táknmál ástarinnar" í
sama húsi.
Um myndirnar sagði hann meðal
annars: „Þegar ég kærði Hafnarbíó
síðastliðinn vetur vegna hinnar ill-
ræmdu sýningar á Vixen-
kvikmyndinni, fékk ég þær
upplýsingar að á meðan
kynfæri karls og konu
minni myndinni er Guömundur á há
tindi ferilsins.
Logi Dýrfjörð, en hann var annar
tveggja plötusnúða í H-100, skoraði
á aðalplötusnúð Hollywood, Hall-
dór Árnason, í einvígi. Einvígið átti
að vera með þeim hætti að Logi
hjólaði frá Akureyri til Reykjavíkur
og Halldór frá Reykjavík til Akur-
eyrar. Á síðustu stundu gerðu Akur-
eyringarnir breytingu á sínu liði.
Logi hjólaði ekki en í hans stað kom
Davíð Geir Gunnarsson.
„Það var mjög gaman að þessu.
Þegar það fréttist að ég ætti að hjóla
var talað um svik. Við lögðum af
stað á sunnudegi. Þegar við vorum
búnir að hjóla í fjóra daga var ég
kominn í Borgarnes. Okkur þótti yf-
irferðin á Hálldóri vera með ólíkind-
um. Það varð til þess að farið var á
bíl frá Akureyri til að fylgjast með
Halldóri. Hann fannst ekki fyrr en
menn komu að honum þar sem
hann var að taka hjólið út úr
Bronco-jeppa. Eftir það hringdi
hann til mín á hótelið í Borgarnesi
og játaði sig sigraðan. Ég var að
hugsa um að hætta en hélt eigi að
síður áfram sannfærður um að ég
myndi aldrei gera þetta aftur. Ég
kom til Reykjavíkur á fimmtudegi,"
sagði Davíð Geir Gunnarsson sem
sigraði í þessu einstaka einvígi.
Fljótlega eftir þetta hætti Davíð
Geir að snúa plötum. Hann fluttist til
Raufarhafnar og gerðist lögga.
Fljótlega varð hann varðstjóri í lög-
reglunni á Raufarhöfn og eins hjá
lögreglunni á Húsavík. Eins gerði
hann út fiskibátinn Söru ÞH. Davíð
Geir býr nú í Reykjavík og rekur
verslunina Dalver.
I
nnan skamms hefst á Aðalstöð-
inni nýr dagskrárliður í umsjá Eddu
Björgvinsdóttur leikkonu. Þar
mun Edda koma
fram undir nafninu
Örnþrúður Mogen-
sen. Þáttunum verð-
ur skotið inn í dag-
skrána af og til. Örn-
þrúður verður með
„holl" húsráð. Auk
þessa verður Edda með þriggja tíma
þátt á hverjum sunnudegi. Önnur
innskot eru einnig í bígerð á Aðal-
stöðinni. Þar mun Vilhelm G.
Kristinsson vera með innslög um
íslenska samtíð, en Vilhelm skrifaði
á síðasta ári bókina íslensk samtíð.
Troels Bendtsen, sem var í Sa-
vanna tríói og Þremur á palli, byrjar
fljótlega með þjóðlagaþætti á Áðal-
stöðinni. Það er fleira í bígerð á Að-
alstöðinni. Á laugardögum verða
sérstakir bílaþættir og Helgi Pét-
ursson útvarpsstjóri og hans fólk er
byrjað að undirbúa fréttir en þær
hafa ekki áður verið á dagskrá Aðal-
stöðvarinnar . . .
að kom engum á óvart innan
knattspyrnuhreyfingarinnar að
Marteinn Geirsson, knattspyrnu-
þjálfari og slökkviliðsmaður, skyldi
ákveða að segja af sér sem þjálfari
U-21 árs landsliðsins. Árangur þess
var slakur á síðasta keppnistímabili
eftir frábæran árangur árið þar áð-
ur. Sérstaklega mun 7—0 tapið fyrir
Tékkóslóvakiu hafa farið illa í menn
en eftir þann leik kom sterklega til
greina að Marteinn hætti. Hann
ákvað hins vegar að geyma ákvörð-
unina þar til nú. Hólmbert Friðjóns-
son tekur við af Marteini...
að er ekki oft sem ný útgáfu-
fyrirtæki eru stofnuð hér á landi
gagngert til að koma íslenskum tón-
smíðum á framfæri
erlendis. Pétur W.
Kristjánsson stofn-
aði eitt slíkt fyrir
skömmu og ber það
nafnið p.s: músík.
Það hefur reyndar
vakið athygli
margra að fyrirtækið er nátengt
Steinum hf. og er reyndar skrifstofa
Péturs fyrst um sinn til húsa á skrif-
stofu Steinars hf. Mun Steinar Berg
ísleifsson vera nokkuð stór hlut-
hafi í hinu nýja kompaníi.. .
að fór eins og flestir gerðu ráð
fyrir að Friðjón Þórðarson alþing-
ismaður var skipaður sýslumaður í
Dalasýslu. Þrátt fyrir að Friðjón sé
tiltölulega vinsæll meðal Dala-
manna þá eru þeir ekkert allt of
hrifnir af þessari ráðningu. Friðjón
fer á eftirlaun eftir tæplega þrjú ár
og þá er óvíst hvenær hann kemur
til starfa. Friðjón mun ætla að sitja á
Alþingi til vors og jafnvel ekki koma
til starfa fyrr en í haust. Þangað til er
ætlunin að sýslumannsembættinu
verði þjónað vikulega frá Borgar-
nesi. Spyrja menn sig að því hvort
þetta verði ekki upphafið að enda-
lokunum — semsagt að embættið
verði lagt niður .. .