Pressan - 31.01.1991, Page 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. JANÚAR 1991
Forráöamenn Fagranessins á ísafirdi hafa gert samn-
ing um kaup á nýju skipi sem œtlaö er ad koma í staö
Fagranessins sem er tœplega þrjátíu ára gamalt. Nýja
skipid er fimmtán ára og mun kosta hátt íþrjátíu milljón-
ir króna.
Fyrir vestan eru mjög deildar meiningar vegna þessara
kaupa. Þeir sem eru þeim meömœltir segja þessi kaup
nauösyn en hinirsegja þau óþörfmeö öllu og sérstaklega
vegna þess aö engin þörf sé lengur fyrir djúpbát. Sam-
göngur hafi breyst mikiö og þá peninga sem œtlaöir eru
í þetta megi nota á annan hátt.
Ekkert liggur fyrir um hvaö breyting á hafnarmann-
virkjum muni kosta. Þó er Ijóst aö 100 milljónir eru al-
gjört lágmark.
Á þessu ári verður ríkisstyrkur til
bátsins 17,5 milljónir og var 16,2
milljónir í fyrra. Ekki var hægt að fá
uppgefið hversu miklir flutningar
Fagranessins hafa verið. Þó eru þeir
sagðir hafa verið svipaðir síðustu tíu
árin. Þeir eru mismunandi eftir ferð-
um og í einstaka ferðum hefur farm-
urinn verið sáralítill. Fagranesið
siglir tvisvar í viku. Sex manna
áhöfn er á skipinu.
SÆMIR EKKI VESTFIRÐINGUM
,,Ég hélt það ekki sæma Vestfirð-
ingum að tala svona. Með þessu eru
menn að viðurkenna sig sem annars
f lokks þjóðfélagsþegna," sagði Krist-
ján Jónasson, framkvæmdastjóri
djúpbátsins, en það fyrirtæki gerir
út Fagranesið, þegar hann var
spurður um þá gagnrýni sem komið
hefur fram fyrir vestan vegna kaupa
á nýju skipi.
Matthías Bjarnason, alþingismað-
ur á Vestfjörðum, sagði í samtali við
PRESSUNA, að hann hafi heyrt
þessar gagnrýnisraddir en vildi ekki
tjá sig frekar um málið.
Kristján Jónasson sagði að skipu-
lagðar sjósamgöngur hafi hafist fyr-
ir nær 70 árum og það væri afturför
að hætta þeim. Hann hafði sérstak-
ar áhyggjur af þeim bæjum sem
hafa verstu samgöngurnar.
„Það er til á ísafirði bátur sem get-
ur leyst þetta hlutverk. Slysavarna-
deildin á einn fullkomnasta björgun-
arbát landsins, Daníel Sigmunds-
son, og hann getur farið á þessa
fjóra bæi í öllum veðrum og það
sem meira er að hann þarf ekki
bryggjur og hafnir eins og nýja skip-
ið kemur til með að þurfa,“ sagði
einn þeirra sem gagnrýnir þessi fyr-
irhuguðu kaup.
Þeir sem telja ekki þörf á nýju
skipi eiga það sameiginlegt að vilja
ekki tala undir nafni. „Það þykir
ekki gott að vera á móti því að fá
peninga heim í hérað. Það virðist
vera sama í hvað peningarnir eiga
að fara, það má bara ekki vera á
móti,“ sagði einn um ástæðu þess að
vilja ekki tala undir nafni.
Kristján Jónasson, framkvæmda-
stjóri Djúpbátsins, berst fyrir þvi að
keypt verði ný ferja.
MIKLAR HAFNARBÆTUR
FYRIRSJÁANLEGAR
„Það er ekki okkar að gera það,“
sagði Kristján Jónasson þegar hann
var spurður hvort áætlanir um hafn-
arbætur lægju fyrir. Það er sýnt að
eitthvað verður að gera þegar og ef
nýja skipið kemur. Fagranesið er 23
metrar en það nýja 41 metri. Nýja
skipið er ferja og hægt er að aka í
gegnum það. Ef þeir kostir verða
nýttir verður að koma upp ferju-
bryggjum en engin slík er nú á Djúp-
inu, ekki einu sinni á Isafirði.
„Halda menn það einhverja tilvilj-
un að Fagranesið er aðeins 23 metr-
ar? Það sjást varla kubbslegri og ljót-
ari farkostir. Skipið var ekki haft
lengra vegna þess hversu því var
ætlað að athafna sig við þröngar að-
stæður. Ég er sannfærður um að
menn hafa ekki hugsað þetta til
enda. Það er einfaldlega ekki hægt
að koma eins löngu skipi og það
nýja er að flestum viðkomubryggj-
unum. Ég tala nú ekki um þegar ein-
hver vindur er. Yfirbyggingin er það
mikil að skipið mun taka á sig mik-
inn vind. Þó hægt sé að gera nýjar
bryggjur þá er það ekki nóg. Það
þarf þá að framkvæma svo og svo
mikið í landi því lítið er gagnið af
bryggjunni einni. Það þarf að leggja
vegi og fleira. Það er ljóst að þetta
hefur ekki verið hugsað til enda,“
sagði eldri maður sem þekkir mjög
vel til ísafjarðardjúps.
Kristján Jónasson var sammála
þeim sem gagnrýna hin fyrirhug-
uðu skipakaup um að hafnarbætur
þurfi að gera. Hann sagði það nauð-
synlegt sama hvort annað skip verð-
ur keypt eða ekki. Viðhaldi á bryggj-
unum við Djúp er áfátt og þess
vegna þarf að gera átak í þeim efn-
um.
„Það hefur ekkert verið gert hér
vegna þessa. Það eru engin sjókort
til af þessu svæði og það hafa engar
mælingar verið gerðar. Það eina
sem við höfum sagt er að það geti,
ef aðstæður reynast mjög góðar,
kostað 50 milljónir að gera ferju-
bryggjur á hvorum enda. Það er
gert ráð fyrir að fulllestaðir vöru-
flutningabílar geti ekið að og frá
borði. Þessar tölur eru með algjör-
um fyrirvörum og miðaðar við að
ekki þurfi að gera neina garða, að-
eins bryggjur," sagði Hermann Guö-
jónsson hafnamálastjóri.
FÁ FÆRRI EN VILJA
Kristján Jónasson sagðist alls ekki
vilja gefa upp það verð sem er í
kaupsamningnum. Hann sagði
greinilegt að færri fengju umrætt
skip en vildu. Auk Vestfirðinganna
eru sex aðrir, allir útlendir, að berj-
ast um að fá skipið. Hann sagði að
þegar skipið var skoðað hafi þar
verið menn frá sænska hernum sem
sýnt hafi því áhuga.
„Meðan fyrirvarar á kaupsamn-
ingi eru í gildi vil ég ekkert segja um
verðið. Það hefur verið farið mjög
leynt með það og allt gert til að
kaupverðið spyrjist ekki út. Þeir
sem eru í samkeppni við okkur geta
hækkað sín tilboð ef þeir frétta á
hvað við erum að kaupa skipið,"
sagði Kristján.
Samkvæmt íslenskum lögum má
ekki flytja til landsins skip sem eru
eldri en 12 ára. Fyrir Alþingi liggur
frumvarp þar sem mælst er til að
þess verði breytt í 15 ár. Ekki verður
hægt að kaupa nýja skipið fyrr en
frumvarpið hefur farið í gegnum
þingið nema til komi undanþága frá
ríkjandi reglum.
HLUTVERKIÐ HEFUR BREYST
Nú er svo komið að mjólkurbíll
sækir mjólk á flesta bæi og eins er
póstbíl! sem sér um að dreifa póstin-
um. í upphafi var djúpbátnum ekki
síst ætlað að flytja mjólk og póst.
Kristján Jónasson segist gera sér
vonir um að hægt verði að auka
flutningana með nýju skipi. Hann
nefndi til dæmis ferðir á Horn-
strandir og eins væri nauðsynlegt
að hafa skip ef koma ætti á fisk-
markaði á þessu svæði í framtíðinni.
Hann sagðist einnig hafa áhyggjur
af þeim sveitabæjum sem hafa lé-
legar samgöngur.
Fagranes, eða Djúpbáturinn hf„
er í eigu ríkissjóðs, bæjarsjóðs ísa-
fjarðar, nokkurra einstaklinga og
minni sveitarfélaga við Djúp.
Fyrirvörum á kaupsamningi þarf
að vera aflétt í febrúar. Þess vegna
er mikill þrýstingur á að fá sam-
þykki Alþingis sem fyrst. Málið er
því keyrt áfram af miklum ákafa.
Sigurjón M. Egilsson