Pressan - 23.05.1991, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. MAI 1991
Gísli á Grund eignast enn fleiri hús í Hveragerði
ASIBREVTTISJUKMHIRTIL Afi
URNA VK FASTEIGNAGJOLD
Enn eitt húsið hefur bœst
við eignaveldi Gísla Sigur-
björnssonar forstjóra Grund-
ar og Ass. Nýverið keypti
Grund fasteignina Laufskóga
14, sem stendur á 1.300 fer-
metra lóð í Hveragerði, fyrir
aðeins um 1 milljón króna.
Kaup þessi voru tekin fyrir á
bœjarstjórnarfundi og vildi
meirihlutinn nýta sér for-
kaupsrétt sinn, en varð að
falla frá því vegna skorts á
lausafé.
Eins og fram kom í PRESS-
UNNI fyrir viku eiga sjálfs-
eignarstofnanir Gísla á Grund
stóran hluta af Hveragerðis-
bæ. Bæjarstjórn hefur að
undanförnu leitast við að ná
inn meiri gjöldum vegna um-
svifamikilla eigna Grundar
og Áss. Þegar tekjulög sveit-
arfélaga breyttust fyrir tveim-
ur árum komu inn ákvæði
sem skildu á milli sjúkrastofn-
ana annars vegar og dvalar-
Álverið Keilisnesi
Rætt við eigendur áljarðanna
Hreppsnefnd Vatnsleysu-
strandarhrepps mun á nœst-
unni hefja viörœöur við eig-
endur Flekkuvíkurlands og
Minni-Vatnsleysu um kaup á
landi þeirra vegna fyrirhug-
aðrar álverksmiðju á Keilis-
nesi.
Að sögn Jóhönnu Reynis-
dóttur sveitarstjóra hreppsins
er reiknað með því að hrepp-
urinn kaupi allt Flekkuvíkur-
landið og hluta af landi
Minni-Vatnsleysu vegna hafn-
araðstöðu. Flekkuvík er
um 400 hektarar að stærð, en
umrætt verksmiðjusvæði er
innan 180 hektara svæðis frá
ströndinni upp að gamla
Keflavíkurveginum.
Eigendur þessa lands eru
athafnamenn í Reykjavík.
Þeir eru annars vegar Pétur
O. Nikulásson heildsali í sam-
nefndu fyrirtæki og mágkona
hans Margrét Kristinsdóttir
og hins vegar Finnur Gísla-
son í HF verktökum.
Fasteignamat jarða og húsa
Flekkuvíkurlands er ekki
hátt, alls 1,1 milljón krónur.
um í Hveragerði furðuleg af-
greiðsla hjá heilbrigðisráðu-
neytinu, einkum í ljósi þess
að á Ási er enginn fastur
læknir og verulega undir-
mannað hvað hjúkrunarfólk
varðar yfirleitt.
Yfirvöld í Hveragerði hafa
frá síðasta ári lagt fasteigna-
gjöld á þær fasteignir Grund-
ar og Áss sem ekki teljast
beirilínis starfræktar vegna
aldraðra. Hér er um að ræða
trésmíðaverkstæði, þvotta-
hús, gróðurhús og fleira.
Grund og Ás hafa greitt þess-
ar álagningar, en mótmælt
þeim um leið.
í síðustu PRESSU kom fram
að Grund og Ás áttu 83 fast-
eignir í Hveragerði, þar af 48
íbúðir. Nú hefur enn ein fast-
eignin bæst við, ekki síst
vegna auraleysis bæjarsjóðs.
Salan á Blikastaðalandinu
heimila hins vegar og sam-
kvæmt því átti dvalarheimil-
ið Ás að greiða meiri gjöld en
áður. Gísli Páll Pálsson fram-
kvæmdastjóri Áss, dótturson-
ur Gísla á Grund, leitaði þá til
heilbrigðisráðuneytisins og
fékk á svipstundu breytingu á
stöðu Áss; það breyttist úr því
að vera dvalarheimili í það að
vera sjúkrastofnun.
Þetta fannst bæjaryfirvöld-
Mosfellsbæingan vilja
láta sverfa til stáls
Verðmætið hefur sjálfsagt
hækkað vegna fyrirhugaðs
álvers, en hreppurinn getur
gripið til eignarnámsheimild-
ar hafi landeigendur uppi
óraunhæfar kröfur.
Eigandi Minni-Vatnsleysu
er Þorvaldur Guðmundsson í
Síld og fiski.
Borgarafundur verður
haldinn í Mosfellsbœ nœst-
komandi mánudag um kaup
Reykjavíkurborgar á landi
Blikastaða. Samkvœmt
heimildum PRESSUNNAR
stefnir allt í að þar verði tekin
upp hörð afstaða gegn borg-
inni, ákveöið að ganga ekki
til samninga um lögsögu-
mörk og kanna beitingu eign-
arnámsheimildar síðar.
Samkvœmt heimildum
blaðsins er einnig vaxandi
óánœgja meö stöðu Magnús-
ar Sigsteinssonar forseta bœj-
arstjórnar MosfeUsbæjar í
málinu, en Magnús er sonur
eigenda Blikastaöalandsins.
Hávœrar raddir eru uppi um
að Magnús segi af sér vegna
máls þessa.
Sem kunnugt er keypti
Reykjavíkurborg Blikastaða-
landið á 245 milljónir króna.
Mosfellsbær hefur forkaups-
rétt en hefur takmarkaða
möguleika á að ganga inn í
tilboð borgarinnar vegna
þeirra fjárskuldbindinga sem
því fylgja. Bærinn verður að
svara af eða á um þetta fyrir
29. maí.
Reykjavík hefur boðist til
að selja Mosfellsbæ stóran
hluta af landinu til baka gegn
samningum um breytt lög-
sögumörk. Vaxandi andstaða
er meðal bæjarfulltrúa og
íbúa Mosfellsbæjar við slíka
samninga. Um leið eru vax-
andi líkur á því að það verði
niðurstaða borgarafundarins
að hafna samningum með
það í huga að reyna á beit-
ingu eignarnámsákvæða síð-
ar og er það von Mosfellsbæj-
armanna að í Ijósi þess muni
Reykjavíkurborg falla frá til-
boði sínu.
Magnús Sigsteinsson for-
seti bæjarstjórnar hefur tekið
sér tveggja mánaða leyfi
vegna máls þessa. Við fyrri
umfjallanir um kaup á Blika-
staðalandinu hefur hann vik-
ið af fundum við afgreiðslu
málsins. Bæði innan meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins og
minnihlutans eru uppi há-
. værar raddir um að Magnús
segi af sér vegna Blikastaða-
málsins.
Ríkissjóður
GreiDir bætur vegna ólöglegrar fangavistar
Ísíðustu viku var ríkissjóð-
ur dœmdur til að greiða sí-
brotamanni 40 þúsund krón-
ur í miskabœtur vegna ólög-
legrar valdbeitingar fangels-
isstjórans á Litla Hrauni.
Málsatvik voru þau að
fanginn Halldór Fannar var
látinn dúsa í tíu daga einangr-
un eftir að refsivistartími
hans var útrunninn, vegna
agabrota sem hann framdi
meðan á fangelsisvistinni
stóð.
Halldór kærði málið til um-
boðsmanns Alþingis með
þeim árangri sem fyrr segir.
Að sögn heimildarmanns
PRESSUNNAR mun það hafa
tíðkast í mörg ár að fangelsis-
stjórinn á Litla Hrauni beiti
þessu ákvæði. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum
skipta þeir tugum eða jafnvel
hundruðum fangarnir sem á
síðustu árum hafa þannig
þurft að dúsa aukalega í fang-
elsinu.
„Brátt skap hans gat oft komið honum í
vanda, en hann hefur róast,“ segir Ragnar
Tómasson. „Ellert er fljótfær og uppstökkur,
en á móti kemur að hann er fljótur að fyrir-
gefa,“ segir Sveinn Jónsson formaður KR. „Ég
man ekki eftir neinum göllum, en hef þó
þekkt hann lengi", segir Kristinn Jónsson.
„Hann er fullmikill keppnismaður og skap-
bráður. En þó hann láti skapið hlaupa með
sig í gönur er hann fljótur að jafna sig á því
og það er stutt í húmorinn, segir Bjarni Felix-
son. „Mér fannst aldrei að landsmálapólitík-
in ætti vel við Ellert. Til þess fannst mér
hann skorta víðsýni. Mér fannst alltaf að
borgarstjórn væri hans vettvangur, þar hef-
ur hann þá þekkingu og þann kraft og
sjarma sem til þarf,“ segir Ragnar Tómasson.
Ellert B. Schram ritstjóri DV, ritaði i Laugardagspistli sinum um síðustu helgi, að hann myndi bjóða sig fram til borgarstjóra i kosningum, færi slik kosning fram.
„Hann er skarpgreindur, skemmtilegur félagi
og keppnismaður mikill," segir Bjarni Felix-
son íþróttafréttamaður. „Ellert er mjög heið-
arlegur, kappsfullur og metnaðargjarn dugnað-
arforkur. Frábitinn öllum hrossakaupum. Skapið
er mikið, tn aldrei ódrengilegt. Það fylgir hon-
um einhver frumstæður og ólgandi kraftur,"
segir Ragnar Tómasson, lögfræðingur og
veitingamaður. „Hann er skemmtilegur, kátur,
léttur í lund og hláturmildur," segir Sveinn
Jónsson formaður KR. „Hann er góður
drengur og mannlegur. Skapstór, en getur
stjórnað vel sínu skapi. Hann er góður stjórn-
andi og ekki tilviljun að hann hefur valist til
slíkra starfa," segir Kristinn Jónsson í Form-
prenti. „Ellert er bráðskemmtilegur og með
smitandi hlátri getur hann fengið heilan sal til að
hlæja án þess að menn viti tilefnið," segir Ragn-
ar Tómasson. „Hann er duglegur og ákveðinn.
Maður sem tekur afstöðu og þorir að sjanda og
falla með henni," segir Árni Ragnar Árnason
þingmaður.
Ellert B. Schram
ritstióri
UNDIR
ÖXINNI
Páll
Siaurðsson
ráöuneytisstjóri
heilbrigðisráðu-
neytisins og
formaður
daggjalda-
nefnaar
— Hvernig stendur
á því að daggjalda-
nefnd hefur ekki farið
fram á það fyrr að
rekstur heilsuhælis-
ins í Hveragerði væri
rannsakaður?
„Það var heilbrigðis-
ráðuneytið sem bað
um að reksturinn yrði
rannsakaður af því
einn af stjórnendum
hælisins fór fram á
það."
— Ætlar daggjalda-
nefnd þá að halda
áfram að spreða pen-
ingum í allar áttir án
þess að velta fyrir sér
í hvað þeir fara?
„Daggjöld heilsu-
hælisins voru ekki
ákveðin af daggjalda-
nefnd. Það er Trygg-
ingastofnun ríkisins
sem hefur ákveðið að
borga það gjald, sem
hælið hefur leyfi til að
setja upp efþað sættir
sig ekki við ákvörðun
daggjaldanefndar. Og
það hafa þeir ekki gert
í mörg ár, heldur sett
upp sérstakt gjald.
Þess vegna höfum við
aldrei kannað rekstur
hælisins og höfum
aldrei fengið reikninga
þess. Við höfum að-
eins skoðað þær
stofnanir sem hafa
sætt sig við fullt gjald."
I skýrslu um athugun Rikisendur-
skodunar á rekstri heilsuhaelis
NLFI i Hveragerdi er talid að dag-
gjaldanefnd hafi sýnt andvara-
leysi, þvi henni heföi mátt vera
kunnugt um hvernig i pottinn var
búiö.