Pressan - 23.05.1991, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. MAI 1991
23
lipósið
... fær Eiríkur Jónsson
fyrir hreint ágæta
morgunþætti á Bylgj-
unni.
POPPIÐ
Bless leikur í fyrsta sinn á þessu
ári á Tveimur vinum í kvöld.
Hljómsveitin er nú orðin að tríói,
með tvo nýja meðlimi innan-
borðs og eitthvað af nýrri tónlist.
Graupan hitar upp.
Islandsvinir halda upp á eins
árs afmæli sitt um helgina á
Tveimur vinum. í fylgd með
þeim veröur Hjalti Guðgeirsson,
sem gerði garðinn frægan í
fyrrasumar með laginu „Gætum
við fengið að heyra eitthvað ís-
lenskt?"
ÁÐUR UTI NUNA INNI
I mörg ár hafa karlmenn
notað ósparlega þann eina
vettvang sem þeir hafa til að
tjá sig, það er hálsbindið.
Vinir Dóra verða á Púlsinum
bæði föstudags- og laugardags-
kvöld.
The Rocking Ghosts bera nafn
með rentu, því þarna eru sannar-
lega á ferðinni vofur sjöunda ára-
tugarins. Spila á Hótel íslandi um
helgina.
Djasshátíðin RúRek hefst um
helgina og verða fyrstu tónleik-
arnir á sunnudagskvöld, og sið-
an út alla vikuna á Tveimur vin-
um, Púlsinum, Kringlukránni,
Duus og Djúpinu.
SJÓIN_________________________
I Lídó á laugardaginn verður
boðið upp á dragsjó. Þarna eru á
ferðinni sömu skemmtikraftar
og gert hafa garðinn frægan í
Rauðu myllunni í vetur. Eitthvað
sem enginn má missa af.
Yfir strikið býður upp á allt ann-
ars konar skemmtun á föstu-
dags- og laugardagskvöldið. Þar
verður hljómsveitin M.V.I.T.A.
með tónleikasjó.
Þeir hafa tjáð rómantískar
hugsanir með ijúfu rósa-
munstri, gamansemi með
galsafengnum teiknimynda-
bindum, frumleika með stór-
um abstrakt flötum, festu
með röndóttum bindum og
íþróttaanda með örsmáum
póló-kölium. En nú er kom-
inn tími til að hætta þessum
skilaboða-sendingum af
bindunum. Tími svörtu bind-
anna er kominn aftur. Og
það besta er að það getur
ekki hver sem er borið þau.
Þú þarft að vera eitthvað í
líkingu við Cary Grant, Gary
Coopper, Ciark Gable eða
Tyrone Powell tii að hafa
efni á því. Hinir verða að
sætta sig við skrautlegu
bindin. Og fyrir þá með
svörtu bindin þá er albest að
hafa þau laus um hálsinn
eða jafnvel óhnýtt eins og
Bryan Ferry.
AÐUR INNI NÚNA ÚTI
Gömul timburhús. Þau eru
óhentug. Það heyrist allt á
milli herbergja og milli
hæða. Það gengur ef þú býrð
ein eða einn. En þó þú búir
einn eða ein þá er alltaf jafn
erfitt og leiðiniegt að skúra
trégólf.
NÆTURLIFIÐ
Hólminn í Seljahverfi er hverfi-
skrá, sem maður skyldi ætla að
ætti sér góða lífsmöguleika í eins
fjölmennu hverfi og Breiðholtið
er. Ekki virðist þó ætla að takast
að laða nágrannana á staðinn og
skyldi engan undra sem þar
drepur niður fæti. Dimmur og
óvistlegur salysiin gæti gefið til
kynna að húsráðandi stæði í
þeirri meiningu að gestir vildu
helst teiga ölið einir og óséðir.
Nema tilgangurinn sé að skýla
óvistlegum innréttingum.
Þær eru meira í stíl við skyndi-
bitamatinn sem þar er fram-
reiddur með bjórnum.
LEIKHUSIN
Dalur hinna blindu verður á
fjölunum hjá Þíbilju í Lindarbæ
í síðasta sinn um helgina, föstu-
dags- og sunnudagskvöld.
A ég hvergi heima? er gul
kortasýning á föstudag og græn
á sunnudag á stóra sviði Borgar-
leikhússins. Þar sem:
Ráðherrann klipptur er á litla
sviði Þjóðleikhússins á laugar-
dagskvöld.
Á Söngvaseið eru ennþá til mið-
ar . . . í júnílok.
KLASSÍKIN
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran,
Alina Dubik mezzo, Frieder
Lang tenór og Andreas
Schmidt baritón flytja óratór-
íuna Páll postuli eftir Mendelsso-
Á Rauðu myllunni annað kvöld fer
fram kynning á þremur af sex
keppendum í keppninni Ungfrú
íslenskur yndisþokki. Hluti af
kynningunni er hæfileikakeppni,
þar sem stúlkurnar fá tækifæri til
að sanna hvað i þeim býr. Úrslita-
kvöldið verður á sama stað eftir
tvær vikur.
KROSSGATAN
LARÉTT: 1 vit 6 snærisspotti 11 rík 12 kennisetning 13 fleiður 15
eyktamark 17 kljásteinn 18 fjandskapur 20 hjón 21 kross 23 hryggð
24 málæði 25 sáðlands 27 borar 28 viðeigandi 29 rola 32 stofu 36
hlýja 37 hvolf 39dauðyfli40 smáögn41 bjálkarnir43 viljugur 44 róti
46 róaða 48 heiti 49 hættuleg 50 fjall 51 þáttur.
LÓÐRÉTT: 1 tuldra 2 ákváðu 3 slátta 4 krumla 5 eðlisfars 6 bana-
kringlu 7 tré 8 okkur 9 sigvaður 10 vondrar 14 slóttug 16 forfeðurna
19 filla 22 fátækur 24 kinnungar 26 klíð 27 heystakkur 29 þorn 30
ruddalegur 31 sleifina 33 hét 34 umhyggja 35 æddi 37 stjakað 38
dregill 41 vatnsfall 42 klæðleysi 45 ferð 47 hæfur.
RÍKISSJÓNVARPIÐ____________
Krakkinn — Iðjuleysinginn
(The Kid — The Idle Class) eftir
Charlie Chaplin verða á dagskrá
Sjónvarpsins á laugardagskvöld-
ið. Sjónvarpið virðist hafa komist
yfir einhvern Chaplin pakka, því
örstutt er síðan Gullgrafarinn var
siðast sýndur. Það er þó engin
ástæða til að kvarta. Það er
nefnilega ekki hægt annað en
hafa gaman af Chaplin.
Vinsœlustu
myndböndin
1. Ghost
2. Men at Work
3. Men don't leave
4. It
5. Young Guns II
6. Spymaker
7. Bird on a Wire
8. Wild at Heart
9. Blue Heat
10. Goodfellas
STOÐ 2
Páskafrí, Spring Break, sem
Stöð 2 sýnir á föstudagskvöldið,
er áreiðanlega jafn rugluð og
Blame it on Rio, sem Sjónvarpið
sýndi fyrr i vikunni. Tveir mennt-
skælingar lenda í herbergi með
tveimur kvennagullum í sumar-
frii í Flórída. Það þarf ekki að
horfa til að vita framhaldið.
VEITINGAHUS
Þar sem við á PRESSUNNI
erum búin að skrifa um
flest öli veitingahús á höf-
uðborgarsvæðinu sem
máli skipta (og reyndar
mörg önnur) þá er kominn
tími til að óska eftir nýjum
veitingahúsum. Og þá sér-
stakiega veitingahúsum
sem loka ekki eldhúsinu
klukkan tíu eða ellefu
heldur klukkan eitt, tvö
eða jafnvel þrjú. Fólk sem
vinnur til klukkan sjö á
föstudögum og á eftir að
kaupa inn fyrir helgina,
redda barnapíu og sækja
hana, fara í bað og slappa
af er ekki tilbúið til að
setjast til borðs fyrr en
undir miðnætti. Þá er hins
vegar ekkert að hafa
nema pulsur í Austur-
stræti og snakk á börun-
1988 Vouuray
Clos du Boure
Moelleux
Ágætis hvítvín frá Loire
héraðinu í Frakklandi, búið
til úr Chenin Blanc þrúg-
um. Eitt helsta einkenni
ungra Chenin Blanc vína
er hve súr þau eru. Með
aldrinum mildast sýran og
vinin sýna á sér margvís-
legar hliðar. Það er því ráð-
legt að geyma þetta vín og
leyfa því að þroskast, en
árgangurinn er 1988. Clos
du Bourg fæst í vínbúðinni
í Mjóddinni og kostar ríf-
lega 2000 krónur.
hn á tónleikum í Hallgríms-
kirkju á föstudagskvöld kl. 20
með Mótettukór Hallgrímskirkju
og Sinfóníuhljómsveit íslands.
Styrktarfélag íslensku óperunn-
ar og Steinar hf. standa fyrir tón-
leikum Sigrúnar Eðvaldsdótt-
ur fiðluleikara og Selmu Guð-
mundsdóttur pianóleikara í ís-
lensku óperunni á laugardag kl.
14.30.
Barnakóratónleikar eru i Hall-
grimskirkju á sunnudag kl. 17 i
tengslum við Kirkjulistahátíð.
INSPIRAL CARPETS,
THE BEAST INSIDE. Þó
ekkert virðist vera að
gerast i nýrri tónlist, ef
marka má útvarpsstöðv-
arnar, er það ekki raunin.
Carpets er bresk hljóm-
sveit sem sló í gegn í
fyrra meö fyrstu plötu
sinni, Life. Gamaldags
popp, melódískt, grípandi
og gott. Fær 4 af 5.
Kogga sýnir keramik í tískulit-
unum í Gallerí Nýhöfn.
Sólveig Eggertsdóttir er með
lágmyndir úr járni, gleri og vaxi
í Galleri 11.
Nýlistasafninu er samsýning
Svisslendinganna Anuil og
Christoph Rutimann.
Yfirlitssýningu á verkum Yoko
Ono og Fluxus sýningunni á
Kjarvalsstöðum fer senn að
ljúka. Næstsiðasta sýningar-
helgi.
HUSRAÐ
Geturðu gefið mér upp eina
eða tvær aðferðir sem gagn-
ast hvenær sem er til að
vinna tíma til að finna góðar
afsakanir? Eg lendi alltof oft
í því að vera tekin í bólinu
þegar fólk hringir í mig og
býður mér eitthvað eða bið-
ur mig um greiða. Ég á mjög
erfitt með að finna afsakanir
á staðnum en vantar ekki
nema smátíma til að finna
Ég hugsa að: „Bíddu augna-
blik, ég þarf að borga
stráknum sem er að rukka
fyrir Moggann" eða „Ertu til
í að hinkra aðeins á meðan
ég geng frá Kirby-ryksug-
unni minni" gangi. Það ætti
að taka lengri tíma að gera
annað hvort heldur en það
tekur að finna upp breytileg-
ar afsakanir. Þó þú notir
þessar tvær afsakanir oft
kemur það ekki að sök. Fólk
er rukkað fyrir Moggann
einu sinni í mánuði og fjöldi
fólks hefur orðið að hálf-
gerðum Kirby-maníökum.
VIÐ MÆLUM MEÐ____________
Verðstríðum
á veitingahúsum, í matvöru-
verslunum og hvar sem er
meðaiyxjð neytendur græð-
m á þeim.
Að fólk noti sitt eigið ímynd-
unarafl
alla vega að það nauðgi ekki
■myndunarafli annarra eins
og þeir á Skaganum sem
kalla staðinn sinn Þrír vinir
og einn í baði.
Að einhver taki sig til og fari
að selja regnhlífar á götum
úti
alla vega þegar það rignir.
Að veitingahús fari að taka
ábyrgð á fötum í fatahengj-
^eða skaffi snaga við matar-
borðin ella.
Að það verði gott veður í
svo enginn þurfi að kaupa
sér regnhlíf.
Þetta er liklega sumarleyfis-
bókin í ár. Þeir sem geta ekki
beðið með aö lesa um slæmt
innræti Reagan-hjónanna
verða annað hvort að taka
sumarleyfið snemma eða
lesa bókina strax og finna
sér aðra til að lesa í leyfinu.
BÍÓIN________________
I LJOTUM LEIK State of Grace HÁSKÓLABÍÓI
Fantagóður leikur og óhugnanlega raunsæ lýsing á ömurlegum krimma-heimi. Enginn
helvitis Guðföður-glamúr.
EYMD Misery BÍÓHÖLLINNI
Katy Bates er óhugnanlegasta kona þessa árs. Árið þarfekki að liða til að fullyrða það.
THE DOORS STJÖRNUBÍÓI
Álíka þreytandi og drykkjuferill ungs og efnilegs manns sem drekkur og dópar sig i hel.
CYRANO DE BERGERAC REGNBOGANUM
Sérlega skemmtileg saga, fantagóður leikur og hin ágætasta kvikmynd.