Pressan - 23.05.1991, Page 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 23. MAÍ 1991
25
c
^■asablanca, Moulin Rouge (þar
sem nýja söngstirnið Páll Hjálm-
týsson kemur fram í drottningar-
líki), Gullið og Bíó-
barinn á horni
Hverfisgötu og
Klapparstígs (þar
sem Dóra Einars
stýrir áfengis-
skömmturum) eru
meðal þeirra staða
þar sem samkynhneigðir geta
vænst þess að hitta félaga sína.
Þetta kemur fram í lista sem birtur
er í Raporten, blaði samkyn-
hneigðra karla í Skandinavíu. Vitn-
að er í sama blað á blaðsíðu 18 í
PRESSUNNI í dag, þar sem segir frá
túlkun Þorvaldar Kristinssonar
talsmanns Samtakanna 78 á niður-
stöðum alþingiskosninganna .. .
I Raporten segir einnig að sam-
kynhneigðir í Reykjavík komi sam-
an einu sinni í mánuði og skilyrði
fyrir inngöngu sé að fólk sé klætt í
leður uppúr og niðrúr. Þessar sam-
komur munu fara fram vítt og breitt
um bæinn og þykja hinar hressileg-
ustu. Hópurinn sem stendur fyrir
þessum skemmtunum er meðlimur
í alþjóðlegum samtökum samkyn-
hneigðra og á síðustu árum hafa
jafnan komið nokkrir gestir frá út-
löndum til að taka þátt í árshátíðum
hópsins og er skemmtunin þá gjarn-
an haldin fyrir utan borgina. . .
„f«í;vAiruiar hafa til
dllllll Ulllgui ........o- -
ekki verið fyrirferðarmiklir í hótel-
rekstri. Eina hótelið, sem hægt er að
kalla þar í bæ, er
Gistiheimilið Berg
sem Einar Bolla-
son rekur. 1 tengsl-
um við verslunar-
kjarna sem fyrirhug-
að er að byggja í
hjarta Hafnar-
fjarðar hafa nú komið upp hug-
myndir um að reisa hótel. Tveir hóp-
ar munu hafa sýnt málinu áhuga og
eru umsóknir þeirra til alvarlegrar
skoðunar hjá bæjaryfirvöldum.
Önnur umsóknin er frá Einari
Boilasyni og Ómari Benedikts-
syni sem starfað hefur að ferðamál-
um um árabil í Þýskalandi og víðar.
Fyrir hinum hópnum fer Páll Páls-
son heildsali, en með honum eru
meðal annarra tvær fyrrum íþrótta-
hetjur úr Hafnarfirði, þeir Viðar
Halidórsson og Þórarinn Ragn-
árum að eiga
eftirminnilegt sumarleyfi
á Spáni ásamt syni sínum. Sum-
arleyfið varð þó fyrir aðrar sakir eft-
irminnilegt en Sif hafði ætlað: „Ég
vildi ekkert til spara í ferðinni og
valdi því fjögurrastjörnu hótel E1 Pa-
riso, en kostir þess voru rómaðir í lit-
skrúðugum bæklingi frá ferðaskrif-
stofunni sem ég ákvað að versla við
þ.e. Samvinnuferðum-Landsýn. í
bæklingnum var hinsvegar ekki
ljósmynd af hótelinu heldur teikn-
ing. Starfsfólkið á ferðaskrifstofunni
ítrekaði einnig ágæti hótelsins og ég
festi kaup á ferðinni hjá ferðaskrif-
stofunni og borgaði hluta kostnað-
arins út í hönd en tók afganginn á
skuldabréfi. Þegar út var komið brá
mér heldur í brún því að tæpast var
búið að byggja hótelið. Það var eng-
inn sími á hótelinu hvorki í gesta-
móttöku né heldur á herbergjum.
Sú sameiginlega aðstaða sem sögð
var í bækiingnúTu'"vttf2' íyHr hendi
var tæpast fokheld og ekki var flóar-
friður allan daginn fyrir bygginga-
framkvæmdum. Gestir á hótelinu
gátu ekki notað lyftuna því að hún
var lengst af full af verkamönnum
sem voru að flytja grjót, sand og möl
til nota við vinnuna. Þetta kom sér
ekki verst fyrir mig og son minn
heldur var í þessari ferö eldra fólk
og aðrir sem komið höfðu sér til af-
slöppunar og heilsubótar.
Það segir sig sjál ft að ég ásetti mér
að leita réttar míns þegar heim væri
komið þó að ég hefði ekki hátt um
það í sjálfri ferðinni til að spilla ekki
gleðinni fyrir syni mínum. Þar tók
ekki betra við því eigandi ferðaskrif-
stofunnar var bæði dónalegur og
svo óforskammaður að látast ekki
vita um vankanta hótelsins þó svo
að hann hefði bæði móttekið kvart-
anir frá gestum í ferðinni á undan
mér og komiðþangað sjálfur til að
skoða hótelið. Eg fékk því hvorki af-
sökunarbeiðni frá honum né heldur
bætur sem ég
. taldi mig eiga rétt á. Eftir
mikiö þóf þar sem ég hafði
þurft að greiða dýran lögfræði-
kostnað fékk ég því loksins fram-
gengt að skuldábréfið féll niður.
Þetta er auglýsingaskrumið í
hnotskurn og ég held að það sé
maðkur í mysunni hjá fleiri ferða-
skrifstofum því fyrir ári síðan þurfti
ég að fara í viðskiptaferð til Hol-
lands og valdi það að láta ferðaskrif-
stofuna Veröld skipuleggja hana fyr-
ir mig. Það vildi ekki betur til en svo
að fyrir einhvern furðulegan mis-
gáning hjá ferðaskrifstofunni lent-
um við á hálfgerðu melluhóteli þar
sem stóðu tvö járnrúm á gólfinu og
segldúkur þakti gluggana. Ég fékk
afsökunarbeiðni hjá ferðaskrifstof-
unni og ákvað að láta þar við sitja
enda gat ég ekki annað en hlegið.
Ég vil þó taka það fram að ég hef
verið búsett erlendis og geri mér
fulla grein fyrir að þessi vinnubrögð
ferðaskrifstofanna kallast ekki þjón-
usta."
Þóra Kristin Ásgeirsdóttir
r og bjórinn enn betri en heima
efstu tölunni á buxunum. En
Guddmúnd fær að sigla sinn sjó
líkt og margir á undan honum
hafa reynt og Spánverjinn bragðar
saltið á tungunni og fötin liggja í
hrúgu á jörðinni og morguninn
eftir verða margir til að troða með
berum löppunum furðulega blöðru
niður í gulan sandinn.
Smám saman fá allir á sig gul-
brúnan sólarlit eins og í augiýs-
ingabæklingunum heima og allir
skrifa póstkort heim þar sem
stendur: Hér er sól og hiti, ofsa-
legt fjör og bjórinn er ennþá betri
en heima. ,,Eg hló svo mikið að
ég meig í mig," hneggjar stórvax-
inn kvenmaður um leið og her-
bergisdyrnar opnast af syfjulegum
karli og vinkona hennar flissar of-
an í glasið sem hún fékk á barn-
um niðri. Þar sitja íslendingarnir
fram á rauða nótt, séu þeir ekki á
nærliggjandi diskótekum. Tveir
luralegir karlmenn kallast á yfir
bakið á pervisinni konu sem græt-
ur innilega ofan í kokkteilglas.
Þeir eru að ræða um útflutriing á
lambakéti; öðru hverju gera þeir
þó hlé á viðræðunum og annar
þeirra hvessir augum á konuna og
segir hátt og snjallt: Já, er ekki
gaman. Sýndu manninum hvað þú
skemmtir þér vel. Þér var nær að
suða um þessi ósköp í allan vetur.
Seint og um síðir hækkar konan
sig úr hljóðum gráti og fer að orga
og eiginmaðurinn sér sitt óvænna
og dröslar henni upp að stólnum;
ja, mikið asskoti skemmtirðu þér
vel. Barþjónninn reynir að hressa
upp á stemmninguna og nær í
mynd ofan í skúffu. Hann brosir
uppörvandi og bendir með sieiki-
fingri. Á myndinni blasir við
nauðasköllótt höfuð á íslenskum
fararstjóra sem hefur löngu áður
bætt úr þessum nískupúkahætti
náttúrunnar. Og það er eins og
við manninn mælt; íslendingurinn
sleppir konu sinni sem hrynur nið-
ur á stólinn með ekkasogum og
mennirnir tveir taka bakföll af
hlátri.
Áfram er drukkið, dansað, eytt
og spennt enda lýkur lífinu við
heimkomuna. Viðar sem er
tveggja barna faðir horfir gráðug-
um augum á stelpurnar á strönd-
inni og segir við Gulla vin sinn:
Heldurðu að það sé munur lamba-
kjötið eða hitt. Hann skotrar síðan
augum á konu sína sem tekur
áskoruninni og segir engilblítt: Er
ég þá bara gömul kind. „Lömb fá
ekki barn í belg," grípur Gulli
spekingslega fram í. „Nema bónd-
inn sé pervers," bætir kona hans
við og ropar.
í flugvélinni á leiðinni heim
panta allir sér bjór, Moggann og
þegar líða tekur á flugið syngja
tveir sjómenn Kátir voru karlar.
Það er lent á Keflavíkurflugvelli í
rigningu og heima bíða reikningar
og grámóskulegir vinnustaðir þar
til næsta .. .
arsson . . .
að eru sviptingar í veitinga-
rekstrinum í Reykjavík. Nú heyrist
að Koibeinn Kristinson og þeir
Myllubræður séu á leiðinni út úr
Hressingarskálanum eftir að hafa
rekið þar kaffihús í tæpt ár. Rekstur
kaffihúss í svo stóru húsnæði, þótt í
hjarta borgarinnar sé, er sagður
skila ákaflega litlu vegna hárrar
húsaleigu. Áður en Myllan hóf rekst-
ur á Hressó var þar vínveitingastað-
ur, en forsvarsmenn KFUM, sem er
eigandi hússins, litu slíkt hornauga
og sóttust eftir að fá aðila sem gæti
rekið stað undir öðrum formerkj-
um. Það varð úr, en árangurinn ekki
sem skyldi. Líklega verður KFUM
því að hverfa frá áfengisstefnu sinni,
ellegar lækka leiguna verulega, en
hún er sögð vera á bilinu 600—700
þúsund krónur á mánuði. . .