Pressan - 30.05.1991, Page 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. MAÍ 1991
Frægðarsól íslenskra
fyrirsæta erlendis er síð-
ur en svo að hníga til við-
ar. IMú er enn ein að
leggja í víking en það er
BIRNA RÚN GÍSLADÓTTIR
hjá íslenskum fyrirsæt-
um sem leggur fljótlega
af stað til Hamborgar í
Þýskalandi. Þar mun hún
starfa hjá umboðsskrif-
stofu í sumar. Þetta er
fyrsta verkefni hennar
erlendis.
Þessir tveir náungar eru
leiknir af tveim af okkar
efnilegustu leikurum —
þeim VALDIMAR ERNI
FLYGENRING og ÞRESTI
LEÓ GUNNARSSYNI.
Veröur án efa forvitni-
legt að sjá útkomuna úr
þessari mynd sem á aö
frumsýna í haust.
Einn þeirra sem fengu |i
úthlutað úr kvikmynda-
sjóði var SIGURBJÓRN II
AÐALSTEINSSON, ungur
og hugmyndarikur leik-
stjóri sem meðal annars
gerði stuttmyndina
Hundur hundur. Hann er :
nú kominn á fullt í undir-
búningi fyrir um það bil II
hálfrar klukkustundar ||
langa mynd sem hann ||
ætlar að gera fyrir haust-
ið. Myndin fjallar um tvo
náunga sem finna tund-
urdufl.
Eruð þið hvort sem er
ekki vön því að sletta úr
koppunum á túnin, Siv?
,,Þó Nesið sé bœdi lítið og
lágt látum við ekki hvað
sem er yfir okkur ganga.“
Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi á
Seltjarnarnesi, hefur látið gera bók-
un í bæjarstjórn Seltjarnarness þar
sem kemur fram ótti við að Seltirn-
ingar fái skolpið úr skolpræsum
Reykvikinga yfir sig.
LÍTILRÆÐI
af viðskiptakjarabatanum
Bretar tala um veðrið, dan-
ir um mat, svíar um sósíal-
próblem, spánverjar fót-
bolta, en fransmenn um ból-
farir.
Þegar íslendingar afturá-
móti hittast á förnum vegi
hefjast samræður jafnan á
vangaveltum um saltið i
grautinn, afkomuna, fjár-
haginn og aukavinnuna.
— Og er eitthvað uppúr
þessu að hafa, ég meina . . .
geturðu lifað á þessu?
— Þetta reddast ef konan
heldur skúringunum.
— Hefur þú ennþá nóga
aukavinnu?
— Maður reynir svona aö
ná endum saman, en það er
nú svona einsog gengur
konan hefur ekkert unnið í
meira en ár. Er bara heima
yfir krökkunum og heldur
áfram að fjölga þeim.
— Meira klúðrið maður.
— Þetta reddast þegar hún
getur farið að vinna aftur.
En nú eru tímamót, hag-
sveifla uppávið og ástæðu-
laust að ræða þaö framar
hvort menn eigi til hnífs og
skeiðar.
Brauöstrit verður ekki
framar til umræðu.
Eftir mánaðamótin mun fá-
tækt heyra sögunni til.
Um þessi mánaðamót fá
semsagt íslenskir launþegar
hlutdeild í sjálfum ,,við-
skiptakjarabatanum".
Hvorki meira né minna
en 6.300 krónur hver laun-
þegi til eignar og ráðstöfun-
ar eftir að búið er að draga
frá upphæðinni orlof, skatta
og launatengd gjöld.
Svo mikil er ofrausn
vinnuveitenda og hins opin-
bera að meira að segja lífeyr-
isþegar eiga að fá umtals-
verðar fjárhæðir til eignar
og ráðstöfunar, þó það verði
nú að vísu engar 6.300 krón-
ur og síst eftir að gamlingj-
arnir eru búnir að fara í or-
lofsferðir til sólarlanda fyrir
upphæðina og borga af
henni skatta og skyldur.
Já allir, allt frá þeim hæstu
niðurí hina lægstu munu fá
þessa veglegu úrlausn sem
mun að verulegu leyti losa
launþega í landinu undan
skuldaviðjum og basli.
Meira að segja iðnnemar
eiga að fá 4.400 krónur með
orlofi og að frádregnum
sköttum.
Og hvernig stendur á þess-
ari ofrausn?
Það útskýrir Þórarinn Þór-
arinsson fulltrúi vinnuveit-
enda með kristaltærum rök-
um i Morgunblaðinu i hinni
vikunni:
— Við ' teljum okkur
vera að styrkja félagsleg-
ar forsendur framleng-
ingar samninganna án
þess að veikja veruiega
efnahagslegar forsendur.
Hörður Harðarson er verslunar-
stjóri í tískubúðinni Tangó í Kringl-
unni. Vinnan er líka áhugamál hans,
svo og konan og bíllinn.
Hvað gerir þú á sunnudögum? Sef út
og spila fótbolta.
Með hvaða framhaldsþætti fylgist þú
í sjónvarpinu? Ég horfi á Simpson fjöl-
skylduna og annað slagið á Dallas með
konunni.
Hvað borðar þú í morgunmat? Eg fæ
mér kaffi og væna brauðsneið.
Hvenær fórstu síðast í kirkju? Þegar
systir mín var fermd í mars.
Finnst þér gott að láta klóra þér á bak-
inu? Finnst mér gott? Já!
Ertu í Ijósum? Annað slagið.
Gætirðu hugsaö þér að reykja hass?
Nei, ég held ekki.
Á hvaða skemmtistað ferðu? Aðallega
Casablanca.
Hvernig snyrtivörur notarðu? Rak-
spíra, raksápu og þess háttar frá Karli
Lagerfeld.
Hugsarðu mikið um í hverju þú ert? Já
og nei. Það fer eftir því hvaða dagur er.
Hefuröu átt heima úti á landi?
Já, í Hafnarfirði.
Ferðu oft í megrun? Aldrei hingað
til.
í hvaða íþróttum varstu þegai
þú varst lítill? Handbolta,
fótbolta og hestaíþróttum.
Finnast þér íslendingasögurnar
skemmtilegar? Gísli súri er
seigur. Það er gaman að honum.
Synguröu í baði? Já, hástöfum.
Við hvað ertu hræddastur? Að
lenda í árekstri.
Ætlaröu að gifta þig? Já, ég
held það hljóti að koma að því.
En eignast börn? Já, þrjú.
Tvær stelpur og einn strák.
Ferðu einn í bíó? Mér hefur oft
dottið það í hug, en aldrei gert það
Notarðu strætó? Ég fór einu
sinni í strætó í vetur þegar bíllinn
bilaði.
Kanntu að elda? Ég kann að sjóða
kartöflur og búa til kjötbúðing.
Finnst þér soðin ýsa góð? Já,
með mikilli pítusósu og
kakómalti.
Hvert er þitt mottó í lífinu?
Reyna að standa mig.
MICHIKO KOSHINO ER KOMIN
Michiko Koshino, japanski fatahönnuðurinn, er komin til landsins. Tilefnið er
stórbrotin sýning á hönnun hennar á skemmtistaðnum Yfir strikið á föstudags-
og laugardagskvöld.
Michiko Koshino hóf að hanna föt til að eiga til hnifs og skeiðar. Það hefur sann-
arlega skilað sér, þvfnú eru föt úr hennar smiðju til sölu í250 verslunum um heim
allan og hefur hún nú 500 starfsmenn á sinum snærum.
Þetta verður meiriháttar sjó á Yfir strikinu, þar sem fram koma 26 glæsileg mód-
el og sýna læf það sem öll glanstimarit i heiminum hafa verið að reyna að koma
til skila á undanförnum mánuðum. Og vert er að taka fram að í hópi módelanna
er Svava Haraldsdóttir, nýkrýnd fegurðardrottning íslands.
Raddaða rabbbandið
,,Það kom einhverntíma
upp sá misskilningur að við
hélum Rabbbandið," segja
félagarnir fjórir í
söngkvartettinum
Raddbandinu, og
það kemur blaða-
manni ekki á
óvart. Þeir tala
hver upp í annan
og upplýsingar
lenda allar í
einum hrœrigraut
í blokkinni. Engu
að síður þá
er Raddbandið
kvartett sem gert
hefur mikla lukku
í einkasamkvœmum
í bœnum síðustu
misserin, svo það líð-
ur varla sú vika að
hann sé ekki
einhverstaðar að syngja.
Og frumraun þeirra á
opinberum veitingastað
í síðustu viku féll í
góðan jarðveg. Vin-
sœldirnar geta þeir
áreiðanlega að
hluta þakkað sér-
stöðu sinni. En
þeir syngja gamla
slagara án alls
undirleiks, í
útsetningu
fœrustu manna,
svo sem Jóns
Ólafssonar
og Óla
Gauks.
Upphafið að þessu öllu nær
fjögur ár aftur í tímann. Til
áranna í Versló, en þá tróðu
þrír þeirra upp í skólanum
undir nafninu Bananabandið.
Það voru Páll Asgeir Davíðs-
son, Hafsteinn Hafsteinsson
og Árni Jón Eggertsson, en
fljótlega keyptu þeir Sigurð
G. Sigurðsson inn í hópinn og
úr varð Raddbandið. Á þeim
tíma sem liðinn er hefur
metnaðurinn tekið völdin í
hópnum. Ekki aðeins hvað
varðar góðan söng, heldur
leggja þeir mikið upp úr léttri
og skemmtilegri sviðsfram-
komu. ,,Við reynum að hafa
ákveðinn karakter í hverju
lagi. Notum litlar hreyfingar
og svipbrigði sem þó segja
mikið og verða áberandi þeg-
ar við gerum þær allir," segja
þeir. Það virkar, því þeir segj-
ast ekki þurfa að vera með
nema eitt prógram í gangi
fyrir alla aldurshópa. Yngstu
áheyrendurnir voru 10 ára
börn í Vatnaskógi i fyrrasum-
ar. Þeir elstu eru á elliheimil-
unum.
Söngskólanum hefur tekist
að laða tvo þeirra til sín, þá
Pál Ásgeir og Árna. Sá fyrr-
nefndi er reyndar líka í djass-
ballett og samkvæmisdöns-
um auk þess að afgreiða
áfengi. Sá síðarnefndi fær
borgað fyrir að vera með
áróður fyrir ákveðna bjórteg-
und. Á meðan beitir Sigurður
sér fyrir annarskonar lífsvið-
horfum í æskulýðsstarfi með
kirkjunni. Hafsteinn lætur
sér nægja að vera á námslán-
um. Saman eiga þeir eitt
áhugamál: Raddbandið (það
er félagsskapurinn sem held-
ur því saman). Eða var það
Rabbbandið? (Með þremur
bé-um eins og Fræbbblarnir).
En í Litlubervíkum „aðila
vinnumarkaðarins" virðist
skilningurinn orðinn ofar
hverri kröfu og ofrausn hins
opinbera og annarra vinnu-
veitenda fær á sig þessa
skáldlegu mynd:
— Þar sem hagspekin
Flosi Ólafsson
Þegar svo skáldlega er
tekið til orða og þjóðin fær
hlutdeild í viðskiptakjara-
batanum i leiðinni, kemur
manni í hugann skáldið
Ólafur Kárason Ljósvíking-
ur:
— Þar sem jökulinn
ber við loft hættir landið
að vera jarðneskt, en
jörðin fær hlutdeild í
himninum.
Og í hlaðvarpanum í Litlu-
bervík virðir skáldið fyrir
sér þennan merkilega fund
lands og lofts þar sem him-
inn og jörð hafa loks skilið
hvort annað til fulls.
rís hæst hættir skynsem-
in að vera jarðnesk og
fólkið fær hlutdeild í við-
skiptakjarabatanum.